Morgunblaðið - 03.10.2007, Page 2

Morgunblaðið - 03.10.2007, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR • Einfaldari skilmálar • Hærri bætur • Lægri eigin áhætta VÍÐTÆKASTA FJÖLSKYLDUTRYGGINGIN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti fund með Hu Jintao, forseta Kína, í gær. Fundurinn fór fram í gestabústað forsetans í Sjanghæ og sátu hann jafnframt háttsettir ráðherrar og embætt- ismenn frá Kína ásamt Gunnari Snorra Gunnarssyni, sendiherra Ís- lands í Kína, Örnólfi Thorssyni for- setaritara og Magnúsi Bjarnasyni, formanni Íslensk-kínverska við- skiptaráðsins. Samkvæmt upplýsingum frá for- setaembættinu fagnaði forseti Kína á fundinum þeim mikla árangri sem orðið hefði í samvinnu landanna frá því forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Kína fyrir tveimur ár- um. Kínverjar teldu samvinnu við Ísland vera fyrirmynd í alþjóðlegum samskiptum, um það hvernig Kín- verjar myndu starfa með öðrum þjóðum á nýrri öld. Kínverjar styðja framboð Ís- lands til Öryggisráðs SÞ Á fundinum rakti forseti Kína fjöl- mörg dæmi um árangursríka sam- vinnu við Íslendinga á sviði við- skipta, tækni, vísinda, menningar og mennta. Jafnframt lýsti hann yfir eindregnum og ótvíræðum stuðningi við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Hjá forsetaembættinu fengust einnig þær upplýsingar að sameig- inlegar hitaveituframkvæmdir í borginni Xian Yang, sem Orkuveita Reykjavíkur og Glitnir standa að ásamt kínverska orkufyrirtækinu Sinopec, hefðu borið ótvíræðan ár- angur. Forsetarnir ræddu um mögu- leika á stóraukinni samvinnu Íslend- inga og Kínverja í byggingu hitaveitna í fjölmörgum stórborgum Kína. Slíkar framkvæmdir væru ekki eingöngu mikilvægt skref til að auka hlutdeild hreinnar orku í land- inu heldur drægju þær einnig úr mengun í borgum og stuðluðu að auknu heilbrigði og lífsgæðum íbú- anna. Mikilvægt væri að ræða á næst- unni nýja áfanga í þessum efnum. Forseti Kína hvatti íslensk fyrirtæki til að láta að sér kveða í Kína og bauð þau sérstaklega velkomin. Hann nefndi í þessu sambandi m.a. lyfjaframleiðslu, flutningastarfsemi, matvælaframleiðslu, líftækni, bygg- ingaiðnað og hugbúnað. Reuters Fagnaðarfundir Hluti íslenska hópsins ásamt kínverskum gestgjöfum sínum. Alls eru 32 þátttakendur frá Íslandi staddir í Shanghai í Kína til að taka þátt í heimsleikunum, sá yngsti er tólf ára og sá elsti um fimmtugt. Árangursríkur fundur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Hu Jintao, forseti Kína, voru viðstaddir setningu heimsleikanna í Sjanghæ. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fundar með Hu Jintao, forseta Kína Árangursríku samstarfi fagnað Reuters Gleði Opnunarhátíð Special Olympics þótti sérlega glæsileg. FRÉTTASKÝRING Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ÞAÐ kemur fáum á óvart, sem veitt hafa áhuga kínverskra ráða- manna á Íslandi og auknu samstarfi ríkjanna eftirtekt undanfarin ár, að það skuli staðfest að Kína styðji framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna starfsárin 2009-2010. Hitt er fátíðara að eitt fastaríkjanna fimm í öryggisráðinu skuli opinberlega lýsa yfir jafn „ein- dregnum og ótvíræðum“ stuðningi við framboð tiltekins ríkis og Hu Jintao, forseti Kína, hefur gert. Jintao hitti Ólaf Ragnar Gríms- son, forseta Íslands, í Shanghai í gær og lýsti kínverski forsetinn yfir stuðningi við framboð Íslands til ör- yggisráðsins á þeim fundi, ef marka má fréttatilkynningu frá forseta- embættinu íslenska. Hvaða máli skiptir stuðningur Kínverja við framboð Íslands? Auð- vitað er ekki hægt að slá neinu föstu um niðurstöðuna á kjördag – en Ís- land keppir við Tyrkland og Aust- urríki um tvö laus sæti í ráðinu – en hitt vita auðvitað allir að Kína er mikill áhrifavaldur í Asíu og raunar víðar því að umsvif þeirra og áhrif í Afríku hafa verið að aukast til muna hin síðari misseri. Beiti þeir sér fyrir kosningu Íslands á þeim vettvangi – meðal þróunarríkja í Afríku – gæti það vegið þungt. Aðeins Frakkar á móti Fastaríkin fimm í öryggisráðinu – Bandaríkin, Bretland, Kína, Rúss- land og Frakkland – gefa sjaldnast upp hvaða ríki þau styðji til setu í ör- yggisráðinu, en almennt er litið svo á að slíkt sé óheppilegt þar sem þau þurfi ávallt að geta unnið með þeim sem inn í ráðið koma. Sitthvað er þó hvíslað. Rússar eru sagðir styðja framboð Íslands, en að þeim verði að halda við efnið fram til síðasta dags, ella geti þeir gengið úr skaftinu. Ýmislegt þykir benda til að Bretar séu í hópi stuðningsríkja ís- lenska framboðsins, þó að engu verði hér slegið föstu. Frakkar hafa hins vegar ekki fengist til að lýsa yfir stuðningi við Ísland og eru eina fastaríkið í öryggisráðinu sem er sannarlega ekki meðal stuðnings- manna okkar (a.m.k. að svo stöddu). Um Bandaríkjamenn er sagt að þeir muni aldrei nokkurn tímann segja okkur hvort þeir styðji framboð okk- ar, hvorki nú né eftir að kosningin er afstaðin. Lengra ganga þeir ekki en segja að þeir fagni því að traust lýð- ræðisríki á borð við Ísland bjóði sig fram til setu í ráðinu, en einmitt þannig komst Nicholas Burns að- stoðarutanríkisráðherra að orði er hann heimsótti Ísland í júní. Stuðningur Kínverja gæti vegið þungt BORGARSTJÓRN samþykkti í gær einróma tillögu meirihlutans um að borgin og Skáksamband Íslands kanni í sameiningu möguleikann á því að heimsmeistaraeinvígi Vishwanathans Anands, nýbakaðs heimsmeistara í skák og Vladímírs Kramniks, fyrrum heimsmeistara, verði haldið hér á landi að ári. Í tillögunni sem Björn Ingi Hrafnsson bar fram segir að einvíg- ið verði einhver mesti skák- viðburður allra tíma og að mörg rök mæli með því að Íslendingar bjóðist til að taka einvígið að sér. Björn Ingi sagði að samþykkt hefði verið að Reykjavík yrði sérstök skákborg. Hugmyndin um einvígið hefði síðan kviknað í samtölum nokkurra borgarfulltrúa og for- svarsmanna Skáksambandsins. Vilja að einvíg- ið verði haldið í Reykjavík GUÐJÓN Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, hefði mátt vekja meiri athygli á því að þótt enginn af þeim 25 fastráðnu flug- mönnum sem félagið sagði upp í lok ágúst myndi missa vinnuna í des- ember, myndu 15 þeirra missa vinnuna 1. janúar. Þetta er a.m.k. álit Jóhannesar Bjarna Guðmunds- sonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. „Mér finnst þetta hafa verið mál- að fegurra en það er,“ sagði Jó- hannes Bjarni í samtali við Morg- unblaðið. Staðan væri sú að samningar við 15 fastráðna flug- menn hefðu aðeins verið fram- lengdir um einn mánuð og þótt þeir myndu ekki missa vinnuna strax í desember væri stutt í það. Þá hefði verið óþarfi hjá Guðjóni að halda því fram að óþarfar aðgerðir flug- manna í byrjun september hefðu valdið fyrirtækinu tjóni. Áhrifin sem urðu af hinum meintu aðgerð- um hefðu verið sök félagsins. Jóhannes Bjarni sagði að FÍA hefði lengi gagnrýnt þá stefnu Ice- landair að segja upp starfsmönnum ef einhver möguleiki væri á að ekki væru til verkefni fyrir flugvélar. Starfsmenn sem hefðu sýnt félag- inu trúnað í gegnum árin fengju ekki að njóta nokkurs vafa. Ice- landair hefði þannig farið offari í uppsögnum. Missa vinnuna, bara seinna MIKIÐ var um dýrðir í Sjanghæ í Kína þegar heims- leikar Special Olympics voru settir í gær. Um er að ræða stærstu íþróttahátíð sem haldin er í heiminum í ár en þar eru 7.300 þátttakendur frá 165 þjóðum, þar á meðal 32 þátttakendur frá Íslandi. „Þetta var sérlega glæsilega setningarathöfn og vel skipulögð,“ sagði Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, fram- kvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið að athöfn lokinni. Segir hún íslensku þátttakendurna varla hafa átt nógu sterk orð til að lýsa hrifningu sinni og margir tekið andköf af aðdáun. Alls voru 80 þúsund áhorfendur við athöfnina. Að sögn Önnu vakti það mikla athygli að forseta- hjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, sátu í heiðursstúkunni með forseta Kína. „Það gerði stemninguna enn meiri en ella að hafa forsetann við- staddan,“ sagði Anna. Fyrsti keppnisdagurinn leikanna er í dag. Sérlega glæsileg setningarathöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.