Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 20
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Eftirspurn eftir umhverfis-vænni bílum eykst sífelltþar sem margir telja bílavera einn helsta söku- dólginn í auknum útblæstri koldíox- íðs CO2. Daglegt líf skoðaði hvað væri í boði fyrir þá sem láta sig þessi mál varða svo hægt sé að auðvelda valið þegar næsti bíll er valinn. Margar mismunandi leiðir eru færar, allt frá kolefnisjöfnun á venjulegum fólksbílum til tvinnbíla og því getur verið torsótt að finna út hvað hentar hverjum og einum. Meginreglurnar Það sem oftast er skoðað í út- blæstri bíla er CO2 gildið. Því spar- neytnari sem bílarnir eru, því færri grömm af CO2 fara út í andrúms- loftið fyrir hvern ekinn kílómetra. Einnig mætti skoða níturoxíð, NOX í útblæstri bílsins en tölur yfir það eru yfirleitt ekki aðgengilegar hjá bílaframleiðendum. Önnur meginregla með útblástur er sú að því yngri sem bíllinn er því minna mengar hann. Bíll sem t.d. er ekki útbúin hvarfakút mengar um 20 sinnum meira en nýr bíll með sama búnaði. Annað sem þarf að hafa í huga er hverjar framleiðsluaðferðirnar eru. Bílaframleiðendur eru misumhverf- isvænir og þótt meginorkunotkun í heildar lífsferli bíls stafi af elds- neytisþörf hans þá stafar mesta mengunin af framleiðslu bílsins. Það má því segja að helsta orku- notkun heildarlíftíma bíls falli á notkunartíma bílsins en helsta mengunin falli á framleiðslutíma bílsins. Kolefnisjöfnun Bílaumboðið Hekla hefur auglýst að umboðið muni kolefnisjafna alla selda Volkswagen bíla en kolefn- isjöfnun virðist vera mikið í tísku núna, ekki er langt síðan SAS flug- félagið bauð viðskiptavinum sínum kolefnisjöfnun. Hekla hóf þann 16. maí að kolefnisjafna alla selda Volkswagenbíla í eitt ár og er þetta gert með því að gróð- ursetja tré í Hekluskógum fyrir um 10 milljónir á ári. Hekla hefur reyndar tekið þetta skrefi lengra og kolefn- isjafnað alla starfsemi sína í leiðinni. Bílarnir menga þó áfram þó þeir séu kolefnisjafnaðir og því er ekki hægt að segja að bílarnir sem slíkir séu „grænir“. Það verður þó að líta til þess að ein besta leiðin til að draga úr kol- efnisútblæstri farartækja er hrein- lega að eiga sparneytin bíl eða bíl sem er útbúin háþróaðri vél. Sparneytnustu bílarnir oft góðir Þumalputtareglan er eins og áður sagði sú að því sparneytnari sem bíllinn er því umhverfismildari er hann. Við yfirfærslu á þungaskatt- inum yfir í eldsneytið hófu umboð landsins stóraukinn innflutning á dísilbílum og hefur því úrvalið af sparneytnum bílum aukist verulega. Dísilbílar eru þó þeim galla haldnir að útblástur nítursdíoxíðs er meiri frá dísilvélum en bensínvélum. Það er því ekki endilega sjálfsagt að dís- ilbíll með lægra CO2 gildi en bens- ínbíll mengi minna. Auk þess þarf að hafa í huga þær framleiðsluaðferðir sem eru notaðar af bílaframleiðendum því þeir hafa mismunandi gott orðspor þegar kemur að umhverfismálum. Eins má ekki gleyma því að á einhverjum tímapunkti þarf að farga bílnum og þá skiptir líka máli að hve mikl- um hluta bíllinn er end- urvinnanlegur. Bílstjórinn hefur mikið að segja Allir sem láta sig um- hverfið varða ættu eftir fremsta megni að gæta þess að haga akstri sín- um þannig að orkan nýt- ist sem best. Þannig mætti forðast það að taka harkalega af stað og fara of hratt þannig að í sífellu þurfi að hemla. Eins ætti að forðast að láta vélina snúast óþarflega mikið og gæta að hraða því meiri hraði þýðir meiri eyðsla. Fleiri atriði þarf að hafa í huga eins og t.d. að hafa réttan loftþrýst- ing í dekkjum. Það er því margs að gæta ef ætl- unin er að draga úr útblæstri frá heimilisbílnum en þó er engin ástæða til annars en að hafa öll þessi atriði í huga þegar velja skal næsta bíl. Þegar allt kemur til alls snýst umhverfisvernd um sparnað og því mun munurinn finnast í pyngjunni ef réttur bíll er valinn – og auðvitað í hreinni samvisku. Vistvænni bílar en ekki „grænir“ TENGLAR ..................................................... www.euroncap.com www.orkusetur.is Morgunblaðið/Ómar Minni CO2 útblástur Nýi forsetabíllinn er Lex- us tvinnbíll. Hér til hliðar sést svo einn hinna svo nefndu Smart Car bíla sem lítill CO2 út- blástur er frá. Þeir hafa verið vinsælir í Evrópu en minna ber á þeim þeim hér á landi. Mengun Aukin umferð hefur veruleg áhrif á loftgæði og ein besta leiðin til að sporna við þeirri þróun er að velja sér bíl sem mengar minna. Magn CO2 útblásturs bílanna er sá mengunarþáttur sem flestir