Morgunblaðið - 15.08.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 15.08.2007, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 227. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Óheppileg tengsl  Örfá dæmi eru um að hafnarvigt- armenn séu einnig í starfi hjá útgerð eða fiskvinnslu á sama stað, að sögn Þórðar Ásgeirssonar fiskistofu- stjóra, sem telur þetta óheppileg tengsl. Hann segir að mun algeng- ara sé að löggiltir endurvigt- unarmenn séu starfsmenn þeirra fyrirtækja, sem hafa leyfi til end- urvigtunar, og telur það í raun óhjá- kvæmilegt. » Forsíða Starfsfólkinu sagt upp  Öllum 46 starfsmönnum Ratsjár- stofnunar verður sagt upp og ráðist verður í endurskipulagningu loft- varnakerfisins eftir að Íslendingar taka við rekstri stofnunarinnar af Bandaríkjamönnum. » 4 Ferjukaup illa undirbúin  Ríkisendurskoðun telur margt hafa farið úrskeiðis við undirbúning, kaup og endurbætur á Grímseyj- arferjunni. Kostnaðurinn við skipið verður líklega a.m.k. 500 milljónir en ekki 150 milljónir eins og gert var ráð fyrir. » Miðopna og 11 Uggur í Tyrkjum  Framboð Abdullah Gul, utanrík- isráðherra Tyrklands, til embættis forseta landsins hefur vakið mörg- um ugg þar í landi þar sem óttast er að hann og flokksbræður hans hygg- ist grafa undan veraldlega stjórn- kerfinu. » 14 SKOÐANIR» Staksteinar: Öll sagan sögð? Forystugreinar: Kraftur í efnahagslífinu | Tvísýn staða á sjálfstæðisafmæli Viðhorf: Óþægilegar niðurstöður Ljósvaki: Vandræðagangur og … UMRÆÐAN» Hvar liggja tækifærin? É́g ákæri Er sjónvarp munaðarvara á Íslandi? Fjölskylduhátíðin ein með öllu 3 # 4$ - *   5    !   2 2" 2 2 2 2 2" ""2  2  2" 2 2 2 "2 2" , 6(0 $   2  2 2 2 "  " 7899:;< $=>;9<?5$@A?7 6:?:7:7899:;< 7B?$66;C?: ?8;$66;C?: $D?$66;C?: $1<$$?!E;:?6< F:@:?$6=F>? $7; >1;: 5>?5<$1*$<=:9: Heitast 15°C | Kaldast 6°C NV og N 8-15 m/s. Hvassast og rigning um austanvert landið. Léttskýjað að mestu fyrir vestan. » 10 Helgi Snær Sigurðs- son ræddi við John Cameron Mitchell, leikstjóra kvik- myndarinnar Shortbus. » 36 KVIKMYNDIR» Umdeild kvikmynd BÓKMENNTIR» Stephen King hrósar J.K. Rowling. » 38 Ásgeir H. Ingólfsson veltir fyrir sér Miðnæturbörn- unum, hinu áhrifa- mikla verki Salmans Rushdie. » 40-41 AF LISTUM» Tekin voru andköf TÓNLIST» Nýtt lag frá Mick Jagger og John Lennon. » 43 TÓNLIST» Alan Jones heldur tónleika í kvöld. » 39 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Hleypur um berrössuð 2. 100 flottar fyrirsætur 3. Tveggja ára gamalt barn fannst … 4. Kúluvömbin óholl hjartanu Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is FYRIRHUGAÐ er að reisa níu hæða byggingu við Strandgötu í Hafnarfirði sem hýsa á verslanir, skrifstofur og íbúðir. Innangengt verður milli nýja hússins og versl- unarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Ekki eru allir á eitt sáttir um framkvæmdina og óttast sumir bæj- arbúa að hún varpi skugga á byggð- ina í kring og að vindstrengir mynd- ist út frá henni. Kynningarfundur verður haldinn í Hafnarborg á morgun, á milli kl. 17 og 19, en bæj- arbúar hafa frest til 22. ágúst til þess að gera athugasemdir við bygginguna. Valur Ásmundsson stendur ásamt fleiri Hafnfirðingum fyrir undir- skriftasöfnun gegn byggingu nýja hússins. „Þetta verður hryllilegt slys ef af þessu verður,“ segir hann. Valur segir ennfremur að nýja byggingin muni byrgja fyrir sólar- ljós inn í miðbæinn, sérstaklega á vorin þegar sól er lágt á lofti. