Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gróa HelgaKristjánsdóttir, fyrrverandi bóndi í Hólmi í Austur- Landeyjum, fæddist á Borgargarði í Stöðvarfirði 13. febrúar 1915. Hún lést að morgni þriðjudagsins 7. ágúst síðastliðins. Foreldrar hennar voru Þóra Þorvarð- ardóttir húsfreyja á Borgargarði í Stöðv- arfirði, f. 31.1. 1889, d. 14.11. 1955, og Kristján Carl Magnússon útvegsbóndi á Borg- argarði í Stöðvarfirði, f. 16.6. 1876, d. 17.6. 1945. Systkini Gróu eru María, f. 8.9. 1909, búsett í Reykja- vík, Sigrún, f. 17.6. 1912, d. 9.3. 1993, bjó í Keflavík, Magnús, f. 28.6. 1913, d. 18.5. 1982, bjó í Reykjavík, Tryggvi, f. 4.5. 1917, d. 13.4. 1976, bjó í Keflavík, og Svava, f. 19.6. 1922, búsett í Reykjavík. Fóstursystir Gróu Helgu var Hulda Helgadóttir, f. 7.9. 1915, d. 28.9. 2000, bjó í Reykjavík. Hinn 7. desember 1946 giftist Gróa Guðmundi Jónssyni, bónda í Hólmi í Austur-Landeyjum, f. 26.2. 1916, en hann lést af slysförum 19.7. 1964. Foreldrar hans voru Ragnhildur Runólfsdóttir frá Fossi Helga, f. 28.3. 1980, maki Björgvin Freyr Vilhjálmsson, dóttir þeirra Arna Liv, c) Ragnhildur Guðrún, f. 17.9. 1981, maki Hermann Örn Kristjánsson, d) Ólöf Guðbjörg, f. 5.8. 1983, maki Heiðar Þormars- son, e) Guðmundur Helgi, f. 8.10. 1995 og f) Berglind Inga, f. 18.9. 1998. 4) Garðar bóndi í Hólmi, f. 12.11. 1955, maki Guðrún Jóns- dóttir. Börn þeirra eru Guð- mundur, f. 4.7. 1983, María, f. 24.9. 1984, Dagbjört, f. 10.2. 1989 og Helga Rún, f. 28.4. 1991. Fyrir átti Garðar Unni Björk, f. 1.5. 1976, maki Páll Kristbjörn Sæmundsson og f) Marinó Fannar, f. 16.6. 1979, maki Berglind Magnúsdóttir. 5) Ásta bóndi á Arnarhóli, f. 12.11. 1955, maki Erlendur Guðmunds- son. Sonur þeirra er Jón Heiðar, f. 13.7. 1979. Fyrir átti Ásta Guð- mund Garðar, f. 20.12. 1973 en hann lést af slysförum 20.12 1977. Gróa ólst upp á Borgargarði Stöðvarfirði og fluttist ung til Reykjavíkur. Þar lærði hún karl- mannafatasaum hjá frú Helgu Sím- onardóttur Melsteð en hjá henni starfaði Gróa Helga í mörg ár. Árið 1946 hófu þau Gróa Helga og Guð- mundur búskap í Hólmi og bjuggu þar saman þar til Guðmundur lést af slysförum. Eftir það bjó Gróa í Hólmi með börnum sínum til ársins 1983 en þá tók Garðar, sonur henn- ar, við búinu. Gróa Helga bjó síð- ustu tólf árin hjá Jónu Kristínu, dóttur sinni, og Eggert manni hennar að Kirkjulæk í Fljótshlíð. Gróa Helga verður jarðsungin frá Krosskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 14. í Mýrdal, húsfreyja í Hólmi í Austur- Landeyjum, f. 26.10. 1889, d. 5.12. 1986, og Jón Árnason, bóndi í Hólmi í Austur- Landeyjum, f. 7.3. 1885, d. 14.10. 1964. Þeim Gróu og Guð- mundi varð fimm barna auðið, en þau eru: 1) Eygló Þóra hjúkrunarfræðingur, f. 3.6. 1947, maki Guð- mann Ingjaldsson, bú- sett í Reykjavík. Dótt- ir þeirra er Þóra Sigurborg, f. 28.11. 1975, maki Pétur Örn Þór- arinsson, börn þeirra eru Embla Nótt og Eygló Þóra. Fyrir átti Eygló Guðmund Tryggvason, f. 30.1. 1971, sonur hans er Kristófer Orri. 2) Erla Ragnhildur skrif- stofustjóri, f. 3.6. 1947, búsett í Reykjavík. Börn hennar og Guð- mundar Ásgeirssonar eru; a) Guð- mundur Ingi, f. 31.7. 1968, maki Sigríður Hyldal, sonur þeirra er Jó- hann Birnir, og b) Helga Björt, f. 3.3. 1979, maki Emil Örn Valgarðs- son sonur þeirra er Valgarð Ernir. 3) Jóna Kristín bóndi á Kirkjulæk, f. 30.3. 1954, maki Eggert Pálsson. Börn þeirra eru: a) Páll, f. 3.10. 