Morgunblaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 15
MENNING
FÍLHARMÓNÍUSVEIT Liverpool
ætlar að halda tónleika í beinni út-
sendingu í netheiminum Second
Life. Í Second
Life getur fólk
skapað sér per-
sónu eftir eigin
smekk og lifað lífi
hennar að eigin
geðþótta, keypt
sér íbúð og bíl,
farið á bíó og tón-
leika og þannig
mætti áfram
telja.
Þann 14. september verður hægt
að fara á sinfóníutónleika í netheim-
inum, sem finna má á www.second-
life.com. Tónleikagestir munu þá
sitja í tónleikahöll og horfa á beina
útsendingu frá tónleikunum. Í hléi
geta menn skroppið á barinn og
fengið sér rauðvínsglas, en líklega
munu þeir ekki njóta bragðsins. Eft-
ir tónleika er svo hægt að spyrja
hljómsveitarstjórann Vasily Pet-
renko spjörunum úr, þ.e.a.s. net-
útgáfu af Petrenko.
Sveitin mun leika verk eftir Ravel
og Rachmaninoff en einnig verk eft-
ir Kenneth Hesketh and John
McCabe. Hundrað miðar á tón-
leikana standa til boða þeim átta
milljónum manna sem taka þátt í Se-
cond Life. Netheimurinn var stofn-
settur árið 2003.
Tónleikar í
netheimum
Second Life-búi
SÝNING á völdum verkum úr
safni hjónanna Þorvaldar Guð-
mundssonar og Ingibjargar
Guðmundsdóttur verður opnuð
í Gerðarsafni á föstudaginn, 17.
ágúst. Þar verða verk helstu
meistara íslenskrar myndlistar
á 20. öld, m.a. Jóhannesar S.
Kjarval, Þórarins B. Þorláks-
sonar, Jóns Stefánssonar, Lo-
uisu Matthíasdóttur, Gerðar
Helgadóttur. Þá er á sýning-
unni leyndardómsfullt skúlptúrverk eftir Kjarval,
máluð brennivínsflaska. Sýningin stendur til 16.
september og opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 11 til 17.
Myndlist
Gamlir meistarar
í Gerðarsafni
Jóhannes Sveins-
son Kjarval
Í SUMAR hafa menningar-
stofnanir Reykjavíkurborgar
staðið fyrir tíu göngum um
miðborgina undir yfirskriftinni
„Kvöldgöngur úr Kvosinni“, og
það þriðja árið í röð. Nú er
komið að síðustu göngunni í ár,
en hún verður rölt fimmtudag-
inn 16. ágúst klukkan 20. Á
þessari Kvosargöngu verður
sjónum beint að ýmsum dyrum
miðborgarinnar og skyggnst
inn fyrir sumar þeirra. Síðusta ganga sumarsins
er jafnan óvissuganga svo á huldu er hvert farið
verður. Gangan leggur af stað úr Grófinni klukk-
an 20, og tekur um það bil klukkustund.
Saga
Óvæntum dyrum
lokið upp
Hvaða hurð er
þetta?
Í OKTÓBER kemur frumraun
Hishams Matars, Í landi karl-
manna, út hjá JPV í þýðingu
Ísaks Harðarsonar. Bókin var
á langa listanum fyrir Booker-
verðlaunin í fyrra en hún
fjallar um Suleiman, níu ára
dreng, sem býr í Líbíu undir
lok áttunda áratugarins þegar
valdatíð Muammars al-
Gaddafis hafði staðið í um ára-
tug. Faðir Suleimans andæfir
kúgun Gaddafis og í kjölfarið er fjölskyldan ofsótt.
Sagan er að stórum hluta ævisöguleg, útsend-
arar Gaddafis rændu föður Matars og ekki hefur
spurst til hans síðan.
Bókmenntir
Uppvaxtarár í
landi Gaddafis
Rithöfundurinn
Hisham Matar.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ALÞJÓÐLEGIR organistar flykkj-
ast til Hallgrímskirkju þessa dagana
til að leika á Klais-orgelið mikla.
Fyrir tæpum mánuði lék Hannfried
Lucke, prófessor í orgelleik við Moz-
arteum listaháskólann í Salzburg, og
nú er komið að fimum fingrum Bret-
ans Christophers Herricks.
