Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 20
|miðvikudagur|3. 10. 2007| mbl.is daglegtlíf Samhjálp kvenna er hópur sjálf- boðaliða sem styður konur sem greinast með brjóstakrabba- mein. » 24 heilsa „Hættu að rugga þér á stóln- um“, er oft sagt við börn en ekkert er þeim samt eðlilegra eins og raunar fullorðnum. » 25 daglegt Við höldum að það sé afar fátítt að gertsé afmælisrit um ketti, hvað þá aðtvisvar hafi verið haldið upp á tíu áraafmæli þeirra. En við þurftum að halda tvisvar upp á það í þetta sinn, vegna þess að það komust ekki allir á afmælisdaginn. Það var mikil gleði báða dagana, góðir gestir, spilað og sungið og heiðurskötturinn Þorkell Ágúst Högnason alveg alsæll með þetta allt saman,“ segja þeir Bjarni Valtýr Guðjónsson og Helgi Ásgeirsson um köttinn sem heitir þessu virðu- lega nafni en er yfirleitt kallaður Keli. Ekki er hann alls óvanur þessu afmælisumstangi því ár hvert er haldið veglega upp á afmælið hans og fyrri eigandi hans las ævinlega upp á þeim degi kvæðið Á afmæli kattarins eftir Jón Helgason. Þoldi ekki miðbæjarsollinn „Keli er miðbæjarköttur og býr hérna hjá mér á Njálsgötunni en hann flutti alfarið til mín fyrir tveimur árum eftir að eigandi hans og vinkona mín á efri hæðinni, hún Jóhanna Þráinsdóttir, féll frá. Hann var eiginlega orðinn sameign okk- ar og vappaði hér á milli hæða. Yfirleitt var hann hjá Jóhönnu á daginn en trítlaði niður til mín á kvöldin og svaf þar,“ segir Helgi og bætir við að þegar Keli bjó á báðum hæðum og þurfti að fara um stigaganginn, þá var hann vanur að teygja sig upp í póstlúguna og kíkja út til að leita frétta af heiminum fyrir utan. „Keli er al- farið inniköttur enda er hann með lítið hjarta og alls ekki hugaður. Hann þoldi ekki miðbæjarsoll- inn sem hann kynntist lítillega í byrjun ævi sinn- ar, hann var í villu í Vesturbænum en heldur sig innandyra núna til að forðast útihættur. Við för- um þó reglulega með hann í búri niður á Skóla- vörðustíg til Guðbjargar dýralæknis svo hann geti fengið sínar lögbundnu heilbrigðissprautur og annað slíkt.“ Mikið ort af ljóðum til Kela Síðustu fjögur árin hefur að staðaldri verið ort um mektarköttinn Kela, enda er Kelabók full af lausavísum og ljóðmálum sem honum er til- einkað og flest er það eftir Bjarna Valtý og Helga. „Þegar ég kom í fyrsta sinn í afmæli Kela fyrir fjórum árum þá færði ég honum mikinn bálk sem ég orti til hans og heitir Kelabragur og er fimm erindi. Flest sem til hans hefur verið ort er gert við þekkt sönglög svo hægt sé að syngja herlegheitin fyrir köttinn,“ segir Bjarni Valtýr sem er hagmæltur mjög og söngglaður enda er hann kirkjuspilari vestur á Mýrum. Þeir vinirnir Helgi og Bjarn Valtýr settu saman ljóðabálkinn Á Þorkelsdegi í tilefni af átta ára afmmæli kattarins og þar er þetta erindi: Gleðjast skulum glöggt með Kela, gleði megum aldrei fela. Nú skal fagra hátíð halda, hefja ljóð og söng til valda. „Kela nefni ég kíkil í sumum vísunum en kíkill er gæluorð yfir kött sem ég lærði í bernsku,“ og í þeim töluðu orðum varpar Bjarni Valtýr fram hringhendu: Aldrei heykist, eflir frið, oft sig hreykinn strýkur. Kæra leiki kannast við kíkill Reykjavíkur. Keli hefur fengið mörg póstkort Í Kelabók er að finna ýmsan fróðleik um þennan ofdekraða heillakött, bæði einkenni og feril. Þar er meðal annars langfeðgatal og eigna- skrá hans. „Hann á gott safn leikfanga og má þar nefna músina Langrófu og Kroppinbak sem er íbjúgur bangsi. Keli á líka myndamöppu sem er stútfull af ljósmyndum af honum og eins á hann veglegt kortasafn, en honum hafa borist fjölmörg póstkort um ævina.