Morgunblaðið - 24.10.2007, Side 2
ÚRKOMA hefur verið óvenju mikil það sem af er októ-
ber, að sögn Veðurstofunnar. Aðeins einu sinni áður
hefur úrkoma fyrstu 23 daga mánaðarins mælst meiri í
Reykjavík en það var 1936. Samanlögð úrkoma í sept-
ember og það sem af er október er orðin tæpir 300 mm
í Reykjavík. Mikilli úrkomu er spáð næstu daga.
Úrkoman að
nálgast met
Morgunblaðið/RAX
2 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞAÐ hefur eng-
in kúvending orð-
ið,“ sagði Einar
K. Guðfinnsson
landbúnaðarráð-
herra þegar hann
var spurður hvort
afstaða stjórn-
valda hefði breyst
til innflutnings
mjólkurkúa af er-
lendu kyni.
„Það eina sem gerst hefur er að
Landssamband kúabænda hefur
kynnt skýrslu sem það lét vinna hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands. Í
henni er dregið fram að það gæti
lækkað kostnað við mjólkurfram-
leiðslu að taka upp annað kúakyn.
Ég hef einfaldlega sagt að þetta sé
mál af því tagi sem þurfi umræðu
við. Það eru fleiri hliðar sem þarf að
skoða. Mér finnst ekki að menn eigi
að hrapa að einhverri niðurstöðu áð-
ur en sú umræða fer fram. Mér
finnst að bændur eigi rétt á að geta
rætt þessi mál út frá sínum forsend-
um,“ sagði Einar.
Hann sagði ekki tímabært fyrir
sig að tjá sig um hvenær komi að því
að taka afstöðu til þessa máls. Hann
minnti á að á sínum tíma hefði farið
fram atkvæðagreiðsla meðal bænda
um hvort taka ætti upp nýtt kúakyn.
Þar var því hafnað með miklum
meirihluta og málið lagt til hliðar.
Skýrsla starfshóps um nýtt kúa-
kyn, sem nú er rædd meðal bænda,
segir að ávinningur bænda af því að
skipta um kúakyn geti verið 800-
1.250 milljónir á ári. | Miðopna
„Engin kúvending“
Landbúnaðarráðherra telur þörf á meiri umræðu um
innflutning nýs mjólkurkúakyns áður en ákvörðun er tekin
Í HNOTSKURN
»Niðurstöður benda til þessað sænskar rauðar og
hvítar kýr yrðu hagkvæm-
astar.
»Auknar afurðir, minni veik-indi kúa og minni vinna við
mjaltir skila meiri arði.
»Skýrslan er nú rædd áfundum Landssambands
kúabænda víða um landið.
Einar K.
Guðfinnsson
Morgunblaðið/RAX
Kýr Ný skýrsla bendir til verulegs ávinnings af því að skipta um kúakyn.
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
heldur í opinbera heimsókn til Ítalíu
á morgun, fimmtudaginn 25. októ-
ber. Þar mun hann samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins eiga fund
með Romano Prodi, forsætisráð-
herra landsins, þar sem þeir munu
meðal annars ræða samskipti land-
anna, viðskipti og ýmis önnur al-
þjóðamál.
Forsætisráðherra, ásamt eigin-
konu sinni, Ingu Jónu Þórðardóttur
og fylgdarliði, munu ganga á fund
Benedikt XVI páfa fyrir hádegi á
föstudag.
Að því búnu mun forsætisráð-
herra ávarpa fund ítalsk-íslenska
verslunarráðsins ásamt Emmu Bon-
ino, utanríkisviðskiptaráðherra Ítal-
íu.
Forsætisráðherra mun einnig
nota tækifærið til þess að kynna sér
starfsemi FAO, Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna.
Heimsókn Geirs H. Haarde for-
sætisráðherra til Ítalíu mun standa
fram til sunnudags en þá mun hann
halda til Noregs á þing Norður-
landaráðs.
