Morgunblaðið - 03.10.2007, Page 36
Þetta er saga um
hræðilega hluti sem
fólk vill í raun og veru ekki
heyra sögur um… 43
»
reykjavíkreykjavík
KVIKMYNDIN Mýrin verður
framlag Íslands til forvals Ósk-
arsverðlaunanna í flokknum besta
erlenda myndin.
Það voru meðlimir Íslensku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíunnar
(ÍKSA) sem völdu myndina með
rafrænni kosningu. Rafrænn kjör-
seðill var sendur á alla meðlimi aka-
demíunnar sem í eru rúmlega sjö-
hundruð manns. Þátttaka í
kosningunni var um 40% að sögn
Önnu Maríu Karlsdóttur formanns
ÍKSA
Reglur Bandarísku kvikmynda-
akademíunnar um forval í þennan
flokk Óskarsverðlaunanna kveða á
um að þær myndir komi til greina
sem hafa verið frumsýndar í heima-
landinu á tímabilinu 1. október 2006
– 30. september 2007. Myndirnar
þurfa að hafa verið sýndar gegn
gjaldi í kvikmyndahúsi í 7 daga
samfleytt og verða að hafa verið
sýndar af 35mm eða 70mm filmu,
eða viðurkenndu stafrænu formati.
Aðaltungumál það sem talað er í
myndinni má ekki vera enska auk
þess sem listrænt forræði yfir
myndinni þarf að vera á hendi ein-
staklinga frá því landi sem myndin
er fulltrúi fyrir.
Tilnefningar til Óskarsverð-
launanna verða kynntar í Los Ang-
eles þann 22. janúar 2008. Afhend-
ing Óskarsverðlaunanna fer fram í
sömu borg þann 24. febrúar 2008.
Mýrin hefur notið mikillar vel-
gengni á erlendum kvikmyndahátíð-
um það sem af er árinu og því kem-
ur þetta val akademíunnar ekki á
óvart. Einnig má búast við því að
Mýrin verði sigursæl á Eddunni, Ís-
lensku kvikmynda- og sjónvarps-
þáttaverðlaununum, sem verða af-
hent í níunda sinn við hátíðlega
athöfn á Hótel Nordica sunnudag-
inn 11. nóvember 2007.
Tilnefningar til Eddunnar verða
kunngjörðar miðvikudaginn 24.
október.
Mýrin í forval til Óskarsverðlaunanna
Óskar? Íslenskur veruleiki Mýrarinnar á vonandi eftir að falla í kramið.
Það verður lík-
lega mikið um
dýrðir á DOMO í
kvöld þegar þar
fer fram hið mán-
aðarlega Söngva-
skáldakvöld.
Í september var heiðursgestur
kvöldsins Magnús Kjartansson. Nú í
kvöld verður ekki minni maður en
Dr. Gunni heiðursgesturinn og mun
hann flytja bæði ný og eldri lög úr
eigin smiðju. Áður en hann stígur á
svið munu fimm önnur söngvaskáld
flytja eitt til tvö lög hvert en Hryn-
sveit Eyþórs Gunnarssonar annast
undirleik. Kvöldinu lýkur með Jam
Session þar sem tónlistarmenn
leika af fingrum fram.
Dagskráin hefst kl. 20 í beinni út-
sendingu Kasatljóss en aðgangs-
eyrir er 500 kr.
Dr. Gunni á DOMO
Hljómsveitin Hjaltalín mun hita
upp fyrir hljómsveitina Danielson á
tónleikum í Fríkirkjunni á föstu-
daginn kemur. Hjaltalín er stór
hljómsveit – níu manna – og hefur
verið nefnd hin „íslenska Arcade
Fire.“ Upptökur á fyrstu breiðskífu
sveitarinnar standa nú yfir og er
útgáfa hennar fyrirhuguð fyrir jól.
Danielson hefur náð umtals-
verðum vinsældum í indírokki og
árið 2006 þótti hún ná hápunkti fer-
ils síns með útgáfu plötunnar Ships.
Nú fer hver að verða síðastur að
tryggja sér miða á tónleikana, en
miðasala er í fullum gangi á
www.midi.is og í verslunum Skíf-
unnar og BT á landsbyggðinni.
Miðaverð er aðeins 2500 krónur.
