Morgunblaðið - 15.08.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 15.08.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Árskógar 4 | Kl. 9-16 baðþjónusta, kl. 9 sundferð, kl. 9-16.30 smíði/útskurður, kl. 10-11 heilsugæsla, kl. 10-16 púttvöllurinn. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan að Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK að Gjá- bakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14. S. 554 3438. Félagsvist er spiluð í Gullsmára á mánu- dögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. Dagsferð í Veiðivötn 21. ágúst. Farþegar sem hafa skráð sig í Kjöl og Kerlingarfjöll 25. ágúst vinsamlegast gangið frá greiðslu sem fyrst. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi verður við kl. 10-17. Hádegis- verður kl. 11.40. Félagsvist kl. 13. Viðtalstími FEBK milli kl. 13-14. Bobb kl. 17. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 bridds- konur. Kl. 14 púttmót. Föstudaginn 17. ágúst verða „Töðugjöld“ í Gullsmára 13. Félagar úr harmóníkufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi frá kl. 20. nesi velkomnir. Púttæfingar eldri borgara á pútt- vellinum við Haukshús frá kl. 13-15. Dómkirkjan | Hádegisbænastund alla miðviku- daga frá kl. 12.10-12.30. Léttur hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í s. 520 9700 eða með tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.is. Hallgrímskirkja | Tónlistarandakt kl. 12. Þátttak- endur í meistaranámskeiði Christopher Herrick leika orgeltónlist eftir Buxtehude. Sr. Þorvaldur Karl Helgason. Háteigskirkja | Bænaguðsþjónusta á miðviku- dögum kl. 11, súpa og brauð á eftir. Á hverjum miðvikudegi kl. 18 eru lesnar kvöldbænir og beðið fyrir sjúkum og þeim sem eiga erfitt. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bænastund er á miðvikudaga kl. 12. Matur í lok stundarinnar. Allir eru velkomnir. Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld kl. 20. „Hinn líðandi þjónn“. Ræðumaður er Guðmundur Karl Brynjarsson. „Mínar hugsanir“ með Kristínu Möller. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Óháði söfnuðurinn | Fjölskylduferð út í Viðey kl. 18.30. Mæting á bryggju í sundahöfn með nesti. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgnar hvern miðvikudag í sumar kl. 10-12.30. Alltaf heitt á könnunni. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Skráning í námskeið og hópa haustsins hafin. Hugmyndabanki opinn alla virka dag. S. 568 3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Eva, hjúkrunar- fræðingur frá heilsugæslunni, kl. 10. Leikfimi fyrir byrjendur kl. 10.30, Janick leiðbeinir. Leikfimi í salnum kl. 11, verslunarferð í Bónus kl. 12. Hand- verks- og bókastofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Í félagsmiðstöðinni er spiluð félagsvist alla miðvikudaga kl. 14. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaað- gerðir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunar- ferð í Bónus Holtagörðum. Kl. 13-14 videó/spurt og spjallað. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund kl. 9.30, handavinnustofan opin og verslunarferð kl. 12.30. Söngur og dans kl. 14. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkja er opin frá kl. 17- 20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282. Kvöldbænir kl. 20. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í Holtakoti frá kl. 10-12, allir foreldrar ungra barna á Álfta- 70ára afmæli. Í tilefni af sjötugs-afmælum sínum þann 18. ágúst og 20. október taka Guð- mundur Þorsteinsson og Helga Bjarnadóttir, Skálpastöðum, á móti gestum í Fossatúni þann 18. ágúst milli kl. 11 og 16. Gjafir vinsamlega afþakkaðar en bent á Minningasjóð Björns Rúnarssonar (bankanr. 1103 18 640453, kt. 141251-3259). Hlutavelta | Krista Líf Gunnlaugsdóttir, Svandís Dagmar Valgeirs- dóttir, Tekla Hallgrímsdóttir og Þórunn Stefánsdóttir héldu tombólu og gáfu Barnaspítala Hringsins 10.406 kr. Hlutavelta | Þessar dug- legu stelpur á myndunum seldu tombóludót og söfn- uðu 7.204 krónur sem þær gáfu Rauða krossinum. Þær heita Silja María og Birgitta Líf Alberts- dætur, Sóley Hvítfeld Garðarsdóttir , Sóley Dúfa Leósdóttir og Alda Óskarsdóttir. . 70ára afmæli. Í dag er sjötugur,Hákon Sigurgrímsson, skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu. Hann ver deginum með fjöl- skyldu sinni. dagbók Í dag er miðvikudagur 15. ágúst, 227. