Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 16

Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ ÍÞRÓTTARÁÐ Akureyrar ákvað á fundi sínum sl. þriðjudag að hafna viðræðum við Kaupþing á Akureyri varðandi mögulega samvinnu vegna nýs kreditkorts, Kortsins, fyrir ungt fólk. Ráðið taldi sig ekki geta orðið við erindinu, þar sem slíkt verkefni með einstöku fyrirtæki myndi fela í sér mismunun gagnvart gestum sund- laugarinnar. Fyrir vikið eru líkur á að handhafar kreditkortsins muni ekki fá frítt í Sundlaug Akureyrar, eins og áður hefur verið auglýst. Byggt á misskilningi Sigurður Harðarson, útibússtjóri Kaupþings á Akureyri, hafði enn ekki fengið neitt um málið frá íþróttaráðinu þegar Morgunblaðið náði af honum tali. Hann beið hins vegar eftir bréfi íþróttaráðs, svo hægt væri að rökræða um niður- stöðu ráðsins. Hann sagðist hins vegar ekki skilja afgreiðsluna og taldi hana byggða á misskilningi. Auk þess benti hann á að nýlegt for- dæmi væri fyrir því að fyrirtæki hefði boðið öllum frítt í sund í einn dag. Hann sagði jafnframt að hand- hafar Kortsins fengju líklega ekki frítt í sund vegna niðurstöðu ráðsins. Ólafur Jónsson, formaður íþrótta- ráðs, sagði það einfaldlega ekki vera stefnu ráðsins að gera samninga við einstök fyrirtæki. Hann tók einnig fram að ráðið hefði ákveðið það sam- hljóða að hafna viðræðum við Kaup- þing um málið. Aftur á móti væri það á dagskrá hjá íþróttaráði að í fram- tíðinni yrði gjaldfrjálst fyrir börn og unglinga í sundlaugina. Ekki frítt í sund fyrir handhafa Kortsins? Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Handhafar Kortsins á Akureyri munu líklega ekki fá frítt í sund. AKUREYRI Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is MÓR, rúmlega þriggja ára gömul hljómsveit með rætur á Akureyri, heldur útgáfutónleika í kvöld. Á boð- stólum verða þjóðlög í þeim búningi sem Mór hefur getið sér gott orð fyr- ir; búningi sem liggur einhvers stað- ar á mörkum rokktónlistar og djass- tónlistar. Hljómsveitin virðist gjaldgeng á hvoru sviðinu sem er, því á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði var Mór kynnt sem rokksveit en á AIM sem djassband. Hvort skyldi sannara reynast? „Við erum ekki njörvuð við eina tónlistarstefnu,“ segir Kristján Edelstein gítarleikari. „Rokk, djass og jafnvel smá ambient ægir öllu saman og við förum vítt og breitt. Við leikum okkur með formið, en það er ekki réttnefni að kalla okkur djasssveit. Þá er verið að fella okkur um of að ákveðinni stefnu. Fyrsta lagið á diskinum er til dæmis frekar rokkað.“ Gefa út til að geta haldið áfram Tónlist Mós verður þannig líklega ekki felld að einni tiltekinni stefnu, en lögin eiga það engu að síður sam- eiginlegt að vandað hefur verið til við að breyta forminu. Flest laganna, sí- gildar perlur á borð við Stóðum tvö í túni og Móðir mín í kví, kví, eru end- urhljómsett og endurútsett. „Við vildum útsetja efnið upp á nýtt, setja lögin í öðruvísi búning, án þess að segja að hefðbundnar útsetningar séu eitthvað slæmar. Við vildum bara fá ferska nálgun á efnið,“ segir Kristján og bætir við: „Við byrjuðum þannig að Þórhild- ur Örvarsdóttir söngkona kom að máli við mig og langaði að setja sam- an tónlistarhóp og vinna við þjóð- lagatónlist. Við fengum Stefán Ing- ólfsson bassaleikara og Halldór Gunnlaug Hauksson á trommum til liðs við okkur. Og þetta small frá fyrstu viku. Svo höfum við smám saman bætt við lögum. Eftir þrjú ár var svo loks kominn tími á nýja plötu. Okkur fannst kom- inn tími til að senda frá okkur efni til að geta haldið áfram. Við höfum spil- að víða með efnið en diskurinn hafði legið í dvala þar til núna.“ Það er Polarfonia ehf. sem gefur diskinn út, en hún hefur einnig gefið út Guitar Islancio og Þorstein Gauta Sigurðsson. Tónlistarmaðurinn Orri Harðarson vann með Mó við gerð plötunnar, tók upp og hljóðblandaði. Kristján reiknar þó ekki með að hljómsveitin geri víðreist til að fylgja plötunni eftir, allavega ekki til að byrja með: „Við munum hins vegar fylgja henni eftir í haust. Þá tökum við meiri törn og höldum áfram kynningunni sem við vonum að komi til með að skila sér.