Morgunblaðið - 12.07.2007, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sólarmegin í lífinu á Laugavegi
ÞAR sem ég var á gangi um hábjart-
an dag í Austurstræti í þeirri ein-
muna veðurblíðu sem ríkt hefur í
höfuðborginni að undanförnu velti ég
því fyrir mér hvort skipuleggjendur
deiliskipulags og aðalskipulags, og
hvað þetta skipulagsfargan heitir nú
allt saman, færu aldrei gangandi um
lífæð borgarinnar í góðu veðri. Allar
hugmyndir um há hús og háhýsi
sunnanmegin við Laugaveg hafa
þann stóra annmarka að þau skyggja
götur og gangstéttir. Dæmi nú hver
fyrir sig. Auðvelt er að sannreyna
muninn á því að ganga um götur þar
sem sólin kemst niður á jörð (t.d. á
Laugavegi norðanmegin á velflest-
um stöðum) og þar sem slíkt er því
miður ekki fyrir hendi (í Austur-
stræti frá og með nýlega brunnum
húsum). Ég hvet ykkur, skipuleggj-
endur og fulltrúa þeirra, til að ganga
niður Laugaveg sólarmegin, þar sem
í dag verða á vegi manns stólar og
borð á breiðum gangstéttum þar sem
fólk situr og nýtur drykkjar og mat-
ar í veðurblíðu. Afslappað andrúms-
loft er ríkjandi víðast hvar þar sem
sólar nýtur en um leið og komið er í
skugga hárra húsa, til dæmis í
Austurstræti, er slík gangstéttar-
menning fyrir bí. Í eftirmiðdaginn,
þegar sólin er hæst á lofti, eru breið-
ar gangstéttir og gatan sjálf í
skugga. Enda er þar ekkert mannlíf
og engin sól sem vermir. Það er
nefnilega þannig hér á landi, að ef
sólinni sleppir er vindurinn ekki heit-
ur. Megum við Reykvíkingar og íbú-
ar þessa lands, þar sem mætti flokka
hlýja sólardaga sem augnabliksverð-
mæti, fá ögn meiri skilning á afstæði
verðmætamats og hreinni peninga-
hugsun? Að hugsun um meiri nýtni á
hvern fermetra fari á aðra staði.
Leyfið hófsemi í slíkum hugsunum
ykkar að ríkja þegar þið ákvarðið
hæð nýbygginga og nýtni á hvern
fermetra. Sýnið þroska og fyrir-
hyggju til að mannlegi þátturinn í lífi
götunnar fái notið sín á svæðum sem
teljast til miðkjarna hverrar byggð-
ar.
Ein vel vakandi.
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA, skreytt með byssu-
kúlu, með einum grænum lykli á
fannst fyrir utan Útgáfufélagið
Heim, Borgartúni 23, 9. júlí sl. Upp-
lýsingar í síma 661 8057.
Dúnvesti týndist
SVART dúnvesti með loðhettu tap-
aðist í heilsugæslustöð Seltjarnar-
ness í maí eða júní. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma 869 2580
eða með tölvupósti: bjarna@gmail.-
com. Fundarlaunum heitið.
Páfagauksungi í Frostafold
HVÍTUR og blár páfagauksungi
fannst í Frostafold í gær 11. júlí.
Upplýsingar í síma 698-4742.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VARIÐ YKKUR! HÉRNA
KEMUR GRETTIR!
ÉG VARAÐI
YKKUR VIÐ
ROP!
SNIFF
HÓST!
HVAÐ?
HVAÐ ER
SVONA GOTT
VIÐ AÐ FARA
Á BÓKASAFN?
VEISTU HVAÐ ÞETTA BÓKA-
SAFNSKORT ÞÝÐIR? ÞAÐ
HEIÐRAR LÖNGUN MÍNA
Í VISKU MEÐ TRAUSTI SÍNU!
Á MÓTI SÝNI ÉG SAFNINU
STUÐNING MINN MEÐ
ÞVÍ AÐ LESA BÆKUR
ERTU BÚINN AÐ GERA
SÁTTMÁLA VIÐ BÓKASAFN?
ÉG ÆTLA AÐ BERJA ÞIG Í
LEIKFIMI Á EFTIR, RÆKJA!
NJÓTTU ÞESS Á MEÐAN ÞÚ
GETUR, ÞVÍ ÞEGAR ÞÚ ERT
ORÐINN STÓR ÞÁ GETUR ÞÚ
EKKI BARA BARIÐ FÓLK AÐ
ÁSTÆÐULAUSU!
ÞAÐ
ER RÉTT
HJÁ ÞÉR!
ÞETTA VAR EKKI ALVEG
ÞAÐ SEM ÉG ÁTTI VIÐ
ÞETTA GENGUR EKKI HRÓLFUR!
ÞEIR HAFA VERIÐ AÐ SAFNA SKOTFÆRUM
FRÁ ÞVÍ AÐ ÞAÐ BYRJAÐI AÐ SNJÓA!
VIÐ ÆTTUM KANNSKI AÐ BÍÐA
ÞANGAÐ TIL ÞAÐ HLÝNAR
ÉG ÓLST
UPP VIÐ
KJARNORKUVER
ADDA, VIÐ FÁUM EKKI
OFT SVONA STÓLA Í
ÞÁTTINN. LEYFÐU MÉR AÐ
SEGJA ÞÉR FRÁ HONUM
HANN ER BÚINN TIL ÚR
EIK, AUK ÞESS SEM HANN
ER PRESSAÐUR SAMAN EN
EKKI NEGLDUR
ÉG GÆTI BEST
TRÚAÐ ÞVÍ AÐ HANN HAFI
VERIÐ BÚINN TIL Á
ÁTJÁNDU ÖLD
SEGÐU MÉR BARA HVERS
VIRÐI HANN ER!
HVA... HA?
!
KÓNGULÓARMAÐURINN OG ÞESSI
BARDAGAMAÐUR NÁÐU OKKUR
ÞETTA
ER EKKI
SANNGJARNT!
EKKI LANGT UNDAN...
LÍF MITT HEFUR BREYST... BARA VEGNA
ÞESS AÐ ÉG FANN ÞENNAN BÚNING
OG ÞETTA
ER BARA
UPPHAFIÐ
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
UNNIÐ var að viðgerðum skips á Reykjavíkurhöfn. Vinnumaðurinn er eins
og peð við hlið því heljarfleyi sem togarinn er.
Morgunblaðið/Frikki
Slippurinn
FRÉTTIR
TÍVOLÍIÐ við Smáralind var opnað
um síðastliðna helgi. Er þetta í sex-
tánda skiptið sem tívolíið heimsæk-
ir Ísland og hefur aðsókn ævinlega
verið mjög mikil, segir í frétt frá
Smáralind.
Þar segir að í ár hafi fjögur ný
tívolítæki bæst við flóruna. Miða-
verð í tívolíið hefur haldist það
sama frá upphafi – miðinn kostar
100 krónur – en misjafnt er hversu
marga miða þarf í hvert tæki.
Tívolíið verður við Smáralind til 12.
ágúst og er opið sunnudaga til
fimmtudaga kl. 13-22.30, og föstu-
daga og laugardaga kl. 13-23.
Tívolíið við Smáralind
opnað í sextánda skipti