Herrick á meðal annars það afrek
að baki að hafa leikið öll orgelverk
Bachs á 14 tónleikum á 14 dögum, á
Lincoln Center-hátíðinni í New York
fyrir níu árum. Það þykir gífurlegt
þrekvirki. Nú er Herrick hingað
kominn í fimmta sinn, að þessu sinni
til þátttöku í Kirkjulistahátíð.
Herrick tók upp sjöunda geisla-
disk sinn í útgáfuröðinni Organ
Fireworks í Hallgrímskirkju árið
1996, en þeir eru nú orðnir tólf. Í út-
gáfuröðinni leikur hann á þekkt org-
el víðs vegar um heiminn, orgel sem
hann hefur kosið að leika á.
Þér hlýtur að líka vel við orgelið
og Hallgrímskirkju fyrst þú ert
hingað kominn í fimmta sinn?
„Jú, að hluta til er það ástæðan og
líka sú að fólk býður mér hingað aft-
ur og aftur,“ segir Herrick og hlær.
Klais-orgelið sé vissulega gott hljóð-
færi og hljómburðurinn góður í
kirkjunni. Hljóðið í orgelinu sé frek-
ar franskt en þýskt, franski hljóm-
urinn sé mýkri en sá þýski.
Hefur einhver annar unnið það
þrekvirki að leika 14 orgelverk
Bachs á jafnmörgum dögum?
„Ég veit ekki til þess að nokkur
hafi gert það á 14 dögum, dag eftir
dag, en ég veit af einum organista
sem gerði þetta á 15 dögum, fimm
daga í viku,“ svarar Herrick. „Þetta
var brjálæði, vissulega mjög þreyt-
andi og við bættist mikill hiti enda
lék ég að sumri til í New York.“ Her-
rick segist þó hafa haft gott af þessu
og stefnir að því að endurtaka leik-
inn og leika verkin af meiri þroska.
Herrick flytur í kvöld orgelverk
eftir Johannes Brahms, Iain Farr-
ington, Louis Vierne, Dietrich
Buxtehude, Petr Eben, Marcel
Dupré, Wolfgang Amadeus Mozart
og Joseph Jongen. Það verður því
nægt eyrnakonfekt í boði fyrir unn-
endur orgelverka. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20. Herrick segir þetta mikla
og veglega efnisskrá og nefnir sér-
staklega verk Tékkans Petrs Ebens,
sem tileinkað er Buxtehude. „Það er
hreint stórkostlegt,“ segir Herrick.
„Þetta var brjálæði“
Christopher Herrick lék öll orgelverk Bachs á 14 dögum
Morgunblaðið/Sverrir
Orgelvirtúós Herrick hélt meist-
aranámskeið í orgelleik í gær.
www.kirkjulistahatid.is
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
LAUTIR Ólafsfjarðar eru fullar af
berjum þessa dagana og tónlistarhá-
tíðin Berjadagar því á næsta leiti,
hefst 17. ágúst og lýkur hinn 19.
sama mánaðar. Berjadagar eru nú
haldnir hátíðlegir í níunda sinn og
vex hátíðin með ári hverju. Diljá Sig-
ursveinsdóttir, fiðluleikari og skipu-
leggjandi Berjadaga, segir tilgang-
inn með hátíðinni að fólk njóti
fagurrar náttúru fjarðarins og fag-
urra lista, auk þess að fara í berja-
mó.
Ekki eru þó eingöngu tónlist-
armenn á ferð, einn heiðursgestur
úr annarri listgrein tekur þátt á ári
hverju og að þessu sinni er það
Kristinn G. Jóhannsson listmálari
sem opnar málverkasýningu í nýju
galleríi í bænum, Listhúsi.
Diljá segir Ólafsfjörð mikið berja-
land og bæjarbúa duglega við tínslu.
Úr berjunum búi menn svo til saft
og jafnvel berjavín. Hátíðargestir
ættu því að geta hámað í sig ber og
haldið saddir og berjabláir í framan
á tónleika.