Hjaltalín hitar upp fyrir
Danielson í Fríkirkjunni
Glitnir og Reykjavík Films und-
irrituðu á dögunum samning um
stuðning bankans við framleiðslu
íslensku glæpaseríunnar Manna-
veiða. Stuðningur Glitnis skipti
sköpum við fjármögnun þáttanna
sem væntanlega marka upphafið að
óslitinni röð leikins íslensks efnis í
Sjónvarpinu.
Glitnir og Mannaveiðar
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„VIÐ höfum nærst eingöngu á sveppatengdu
fæði í mánuð,“ fullyrða vel nærðir Baggalút-
arnir. „Við erum búnir að þróa ýmsa svepparétti
og höfum boðið hver öðrum í mat undanfarið.“
Allt þetta sveppaát er andlegur og líkamlegur
undirbúningur Baggalútanna fyrir Sveppahátíð-
ina í Aberfoyle, 65 manna bæ í Skotlandi sem
heldur árlega hátíð helgaða sveppum og hefst
hátíðin í ár hinn 18. október.
Á hverju ári er eitt land í forgrunni og núna
munu íslenskir matreiðslumenn framreiða
svepparétti að hætti landsins og íslensk fyr-
irtæki kynna vörur sínar á meðan Baggalútarnir
munu sjá um gleðina og spila tvisvar á dag þá
þrjá daga sem hátíðin fer fram. Þeir munu að-
allega flytja efni af fyrstu tveim plötunum en
segja að það sé aldrei að vita nema þeir prufuk-
eyri eitthvert efni fyrir gesti hátíðarinnar.
Það er þónokkur tími í næstu plötu en þeir eru
þó að gera ýmsar tilraunir. Þetta verður þó ekki
jóðlplata þótt spurst hafi út um daður þeirra við
týrólska jóðlara sem heimsóttu Ísland í sumar.
„Við eigum mjög góð lög sem jóðlararnir frá
Austurríki sungu með okkur. En þetta er líklega
betra í smærri skömmtum. Ísland er bara ekki
tilbúið fyrir jóðlið.“
Númi Fannsker gegn heiminum
Aberfoyle er sem áður segir afar fámennur
bær en væntanlega fjölgar íbúum margfalt í
hvert skipti sem hátíðin stendur yfir. „Það munu
vafalítið þúsundir manna streyma að miðað við
áhugann á sveppum og sveppamenningu,“ full-
yrða lútarnir. Bærinn er þó líklega þekktastur
fyrir að vera fyrirmynd sjálfrar Sveppaborgar
sem bókmenntaunnendur kannast vitaskuld allir
við úr hinum epíska sagnabálki um Sval og Val.
„Það er kastali þarna sem er fyrirmynd Sveppa-
setursins,“ segir einn lúturinn með blik í auga.
Þó virðist vera nokkur rígur milli þeirra og
ákveðinna skáldsagnapersóna. Hliðarsjálfin
Númi Fannsker, Enter, Spesi og Myglar reka
vefsetrið Baggalút og urðu frægir löngu á undan
hljómsveitinni en hafa horfið lítillega í skuggann
undanfarið „Númi Fannsker er náttúrlega geð-
sjúklingur. Það er kergja á milli Núma og alls
heimsins,“ segja þeir en bæta þó við að rígurinn
sé ekki svo alvarlegur þótt vissulega skarist
stundum hagsmunir. „Þeim finnst náttúrlega
líka leiðinlegt að vera ekki til í alvörunni eins og
við hinir.“
Innrás snúið í útrás
Á meðan þeir félagar dvelja í Sveppaborginni
verður haldin tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
hér heima. „Við spiluðum á Airwaves í fyrra og
það var mjög skemmtilegt en við erum bara
farnir að hugsa aðeins stærra,“ fullyrða lútarnir
en bæta við að þeir óski Airwaves-hátíðinni alls
hins besta í fjarveru þeirra. „En það verður nátt-
úrlega einhver að sinna útrásinni. Á meðan allir
eru að flytja bönd inn til Íslands ætlum við að
láta flytja okkur út til Skotlands.“
Svaðilför til Sveppaborgar
Baggalútar halda í tónleikaför og sveppaát til Aberfoyle í Skotlandi
Morgunblaðið/Kristinn
Baggalútar og gítarar Bragi Valdimar Skúlason, Karl Sigurðsson, Guðmundur Pétursson og Kristinn Jónsson melta sveppina.