Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 40

Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 40
Ekki fer mikið fyrir raunsæi en til þess var leikurinn ekki gerður… 45 » reykjavíkreykjavík Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞEIR sem voru tíðir gestir á Mús- íktilraunum árin ’89 – ’91 muna efa- lítið eftir Trössunum frá Eiðaskóla. Trassar kepptu þrisvar sinnum og þrátt fyrir að hafa ekki náð fyrsta sætinu fór sveitin ávallt í úrslit og á síðustu tilraununum hafnaði hún í öðru sæti (á eftir Infusoria/ Sororicide). Tónlist sveitarinnar, einskonar „thrash“-rokk, átti þá eft- ir að reynast mjög áhrifaríkt á heimaslóðum sveitarinnar og í mörg ár á eftir sóttu lærisveinar hennar að austan í Tilraunirnar og léku „trassarokk“ eins og það var nefnt. Sló í gegnum bassatrommu Á Tilraununum 1990 náði trym- bill Trassana þeim stórgóða árangri að slá í gegnum bassatrommuna. Þetta átti sér stað við enda lagsins „Fields of Darkness“ og í hönd fóru gríðarlegar tafir. Ein af sérgreinum Trassanna um þetta leyti voru lang- ar epískar þungarokksballöður (a la „Orion“ eða „The Call of Ktulu“ með Metallica) og sú staðreynd, ásamt því að á þessum tíma spilaði hver sveit fjögur lög, varð til þess að margir voru farnir að iða í sæt- um. „Þess var farið á leit við okkur hvort við gætum ekki stytt lögin,“ rifjar Rúnar Þór Þórarinsson gít- arleikari upp og glottir. „Það kom fát á mannskapinn en ég sagði að við myndum spila öll lögin, og það óstytt. Menn þyrftu að taka raf- magnið af ef við ættum að hætta.“ Lagafjöldi flytjenda á Músíktil- raunum hefur verið minnkaður hin síðustu ár og er kominn niður í tvö lög. Hvort að Trassar hafi valdið þeim breytingum verður hins vegar ósagt látið. „Snatans Færilús“ „Þetta voru pílagrímsferðirnar suður,“ heldur Rúnar Þór Þór- arinsson áfram. „Einu sinni á ári var haldið á Músíktilraunir og nýtt efni og áherslur sett undir mæli- ker.“ Eftir Tilraunirnar ’91 stóð svo til að setja saman breiðskífu og á tímabili áttu lög með Trössunum að fara inn á safnplötuna Apocalypse sem Skífan gaf út 1992. Upptökur gengu þó ekki sem skyldi og sveitin lagði upp laupana rétt fyrir áramót 1991. Kjarni Trassanna, Rúnar og Björn Þór Jóhannsson gítarleikari, héldu þó ætíð sambandi og gengu með þann draum í maganum að Trassarnir myndu upp rísa fyrr en seinna. Það gerðist svo loks í janúar 2005 og mjög svo langþráð breið- skífa, Amen, kom út í síðasta mán- uði undir merkjum Geimsteins. „Trassar er ekkert voðalegt rang- nefni, þannig séð, segir Rúnar og hlær. „En þegar við förum í gang þá er það gert með trukki.“ Hann lýsir því að Björn eða Bjössi, sem var valinn gítarleikari Músíktil- rauna árið 1990, hafi leikið með tug- um sveita síðan að Trassarnir hættu og hann hefur sinnt ýmsu, er bókmenntafræðingur að mennt en vinnur nú við leikjahönnun hjá CCP. „Þegar ég og Bjössi hittumst svo loks aftur í þeim tilgangi að ræsa Trassana á ný var eins og tíminn hefði staðið í stað. Gamli aulahúm- orinn á fullu svingi og það gekk vel að rifja upp þessi gömlu lög. Svo vel reyndar að við fórum ósjálfrátt að semja ný. Upprunalega hugmyndin var sú að taka þetta upp, aðallega fyrir okkur sjálfa, börn og barna- börn en neistinn var tendraður það hressilega að það var ákveðið að setja saman band og halda eitthvað áfram fram yfir þessa plötu.“ Amen samanstendur þannig af gömlu efni og nýju og á plötunni má t.d. finna lagið „Snatans Færilús“ sem var frumflutt á Músíktilraunum sem „Natans Færilús“. Textinn dregur þá sem telja þungarokk andsetið verkfæri djöfulsins sundur og sam- an í háði, en textarnir eru eftir Rúnar. Þess má geta að hann gaf út ljóðabókina Enn einn dagurinn árið 2005 og nýtist hún með ágætum vel í textagerðinni. Fleiri plötur Rúnar segir að nú hafi slatti af lögum safnast upp og látið verði af öllum „trassaskap“ næstu misseri. Hugmyndin er að rusla næstu plötu út í haust og Trassar munu leika á tónleikum í sumar til að fylgja Amen eftir. Ítarlegri upplýsingar um sögu sveitarinnar, plötugerðina og fleira má þá nálgast á neð- angreindum vefsvæðum. TRASSAROKKIÐ LOKS Á PLÖTU AUSTFIRSKU ÞUNGAROKKARARNIR Í TRÖSS- UNUM GEFA ÚT SÍNA FYRSTU PLÖTU - TUTT- UGU ÁRUM EFTIR STOFNUN - OG STEFNA AÐ ÞVÍ AÐ RUSLA NÆSTU PLÖTU ÚT Í HAUST Morgunblaðið/Sverrir -WWW.TRASSAR.COM -MYS- PACE.COM/TRASSAR Trassar Hljómsveitin keppti þrisvar sinnum í Músíktilraunum á sínum tíma og þrátt fyrir að hafa ekki náð fyrsta sætinu fór sveitin ávallt í úrslit og á síðustu tilraununum hafnaði hún í öðru sæti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.