Morgunblaðið - 29.09.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 33
við sendum ykkur innilegar samúð-
arkveðjur.
Minning hennar lifir og mun vísa
okkur veginn.
Sigríður og Þorsteinn.
Elsku vinkona.
Þegar ég lít til baka finnst mér
vera svo örstutt síðan við kynntumst.
Báðar með frumburði okkar ný-
fædda, lítið meira en börn sjálfar en
tilbúnar að taka á móti lífinu. Þegar
ég flutti á Sauðárkrók 1972 varðst þú
mín besta vinkona og hefur sá vin-
skapur fylgt okkur alla tíð síðan. Ég
man hvað bjarta brosið þitt og smit-
andi hlátur þinn hafði mikil áhrif á
mig. Það var oft gaman hjá okkur á
þessum árum, sjónvarpslaus fimmtu-
dagskvöld og því gjarnan gripið í spil
eða bara spjallað um daginn og veg-
inn. Við vorum báðar svo lánsamar
að geta verið heima hjá börnum okk-
ar í nokkra mánuði og gafst þá oft
góður tími til samveru. Ég man
ferðalögin okkar til Reykjavíkur og
sérstaklega í eitt skiptið þegar við
stoppuðum í Staðarskála og þú
komst varla út úr bílnum fyrir hlátri
því þá sástu að þú hafðir lagt í ferða-
lagið á inniskónum. Þetta voru að
mestu áhyggjulítil ár og við nutum
þeirra.
Þú varst aldrei margmál um eigin
líðan og oftar en ekki sá ég um að tala
en þú hlustaðir. Þannig vinur varst
þú hafðir alltaf tíma. Þegar árin liðu
fluttum við báðar í Raftahlíðina og þó
að ekki væri langt á milli okkar fækk-
aði stundum okkar saman. Meira
varð að gera hjá okkur báðum, þú
eignaðist athvarf þitt í sveitinni þar
sem þú dvaldir mikinn hluta sumars
við gróðursetningu og þau störf sem
sveitin býður upp á. Enda er kominn
þar góður skógarlundur. Garðurinn
ykkar í Raftahlíðinni ber líka þess
merki að húsráðendur hafa haft yndi
af garðrækt.
Þegar við hittumst nú seinni árin
barst tal okkar gjarnan að barna-
börnum og hvað þú varst stolt af
þeim og áhugasöm um þeirra velferð.
Þegar ég kom til þín í sumar varst
þú orðin mikið veik en samt bjartsýn
á að þú fengir lengri frið. Þú gerðir
grín að hárleysinu, hlóst og gantað-
ist. Í fyrsta skipti síðan ég kynntist
þér talaðir þú um eigin líðan og
fannst mér það gott.
Ég þakka þér, elsku Lísa mín, fyr-
ir mikla og trausta vináttu. Ég veit að
guð hefur tekið frá þér þjáninguna
sem þú barst síðustu árin og nú liður
þér vel. Ég sendi mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur til þín, Kári minn. Atli,
Sif og fjölskyldur, að horfa á eftir
móður ykkar svona ungri er erfið lífs-
reynsla en ég veit að þið varðveitið
minningu hennar og haldið í þau gildi
sem hún kenndi ykkur. Ég veit að
þegar tíminn líður komið þið til með
að minnast hennar hlæjandi þessum
yndislega smitandi hlátri sem hreif
aðra svo auðveldlega með sér. Sendi
foreldrum, systkinum og öðrum ætt-
ingjum samúðarkveðjur. Ég kveð þig
að sinni, kæra vinkona.
Margrét Sigurðardóttir.
Það er ekki magnið heldur gæðin
sem skipta máli. Þannig var vinátta
okkar Lísu en mig langar til að minn-
ast góðrar vinkonu í fáum orðum.