1973, maki Kristín Jóhannsdóttir, dóttir þeirra Álfrún Inga. b) Gróa Í dag kveðjum við ástkæra tengda- móður mína, Gróu Helgu Kristjáns- dóttur. Við slíka atburði leita á hug- ann margar samverustundir sem við áttum með henni á liðnum árum. Hún átti mjög gott að gleðjast með glöð- um í vinahópi og var þar hrókur alls fagnaðar. En í alvöru dagsins var hún mjög vinnusöm og féll henni sjaldan verk úr hendi, hvort sem að gera við föt eða prjóna. Sagði hún þá gjarnan við barnabörn sín þegar hún rétti þeim sokka eða vettlinga ,,notaðu þessa svo þér verði ekki kalt.“ Hún reyndi margt á langri ævi. Veikindi sem að hún komst yfir á fyrstu búskaparárum sínum í Hólmi. Þá missti hún Guðmund mann sinn á besta aldri af slysförum frá fimm börnum þeirra. Hún hélt þó búskapn- um áfram ótrauð og sýndi þá best hvað í henni bjó, dugnaður og áræði sem best kom fram í því að hún stækkaði búið og bætti húsakost er árin liðu. Ég man að hún sagði stund- um þegar við ræddum þessi ár ,,þá kom Óli minn í Hemlu og bar á áburðinn fyrir mig og vinir og sveit- ungar hjálpuðu þegar þess þurfti.“ Færðist þá angurvært bros yfir and- lit hennar og skein úr því þakklæti til alls þessa fólks fyrir hjálpsemi og vinarhug sem hún aldrei gleymdi enda var hún sjálf hjálpsöm þar sem hún sá að þess þurfti með. Fyrir 12 árum kom hún til okkar Jónu að Kirkjulæk og eru þau ár okk- ur öllum á heimilinu ógleymanleg og mikilsvirði því hún bar hag barnanna okkar og heimilisins alls svo mjög fyrir brjósti. Hún kallaði stundum á mig þegar hún stóð við gluggann í björtu veðri og sagði ,,nú sé ég svo vel Hólm,“ enda unni hún Landeyjunum og ekki síst Hólmi. Þar hafði hún eignast un- aðsreit sem hún bast tryggðarbönd- um enda hafði hún eytt þar sínum bestu árum. Gróa hafði góða heilsu þar til síð- ustu mánuðina og sjónin var svo góð að hún las blöðin gleraugnalaus, þá 90 ára að aldri og þræddi nálar hjálp- arlaust þegar hún var við hannyrðir. Nú kveðjum við hana með söknuði og óskum þess að góður guð leiði sál hennar fram til lífsins og ljóssins á ei- lífðarbraut. Hafi hún þökk fyrir allt. Eggert Pálsson. Mig langar til að minnast elsku- legrar tengdamóður minnar Gróu Helgu Kristjánsdóttur með örfáum orðum. Ég kynntist Gróu fyrir 27 ár- um síðan þegar leiðir okkar Garðars lágu saman. Dugnaður og vinnusemi var það sem einkenndi Gróu. Hún sat aldrei auðum höndum, var alltaf eitthvað að gera hvort sem það var inni eða úti. Þegar Gróa var kominn með Budwei- ser-klútinn á höfuðið þá vissi maður að hún var kominn í bakstursgírinn, þá var skellt í kleinur með tilheyrandi kleinuköllum fyrir krakkana og flat- kökur bakaðar. Nýbökuðu kleinurn- ar hennar Gróu og appelsín er eitt af því besta sem ég hef fengið. Eitt af því skemmtilegast sem Gróa komst í var að fara í berjamó og var þá fátt sem að stoppaði hana. Í eitt skiptið tók hún sér far með flutn- ingabíl austur á heimaslóðir sínar til að komast í ber, þá hátt á níræðis- aldri. Síðastliðið sumar fórum við hjónin með Gróu í Veiðivötn og þar gerði hún sér lítið fyrir og sýndi dætrum okkar hvernig þær ættu að renna fyrir fisk. Á heimleiðinni talaði hún um að ef hún kæmist í veiði eða ber yrði erfitt að ná henni heim. Hún var mikið fyrir mannfagnað og fannst gaman að hafa fjör í kringum sig, stutt var í sönginn og dansinn þegar að við átti. Hún mætti ávallt á þorra- blótin og nú síðast í Fljótshlíðinni þar sem að hún skellti sér á dansgólfið. Hún var hress og kát, kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd og sagði sína meiningu á hlutunum um- búðalaust. Alltaf var Gróa til staðar fyrir börnin mín og er ég henni innilega þakklát fyrir það. Ég kveð þig elsku Gróa með þess- um línum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guð geymi þig, þín tengdadóttir, Guðrún Jónsdóttir. Elsku hjartans amma mín, upp er runnin kveðjustund. Það er svo margt sem fer um huga minn þessa dagana, allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Ég er svo ótrú- lega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þín öll þessi ár og upplifa lífið með þér. Þú varst svo einstök í alla staði, ljómaðir eins og sólin þegar þú brostir og faðmaðir mann svo inni- lega og kysstir. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku amma, en ég er viss um að afi hefur tekið vel á móti þér. Þegar ég var lítil var amma alltaf tilbúin að leika við mig, sagði mér sögur og söng með okkur alls konar vísur. Hún var mikið fyrir að spila og kenndi mér allt sem ég kann í spila- vist, rommí o.fl. Hún kom líka oft til manns í kaffi í leikherbergið og þakk- aði að lokum vel fyrir kaffisopann og kökurnar. Hún var svo skemmtileg því hún gerði þetta allt svo raunveru- legt, þó ekkert væri í bollanum nema loftið eitt. Það var líka svo notalegt að fá að lúlla fyrir innan ömmu þegar hún var hjá okkur í heimsókn. Það var svo gott að kúra í hana og hlusta á sögurnar hennar. Þegar við vorum komnar á ung- lingsárin systurnar þá var hún amma ávallt tilbúin að gera allt fyrir mann. Ég veit ekki hversu marga kjóla hún saumaði á okkur fyrir árshátíðir og allir voru þeir svo fallegir og vel saumaðir. Enda var hún amma mín svo fær og vandvirk. Hún var ein duglegasta kona sem ég þekki, vildi öllu halda svo hreinu og fínu og gera alla hluti svo vel. Hún var alltaf að og sat ekki öðruvísi við sjónvarpið eða útvarpið en með prjónana við hönd. Síðustu 12 ár ævi sinnar bjó amma heima hjá foreldrum mínum í sveit- inni. Það var alveg yndislegt því þá hafði ég tækifæri á að hitta hana sem oftast og kynnast henni enn þá betur. Hún hafði svo gaman af því að tína ber og veiða fisk og var ég svo heppin að komast með henni eitt haustið austur á firði. Þar sýndi hún mér sín- ar heimaslóðir og við fengum að gista hjá henni Laugu. Á daginn týndum við bláber og fórum svo eitt kvöldið á sjóstöng. Mikið var gaman hjá okkur í þessari ferð og að hugsa sér að þá hafi hún amma verið 88 ára. Algjör blómarós með fjör í æðum. Hún amma elskaði að vera innan um fólk og skemmti sér alltaf manna best á mannfögnuðum. Alltaf þegar fjölskyldan hittist vildi amma að það væri sungið og trallað, því þannig var hún, vildi alltaf hafa líf og fjör í kring- um sig. Síðustu árin fór hún með okk- ur fjölskyldunni á Þorrablót og fór helst ekki heim fyrr en búið var að kveikja ljósin og ballið búið. Henni fannst svo skemmtilegt að taka þátt í fjöldasöng og að dansa. Hún var hreinlega dásamleg og æðislegt að fá að vera með henni á þessum stund- um. Hún kunni svo sannarlega að skemmta sér fallega og var alltaf svo lífsglöð og hláturmild. Elsku amma mín, takk fyrir allar stundirnar og yndislegu minningarn- ar. Takk fyrir alla kossana þína og faðmlögin. Það er svo margt sem ég hef lært af þér og ég er stolt af því að bera nafnið þitt. Hvíl í friði elsku amma mín. Þín, Gróa Helga. Nú hefur hún elsku amma mín fengið hvíldina eftir nokkurra mán- aða erfið veikindi. Mig langar til að minnast hennar hér með nokkrum orðum. Amma kom mér fyrir sjónir sem sterk manneskja sem var full af lífsgleði og alltaf til í að gantast eitt- hvað. Ég get ekki annað en dáðst að dugnaðinum í henni þegar ég rifja upp lífshlaup hennar. Berklana sem hún barðist við í 9 mánuði á Vífils- stöðum, áfallið þegar afi lést af slys- förum frá henni, búi og fimm börnum og síðast þegar