Morgunblaðið - 03.10.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 269. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
GAMAN AÐ MÆLA
NEMENDUR Í NORÐLINGASKÓLA TÓKU
ÞÁTT Í ALÞJÓÐLEGU VATNSVERKEFNI >> 18
Komdu með!
>> 37
Leikhúsin í landinu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞESS sér stað í fjárlagafrumvarpi
ársins 2008 að umtalsverð áhersla er
lögð á aukin framlög til velferðarmála
og er áberandi að gert er ráð fyrir
átaki í málefnum geðfatlaðra og aukn-
um útgjöldum vegna stefnumörkunar
í málefnum barna og ungmenna.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir að
þjónusta við börn með geð- og hegð-
unarraskanir verði stórefld og greindi
heilbrigðisráðherra frá því í ágúst að
á 18 mánuðum yrði 150 milljónum
varið til að útrýma biðlistum á barna-
og unglingageðdeild Landspítalans
(BUGL). Nú sækir heilbrigðisráðu-
neytið um 24 milljón kr. framlag á
fjárlögum næsta árs til að stytta bið
eftir greiningu og meðferð á BUGL
og 5 millj. kr. til að efla ráðgjafarhlut-
verk deildarinnar. Jafnframt ætlar
ráðherra að óska eftir 30 milljónum til
þessa á fjáraukalagafrumvarpi 2007.
Bið eftir þjónustu stytt
Félagsmálaráðherra sækir m.a. um
heimild Alþingis til að auka rekstr-
argjöld Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins um 91,5 milljónir á
næsta ári. Er að því stefnt að varið
verði 70,5 milljónum til að stytta bið-
tíma eftir þjónustu stöðvarinnar við
börn. Ennfremur er sótt um 21 millj-
ón kr. til að efla þjónustu við börn
með einhverfu og þroskaraskanir. Út-
gjöld félagsmálaráðuneytisins til mál-
efna fatlaðra aukast á næsta ári um
245 milljónir. Stafar það m.a. af því að
farið er fram á 175 millj. kr. vegna
fjölgunar búsetuúrræða fyrir geðfatl-
aða en stjórnvöld samþykktu á sínum
tíma að verja einum milljarði af sölu-
andvirði Símans til ársloka 2009 til að
auka búsetuúrræði og þjónustu við
geðfatlaða. Kemur fram í fjárlaga-
frumvarpi að á næstu árum flytjist
langlegusjúklingar á geðdeild Land-
spítala á sambýli undir umsjón félags-
málaráðuneytisins. Þá má sjá að veita
á 15 millj. 2008 til skammtímavistun-
ar fyrir fötluð börn og ungmenni.
Morgunblaðið/Sverrir
BUGL Stækkun barna- og unglinga-
geðdeildar hófst í febrúar sl.
Aukið fé
í velferð-
armálin
Framlög hækka til
þjónustu við börn
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN stefnir á frekari skattalækkanir á
kjörtímabilinu sem myndu bæði ná til einstaklinga og fyr-
irtækja. M.a. er stefnt að því að hækka persónuafslátt og
endurskoða skattkerfið og almannatryggingar til að bæta
hag lág- og millitekjufólks. Þetta kom fram í stefnuræðu
Geirs H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöld.
Geir sagði mikilvægt að skapa íslenskum fyrirtækjum
þannig grundvöll að þau sæju sér hag í að vera með höf-
uðstöðvar á Íslandi og að hagstætt skattalegt umhverfi
vægi þungt. „Traust afkoma ríkissjóðs er forsenda fyrir
frekari skattalækkunum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 2008 er gert ráð fyrir verulegum afgangi á rík-
issjóði, ekki aðeins á næsta ári heldur einnig næstu fjögur
ár,“ sagði Geir en hann sagði jafnframt flest benda til þess
að þenslan, sem hefði einkennt íslenskt efnahagslíf síðustu
ár, væri á undanhaldi og framundan tímabil aukins stöð-
ugleika og meira jafnvægis.