Ég var svo lánsöm að kynnast
henni Lísu minni fyrir tæpu ári, þeg-
ar leiðir okkar lágu saman á Sjúkra-
hóteli Landspítalans við Rauðarár-
stíg. Þegar ég kom fram í matsalinn
fyrsta daginn birtist mér hópur fólks
sem var mjög misjafn á að líta, sumir
horfðu bara niður í diskinn sinn en
þarna var ein ung kona sem leit upp
með ljómandi brosi og bauð góðan
daginn. Ég settist auðvitað hjá henni
og það voru fyrstu kynni mín af henni
Lísu. Hún hafði þvílíka útgeislun og
hreif alla í kringum sig með gleði
sinni og jákvæði. Nei, það var sko
ekkert væl í gangi, bara hvellur og
smitandi hláturinn. Við bara ein-
hvern veginn smullum saman eins og
við hefðum alltaf þekkst. Ekki leið sá
matar- eða kaffitími sem við ekki sát-
um saman og ræddum um alla heima
og geima. Hún dreif mig af stað út að
ganga í göngugrindinni. Komdu,
sagði hún; við skulum bara kíkja að-
eins út á stétt og svo næsta dag geng-
um við aðeins lengra og svo lengra.
Það var ekki hægt að segja nei við
þessari glaðværð og jákvæði, hún var
virkilega smitandi. Ég á henni gíf-
urlega mikið að þakka. Hún Lísa mín
var líka mjög góður hlustandi og
hafði ákveðna skoðun á hlutunum en
hún gaf líka góð ráð. Við ætluðum að
bralla ýmislegt þegar ég kæmi loks
norður og eins þegar hún kæmi í bæ-
inn næst og hefði tíma og orku til. Við
náðum að kynnast mjög vel á þessum
stutta tíma sem við fengum saman.
Það eru gæði vináttunnar sem gilda
en ekki endilega magnið. Í dag þegar
ég er loksins komin norður á Sauð-
árkrók, eru það þung og sársaukafull
skref að stíga því ég er hér til að
kveðja hana Lísu mína hinsta sinni.
Í hjarta mínu mun ég alltaf minn-
ast hennar sem sólargeisla, þar sem
hún situr með bros á vör og hrífur
alla kringum sig með dillandi hlátri.
Elsku Kári og fjölskylda, megi
góður Guð styrkja ykkur í sorginni.
Minningin um ástkæra Lísu okkar
mun lifa.
Ágústa Rósmundsdóttir.
Elsku Lísa okkar
Við viljum kveðja þig með þessu
ljóði.
Vertu ekki grátinn við gröfina mína
góða, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér-
Gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér.
(Höf. ókunnur.)
Elsku Kári, Atli, Sif, Rúnar og
börn. Hugur okkar er hjá ykkur á
þessum erfða tíma.
Sigurður, Baldvina,
Dagmar, Olga, Björgvin,
Kristján og fjölskyldur.
Elsku Lísa, okkur finnst hann
kaldur þessi veruleiki, að sitja hér og
skrifa minningarorð um þig – já svo
ótrúlegur og sár.
Það er svo stutt síðan við vorum í
kaffi hjá þér í Raftahlíðinni. Þið Kári
voruð bæði heima þegar við komum
og við sátum og spjölluðum í langan
tíma. Þú barst þig svo ótrúlega vel
eins og alltaf, sagðist ætla upp á
sjúkrahús á morgun til að athuga
hvort þeir gætu ekki hresst þig eitt-
hvað við. Þú varst svo sannarlega
ekkert að gefast upp, þetta var verk-
efni sem þú ætlaðir að sigrast á.
Þú varst ekkert gefin fyrir að flíka
tilfinningum þínum en það fundu allir
sem þig þekktu að hjartað var heitt
sem undir sló. Enda varstu mikil fjöl-
skyldukona og hugsaðir vel um fólkið
þitt. Það var næstum daglega að bíll-
inn þinn stóð fyrir utan hjá mömmu
þinni og pabba. Þá var Lísa í kaffi, að
hjálpa þeim í garðinum, hengja upp
jólaskraut eða eitthvað þess háttar.
Þú varst alltaf til staðar. Þú varst líka
barngóð með afbrigðum og barna-
börnin voru þér mikill gleðigjafi. Það
fór ekkert á milli mála þegar þau
voru með þér hversu stolt þú varst af
þeim og hvað þér þótti vænt um þau.
Elsku Lísa, þú varst okkur traust-
ur vinur og systir, bæði í gleði og
sorg. Við þökkum þér fyrir trygga
samfylgd sem skilur eftir sig margar
góðar minningar.
Elsku Kári, Atli, Sif, Baldvina,
Steini og barnabörn, megi Guð
styrkja og hjálpa í sorg ykkar.