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því að bilið milli turnanna tveggja beini sterkum vindum inn í miðbæinn. „Sérstaklega í vestan- eða suðvestanátt, þá verður alltaf rok á Strandgötunni þar sem áður var alltaf logn,“ sagði Valur. Skuggamyndun minni en áður Sigrún Þorgrímsdóttir er fram- kvæmdastjóri Hanzahópsins, sem stendur fyrir nýbyggingunni. Hún segir að byggingin kasti ekki meiri skugga en þær sem voru þar fyrir. „Það var upprunalega gert ráð fyrir tólf hæða húsi en í kjölfarið á skuggakönnun var það lækkað niður í níu. Þá er skuggamyndunin innan þess sem var áður.“ Hún segir einnig ástæðulaust að hafa áhyggjur af vindstrengjum á Strandgötunni og að straumar vinda við húsið verði teknir með í reikn- inginn við hönnun þess. Hægt sé að stýra þeim að einhverju leyti með vindskeiðum. „Það er líka búið að gera vindlíkan og það er ljóst að eft- ir því sem húsin eru hærri koma meiri sveipir. Bilið nær hins vegar ekki niður á jörð heldur aðeins niður á þriðju hæð, og þá myndast sveip- irnir ofar. Þessir turnar gefa gott skjól við Hafnarborg þar sem á að vera útivistarsvæði.“ Hún segir andstöðuna byggjast á þekkingarskorti og að þeir sem mót- mæli skipulaginu hafi ekki kynnt sér málið nógu vel. Sigrún segir að í aðalskipulagi Hafnarfjarðar sé sér- staklega tekið fram að Strandgatan sé vindasöm og illa fallin til útivist- ar. „Þetta er svosem ekkert nýtt að það sé rok þarna,“ sagði Sigrún. Stórhýsi mótmælt  Undirskriftasöfnun er hafin gegn níu hæða fjölbýlis- og verslunarhúsi við Strandgötu í Hafnarfirði  Áhyggjur af skuggavarpi og vindstrengjum Nýbygging Fyrirhugað stórhýsi við Strandgötu í miðbæ Hafnarfjarðar veldur sumum íbúum áhyggjum. Í HNOTSKURN »Ætlunin er að verslanirverði á neðstu tveimur hæðunum og skrifstofur á þeirri þriðju, sem er talsvert minni. Íbúðir verða á efstu sex hæðunum, í tveimur turnum. »Nánari upplýsingar oguppdrætti af nýja skipu- laginu er að finna á www.hafnarfjordur.is NORSKA fjármálaeftirlitið rannsakar nú hvort Exista og Kaupþing hafi í sameiningu reynt að komast hjá lögum um takmarkaðan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum. Félögin eiga nú samanlagt um 26% hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand. Exista á 5,6% og Kaupþing hafði fengið und- anþágu til eiga 20%. Óbeinn eignarhlutur Exista, sem er stærsti hluthafi Kaupþings, er því 26%. Eftirlitið hefur sent bréf til félaganna og krafið þau svara til að kanna tengsl þeirra og hvort þau hafi haft samráð um kaupin sín á milli. Komist norska fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að hlutur Kaupþings og Exista skuli teljast sem einn eignarhlutur, er þeim skylt að sækja annaðhvort um leyfi eða selja þannig að samanlagður eign- arhlutur í Storebrand fari ekki yfir 20%. | 13 Exista og Kaup- þing í rannsókn LEIKFANGAFRAMLEIÐANDINN Mattel hefur innkallað yfir 18 milljónir leikfanga sökum þess að litlir seglar í þeim losna auðveldlega. Komi það fyrir að börn gleypi seglana geta þeir fest saman og valdið skemmdum í meltingarvegi. Hjá Sigurði Hansen, rekstrarstjóra Hagkaupa, fengust þær upplýsingar í gær að verið væri að fara yfir vörulista en fljótt á litið virtist sem um- ræddar vörur hafi ekki verið seldar í verslunum Hagkaupa. Þá segir verslunarstjóri í Leikbæ að sum leik- fanganna séu seld hjá þeim en ekki úr gölluðu framleiðslunni, frá maí 2003 til loka árs 2006. Erlendis hefur verið tilkynnt um þrjú slys á börnum tengd seglunum og þurftu börnin að gangast undir aðgerð. Hægt er að nálgast upplýs- ingar um innkölluðu leikföngin á www.cpsc.gov. 18 milljón leikföng innkölluð Leikföng úr gallaðri framleiðslu líklega ekki seld hér Reuters Gölluð Polly Pocket, Doggie Day Care og Barbie-leikfangasett voru m.a. afturkölluð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.