“ Tónleikarnir verða á Græna hatt- inum í kvöld og húsið verður opnað kl. 21. Nýi diskurinn fylgir aðgangs- eyrinum sem er 2.000 kr. Nálgast þjóðlögin á ferskan hátt Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sígildar perlur Þórhildur Örvarsdóttir syngur ýmis þekkt þjóðlög á ný- stárlegan hátt með hljómsveitinni Mó í kvöld á Græna hattinum. Hljómsveitin Mór gefur í kvöld út frumraunina Hafnarstræti 97, 600 Akureyri, sími 462 3505. Opið mánud. - föstud. kl 10-18 laugard. 10-16 ÚTSALAN HEFST Í DAG Christa TALSMENN íbúa Njálsgötu fund- uðu um fyrirhugað heimili fyrir heimilislausa karlmenn á Njálsgötu 76, með borgarráði í gær. Íbúar höfðu sent öllum borgarfulltrúum og borgarráðsmönnum erindi með ósk um að fá svör við 12 spurningum sem íbúum lá á hjarta varðandi af- greiðslu málsins. Umkvörtunarefni íbúa eru helst þau að illa hafi verið staðið að undirbúningi málsins, þá sérstaklega vegna skorts á samráði við íbúa sem telja staðsetningu heimilisins vanhugsaða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri tekur undir það sjónarmið íbúa að ekki hafi verið komið nægi- lega til móts við þá framan af skipu- lagsferlinu. „Ég skal fúslega viður- kenna að það hefði mátt standa að upphafskynningu með betri hætti en gert var, en síðan fór málið í mikið kynningarferli og ég er þeirrar skoð- unar að það hafi verið með ágætum hætti. Þannig að það er búið að skýra þetta eins ítarlega og kostur er.“ Vilhjálmur segir að þetta hafi ekki verið neinn æsingafundur, held- ur hafi málin verið rædd á rólegum nótum. Fundurinn ákveðin vonbrigði Annar talsmanna íbúa, Kristinn Örn Jóhannesson, segir að fundur- inn hafi gefið bæði íbúum og borg- inni færi á að greina betur frá sínum sjónarmiðum, en eiginleg niðurstaða hafi ekki fengist. „Það tilboð var lagt fram að fulltrúi íbúa sæti í stjórn heimilisins, en við náðum ekki að sannfæra borgarstjórn um að þetta væri röng ákvörðun, sem eru í sjálfu sér vonbrigði.“ Kristinn er ekki alls sáttur við loforð borgarstjóra um að fylgst verði með starfseminni og brugðist við ef íbúar verði fyrir óþægindum. „Það vantar nánari skil- greiningar á hvað telst góður rekst- ur og hvað slæmur,“ segir Kristinn. „Það hefur engan veginn verið skýrt fyrir okkur hvað nákvæmlega þurfi til að gripið verði í taumana.“ Íbúar hafi áhyggjur af ástandinu í mið- bænum og sumir séu þegar hræddir við að fara út að kvöldi til. Íbúar muni nú ræða næsta skref. „Okkur þykir eðlilegt að leyfa borgarráði að taka sína ákvörðun, en það liggja fyrir tvö andstæð lögfræðiálit um hvort það sé rétt að þessu staðið skipulagslega og við munum skoða það með okkar lögfræðingum og íhuga möguleika á málaferlum.“ Vil- hjálmur segir að vel verði fylgst með starfsemi heimilisins, en hann sé sannfærður um það að reksturinn verði til fyrirmyndar. „Hafi ég rangt fyrir mér og verði sýnt fram á að heimilið skapi áhættu fyrir íbúa þá munum við ekki halda þessu áfram,“ segir Vilhjálmur. Það sé ekki stefna borgarinnar að halda úti starfsemi sem valdi usla í hverfum borgarinn- ar, enda hafi hann ekki trú á að til þess komi. „Ég skora á íbúa að gefa þessu tækifæri og sýna þolinmæði.“ Engin sátt á fundi borgarráðs og íbúa um Njálsgötuheimilið Morgunblaðið/ÞÖK Skoðanaskipti Stella Kristín Víðisdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson funduðu í einn og hálfan tíma við Kristin Örn Jóhannesson og Eddu Ólafsdóttur. Borgarráð tekur endan- lega ákvörðun í dag um stofnun athvarfs fyrir heimilislausa á Njálsgötu 74. Íbúar gerðu í gær lokatilraun til að snúa áætlunum velferðarráðs en uppskáru ekki árang- ur erfiðis síns. Í HNOTSKURN »Að meðaltali eru 40-60karlmenn heimilislausir í Reykjavík og brýn þörf er á úrræðum fyrir þá, að mati vel- ferðarráðs. »Áætlað er að átta karl-menn búi á heimilinu við Njálsgötu hverju sinni, en upphaflega var ráðgert að þeir yrðu tíu. » Íbúar hafa áhyggjur af aðhverfinu verði breytt í „fé- lagslegt gettó“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.