Sævar og Ingileif.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Við þökkum fyrir að hafa fengið að
kynnast Lísu og mun minningin um
góða vinkonu lifa, einnig fyrir allar
samverustundirnar sem við héldum
að yrðu svo miklu, miklu fleiri.
Guð styrki fjölskyldu hennar í
sorginni.
Hvíli hún í friði.
Fjölskyldan Raftahlíð 32.
vel af. Iðulega læddist ég upp í stofu
og hallaði mér í sófann og sofnaði
smástund. Héðinn var mikill áhuga-
maður um bækur og fræðirit. Hann
vann við bókasafnið á Þingeyrir í 55
ár og allt í sjálfboðavinnu. Ég man að
oft gaukaði hann að mér eintökum af
Úrvali og sagði að hér væri sitthvað
af greinum um náttúru og dýralíf,
sem hann vissi að ég hafði mikinn
áhuga á. Þau Dunna og Héðinn
ræktuðu stóran og fallegan garð bak
við húsið og átti ég þar oft góðar
stundir með þeim. Fljótlega var mér
kennt að rækta kartöflur og settur í
að setja niður með þeim í sandgarð-
inn á Oddanum og ég man að í fyrsta
sinn sem ég gerði það setti ég víst
eitthvað djúpt niður og Héðni varð á
orði að lítið væri komið upp úr einu
beðinu í garðinum en það var einmitt
beðið sem ég setti niður í. Héðinn
var mjög geðgóður maður og aldrei
sá ég hann skipta skapi eða tala illa
um nokkurn mann. Eitt sinn er við
Gugga komum heim í jólafrí var
Héðinn hættur að reykja en hann
reykti alltaf Camel og geymdi pakk-
ann í brjóstvasanum. Við Gugga
reyktum þá og svo Skarphéðinn svili
og Sigga mákona, og vorum við öll
þar heima. Og var þá ákveðið að við
bara hættum öll að reykja til að
styrkja hann í þessu en oft sá maður
hann klappa á brjóstvasann eftir
matinn í langan tíma eftir þetta. Oft
fórum við yfir í Arnarfjörð og þá sér-
staklega á 17. júní hátíðarhöldin á
Hrafnseyri en þar var hann fæddur
og upp alinn. Það var gaman að sitja
í bílnum með honum yfir heiðina og
hlusta á allan þann fróðleik sem
hann hafði um hvert gil, fjall eða stað
sem eitthvað hafði gerst á. Til dæmis
talaði hann oft um steininn ofarlega
á Hrafnseyrardalnum „Staupastein-
inn“ sem læknirinn stoppaði alltaf
við og fékk sér snafs, eða fjallið
handan dalsins þar sem hann var eitt
sinn hætt kominn í smalamennsku er
hann féll í klettum. Það er margs að
minnast á stundum sem þessum og
kem ég til með að sakna tengda-
pabba og heimsóknanna á sjúkrahús-
ið á Ísafirði, en þar var hann á öldr-
unardeildinni síðastliðin tvö ár. Ég
vil þakka fyrir öll þessi góðu kynni
og megi Guð geyma hann og blessa.
Dunnu tengdamömmu votta ég
mína dýpstu samúð og svo öðrum að-
standendum.
Hilmar Pálsson.
Í dag verður jarðsett kær systir,
mágkona og frænka, María Unnur
Sveinsdóttir frá Ólafsvík.
Við leiðarlok minnumst við góðrar
konu er lét sér annt um velferð allra
þeirra er á vegi hennar urðu sem og
annarra í fjarlægð, sérstaklega fólks
er átti um sárt að binda. Hún sýndi
jafnan fólki stuðning, hlýhug og
hluttekningu, hvort heldur voru
vandalausir, vinir eða fjölskylda.
Sérstaklega minnumst við um-
hyggjusemi hennar gagnvart
náunganum. Slíkt var henni eðlis-
lægt og einkennandi þáttur í skap-
gerð Mæju eins og hún var oftast
kölluð.
Hug sinn til samfélagsins sýndi
hún og í verki með mikilsverðu
framlagi í þágu fólks og byggðar hér
í Ólafsvík. Lengst af hefur hún
gegnt margvíslegum trúnaðarstörf-
um í Slysavarnadeildinni Sumar-
gjöf, sömuleiðis í starfi Kvenfélags
Ólafsvíkur en hún var fyrsti formað-
ur þess félags og var gerð að fyrsta
heiðursfélaga þess á sjötugsafmæli
sínu. Þá skal hér nefnd þátttaka
hennar í starfi Kirkjukórs Ólafsvík-
ur um áratugaskeið.