“ Orðspor Kela hef- ur farið víða og til dæmis hefur hans verið getið í fimm minningargreinum og geri aðrir kettir betur. Fastakúnnar á Tíu dropum Keli er stór og þungur og feldurinn hans ein- staklega mjúkur enda er hann lystugur og nýtur góðrar umsjónar vinanna Helga og Bjarna Val- týs. „Ég bý í Borgarnesi en í hvert skipti sem ég kem til Reykjavíkur þá held ég til hér á Njáls- götunni. Ég kynntist Helga og Kela fyrir fáum árum í gegnum sameiginlegan vin og nú er ég orðinn eins og hver annar heimagangur hér á Njálsgötunni,“ segir Bjarni Valtýr en hann og Helgi hafa það fyrir sið þegar báðir eru í bæn- um að fara saman á kaffihúsið Tíu dropa á Laugaveginum og þar hitta þeir ævinlega Ketil Larsen. Í hvert sinn búa þeir til vísu handa hon- um sem þeir fara með fyrir hann yfir kaffibolla og er Ketill því fremri fornkonungum sem höfðu aðeins eitt hirðskáld en ekki tvö. khk@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinir Keli kann vel við sig heima á Njálsgötunni með þeim Bjarna Valtý og Helga og hann sækir í að liggja undir græna flísteppinu. Gestabók Á afmælisdag Kela var sérstaklega vandað til gestabókarskrifa. Vel haldinn Keli er mikill að vexti enda ofdekr- aður í mat sem öðru. Kíkill Reykjavíkur Vinirnir Bjarni Valtýr og Helgi héldu í tvígang upp á tíu ára af- mæli aðalkattarins á miðborg- arbrúninni. Kristín Heiða Krist- insdóttir heimsótti þessa heiðursmenn sem gáfu út Kela- bók í tilefni afmælisins. UM helmingur fólks kíkir á skjá sessunautarins í vinnunni, nú eða þá hjá þeim sem situr við hlið þeirra á flugvellinum. Það hafa flestir gerst sekir um slíkar skjágægjur hvort sem þeir ætla sér það eða ekki, því þegar gengið er framhjá tölvuskjá er einfaldlega eins og at- hyglin beinist ósjálfrátt að því sem þar er að gerast. Í nýlegri banda- rískri könnun, meðal starfsmanna í viðskiptalífinu, viðurkenndu um 45% að hafa kíkt á skjá nágrannans og enn fleiri könnuðust við að kíkt hefði verið á þeirra skjá. Nú er hins vegar búið að hanna sérstaka skjáfilmu sem kemur í veg fyrir slíkt. Um er að ræða þunnan skjáfilter sem tölvutöskuframleið- andinn Targurs hefur sett á mark- að, en filterinn hindrar að það sjáist á skjáinn frá hlið. Eru það litlar lóð- réttar þynnur sem koma í veg fyrir að aðrir en sá sem situr beint fram- an við skjáinn geti lesið á hann. Sé skjástaðan meira en 45° til hægri eða vinstri við tölvuna þá er hann einfaldlega svartur ásýndar. Það er svo bónus fyrir þá sem vilja hindra gægjur á skjá sínum að filterinn kemur einnig í veg fyrir endurvarp á skjánum og gefur þar með skýrari mynd. Skjágægj- urnar búið spil Aðdráttarafl Tölvuskjárinn hefur mikið aðdráttarafl fyrir augu þeirra sem framhjá ganga. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.