Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
NO RESERVATIONS kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 LEYFÐ DIGITAL
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 5:40 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 LEYFÐ
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 10 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:40 LEYFÐ DIGITAL
/ KRINGLUNNI
NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
SUPERBAD kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
DISTURBIA kl. 10:10 B.i.14.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND
MEÐ CATHERINE ZETA JONES OG AARON ECKHART.
CATHERINE
ZETA JONES
AARON
ECKHART
SÝND Í ÁLFABAKKA
Frá gaurnum sem færði okkur The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
eeee
JIS, FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSISÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SKEMMTILEGUSTU VINKONUR Í HEIMI ERU MÆTTAR.
SÝND Í KEFLAVÍK
eee
T.V. Kvikmyndir.is
Vinsælasta kvikmyndin á íslandi í dag
“Skylduáhorf fyrir alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
„Sprenghlægileg...“
Jóhannes Árnason, Monitor.
90 af 100
- J.I.S., FILM.IS
HLJÓÐ OG MYND
AFTER Dark er um margt óvenjuleg þeg-
ar litið er til bóka Murakamis, meðal ann-
ars fyrir sjónarhornið; nú erum það „við“
sem erum á ferðinni, svífum inn yfir borg-
ina í upphafslínunum og lækkum síðan flug-
ið þar til komið er inn á
skyndibitastað.
After Dark segir frá
stúlkunni Mari Asai,
sem situr einmitt á
skyndibitastaðnum í
upphafi bókarinnar og
ætlar ekki heim, hyggst
sitja það alla nóttina, vill
vera á hliðarlínunni í líf-
inu um stund. Inn á stað-
inn kemur Tetsuya
Takahashi og tekur hana tali, kannast við
hana frá því er hann steig næstum í væng-
inn við systur hennar, Eri. Inn í söguna
blandast síðan hótelstjóri vændishótels,
Kaoru, kínversk vændiskona sem varð fyrir
barðinu á óþokka, skúringakonan Korogi
sem er á flótta undan óþokkanum Shira-
kawa og útsendarar kínversku mafíunnar.
Atburðarásin er á mörkum draums og
veruleika – til að mynda eru þeir hlutar
bókarinnar sem segja frá Eri líkastir þrúg-
andi martröð og eins er það sem hendir
Maru er óraunverulegt á köflum fyrir okk-
ur áhorfendurna.
Á stundum er eins og Murakami sé að
lýsa bíómynd, noir-mynd, kannski mynd
eftir Jean Luc Godard, hryllingsmynd þar
sem hið hversdagslega er ógnandi, skugg-
arnir milli húsanna sem við göngum
framhjá oft á dag taka á sig torkennilegar
myndir, hversdagsleg hljóð vekja ótta;
gleymum því ekki að hótelið í bókinni heitir
Alphaville.
Eins og getið er má kalla After Dark
handrit að hryllingsmynd, en líkt og Mura-
kami er lagið er lesandinn vongóður við lok
bókarinnar, vongóður um það að þó að við
kjósum að yfirgefa mannlegt samfélag sé
einhver tiltækur til að kippa okkur inn í
heiminn aftur.
Á flugi í rökkrinu
After Dark, skáldsaga eftir Haruki Murakami.
Harvill Secker gefur út. 201 síða innb.
Árni Matthíasson
BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. You’ve Been Warned - James
Patterson og Howard Roughan
2. A Thousand Splendid Suns - Kha-
led Hosseini
3. Dead Heat - Dick Francis og Fel-
ix Francis.
4. Making Money - Terry Pratchett
5. Pontoon - Garrison Keillor
6. The Wheel Of Darkness - Dou-
glas Preston og Lincoln Child
7. Jonathan’s Story- Julia London
og Alina Adams
8. The Wednesday Letters - Jason
F. Wright
9. Bones To Ashes - Kathy Reichs
New York Times
1. Atonement – Ian McEwan
2. Playing for Pizza – John Gris-
ham
3. One Good Turn – Kate Atkinson
4. A Spot of Bother – Mark Haddon
5. On Chesil Beach – Ian McEwan
6. The Uncommon Reader – Alan
Bennett
7. The Mission Song – John Le
Carre
8. This Year it Will be Different –
Maeve Binchy
9. Travels in the Scriptorium – Paul
Auster
Waterstones
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
MEÐAL bóka sem líklegar eru
taldar til að hljóta Booker-
verðlaunin bresku er harla
óvenjuleg skáldsaga eftir nýsjá-
lenska rithöfundinn Lloyd Jones,
Mister Pip.
