Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 4
KARTÖFLUBÆNDUR í Þykkva-
bænum standa nú í ströngu á
nóttunni við að taka upp kart-
öflur svo að hægt sé að senda
þær glænýjar til Reykjavíkur á
morgnana. Fyrsta sending kom í
verslanir í gærmorgun.
Birkir Ármannsson á Brekku
hefst handa um miðnætti til þess
að geta sent nýuppteknar kart-
öflur til borgarinnar klukkan sex
á morgnana, og verður sá háttur
hafður á næstu vikurnar. „Það
verða nýjar kartöflur á hverjum
degi þangað til í september þeg-
ar þær fara í hús,“ segir Birkir.
Friðrik Ármann Guðmundsson,
verslunarstjóri í Melabúðinni,
segir að mikil tilhlökkun hafi
verið þar að fá nýjar kartöflur í
hús. „Þetta var að detta inn um
dyrnar og það er allt brjálað
hérna frammi núna,“ segir Frið-
rik. Hann segir að vinsælasti
rétturinn næstu daga í Vestur-
bænum verði nýr villtur lax og
nýuppteknar kartöflur.
Úlfar Eysteinsson á Þremur
Frökkum bar fram fyrstu nýju
kartöflurnar í hádeginu í gær.
Meðal gesta var Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra.
Hún gaf uppskerunni fyrstu ein-
kunn. „Þetta eru mjög góðar
kartöflur, bragðgóðar og fersk-
ar. Það er aðalmálið að fá þær
Morgunblaðið/ÞÖK
Með salti og ísköldu smjöri
Ferskar Þórunn Sveinbjarnardóttir bragðaði á glænýjum kartöflum.
Rjúkandi Þorsteinn Bjarnason, formaður Sambands garðyrkjubænda, og Úlfar Eysteinsson veitingamaður nældu
sér í kartöflur beint úr pottinum. Fyrstu nýju kartöflurnar komu í verslanir og veitingahús í gær.
Fyrstu kartöflur sumarsins komnar í hús
beint upp úr moldinni og á disk-
inn, það getur ekki verið betra.“
Úlfar sagðist sjálfur hafa beðið
spenntur. „Nýsoðnar kartöflur
með ísköldu smjöri, það finnst
mér sælgæti.“ Hann segir að salt-
ið geri gæfumuninn þegar nýjar
kartöflur eru soðnar. „Það er
komin svo mikil saltfóbía í þjóð-
ina. En það er lykillinn að þessu
öllu saman.“
4 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÆSTU vikur
verða þær anna-
sömustu í ís-
lenskri ferðaþjón-
ustu frá upphafi.
Búist er við um 40
þúsund erlendum
gestum á næstu
tveimur vikum
sem skila fjórum
milljörðum króna
í þjóðarbúið í
gjaldeyristekjum. Á sama tíma fer í
hönd mesti sumarleyfistími Íslend-
inga. Að sögn Magnúsar Oddssonar
ferðamálastjóra er erfitt að henda
reiður á hversu margir Íslendingar
verða í fríi á þessum tíma en hann
segir þá vera á mikilli hreyfingu; t.d.
sækir verulegur fjöldi bæjarhátíðir
auk þess sem allir sumarbústaðir í
landinu eru meira og minna nýttir, en
þeir eru um 15 þúsund.
Magnús segir erlendu ferðamenn-
ina fyrst og fremst koma frá fjórum
svæðum: Bandaríkjunum, Bretlandi,
Mið-Evrópu og Norðurlöndunum, en
Bretland hefur verið í hvað mestum
vexti það sem af er árinu. Aðspurður
segir Magnús mikla breytingu hafa
orðið á ferðalögum útlendinga innan-
lands. „Erlendu gestirnir eru farnir í
vaxandi mæli að ferðast eins og við
Íslendingar. Það er gífurlega mikil
aukning í notkun bílaleigubíla.