Forsætisráðherra
fer á fund páfa
Heldur í heimsókn til Ítalíu á morgun
Benedict páfi XVI Geir H. Haarde
ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra og Purnomo Yusgian-
toro, ráðherra orku- og námumála
í Indónesíu, undirrituðu í gær
viljayfirlýsingu um samstarf á
sviði jarðhitavinnslu. Í samstarfinu
mun m.a. felast þjálfun, rann-
sóknir, hagkvæmniathuganir og
samvinna um boranir vegna jarð-
hitanýtingar. Í ferðinni er m.a.
rætt um samvinnu milli jarðhita-
deildar indónesíska orkufyrirtæk-
isins Pertamina og Reykjavík
Energy Invest, að því er segir í
fréttatilkynningu frá REI.
Í gær átti Össur einnig fundi
með Susilo Bambang Yudhoyono,
forseta Indónesíu, og orkumála-
ráðherra, iðnaðarráðherra og ráð-
herra sjávarútvegsmála í landinu.
Össur sagði í samtali við mbl.is að
Indónesar hefðu einnig áhuga á
samstarfi við Íslendinga um ál-
framleiðslu og þróun fiskveiða ut-
an grunnsævis.
Samstarf um þjálfun, rann-
sóknir og boranir í Indónesíu
Ljósmynd/REI
Samstarf Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Purnomo Yusgian-
toro, ráðherra orku- og námumála í Indónesíu, undirrituðu yfirlýsinguna.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
HALDA þarf hluthafafundi um sam-
runa Geysis Green Energy og
Reykjavík Energy Invest, að minnsta
kosti í öðru félaginu, ef ekki báðum.
Þegar tvö félög, hlutafélög eða einka-
hlutafélög, renna saman er í skilningi
laga um einkahlutafélög litið á annað
félagið sem yfirtökufélag og hitt sem
hið yfirtekna félag og segja lögmenn,
sem Morgunblaðið hefur rætt við, að í
yfirteknu félagi þurfi hluthafafundur
að taka afstöðu til yfirtökunnar, nema
félagið sé að öllu leyti í eigu eins aðila.
Séu eigendur fleiri en einn verði að
halda hluthafafund sem taki ákvörð-
un um samrunann.
Skiptir máli hvort litið er
á REI sem yfirtökufélag
Í yfirtökufélagi getur stjórn félags-
ins hins vegar tekið ákvörðunina án
þess að leggja þurfi hana fyrir hlut-
hafa, að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum. Þurfi til dæmis að gera
breytingar á samþykktum félagsins í
kjölfar samrunans, þá þarf til þeirra
breytinga samþykki hluthafafundar.
Sé, í tilfelli REI og Geysis Green, litið
á REI sem yfirtökufélagið er því
mögulegt að ekki þurfi að leggja sam-
runann fyrir hluthafafund REI en að
sama skapi þyrftu hluthafar Geysis
Green að greiða um hann atkvæði. Þó
ber að athuga að í lögum um einka-
hlutafélög er gert ráð fyrir því að
hluthafar sem eigi 25% eða meira í yf-
irtökufélaginu geti krafist þess að
samruninn verði lagður fyrir hlut-
hafafund til staðfestingar eða synjun-
ar. Þetta þýðir að sé áhugi á því innan
Orkuveitunnar þá getur hún krafist
þess að fram fari hluthafafundur um
samrunann innan REI, en þar sem
stjórn OR hefur þegar samþykkt
samrunann fyrir sitt leyti, þá má velta
því fyrir sér hve líklegt það er. Eins
og áður segir er hér gengið út frá því
að REI sé yfirtökufélagið.
Lög um hlutafélög annars vegar og
einkahlutafélög hins vegar, sem fjalla
um samruna, eru um margt mjög lík.
Hvað varðar samruna einkahluta-
félaga er meginmunurinn áðurnefnd
regla sem kveður á um að 25% hluta-
fjár þurfi til að krefjast hluthafafund-
ar í yfirtökufélagi um samruna en í
hlutafélögum nægir 5% hlutur.
OR gæti krafist
hluthafafundar