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh.. 15, 12.) Mannfræði á 21. öldinni eryfirskrift ráðstefnu semMannfræðistofnun HÍ,mannfræðiskor, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Mannfræði- félag Íslands efna til dagana 16. og 17. ágúst. „Ráðstefnan endurspeglar hve fræði- greinin mannfræði spannar vítt svið nú til dags, og hve mikil gróska er á svið- inu,“ segir Kristín Erla Harðardóttir, framkvæmdastjóri mannfræðistofnunar Háskólans. „Mannfræði varð fyrst til sem fræðigrein á tímum nýlendustefn- unnar, og beindust rannsóknir þá eink- um að framandi menningarsamfélögum. Síðan þá hefur orðið mikil þróun innan greinarinnar, og í dag fást mannfræð- ingar ekki síst við að skoða eigið sam- félag, og raunar allt sem við kemur manninum og samfélagi hans við aðra.“ Alls munu 31 fyrirlesari, bæði inn- lendir og erlendir, taka til máls á ráð- stefnunni og greina frá nýloknum og yfirstandandi rannsóknum á fjöl- breyttum viðfangsefnum: „Erindin eru stutt og hnitmiðuð, og gefa þversnið af starfi mannfræðinga í dag,“ segir Krist- ín Erla. „Fyrirlesarar hafa sumir rann- sakað á fjarlægum slóðum, s.s. í Evrópu, Bandaríkjunum, Afríku og Kína, en einnig verður sagt frá rannsóknum á ís- lensku samfélagi.“ Meðal erlendra fyrirlesara nefnir Kristín Erla Önnu Wojtynska sem rann- sakað hefur stöðu pólskra innflytjenda á Íslandi og Jim Rice sem skoðað hefur góðgerðarstofnanir í íslensku samfélagi. Sérstakur gestafyrirlesari er E. Paul Durrenberger sem flytur yfirlitserindi um stöðu mannfræðinnar og þróun á 21. öldinni. „Umfjöllunarefni fyrirlestranna spanna allt frá kynþáttahyggju til ferða- mennsku, umhverfismál, ættleiðingar, umferðaröryggi og friðargæslu,“ nefnir Kristín Erla að lokum. Ráðstefnan Mannfræði á 21. öldinni er haldin í stofu 101 í Odda, frá kl. 9 til 17 báða ráðstefnudagana. Ráðstefnan er öllum opin, en ráðstefnugjald er 4.000 kr. fyrir almenning og 2.000 fyrir nem- endur. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu Mannfræðistofnunar á slóð- inni www.mannfraedistofnun.hi.is undir „Á döfinni“. Rannsóknir | Ráðstefna um mannfræðirannsóknir í Odda 16. og 17. ágúst Fjölbreytni mannfræðinnar  Kristín Erla Harðardóttir fæddist í Reykja- vík 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá MH 1986, B.A.- gráðu í mannfræði frá Háskóla Ís- lands 1998, mast- ersgráðu 2002 frá sama skóla og leggur nú stund á dokt- orsnám. Kristín Erla var starfsmaður Mannfræðistofnunar, síðar verkefn- isstjóri hjá félagsvísindastofnun HÍ en hefur frá 2005 verið framkvæmda- stjóri Mannfræðistofnunar. Kristín Erla er gift Stefáni E. Helgasyni tann- lækni og eiga þau tvo syni. Tónlist Hallgrímskirkja | Kl. 20. Christopher Herrick við Klais-orgelið í Hallgríms- kirkju flytur orgelverk eftir Johannes Brahms, Iain Farrington, Louis Vierne, Buxtehude o.fl. www.kirkjulista- hatid.is. Myndlist Eden, Hveragerði | Vaddý (Valgerður Ingófsdóttir) heldur sína þriðju mál- verkasýningu í Eden í Hveragerði dag- ana 13.-27. ágúst. Á sýningunni eru olíu, akríl-, vatnslita og pastelmyndir, málaðar eftir íslenskum fyrirmyndum. Söfn Grasagarður Reykjavíkur | Sóleyjar- ættin er fjölskrúðug og áhugaverð ætt fyrir garðeigendur á Íslandi. Grasa- garður Reykjavíkur á stórt safn þess- ara plantna og þann 16. ágúst kl. 20 verður leiðsögn um þessar tegundir. Kvikmyndir Tjarnarbíó | Kl. 20.Verðlaunamynd eftir Chris Krauss sem hlaut kvik- myndaverðlaun kirkjunnar á Alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í október 2006. Innlýsingar og umræð- ur á eftir. www.kirkjulistahatid.is. Fyrirlestrar og fundir Háskóli Íslands, Oddi v/Sturlugötu, stofa 101 | Kl. 9-17. Mannfræðingar á Íslandi munu koma saman til að kynna viðfangsefni sín á ráðstefnu. Að henni standa Mannfræðistofnun H.Í., Mann- fræðiskor H.Í., Mannfræðifélag Íslands, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Fé- lagsvísinda- og lagadeild H.A. Nánari upplýsingar á www.akademia.is/mi. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Verðum með blóðsöfn- un í dag við Ráðhúsið á Akranesi. Allir velkomnir. TVEGGJA mánaða gamlir persneskir hlébarðaþríburar njóta öryggisins í skjóli móður og dýragarðsrimla í forsælu skemmtigarðs í Búdapest. Myndin var tekin í gærdag. Dýralíf í Búdapest Krúttleg kattardýr í dýragarðinum Reuters hlutavelta ritstjorn@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ birt- ir til kynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til- kynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda til- kynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn efni". Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynn- ingu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Innan við hundrað ungmenni RANGAR tölur lágu til grundvall- ar frétt Morgunblaðsins hinn 7. ágúst sl. um Vinnuskóla Reykja- víkur. Sagt var að um þrjú hundr- uð unglingar búsettir erlendis hefðu starfað hjá Vinnuskólanum þetta sumarið. Hið rétta mun vera að alls voru ungmennin innan við hundrað. LEIÐRÉTT Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.