Þar mætast ungir og aldnir
Dagskráin er samsett með alla
fjölskylduna í huga, að ungir sem
aldnir fái notið listarinnar. Börnin
ættu að gleðjast yfir uppákomu á
dvalarheimilinu Hornbrekku, en þar
mun dúóið Stemma, þau Herdís
víóluleikari og Steef van Oosterhout
slagverksleikari, flytja sögu í tali,
tónum og hljóðum. „Þarna mætast
ungir og aldnir og gamla fólkið þarf
ekki að fara af bæ til að fá notið tón-
listarinnar og menningarinnar. Þar
hljómar meðal annars steinaspil
Páls á Húsafelli,“ segir Diljá. Þá
verður voldugt hljóðfæri, marimba,
flutt sérstaklega frá Reykjavík til
Ólafsfjarðar vegna hátíðarinnar.
Mikilvæg hátíð
Diljá sá um skipulagningu hátíð-
arinnar í fyrsta sinn í ár og segist
hafa lagt áherslu að fá unga og efni-
lega tónlistarmenn til leiks, í bland
við eldri og reyndari. Diljá segir há-
tíðina skipta miklu fyrir bæj-
arfélagið, aðsókn hafi verið góð til
þessa og góður rómur gerður að
henni.
Allir í berjamó, sumsé.
Berjablá tónlistarhátíð
Morgunblaðið/ G. Rúnar
Berjadagar Tónlistarmennirnir sem fram koma á hátíðinni í ár.
12 listamenn koma fram á Berjadögum í Ólafsfirði um helgina
www.olafsfjordur.is/berjadagar/
Föstudagur 17. ágúst
Töfraveröld tóna og hljóða
Dvalarheimilinu Hornbrekku kl.
10.30. Saga í tónum og hljóðum.
Fífilbrekka og þýsk rómantík
Tjarnarborg kl. 20.30. Hátíðin sett
með tónleikum í tilefni 200 ára af-
mælis Jónasar Hallgrímssonar.
Laugardagur 18. ágúst
Nostalgíuverk fyrir vanstillta tilfinn-
ingastrengi
Myndlistarsýning Kristins G. Jó-
hannssonar í Listhúsi í Fjallabyggð,
Ægisgötu 10, opnuð kl. 14.
Frönsk og þýsk náttúrustemning
Tónleikar Í Ólafsfjarðarkirkju
klukkan 20.30. Ari Þór Vilhjálmsson
fiðluleikari og Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir píanóleikari flytja fiðlusón-
ötu Cesars Francs og strengjakvar-
tett flytur verk eftir Beethoven.
Sunnudagur 19. ágúst
Kveðskapur Fljótamanna
Tónleikar í Kvíabekkjarkirkju kl. 11.
Þjóðleg stund í Kvíabekk. Margrét
Hrafnsdóttir sópran og Ólöf Sigur-
sveinsdóttir sellóleikari flytja þjóð-
lög sem flest eru rituð eftir söng
fólks úr Fljótunum.
Duo Stemma
Marimbu- og víólutónar í Ólafsfjarð-
arkirkju kl. 15. Herdís Anna Jóns-
dóttir víóluleikari og Steef van Oos-
terhout slagverksleikari flytja.
Dimmblátt Berjakvöld
Lokatónleikar í Tjarnarborg klukk-
an 20.30. Salonsveit Berjadaga og
þátttakendur hátíðarinnar á léttu
nótunum.
Dagskrá berjadaga
12.00 – Tónlistarandakt
/Klaisorgelið
Þátttakendur í meistaranám-
skeiði Christopher Herrick
leika á Klais-orgelið í Hall-
grímskirkju.
20.00 – Tjarnarbíó
Vier Minuten! - Kvikmynd eftir
Chris Krauss sem hlaut kvik-
myndaverðlaun kirkjunnar á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík í október 2006.
20.00 – Orgelflugeldar
Christopher Herrick við Klais-
orgelið í Hallgrímskirkju flytur
glæsileg orgelverk eftir
Brahms, Farrington, Vierne,
Dupré, Buxtehude o.fl.
Miðvikudagur 15. ágúst
Allir viðburðir fara fram í
Hallgrímskirkju nema annað
sé tekið fram. Nánari
upplýsingar á www.kirkju-
listahatid.is
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
11. – 19. ÁGÚST 2007