Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 15

Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 15 ERLENT SENDIMAÐUR Sameinuðu þjóð- anna, Ibrahim Gambari, ræddi í gær við leiðtoga herforingja- stjórnarinnar í Búrma, Than Shwe, til að reyna að binda enda á blóðuga herferð hennar gegn andófs- mönnum. Gambari átti síðan stutt- an fund með Aung San Suu Kyi, leiðtoga lýðræðissinna í Búrma. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun þar sem það fordæmdi blóðugar árásir öryggissveita herforingja- stjórnarinnar til að brjóta fjölda- mótmæli búddamunka á bak aftur. Rætt við leið- toga Búrma Aung San Suu Kyi FJÖLDI þingmanna í Pakistan hef- ur sagt af sér til að mótmæla fyr- irhuguðu forsetakjöri á laugardag. Þá er talið víst að Pervez Mushar- raf verði endurkjörinn forseti en þingmennirnir telja kjörið ólöglegt. Mótmæla kjöri GONÇALO Amaral, portúgalskur lögreglumaður sem hefur stýrt rannsókn á hvarfi ensku stúlkunnar Madelene McCann, hefur verið leystur frá störfum sem yfirmaður lögreglunnar í Portimao. Rekinn GORDON Brown, forsætisráðherra Bretlands, er nú í heimsókn í Írak og lýsti því yfir í gærmorgun að 1.000 breskir hermenn yrðu kall- aðir frá landinu fyrir árslok. Um 5.000 Bretar eru nú í landinu. Reuters Innlit Gordon Brown ávarpar breska hermenn í Írak. Brown í Írak BANDALAG Víktors Jústsénkós forseta og Júlíu Tímósénkó, sem vilja auka samstarf við vestræn ríki, var í gær enn með afar nauma forystu í Úkraínu er búið var að telja um 98% atkvæða í kosning- unum á sunnudag. Bandalag Vík- tors Janúkóvítsj forsætisráðherra, sem er hlynnt Rússum, var með ör- lítið minna fylgi. Liðsmenn hinna fyrrnefndu saka Janúkóvítsj og menn hans um kosningasvik. Reuters Fagnað Janúkóvítsj með vinum. Enn nær jafnt VITNI við réttarhöld yfir meintum hryðjuverkamönnum í Danmörku segir að þeir hafi ætlað að beita fjarstýrðri sprengju til að myrða ritstjóra Jyllands-Posten vegna teikninga af Múhameð spámanni. Ráðgerðu morð Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is KIM Jong-Il, forseti Norður-Kóreu, tók óvænt á móti Roh Moo-Hyun, for- seta Suður-Kóreu, þegar hann kom í heimsókn til Pyongyang í gær en áætlanir höfðu gert ráð fyrir því að næstráðandi Kims, Kim Yong-Nam, tæki á móti Roh. Bjartsýnismenn sögðu þetta góðs vita og auka líkur á því að efnt verði til formlegra samn- ingaviðræðna um hvernig binda megi enda á formlegt stríðsástand sem enn er í gildi milli ríkjanna tveggja. Eftir því var þó tekið í gær að Kim virtist heldur áhugalaus um gestinn og stökk vart bros meðan á móttöku- athöfn stóð. Þetta er aðeins í annað skipti sem forsetar ríkjanna tveggja hittast á fundi, en í tæknilegum skilningi eiga löndin tvö enn í stríði þó að Kóreu- stríðinu hafi í reynd lokið með gerð vopnahlés 1953. Kim Jong-Il hitti forvera Roh, Kim Dae-Jung, á sögulegum leiðtogafundi 2000 og vonuðust menn til að það markaði nýtt upphaf í samskiptum ríkjanna. Af því hefur þó ekki orðið og heimsókn Rohs til Norður-Kóreu hefur verið gagnrýnd á þeirri for- sendu að forsetinn hafi ekki í raun neinar raunhæfar hugmyndir um hvernig eigi að brúa það bil sem enn er milli ríkjanna tveggja. Tilgangur heimsóknarinnar sé fyrst og fremst að skapa jákvæða mynd af Roh sem lætur af embætti á næsta ári. Kim áhugalaus á svip er hann tók á móti Roh Aðeins í annað skipti sem forsetar Suður- og Norður-Kóreu hittast á sextíu árum AP Góðir gestir? Suður-kóreski forsetinn Roh Moo-hyun (t.v.) ásamt konu sinni, Kwon Yang-sook, heilsar Kim Yong Nam, næstráðanda Kims Jong-Il, í Pyongyang í gær. Kim Jong-Il, forseti N-Kóreu, fylgist með. FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is SÚ ÁKVÖRÐUN Vladímírs Pútíns að taka efsta sæti á landslista stærsta flokks landsins í komandi þingkosningum og verða ef til forsætisráðherra er liður í því að tryggja að hann sitji við stjórn- artaumana eftir að hann lætur af embætti Rúss- landsforseta á næsta ári. Stjórnmálaskýrendur telja að ákvörðunin geti orðið til þess að þingið og ríkisstjórnin eflist á kostnað forsetaembættisins og hugsanlegt er að hún leiði til grundvallarbreyt- inga á stjórnkerfi landsins. Pútín sagði í fyrradag að það væri „algerlega raunhæft“ að hann yrði forsætisráðherra eftir þingkosningarnar 2. desember. Pútín þarf að láta af embætti forseta í mars þar sem stjórnarskrá landsins kveður á um að enginn megi gegna því lengur en í tvö kjörtímabil í röð. Pútín getur á hinn bóginn verið forsætisráðherra og sóst síðar eftir forsetaembættinu í tvö kjörtímabil til við- bótar. Fetað í fótspor de Gaulle? Fjölmiðlar í Evrópu sögðu áform Pútíns fléttu í valdatafli sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyr- ir lýðræðið í Rússlandi. „Hefur Vladímír Pútín tekið lýðræðið úr sambandi?