dóttursonurinn, fjög- urra ára, drukknaði í bæjarlæknum. Alltaf stóð hún sterk og hélt ótrauð áfram búskap í Hólmi þar sem hún bjó stóru búi. Það er ekki öllum gefið og ég get ekki annað en verið stoltur af henni. En lífið var ekki bara erfiðleikar. Hún naut þess mjög að koma á mannamót og sérstaklega ef það var sungið því þá var hún í essinu sínu. Einnig hafði hún sérstakt yndi af því að grípa í spil. Amma hafði mikinn áhuga á berjatínslu og fór yfirleitt einu sinni á ári eitthvert í berjamó. Kom hún þá ævinlega heim með nokkrar tíu lítra fötur fullar af blá- berjum sem hún leyfði okkur svo að smakka á. Þá var nú gaman að lifa. Það segir mér hugur að berjalynginu eigi eftir að bregða við þetta haustið þegar hún birtist ekki. Hún var alla tíð mjög iðin og aldrei mátti neinn tími fara til spillis. Aldrei sá ég hana öðruvísi en hún væri með prjónana í höndunum eða einhverja annarskonar handavinnu. Hún var ólöt við að bæta buxurnar mínar og ekki leið sá vetur að fengi ég ekki nýja ullarsokka. Síðustu vikurnar sem hún lifði talaði hún oft um að nú þyrfti hún að fara að fá prjónana sína þó svo að þrekið væri svo lítið að hún gæti engan veginn valdið þeim. Vilj- inn var alltaf til staðar. Við göntuð- umst stundum með það hér áður að ekki færi hún að pissa öðruvísi en að kúka um leið til þess að nýta tímann sem best. Síðustu 12 ár ævinnar eyddi hún heima á Kirkjulæk og naut ég því margra samverustunda með henni. Hún ræddi oft um gömlu dagana og fékk ég að heyra sögur af lifnaðar- háttum kynslóðar sem nú er óðum að hverfa og með henni mikil vitneskja. Kynslóðarinnar sem við getum þakk- að það velmegunarþjóðfélag sem við búum við í dag. Ég vil þakka þér elsku amma mín fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og allt sem þú gafst mér. Ég trúi því að við eigum eftir að hittast aftur á nýjum stað þegar minn tími kemur. Þá verður eflaust eitthvað gantast og sprellað. Páll Eggertsson. Elsku amma mín, ég trúi því varla að þú sért dáin, finnst svo skrítið að koma heim á Kirkjulæk og þú ert ekki þar. Ég sakna þín mikið en jafn- framt gleðst ég yfir því að þú náðir þessum háa aldri og yfir því að þú sért laus úr þeim fjötrum sem veik- indin voru þér. Maður er samt aldrei tilbúinn til að kveðja. Mig langar til þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér, gert með mér og fyrir mig. Þú varst einstök dugnaðarkona með mikla lífsgleði og það var alltaf gott að vera nálægt þér. Ég sakna þess að geta ekki komið til þín og knúsað þig og þú sást alltaf ef manni leið eitthvað illa og sagðir þá „Ólöf mín, ertu eitthvað domm?“. Ég man það svo vel þegar ég var lítil og þú sast inni í eldhúsi og prjónaðir, ég settist á gólfið hjá þér og þú sagði mér sögur, sagan um Búkollu var oft- ar en ekki sögð og sagan um Ein- björn og Tvíbjörn. Ég man líka þegar ég var í pössun í Hólmi, tilhlökkunin hjá mér var mikil. Ég var lögst upp í rúm hjá Mæju en þá skyndilega hellt- ist yfir mig þessi mikli „magaverkur“ og hann batnaði ekki fyrr en ég var komin uppí rúm hjá þér. Það var svo gott að kúra hjá þér. Skil bara ekki hvernig þú gast umborið mig, eins fyrirferðarmikla og mér er sagt að ég hafi verið í svefni. Þú hafðir svo einstaklega gaman af því að vera innan um fólk, lékst á als oddi, söngst og fórst með vísur sem oftar en ekki voru aðeins klúrar, já, þú hafðir sko húmorinn í lagi… Ég veit þú átt eftir að vaka yfir okkur og minna á berjamóinn á haustin en það var nú mikið atriði hjá þér. Varla var hægt að koma þér heim úr berjamónum nema kannski um fimmleytið því þá byrjaði