Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 33 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Opin vinnustofa kl. 9- 16.30. Leikfimi kl. 8.30. Postulínsmálun kl. 9 og kl. 13. Gönguhópur kl. 11. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa- vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30 og heilsugæsla kl. 10-11.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, morgunkaffi/ dagblöð, glerlist/opin vinnustofa, fóta- aðgerð, matur, spiladagur, kaffi. KB banki opinn í dag. Uppl. í s. 535-2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan í Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-11.30. S. 554- 1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 15-16. S. 554-3438. Félagsvist er í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikud- ögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Skráning er hafin í félagsmið- stöðvunum í haustlitaferð 4. október nk. Brottför frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu- Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. Söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður Jónsson og Helgi Seljan. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30. Glerlist kl. 9.30 og 13. Handavinna kl. 10, leiðbeinandi verður við til kl. 17. Félagsvist kl. 13. Söngur kl. 15.15, Guð- rún Lilja mætir með gítarinn. Viðtalstími FEBK kl. 15-16. Bobb kl. 16.30. Línudans kl. 18. Samkvæmisdans kl. 19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9.05 myndlist, kl. 10 ganga, KB banki hefur opið kl. 10-11. Kl. 11.40 matur, kl. 13 postulínsmálun og kl. 13 kvennabrids. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi í Kirkjuhvoli kl. 9, 9.45 og 10.30. Brids í Garðabergi kl. 13. Búta- saumshópur (sjálfstæður) í Kirkjuhvoli kl. 13, flytur í Jónshús. Garðaberg opið kl. 12.30-16, heitt á könnunni. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, m.a. handavinna. Kl. 10 dansæfing í samstarfi við FÁÍA (Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra), umsj. Guðrún Nielsen. Frá hádegi er spilasalur opinn. Á morgun kl. 12.30 myndlist. Bókband hefst föstud. 5. okt. Stræt- isvagnar 4, 12 og 17 stansa við Gerðu- berg. Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnar kl. 9, línudans kl. 11, saumar kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, jólasokkar, taumálun, glermálun o.fl. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrting s. 517-3005. Blöðin liggja frammi. Hæðargarður 31 | Daglegar gönguferð- ir, Mullersæfingar, magadans, almenn leikfimi, Thai Chi og styrktarhópurinn í samvinnu einkaþjálfara hjá World Class í Laugum. Selma Jónsdóttir leiðbeinandi er komin til starfa. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Pútt á Korpúlfs- stöðum á morgun kl. 10. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, fimmtudag, er Listasmiðjan opin á Korpúlfsstöðum kl. 13-16. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnu- stofan í handmennt opin. Félagsvist kl. 14. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla, fótaaðgerðir. Kl. 9-12 aðst. v/böðun. Kl 9.15-16 handavinna. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-12.45 matur. Kl. 12.15-14 versl- unarferð í Bónus. Kl. 13-16 tréskurður. Kl. 14.30-15.45 kaffi. Þórðarsveigur 3 | Opin handavinnu- stofa kl. 9-14. Gönguferð kl. 14. Boccia kl. 15. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Starf með 10-12 ára börnum kl. 14-15. Starf með 9-12 ára börnum kl. 15-16. Áskirkja | Hreyfing og bæn kl. 11 í umsjá djákna Áskirkju. Safnaðarfélag Ás- prestakalls verður með félagsvist í safn- aðarheimili kirkjunnar kl. 20 í kvöld. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í Holtakoti kl. 10-12. Gestur, Heiða Davíðs- dóttir hj.fr. Starf eldri borgara í Litlakoti kl. 13-16. Spilað, telft og spjallað. Kaffi og meðlæti á staðnum. Bæna/kyrrðar- stund verður í húsnæði Bessastaða- sóknar í leikskólanum Holtakoti á Álfta- nesi kl. 20 í kvöld. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, tónlist, hugvekja og fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Starf fyrir eldri borgara kl. 13.30, ferða- saga í myndum. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðs- félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf eldri borgara í kirkjunni í dag kl. 13-16.30. Spilað, föndr- að og handavinna. Gestur kemur í heim- sókn. Digraneskirkja | Safnaðarfræðsla: Sr. Magnús Björn Björnsson kynnir verkefni sem hann vinnur að við Háskóla Íslands í safnaðaruppbyggingu kl. 20. Dómkirkjan | Hádegisbænir í dag kl. 12.10-12.30. Hádegisverður á kirkjuloft- inu á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.- is. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, altarisganga og fyrirbænir. Boðið upp á hádegisverð að lokinni stundinni. Prest- ar safnaðarins annast stundina. Organ- isti: Hörður Bragason. TTT fyrir börn 10- 12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17-18 í Korpuskóla. Hjallakirkja | Kynningarfundur um tólf spora námskeið í kvöld kl. 20. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Kristi- legur kvennafundur kl. 20, hjálparflokk- ur. Nánari uppl. í s. 462-4406/896- 6891. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæna- stund kl. 12, máltíð í lok stundarinnar. Hveragerðiskirkja | Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10, T T T-starf á fimmtu- dögum kl. 18-19 unglingastarf KFUM/ KFUK á fimmtudögum kl. 20-21.30. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58-60. Söngsamkoma verður í kvöld kl. 20. Vitnisburðir og frásögur um uppá- haldssöngva. Kaffi eftir samkomuna. Allir velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 10 foreldramorg- unn. Kl. 10.30 gönguhópurinn Sólar- megin. Öllum velkomið að slást í för. Kl. 14.30 Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) Um- sjón hafa prestar og kirkjuvörður safn- aðarins. Fermingarfræðslutímar falla inn í ferðalag í Vatnaskóg. Heimkoma við Laugalækjarskóla í kvöld kl. 21. Vídalínskirkja Garðasókn | Fræðsla kl. 10.30 á foreldramorgnum, sr. Jóna Hrönn ræðir um ,,uppeldi barna“ og áhrif umhverfissins. Kaffiveitingar á staðnum. dagbók Í dag er miðvikudagur 3. október, 276. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Daníel sagði: "Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn." (Daníel 2, 20.) Kiwanis á Íslandi efnir tillandssöfnunar dagana 4. til7. október, undir yfirskrift-inni Lykill að lífi. Bernhard Jóhannesson er formaður K-dagsnefndar: „Allt frá árinu 1974 hefur Kiwanis reglulega staðið fyrir söfnun á landsvísu til aðstoðar við ein- staklinga með geðraskanir,“ segir Bernhard, en ágóði af söfnuninni að þessu sinni rennur til Geðhjálpar, BUGL og Forma. Tökum vel á móti sjálfboðaliðum Sjálfboðaliðar Kiwanis munu ganga í hús og fyrirtæki um allt land, og verða einnig við verslanir og samkomustaði: „Við seljum barmnælur á 1.000 kr. og renna öll framlög óskipt til málefnisins. Einnig hefur Kiwanis leitað til fyr- irtækja um stuðning við söfnunarátak- ið, og er gaman að nefna að Sparisjóð- irnir á Íslandi, Toyota-umboðið, Bónus og Olís eru sérstakir bakhjarlar söfn- unarinnar. Stærsti bakhjarlinn er þó þjóðin, sem með örlæti sínu gerir okk- ur kleift að styðja það góða starf sem unnið er í geðverndarmálum.