Ferðalag erlendu gestanna á eigin
vegum eykst mjög mikið og með
stórbættu vegakerfi og samgöngum
dreifast þessir gestir miklu meira um
landið en fyrir 15-20 árum.“
Að sama skapi segir hann útlend-
inga ferðast frekar hingað til lands á
eigin vegum í staðinn fyrir að bóka
ferðir gegnum ferðaskrifstofur. „Það
er sama breytingin og með okkur
sjálf. Menn kaupa orðið sína farseðla,
gistingu og bílaleigubíl á Netinu. Það
má segja að það sé að verða ferða-
skrifstofa heima í hverju eldhúsi.“
Land og náttúra í fyrsta sæti
Magnús segir vitað að meðaltekjur
af hverjum erlendum gesti séu um
100 þúsund kr. og því hægt að reikna
út að þjóðarbúið hagnist um fjóra
milljarða. „Þetta er kannski í lægri
kantinum því við erum á háannatím-
anum þegar verðlag er kannski
hærra en venjulega. Þetta eru alla-
vega fjórir milljarðar.“ Með innlenda
hlutanum er um að ræða viðskipti
fyrir um sex milljarða þessar tvær
vikur.
Ferðamálastofa gerir viðhorfs-
kannanir reglulega meðal ferða-
mannanna. „Það er alveg ljóst að í
fyrsta sæti er landið sjálft, það er
ekki flóknara en það. Það er landið og
náttúran sem slá í gegn og eru efst í
minningunni. Það sem er ánægjulegt
líka er að menn tala um viðmót og
gestrisni þjóðarinnar. Það er geysi-
lega mikilvægt þegar verið er að
byggja upp svona atvinnuveg að það
sé fyrir hendi jákvætt viðmót þjóð-
arinnar gagnvart þessum gestum. Ef
það væri ekki byggðum við þetta
ekki upp til lengdar.“ Aðspurður seg-
ir Magnús um 20% gestanna hafa
komið hingað til lands áður og það
hlutfall fer hækkandi. „Hlutur þeirra
fer vaxandi. Það sýnir að þeir eru
ánægðir með það sem þeir eru að fá.“
Annasamasti
ferðatími
frá upphafi
Erlendir ferðamenn næstu tvær vikur
skila fjórum milljörðum í þjóðarbúið
Í HNOTSKURN
»Innlendir og erlendir ferða-menn munu eiga viðskipti
fyrir um sex milljarða næstu
tvær vikur.
»Samkvæmt viðhorfskönn-unum meðal erlendra ferða-
manna eru landið og náttúran
efst í minningunni.
»20% ferðamannanna hafakomið til Íslands áður.
Magnús Oddsson
Morgunblaðið/Ómar
Á ferðalagi Búist er við 40 þúsund
erlendum ferðamönnum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
TYRKNESK stjórnvöld tjalda öllu
til í baráttu sinni fyrir því að ná kjöri
til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna starfsárin 2009-2010. Nú síðast
var að ljúka þriggja daga ráðstefnu
sem fulltrúum fimmtíu vanþróaðra
ríkja var boðið til í Istanbúl og var vel
gert við þá. Tuttugu og átta þessara
ríkja sendu skv. heimildum Morg-
unblaðsins ráðherra eða aðstoð-
arráðherra til fundarins sem gaf
tyrkneskum ráðamönnum færi á að
reyna að laða viðkomandi ríki að
stuðningi við framboð Tyrklands.
Frá ráðstefnu þessari var sagt í dag-
blaðinu Turkish Daily News. Morg-
unblaðið hefur áður greint frá því að
Tyrkir spari minnst til í keppninni
um annað tveggja sætanna í örygg-
isráðinu sem losna í janúar 2009, en
þeir etja þar kappi við Íslendinga og
Austurríki hafi stuðning 27 aðild-
arríkja ESB en Tyrkir hafi þar dá-
góðan stuðning einnig og treysti síð-
an á stuðning íslamskra ríkja. Yinanç
bendir á að ríki geri gjarnan samning
um gagnkvæman stuðning og nefnir
sem dæmi að Tyrkir hafi heitið því að
styðja við framboð Kasakstans til
formennsku í ÖSE árið 2009 styðji
Kasakar Tyrki í kosningunni til ör-
yggisráðsins. Íslendingar hafa gert
svipaða samninga en hér á landi líta
menn hins vegar svo á að ótaktískt sé
að ræða opinberlega stuðning ein-
stakra ríkja. Lengi vel hafa íslenskir
embættismenn ekki einu sinni viljað
upplýsa, hversu mörg loforð Ísland
hefði um stuðning. Á fundi í utanrík-
isráðuneytinu í vor kom þó fram að
loforðin væru ríflega 100 og fleiri ríki
eru talin líkleg til að leggja okkur lið.