“ spurði blaðamað- urinn Michael Binyon í grein í breska dagblaðinu The Times. Hann sagði áform forsetans staðfesta að lýðræðinu í Rússlandi hefði alltaf stafað mest hætta af „öflugum keisara“. The Daily Telegraph tók í sama streng í for- ystugrein, sagði að Pútín hygðist „vafalaust til- nefna strengjabrúðu í forsetaembættið og halda þeim völdum sem hann hefur núna“. „Pútín er hættulegur maður sem uppburðarlítið alþjóða- samfélagið hefur alltof lengi stjanað við.“ Nokkur þýsku blaðanna sögðu að ekkert virtist því til fyrirstöðu að Pútín yrði mjög lengi við völd. „Því fer fjarri að tímabili Pútíns sé að ljúka. Þvert á móti er það rétt að byrja,“ sagði Frankfurter Allgemeine Zeitung. „Við völd að eilífu“ var fyrirsögn ítalska dag- blaðsins La Repubblica. Il Corriere della Sera sagði að til að Pútín gæti tekið við embætti for- sætisráðherra þyrfti hann finna eftirmann í for- setaembættið sem hefði „ekki valdametnað og sýnir forsætisráðherranum mikla hollustu“. Austurríska blaðið Kurier sagði að Pútín hefði „hitt nokkur skotmörk með einum steini. Hann tryggir flokki sínum enn stærri sigur, velur í raun sjálfur forseta sem hann starfar með næstu fjögur árin og getur boðið sig fram til forseta 2012“. Tékkneska dagblaðið Lidove Noviny sagði að Pútín hygðist endurmóta rússneska stjórnkerfið eftir eigin höfði. „Fyrir rúmri öld breytti Charles de Gaulle Frakklandi úr lýðveldi undir forystu forsætisráðherra í forsetalýðveldi. Pútín fetar í fótspor hans en í öfuga átt: breytir Rússlandi úr forsetalýðveldi í lýðveldi undir forystu forsætis- ráðherra.“ „Byltingarkennt skref“ Þótt evrópsku blöðin hafi verið gagnrýnin á áform Pútíns voru flest rússnesku dagblaðanna hlynnt þeim eða hlutlaus. Þau ganga út frá því sem óhjákvæmilegri staðreynd að Pútín verði áfram mjög áhrifamikill eftir að hann lætur af for- setaembættinu. „Það er ekki mikilvægt hver verður forseti ef þingið og ríkisstjórnin verða undir forystu núver- andi leiðtoga landsins,“ sagði blaðið Vremja No- vostej. Önnur blöð veltu því fyrir sér hvernig staðið yrði að breytingunni. Eitt þeirra, Kommersant, spáði því að næsti forseti Rússlands segði af sér áður en kjörtímabilinu lyki vegna veikinda eða af öðrum ástæðum til að hægt yrði að kjósa Pútín aftur í forsetaembættið. Rússneski stjórnmálaskýrandinn Vladímír Príbylovskí, sem hefur oft gagnrýnt forsetann, spáði því að Pútín og bandamenn hans sæju til þess að „þægur“ eftirmaður hans yrði kjörinn með rétt rúmum 50% atkvæða, þannig að hann yrði ekki með skýrt umboð kjósenda eins og Pútín sem nýtur nú stuðnings 80% Rússa, ef marka má skoðanakannanir. Nokkrir stjórnmálaskýrendur sögðust telja að þegar fram liðu stundir gætu áform Pútíns stuðl- að að auknu fjölræði í Rússlandi og aukið völd þingsins og ríkisstjórnarinnar á kostnað forseta- embættisins. „Þetta er byltingarkennt skref,“ sagði stjórn- málaskýrandinn Gleb Pavlovskí, sem tengist ráðamönnunum í Kreml. „Þetta er í fyrsta skipti frá 1991 sem þungamiðja valdanna færist frá Kreml. Þetta er stórt skref í átt að raunverulegu fjölræði í landi okkar.“ Aðrir stjórnmálaskýrendur töldu að grundvall- arbreytingar á rússneska stjórnkerfinu kynnu að vera á döfinni. Nokkrir þeirra vöruðu þó við því að aukin völd þingsins gætu leitt til eins flokks kerfis líkt og í Sovétríkjunum, þ.e. að aðeins einn flokkur yrði fær um að mynda ríkisstjórn. „Pútín við völd að eilífu“ AP Stólaskipti? Vladímír Pútín forseti hlustar á Viktor Zúbkov forsætisráðherra í Kreml í gær. Í HNOTSKURN » Litlar líkur eru nú taldar á því að Pútínlýsi yfir stuðningi við forsetaframboð Sergejs Ívanovs eða Dmítrís Medvedevs, tveggja aðstoðarforsætisráðherra. » Líklegt er að Pútín styðji Viktor Zúbk-ov sem hann tilnefndi forsætisráðherra í liðnum mánuði. » Zúbkov er 66 ára gamall og líklegt erað Kremlverjar telji hann tilvalinn í for- setaembættið vegna aldurs hans og holl- ustu hans við Pútín. Færi svo að Zúbkov léti af embætti vegna veikinda væri hægt að kjósa Pútín aftur forseta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.