Sagan gerist á eynni Bougain-
ville, sem er hluti af Salómonseyj-
aklasanum. Bókin hefst þar sem
sett er hafnbann á eyjuna vegna
þess að eyjarskeggjar sætta sig
ekki lengur við koparnámu Rio
Tinto sem skilar þeim takmörk-
uðum arði en eitrar umhverfi sitt.
Matilda segir frá
Í litlu þorpi við ströndina býr
Matilda, þrettán ára gömul, með
móður sinni, en faðir hennar flutt-
ist til Ástralíu, „til að verða hvít-
ur“, eins og móðir Matildu segir
gjarnan við hana.
Hafnbannið hefur að vonum
slæm áhrif á íbúa þorpsins, enda
verða þeir að leggja af innflutt
þægindi og snúa aftur til fyrri lífs-
hátta. Eitt af því sem setur líf Ma-
tildu, og annarra barna, úr skorð-
um er að skólanum er lokað þar
sem kennarinn flúði með öðrum
opinberum starfsmönnum.
Í þorpinu býr einn hvítur mað-
ur, hr. Watts, sem allir kalla Pop
Eye, og er giftur konu úr þorpinu.
Honum bregður fyrst fyrir í sög-
unni þar sem hann teymir eig-
inkonuna í kerru og er með trúð-
snef. Þegar kennara vantar í
skólann kemur það því mörgum á
óvart að hann gefur sig fram,
býðst til að kenna börnunum.
Sú kennsla er sérkennileg svo
ekki sé meira sagt, því eina
kennslubókin er lúið eintak af
Glæstum vonum, Great Expecta-
tions, eftir Charles Dickens, og
kennslan hvern dag byggist á því
að hr. Watts les upp úr bókinni.
Framan af eiga börnin erfitt með
að skilja hann, enda margt sér-
kennilegt í bókinni fyrir íbúa á
Suðurhafseyju. Smám saman
komast þau þó inn í söguna og
sagan af Philip Pirrip, sem nafnið
Pip festist við, heillar þau, enda er
sá heimur sem hún lýsir, eins
framandlegur og hann annars er,
rökréttari og traustari en það líf
sem þau lifa þar sem óvissan og
ógnin liggur í loftinu.
Eftir því sem börnin hrífast
meira af sögu Dickens fara for-
eldrar þeirra að ókyrrast. Mest
mótstaða er hjá móður Matildu
sem kann illa að meta trúleysi hr.
Watts, en andóf hennar gegn hon-
um og Dickens á eftir að hafa
hörmulegar afleiðingar.
Söguna af Herra Pip má lesa
sem hyllingu bókmenntanna,
hvernig þær geta hjálpað okkur
að komast af í grimmum heimi en
það má líka lesa hana sem varn-
aðarorð; heimur bókmenntanna
og raunveruleikinn eiga það til að
rekast harkalega á. Það kemur
líka í ljós að ekki er allt sem sýnist
þegar Matilda fer að grennslast
fyrir um uppruna hr. Watts í lok
bókarinnar – maður þarf ekki að
vita allt og oft gott að vita sem
minnst.
Forvitnilegar bækur: Glæstar vonir í Bougainville
Hylling sögunnar
Mister Pip Nýsjálenski rithöfundurinn LLoyd Jones.
1. Cross – James Patterson
2. The Secret – Rhonda Byrne
3. Exit Music: Rebus XX – Ian
Rankin
4. Anybody Out There? – Marian
Keyes
5. The Naming of the Dead – Ian
Rankin
6. Harry Potter & the Deathly
Hallows – J.K. Rowling
7. Play Dirty – Sandra Brown
8. The Water’s Lovely – Ruth Ren-
dell
9. Like the Flowing River – Paulo
Coelho
10. Darkly Dreaming Dexter – Jeff
Lindsay
Eymundson