Tyrkir munu telja sig hafa 128 trygg
atkvæði í húsi, en það er um það bil sá
fjöldi sem þarf til að ná kjöri í fyrstu
umferð.
um. Í utanríkisráðherratíð Davíðs
Oddssonar 2004-2005 kom upp um-
ræða um það hvort rétt væri að
hætta við framboð til öryggisráðsins.
Geir H. Haarde ákvað að við mynd-
um halda okkar striki þegar hann
kom í ráðuneytið á haustdögum 2005
en Tyrkir og Austurríkismenn munu
þó lengi eftir það hafa haldið því að
viðmælendum sínum, er þeir leituðu
eftir stuðningi, að framboð Íslands
væri í vafa. Ýmsum brögðum er því
beitt í þessum slag. Hefur Morg-
unblaðið heimildir fyrir því að það
hafi m.a. verið á dagskrá Svavars
Gestssonar, sendiherra í Tyrklandi,
með aðsetur í Danmörku, að leiðrétta
umræddan „misskilning“ er hann af-
henti trúnaðarbréf sitt í Ankara í júní
2006.
Barçin Yinanç rekur í grein sinni
að Ísland fái stuðning Norður-
landanna sem þrýsti á lítil og miðl-
ungsstór ríki um stuðning og þar hafi
þau ágætt fylgi. Yinanç segir að
Austurríkismenn. Austurríki er hins
vegar sem fyrr afar lítið áberandi og
eiga menn þá skýringu eina, að þeir
telji sig nokkuð örugga um kosningu
þegar á hólminn er komið. Austur-
rískir embættismenn hafa þó sagt, að
þeim sé ljóst að varasamt geti verið
að virðast of sigurviss í baráttu sem
þessari, þar sem slegist er um at-
kvæði 192 aðildarríkja Sameinuðu
þjóðanna, stórra sem smárra.
Í grein blaðakonunnar Barçin Yin-
anç í Turkish Daily News kemur
fram að sendiherrar Tyrkja hafi
ferðast til endimarka veraldar til að
vinna fylgi við framboð Tyrklands.
Lögð sé áhersla á staðsetningu lands-
ins á mörkum austurs og vesturs,
Tyrkland sé brúin milli austrænna og
vestrænna menningarheima.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
vilja ekki gera of mikið með þær stað-
hæfingar sem fram koma í grein Yin-
anc að Íslendingar reki lestina í bar-
áttunni. Tyrkir séu sigurvissir en
slíkt kunni að koma í bakið á þeim. Þá
er frægt dæmið af Grikkjum sem um
árið voru í baráttu um sæti í örygg-
isráðinu, buðu fastafulltrúum allra
aðildarríkja SÞ í siglingu um Eyjahaf
(ekki allir þáðu) en töpuðu samt. Ís-
lensk stjórnvöld ákváðu fyrir margt
löngu síðan, að barátta vegna fram-
boðs okkar yrði háð á hófstilltum nót-
Ekkert til sparað í baráttu Tyrkja
Reuters
Við Bosporus Það er ekki amalegt
að vera boðið á ráðstefnu í Istanbúl.
Keppni Íslendinga, Austurríkismanna og Tyrkja um sæti í öryggisráði SÞ tekin að harðna
„Kartöflurnar í aðalhlutverki“
VEFVARP mbl.is
Það er mikilvægt að velja saman
kartöflur af svipaðri stærð svo
að suðan verði sem jöfnust.
Þegar suðan er komin upp á að
salta vatnið vel og láta svo kart-
öflurnar sjóða í um tólf mínútur.
Þegar kartöflurnar eru tilbúnar
þarf að taka vatnið af þeim strax,
annars verða þær vatnsósa. Síð-
an er bara að bera þær fram með
köldu smjöri og njóta vel.
Nýjar soðnar kart-
öflur að hætti Úlfars