“ Söfnunarfénu vel varið Geðhjálp mun m.a. nýta það fé sem safnast til að byggja upp starfsemi stuðningshópa um allt land. Við Barna- og unglingageðdeild verður fjármunum varið til að bæta aðstöðu til hollrar hreyfingar og uppbyggilegrar tóm- stundaiðju. Forma eru samtök átröskunar- sjúklinga, og mun það fé sem til þeirra rennur nýtast til ráðgjafarstarfs um land allt, og forvarnarfræðslu í 8. bekk grunnskóla og fyrsta bekk framhalds- skóla til að sporna við fjölgun átrösk- unarsjúklinga. Vekja til vitundar „Um leið og við efnum til söfnunar- innar viljum við minna á þann mikla vanda sem geðraskanir eru, og mik- ilvægi þess að búa vel að æsku landsins í þessum málaflokki, með vönduðum og snemmtækum meðferðarúrræðum og forvarnarstarfi,“ segir Bernhard að lokum. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu Kiwanis á slóðinni www.kiw- anis.is Góðgerðarstarf | Kiwanis safnar fyrir góðu málefni dagana 4. til 7. október Lykill að lífi – landssöfnun  Bernhard Jó- hannesson fæddist í Borgarfirði 1951. Hann lauk gagn- fræðanámi frá Núpi í Dýrafirði. Bernhard starfaði sem garð- yrkjubóndi um þriggja áratuga skeið. Hann var jafnframt slökkviliðs- stjóri og einnig fréttaritari fyrir Morg- unblaðið. Hann hefur undanfarin 10 ár verið eftirlitsmaður Brunamálastofn- unar. Eiginkona Bernhards er Hugrún Björk Hauksdóttir leiðbeinandi og eiga þau þrjá syni og sex barnabörn. Tónlist DOMO Bar | Heiðursgestur söngvaskáldakvölds er Dr. Gunni sem flytur ný og eldri lög. Fyrst flytja 5 önnur söngvaskáld tvö lög hvert með Hrynsveit Eyþórs Gunnarssonar. Kvöldinu lýkur með Jam Session tónlistar- mannanna. Dagskráin hefst kl. 20 í beinni útsendingu Kasat- ljóss en aðgangseyri er kr. 500. Tríó Sunnu Gunnlaugs leikur á jazzkvöldi Múlans kl. 22. Tríóið leikur eigin tónsmíðar sem höfða til fleiri en bara jazzunn- enda. Meðlimir eru Sunna Gunn- laugs á píanó, Þorgrímur Jóns- son á bassa og Scott McLemore á trommur. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Ísafjarðarsókn | Franski fiðlu- snillingurinn Gilles Apap leikur ásamt Hjörleifi Valssyni, Bar- dukha og Íslensku Kammersveit- inni í Ísafjarðarkirkju. Apap er heimskunnur fyrir sérstæðan og fjölbreyttan stíl og á það til að bregða sér í allra kvikinda líki. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Salurinn, Kópavogi | Tónleikar Þjóðlagahljómsveitar Söng- leikja- og dansstofnunar Wuhan- borgar í Salnum, kl. 20. Uppákomur Safnahús Kópavogs | Kennsla í flugdrekasmíði undir leiðsögn kínverska flugdrekagerðarmeist- arans Kong Lingmin í Kórnum, fundarsal Safnahússins, kl. 14. Fyrirlestrar og fundir Krabbameinsfélagið | Skóg- arhlíð 8. Góðir hálsar, stuðnings- hópur um krabbamein í blöðru- hálskirtli, verða með rabbfund í dag kl. 17. Gestur fundarins er Jón Eyjólfur Jónsson öldrunar- læknir og ræðir m.a. um notkun svefnlyfja. Safnahús Kópavogs | Jarðhiti í Kína og á Íslandi. Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðu- maður Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, flytur er- indi í Kórnum, fundarsal Safna- hússins, kl. 17.15. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður á Snæfellsnesi í dag, 3. okt. Stykkishólmur við Íþrótta- miðstöðina kl. 8.30-12.30. Ólafs- vík við Söluskálannn ÓK kl. 14- 17. Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur | Matar-og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið við hreinum fatnaði og öðrum varningi á þriðjudög- um kl. 10-15. Sími 551-4349, netfang maedur@simnet.is Frístundir og námskeið Hótel Saga | Vinahópur (áður Vinahjálp) brids á Hótel Sögu í dag kl. 13. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Félags- vist í kvöld í félagsheimilinu, Há- túni 12. Allir velkomnir. ÞETTA var heldur óvenjuleg tískusýning hjá franska hönnuðinum Stanislassia Klein. Fór hún fram í safninu Musee de l’Orangerie og þar sýndu fyrirætur sumarlínuna 2008. Tíska Sitjandi fyrirsætur Reuters FRÉTTIR SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Landsbjörg og Landspítali hafa gert með sér samning um þátt- töku lækna LSH í starfi Ís- lensku alþjóðasveitarinnar. Í fréttatilkynningu segir að samkvæmt samstarfssamn- ingum sjái Slysavarnafélagið Landsbjörg m.a. um stjórn, skipulag og kostnað vegna út- kalla sveitarinnar. Í því felist m.a. að standa undir kostnaði vegna alls búnaðar, dagpen- inga, bólusetninga og fleira. Eins muni félagið standa fyrir æfingum og gefa út handbók með nauðsynlegum upplýs- ingum fyrir þátttakendur í starfi sveitarinnar. Landspítali muni tryggja að allaf sé a.m.k. einn læknir til taks í útkallsliði Íslensku al- þjóðasveitarinnar. Læknar LSH í sveitinni komi til með að taka þátt í fræðslu og æfingum sem skipulagðar séu og spít- alinn muni einnig útvega og geyma læknisbúnað og lyf sem sveitin þurfi á að halda hverju sinni en Íslenska alþjóðasveitin greiði allan kostnað. Styrkir alþjóðasveitina Samningsaðilar telja samning- inn styrkja starf Íslensku al- þjóðasveitarinnar þar sem að- gengi að læknum og sérhæfðri þekkingu innan Landspítala verður í fastari skorðum í fram- tíðinni. SL og LSH gera með sér samstarfssamning SAMTÖKIN Björgum Íslandi (e. Saving Iceland) stóðu fyrir mótmælum í London í gær. Mótmælendur gengu frá Slo- an Square að sendiráði Ís- lands með mótmælaborða og slagorð gegn ofsóknum ís- lenska ríkisins á hendur að- gerðarsinnum samtakanna. Mótmælendurnir afhentu Sverri Hauki Gunnlaugssyni, sendiherra Íslands í Englandi, bréf sem fordæmir tilraun Ís- lands til að vísa Miriam Rose, breskum ríkisborgara, úr landi. Á vefsíðu samtakanna segir að Ísland sé að reyna að losa sig við alla erlenda aktívista eða aðgerðarsinna sem mót- mæla þungaiðnaði á Íslandi og sérstaklega vilja þeir mót- mæla aðgerðum ríkisins gegn Miriam Rose sem er breskur ríkisborgari sem hefur áfrýj- að brottvísun frá Íslandi, sem hún hlaut vegna aðgerða sinna gegn stóriðju á Íslandi. Íslenskum stjórnvöld- um mótmælt í London DR. Maria Eduarda Duarte, pró- fessor við Háskólann í Lissabon, flytur fyrirlestur föstudaginn 5. október kl. 16 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fjallar um hvað stjórnar starfs- ferli fólks á fullorðinsárum og er í boði félagsfræðiskorar og sál- fræðiskorar í félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Titill lestrarins er: Career ma- nagement in adulthood: From hi- storical perspective to the need of anticipating the future. Í fyrir- lestrinum verður fjallað um hvernig kenningar í hagnýtri sál- fræði geta skýrt það hvernig starfsferill fólks mótast á fullorð- insárum og hvað stjórnar slíkum ferlum. Ágæti kenninganna verður metið í þessu tilliti, eink- um með hliðsjón af gagnsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Einnig verður fjallað um hugtakanotkun og þróun rann- sókna í faginu. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Fyrirlestur um hvað stjórni starfsferli fólks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.