Geir fór yfir helstu mál sem ríkisstjórnin ætlaði að vinna
að á kjörtímabilinu og nefndi m.a. end-
urskipulagningu opinberrar þróunar-
samvinnu, aukna valmöguleika í heil-
brigðisþjónustu með útboðum og
þjónustusamningum, frumvörp til laga
sem móta heildstæðan grundvöll fyrir
menntun barna og ungmenna frá upp-
hafi skólagöngu til loka og flýtingu
vegaframkvæmda á ellefu stöðum. Þá
sagði Geir svæðið við Keflavíkurflug-
völl, sem losnaði þegar varnarliðið fór
af landi brott, bjóða upp á stórfellda vaxtarmöguleika og
að áhugi fyrirtækja væri mikill, m.a. vegna nálægðar við
alþjóðaflugvöllinn. „Í samráði við sveitarfélögin á Suður-
nesjum er nú unnið að stefnumótun fyrir svæðið í heild þar
sem flugvallarstarfsemi verður auðvitað þungamiðjan,“
sagði Geir sem jafnframt vakti athygli á því að áætluð hlut-
deild fjármálafyrirtækja í landsframleiðslu hefði numið
um 10% í lok síðasta árs og að ekkert benti til annars en
áframhaldandi aukingar í umsvifum íslenskra fjármála-
þjónustufyrirtækja. | Miðopna
Forsætisráðherra boðar
hækkun persónuafsláttar
Geir Haarde
„ÞRÁTT fyrir rigninguna höfum
við notið hverrar mínútu,“ segir
Beverly Daley, félagsráðgjafi frá
Barnaspítalnum í Los Angeles, sem
stödd er hér á landi ásamt þremur
öðrum starfsmönnum spítalans,
listakennara og tíu langveikum,
bandarískum unglingum sem fengu
draum sinn uppfylltan fyrir til-
verknað Vildarbarna sem styrkja
menningarferð þeirra til Evrópu.
Að sögn Gunnars Más Sigurfinns-
sonar, framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs Icelandair og stjórn-
armanns í Vildarbörnum, er þetta í
fyrsta sinn sem sjóðurinn býður er-
lendum hóp í draumaferð sína.
Hópurinn dvaldi fimm daga í París
og þrjá daga í Reykjavík. Þema
ferðarinnar var menning og listir
og því heimsóttu ungmennin Lista-
safn Reykjavíkur í gær. Í dag fara
þau í hestaferð og loks í Bláa lónið
áður en leiðin liggur aftur heim til
Bandaríkjanna.
Í samtali við Morgunblaðið létu
ungmennin vel af ferð sinni og dvöl
hérlendis. „Mér finnst landið mjög
fallegt. Hér eru allir brosandi og
það kann ég vel að meta,“ segir
Sakay Sanchez. „Þetta hefur verið
frábær ferð,“ segir Samantha
Hernandez. „Flugferðirnar hafa
verið mjög langar en það er svo
sannarlega þess virði,“ segir María
Arias. | 12
Morgunblaðið/RAX
Brosað fyrir vélina
FER þjóðarskútan fram eða aftur?
Formenn stjórnmálaflokkanna
höfðu mismunandi skoðanir í um-
ræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra á Alþingi í gær. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, gagnrýndi
ríkisstjórnina fyrir að taka ekki á
jafnvægisleysi í hagkerfinu. „Ofþan-
ið stóriðjuhagkerfið á að fá stóraukið
eldsneyti, […]. Og Seðlabankinn og
ríkisstjórnin róa áfram sitt í hvora
áttina,“ sagði Steingrímur og spurði
jafnframt hvort ríkisstjórnin ætlaði
að koma fram með stefnu varðandi
mögulega upptöku evru eða hvort
ráðherrarnir ætluðu að halda áfram
að tala hver með sínu nefinu.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði mik-
ilvægt að ríkisstjórnin stýrði þjóð-
arskútunni fram hjá skerjum og
ölduróti. „Ógnir dagsins liggja ekki
síst í því að forsætisráðherra er
værukær og telur að allt bjargist af
sjálfu sér,“ sagði Guðni.
Vilja menn borgríki?
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, gagnrýndi
niðurskurð þorskkvótans harðlega
og sagði ekkert í mótvægisaðgerð-
unum bæta fyrir þá röngu ákvörðun.
Hann sagði hagkerfi höfuðborgar-
svæðisins ekki vera það sama og
landsbyggðarinnar, að frátöldu Mið-
Austurlandi. „Vilja menn borgríki?“
spurði Guðjón Arnar ósáttur við að-
gerðaleysi í málefnum landsbyggð-
arinnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, sagði eitt
brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar
að tryggja jafnvægi í efnahagslífinu
og boðaði einnig endurreisn al-
mannatrygginga í landinu. „Grund-
völlurinn er að við greiðum eftir
getu og þiggjum eftir þörfum,“ sagði
Ingibjörg og sagði jafnframt að jafn-
réttismálin yrðu sett í forgang.
Fer skútan
fram eða aftur?