Mæja var ætíð hófsöm kona til
orðs og æðis og hafði sig lítt í
frammi og gerði ekki mikið úr eigin
ágæti. Hún var hins vegar ætíð
fórnfús í annarra þágu og lá þar
ekki á liði sínu til samhjálpar og eða
í þágu góðs og réttláts málstaðar.
Hún hafði ríkulega réttlætis-
kennd og mátti fátt aumt sjá; stað-
✝ María UnnurSveinsdóttir
fæddist í Ólafsvík 10.
ágúst 1921. Hún lést
á Hrafnistu í Reykja-
vík 18. september
síðastliðinn.
Útför Maríu Unnar
fór fram frá Digra-
neskirkju í 28. sept.
Jarðsett verður í
Ólafsvíkurkirkju-
garði í dag, laug-
ardaginn 29. sept-
ember, klukkan 12
föst var hún og í af-
stöðu sinni og
skoðunum alla sína
lífsleið.
Við kveðjum Mæju
með miklum söknuði
og virðingu; mæta
konu, kæra systur,
mágkonu og frænku.
Megi algóður Guð
veita eftirlifandi eig-
inmanni og fjöl-
skyldu styrk í sorg
þeirra.
Minningin um
mæta og merka konu
lifir og verður okkur hinum leiðar-
ljós um alla daga!
Fjölskyldan Skálholti 11,
Ólafsvík.
Mæja, móðursystir mín, hefur lík-
lega haft meiri áhrif á tilvist mína
en nokkur annar. Þegar faðir minn
flutti til Ólafsvíkur var hann kost-
gangari á heimili hennar og Steina
manns hennar. Það mun hafa gerst
óvanalega oft þennan vetur, að þau
þurftu nauðsynlega að bregða sér af
bæ, er kostgangarann bar að garði.
Var þá móðir mín fengin til að gæta
barnanna. Þessi hernaðaráætlun
þeirra Mæju og Steina, sem starfaði
með foreldrum mínum í Kaupfélag-
inu Dagsbrún, gekk upp því foreldr-
ar mínir trúlofuðu sig innan árs frá
því pabbi kom í plássið.
Fyrstu minningar mínar um
Mæju eru frá þeim tíma er ég bjó í
sömu götu í Ólafsvík og var þá dag-
legur samgangur á milli heimilanna.
Hún var þessi hlýja og sterka kona
sem sýndi börnum virðingu og alúð.
Eftir að fjölskylda mín flutti suður
var farið á hverju ári til Ólafsvíkur
og bjuggum við ævinlega á heimili
Mæju og Steina. Ég dvaldi oft hjá
henni í lengri tíma á sumrin. Á
heimilinu var ég eins og ein af heim-
ilismönnum og naut ríkulegrar gjaf-
mildi hennar. Mæja var einstaklega
góður hlustandi og ráðagóð.
Minningarnar streyma fram um
Mæju í sloppnum í eldhúsinu, þar
sem hún stendur við eldhúsglugg-
ann og lítur út á höfnina. Alltaf var
fylgst með komum bátanna. Maja
önnum kafin við heimilisstörfin en
líka að annast um allan þvott fyrir
kaupfélagið, sem gaf henni svolitlar
eigin tekjur. Ég minnist allra góðu
stundanna þar sem setið var og
spjallað var um landsins gagn og
nauðsynjar. Maja var ævinlega
áhugasöm um það sem við í fjöl-
skyldunni vorum að gera og fylgdist
grannt með hverjum og einum. Hún
tók margvíslegan þátt í félagsstörf-
um og ég minnist þess þegar hún
var að búa sig upp á til að syngja í
kirkjukórnum eða fara á fundi í
kvenfélaginu eða slysavarnarfélag-
inu.