spá í. Bílaframleiðendur eru mis- umhverfisvænir og þótt megin- orkunotkun í heildar lífsferli bíls stafi af eldsneytisþörf hans þá stafar mesta mengunin af fram- leiðslu bílsins. neytendur 20 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ  Hekla VW Touran TDI 1,9 hefur CO2 gildið 162 g/km sem er nokkuð gott fyrir 7 manna bíl. Touran kostar 3.110.000. krónur. Hjá Heklu þarf einnig að hafa í huga að margar undirgerðir VW eru knúnar af sömu vélum og VW bílar og því eru CO2 gildin mjög svipuð hvort sem um er að ræða Skoda, VW eða Audi. Hjá Heklu ætti helst að skoða TDI-dísilvél- arnar, TSI og FSI-bensínvélarnar, nýju met- anbílana og sparneytnu BlueMotion bílana sem eru væntanlegir til Heklu fljótlega.  Bernhard ehf. Hjá Peugeot umboðinu er boðið upp á Peugeot 407 1.6 HDI S 110 og er sá bíll með 145 g/km og er bíllinn seldur á 2.470.000 krónur. Peugeot umboðið er á höndum Bernhard ehf. en þar mun innan tíðar fást, einn vistvænsti bíll sem væntanlegur er á markað á næstunni, Honda Civic 1.3 IMA Executive, sem hefur mjög lága CO2 tölu, 116 g/km. Verðið er ekki vit- að sem stendur, en um er að ræða sk. tvinnbíl og því er útblásturinn engin er rafmótorinn er í notkun, t.d. í mestum hluta aksturs innanbæjar.  Brimborg Hjá Brimborg eru nokkrir Ford bílar sem eru mildir hvað CO2 útblástur varðar og má þar helst nefna Fiesta og Fusion með dísilvélum en þar er útblásturinn aðeins 116 g/km en í stærri bílum má nefna Ford C-Max sem mun verða fá- anlegur í haust með 1,8 lítra dísilvél en sá mun hafa CO2 gildið 143 g/km. Fiesta dísil kostar 1.810.000 krónur en Fusion kostar 70 þúsund til viðbótar. Ekki er komið endanlegt verð á C-Max.  Ingvar Helgason Hjá Ingvari Helgasyni verður kynntur til sög- unnar í haust mjög sparneytinn bíll Opel Corsa 1.3 CDTI 16V en sá hefur CO2 gildið 122 g/km en ekki er komið verð á hann. Umboðið getur einnig útvegað Saab BioPower bíla en þar er notað lífrænt ræktað ethanol en það er hins veg- ar ekki auðvelt að nálgast það á Íslandi og því ekki líklegt að Saab BioPower eigi eftir að selj- ast mikið á næstunni.  Toyota Þekktasti umhverfisvænsti bíll landsins er svo líklega Toyota Prius en hann hefur fengist á Ís- landi um langt skeið og er líklega með þekkt- ustu tvinnbílum sem eru framleiddir í heiminum í dag. Prius hefur CO2 gildið 104 g/km sem er sér- staklega gott. Einnig hafa bílarnir reynst frekar vel enda margverðlaunaðir bílar. Prius er seld- ur á 2.699.000 krónur. Aygo er einnig mildur hvað CO2 varðar með gildið 109 g/km og sama má segja með Yaris sem hefur gildi frá 125 til 141 g/km.  Askja Hjá Öskju fást meðal annars A 160 CDI sem er einn sá sparneytnasti frá Mercedes Benz. Bílar frá þessum virta framleiðanda eru jafnan út- búnir háþróuðum vélum og því nokkuð mildir hvað útblástur varðar þegar afl og útbúnaður bílanna er haft í huga. A 160 CDI hefur CO2 gildið 128-139 g/km og kostar 2.490.000 krónur.  Kia Hjá Kia má nefna Cee’d en bíllinn með 1,6 lítra CRDi dísilvél er útblástur bílsins 125 g/km og kostar 2.345.000 krónur. Eins mætti skoða Kia Picanto 1,0 dísil en sá hefur CO2 gildið 113 g/km og kostar 1.560.000.  B&L Hjá B&L eru það helst Clio bílarnir sem eru hvað sparneytnastir en einnig Megane, þá í báð- um tilfellum dísilbílar með 1,5 lítra dCi vélar. CO2 gildið fyrir þessa bílar er annars vegar 117 g/km og hins vegar 120 g/km. Það er einnig þess virði að minnast á BMW 520d en það er mjög rúmgóður og vel búin bíll með 177 hestafla vél en samt er CO2 gildið ekki nema 136 g/km.  Lexus Forseti Íslands hefur nýlega fengið afhentan nýjan Lexus tvinnbíl og hefur Lexus lagt nokk- uð mikla áherslu á þessa bíla og eru þeir gott dæmi um að stórir og dýrir bílar þurfa ekki að vera sérlega slæmir hvað útblástur varðar. RX 400h, GS 450h og LS 600h eru allt tvinnbílar út- búnir bensínvélum og rafmagnsmótorum. Sem dæmi má taka RX 400h en þar er CO2 gildið 192 g/km og kostar hann frá 6.350.000 krónum.  Fiat Hjá Fiat er það helst nýr Fiat Grande Punto sem gæti hentað fyrir þá sem vilja bíl sem skilar litlum útblæstri. Um er að ræða dísil bílinn, með 1,3 lítra vél, 75 hestafla JTD vél, en CO2 gildið á þeim bíl er aðeins 119 g/km og verður það að teljast nokkuð gott þar sem bíllinn er nokkuð rúmgóður. 1,3 lítra JDT útgáfan af Fiat Panda er líka lágur í CO2 gildinu með 114 g/km en þar munar samt heldur litlu á milli Panda og stærri bílsins. Hvað er í boði hjá bílaumboðunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.