Morgunblaðið - 15.08.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 9
FRÉTTIR
SAMTÖK hernaðarandstæðinga
stóðu í gær fyrir mótmælum gegn
yfirstandandi hernaðaræfingum á
Íslandi. Rúmlega hundrað mótmæl-
endur söfnuðust saman við norska
sendiráðið í Reykjavík og héldu
þaðan að sendiráðum Bandaríkj-
anna og Danmerkur og námu loks
staðar við Stjórnarráðið. Sendiráð-
unum voru afhent leikföng en að
sögn Stefáns Pálssonar, formanns
samtakanna, var það gert til að
„undirstrika fáránleikann í því sem
okkur finnst vera byssuleikir full-
orðinna drengja“.
Spurður hvort ekki sé nauðsyn-
legt að halda æfingar skyldi eitt-
hvað koma upp á síðar segir Stefán
það fara eftir því hvað um sé að
ræða. „Ef menn eru að vísa í
hryðjuverkaógn þá tel ég okkur
geta lært af undangenginni reynslu
að þeir sem eru herlausir og varn-
arlitlir eru ekki í mestri hættu
gagnvart hryðjuverkum.“
Stefán segir skoðun samtakanna
vera þá að alltaf sé farsælla að nota
þær borgaralegu stofnanir sem
finnist hér á landi. „Við erum með
almannavarnir, landhelgisgæslu og
lögreglu og við eigum að efla þess-
ar stofnanir en ekki að nota pen-
ingana í að þjálfa upp erlenda dáta
sem er með höppum og glöppum
hvort séu lausir eða eigi heim-
angengt ef eitthvað kemur upp á.“
Morgunblaðið/Júlíus
Hernaðaræfingum mótmælt
ERLEND klámsíða sem birtir eink-
um myndir af ungum drengjum hef-
ur vísað notendum sínum á myndir
sem vistaðar eru á vefnum barna-
land.is.
Varað var við þessari síðu á spjall-
svæði Barnalands og foreldrar og
aðrir umsjónarmenn heimasíðna
barna hvattir til að læsa myndasíð-
um sínum. Erlenda síðan er í gesta-
bókarformi og geta lesendur hennar
sett inn færslur þar sem þeir vísa í
myndir af ungum drengjum, sem
helst eru á aldrinum 2-9 ára, eins og
fram kemur á síðunni.
Vísað hafði verið í myndir á fjór-
tán mismunandi barnasíðum og var
vísað á sumar síður oftar en einu
sinni. Í gærkvöldi var búið að læsa
albúmum allra síðnanna.
Fólk læsi myndasíðunum
Ingi Gauti Ragnarsson, einn
ábyrgðarmanna Barnalands, segir
að notendur síðunnar hafi alltaf ver-
ið hvattir til þess að læsa annaðhvort
síðum barna sinna eða bara mynda-
albúmunum, en þeir möguleikar hafi
alltaf verið til staðar. „Þegar myndir
eru settar inn á vef eru þær opnar
öllum þannig að það er því miður
alltaf hætta á að þetta gerist.“
Klámsíða
vísar á
Barnaland
Barnaland Fyrst var bent á tengl-
ana á spjallvef Barnalands.
Virðing
Réttlæti
Þeir sem fá greidd laun skv. kjarasamningi VR
og SA eiga rétt á orlofsuppbót að upphæð
17.400 kr. miðað við fullt starf, annars miðað
við starfstíma og starfshlutfall á orlofsárinu.
Orlofsuppbótina á að greiða við upphaf
orlofstöku og í síðasta lagi 15. ágúst.
Nánar á www.vr.is
Hefurðu fengið orlofsuppbótina greidda?
Gleðilegt sumar!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Nýjar
vörur frá
og
Stærðir 42-56
Kjólar, leggings,
dragtir, skyrtur,
bolir og peysur
ZIZZI
www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Sölusýning í dag frá kl 17:30-19:00
Hólmvað 2-4 - sérhæðir með bílskúr
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Heimili fasteignasala kynnir til sölu stórar 4ra herbergja 155-168
fm sérhæðir í þriggja hæða fjölbýlishúsi með lyftu. Allar hæðirn-
ar eru með sérinngangi og öllum íbúðum fylgir frístandandi 25 fm
bílskúr. Sérgarður og svalir með neðri hæð og stórar svalir með
efri hæðunum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með flísalögðu bað-
herbergi og þvottahús en annars án gólfefna. Vönduð tæki og
innréttingar. Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð tyrfð og bíla-
stæði malbikuð. Vönduð tæki og innréttingar. Verð frá 37-40,0 m.
Sölumenn verða á byggingarstað
og taka á móti áhugasömum.
Verið velkomin!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
FALLEGIR
FRAKKAR
ÚTSÖLUVERÐ