Mæja var sterkt mótuð af æsku-
heimilinu. Hún var elsta systir í 11
systkina hópi og vandist mikilli
vinnu frá barnsaldri. Formleg
skólaganga var einungis skyldu-
námið, og enga frekari menntun að
fá í Ólafsvík á þeim tíma. Mæja var
mjög greind og víðlesin og hefði svo
sannarlega átt að fá tækifæri til að
mennta sig betur en aðstæður voru
engar til þess. Hún fór snemma að
heiman til að vinna. Hún gat kostað
sig í húsmæðraskólann á Ísafirði og
þegar hún talaði um þetta skólaár
var greinilegt hvað það hafði gefið
henni mikið. Mæja notaði þær
tekjur sem hún vann sér inn til að
létta undir framfærslu heimilisins.
Systur hennar sögðu mér til dæmis
að hún hefði sent þeim bæði kápur
og skó, en á barnmörgu heimilinu
voru engir peningar til slíkra kaupa.
Mæja var alin upp í því eins og móð-
ir mín að gera engar kröfur fyrir
sjálfa sig og láta alla aðra ganga fyr-
ir. Henni var í blóð borið að liðsinna
þeim sem voru minni máttar og taldi
sig ævinlega aflögufæra og var
reiðubúin að aðstoða aðra. Ræktar-
semi hennar við elsta bróðurinn
Einar sem glímdi ævilangt við erfið
veikindi var einstök.
Eftir að afi minn og amma féllu
frá má segja að heimili Mæju og
Steina hafi orðið miðstöð Hafnar-
hvolsfjölskyldunnar, þangað komu
allir úr fjölskyldu afa og ömmu er
leið áttu um Ólafsvík.
Mæja var afar stolt af Ólafsvík og
áhugamanneskja um sögu staðarins.
Þegar maðurinn minn heitinn, Gísli
Ágúst Gunnlaugsson, vann að því að
skrifa sögu Ólafsvíkur bjó hann á
heimili hennar og hún aðstoðaði á
margvíslegan hátt og var mjög
áhugasöm um framgang þess verks.
Eiginleikar Mæju birtast með
skýrum hætti hjá dætrum hennar
fjórum. Ræktarsemi, tryggð þeirra
og samheldni er einstök og halda
þær svo sannarlega uppi merki síns
góða bernskuheimilis.
Ég vil votta eftirlifandi eigin-
manni hennar og dætrum innilega
samúð mína. Missir Steina er mikill
enda umhyggja hans gagnvart konu
og börnum einstök og hann tók ein-
lægan þátt í taka vel á móti hennar
stóru fjölskyldu.
Berglind Ásgeirsdóttir.
Mæja, ömmusystir mín, var ein
hlýjasta kona sem ég hef nokkurn
tíma haft heiður af að kynnast.
Langamma mín dó áður en ég fædd-
ist, en þegar ég ímynda mér hvernig
hún var, verður mér strax hugsað til
Mæju. Mæja lagði hug sinn og
hjarta í að láta öllum líða sem best á
heimili hennar, auk þess sem hún
virtist hafa einstakan hæfileika til
að halda fjölskyldunni saman.
Þegar ég fylgdist með henni í
gestgjafahlutverkinu varð mér alltaf
hugsað til 60 ára sögu hennar sem
húsmóður. Þekkingin á framkomu
við fólk skein í gegnum hverja ein-
ustu hreyfingu. Allir voru velkomn-
ir, öllum var sýndur áhugi, öllum
var boðið kaffi og nýbakaðar kökur.
Ég vann nokkur sumur í dagdvöl-
inni í Sunnuhlíð þar sem Mæja kom
nokkra daga í viku. Þar sat hún
ávallt, prjónaði og spjallaði við fólk-
ið í kringum sig. Maður gat ekki
annað en dáðst að henni, hún laðaði
að sér fólk sem fannst það geta talað
við hana um allt milli himins og jarð-
ar. Mæju fannst það sjálfsagður
hlutur að hlusta á fólk tala um
vandamál sín jafnt sem gleði sína.
Hún íþyngdi aldrei neinum með sín-
um vandamálum, enda setti hún
aldrei sjálfa sig fyrst. Hún var ein
11 systkina og bar það greinilega
með sér. Mæja dáðist af framtaks-
semi og velgengni annarra en datt
aldrei í hug að segja fólki frá sinni
velgengni, enda einstaklega hóg-
vær.
Ég votta dætrum hennar, eigin-
manni og systkinum innilega samúð
mína á þessum erfiðu tímum.
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir.
María Unnur
Sveinsdóttir