Leið- arljósið. Þú kenndir mér að maður á að gera hlutina vel sem maður tekur sér fyrir hendur. Þegar ég var að brjóta þvottinn saman með þér þá var mað- ur oft látinn brjóta sama handklæðið tvisvar og svo jafnvel þegar maður leit undan þá lagaðir þú það sem bet- ur mátti fara, þú hafðir alveg ótrú- lega biðlund. Þú hafðir alltaf nóg fyr- ir stafni. Ég sé þig fyrir mér með Budweiser-klútinn um höfuðið og svuntuna um mittið að elda og baka, afraksturinn af þeirri vinnu bragðað- ist alltaf vel. Það var líka svo gaman að fá að taka þátt í bakstrinum með þér, búa til kleinukarla, fara með flat- kökurnar og kleinurnar til mömmu, setja glassúrinn á vínarbrauðin, skera munstrið í marmarakökuna og smakka deigið. Við vorum kannski ekki alltaf sam- mála þegar kom að því að minnka draslið í kringum okkur, þér fannst ég vera alltof mikill bruðlari og mér fannst þú vera full nýtin, en sennilega máttum við báðar fara milliveginn. Ég veit að vel var tekið á móti þér þegar þú kvaddir þennan heim, þú og afi saman á ný. Takk fyrir síðustu orðin sem þú sagðir við mig, þau mun ég alltaf muna. Minningin um þig mun lifa, við sjáumst aftur þegar að því kemur, elska þig. Þín ömmustelpa Ólöf Guðbjörg. Að hugsa sér að fyrir síðastliðin jól bjóstu til sæng handa mér, skrifaðir jólakort og keyptir jólagjafir, ekki kom mér í hugarlund þá að þetta yrðu síðustu jólin okkar saman. Þú hafðir gengið í gegnum svo margt á þinni löngu ævi og ávallt stóðstu heil upp aftur, það hvarflaði því ekki ann- að að mér en að þú næðir þér upp úr þessum veikindum. Elsku amma mín, ég á svo fallegar minningar um þig, þú varst mikill atorkukona og sjaldan sastu auðum höndum. Þú hafðir yndi af því að veiða og vildir nýta landsins auðlindir. Á sumrin klæjaði þig í fing- urna eftir kartöfluuppskeru og berja- leit. Á haustin fórum við oftar en ekki með þér í berjamó og þá vildirðu helst ekki yfirgefa brekkurnar fyrr en þær væru auðar og föturnar fullar. Stundum vildum við segja þetta gott en þú vildir aldrei hætta fyrr en öll ílát voru orðin full og helst allir pokar líka. Þú lést ekki vandamálin vaxa þér í augum, ég man einstaka sinnum eftir að hafa heyrt dæs og vonleys- isandvarp en stuttu síðar varstu komin á fullt aftur. Þú varst mjög gjafmild kona og máttir ekkert aumt sjá, ef þú vissir af einhverjum sem átti um sárt að binda varstu óðara farin að hugsa hvort þú ættir ekki eitthvað sem gæti létt þeirra geð. Elsku amma mín, ég sé þig í huga mér oft á dag, heyri hlátur þinn og prjónaglamur, man hvernig þú hlóst með augunum án þess að brosa þegar þú vildir ekki láta sjá að þér væri hlátur í hug. Hvernig þú slóst til hendinni þegar þér líkaði ekki að heyra eitthvað. Þú sagðir svo skemmtilega frá, það urðu einhvern veginn allar sögur áhugaverðar hjá þér. Ég man hvað það var gott að skríða uppí til þín sem barn meðan foreldrar mínir voru að mjólka, kúra sig í hálsakotið og heyra söguna um Búkollu. Elsku amma mín, það er erf- itt að sjá á eftir þér, ég hugsa ávallt til þín þegar ég kúri mig undir sæng- inni sem þú gafst okkur. Þegar kóln- ar í veðri þá set ég svo á mig vett- lingana sem þú prjónaðir. Í haust ætla ég svo að kaupa gjöfina eins og við vorum búnar að ákveða. Ég lít í anda liðna tíð, er leynt í hjarta geymi. Sú ljúfa minning – létt og hljótt hún læðist til mín dag og nótt, svo aldrei, aldrei gleymi … (Halla Eyjólfsdóttir.) Guð geymi þig, elsku amma mín. Ragnhildur Guðrún. Elsku Gróa amma, nú hefur þú kvatt okkur og ert farin til Guðmund- Gróa Helga Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.