Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 6
FRÉTT Morgunblaðsins, sem vísað
er til í yfirlýsingu Hjörleifs B. Kvaran,
forstjóra Orkuveitunnar og Bjarna
Ármannssonar, stjórnarformanns
REI, er rétt en ekki röng eins og hald-
ið er fram í yfirlýsingunni, þótt viðbót-
arupplýsingar um efni samnings
Bjarna Ármannssonar við Reykjavík
Energy Invest hafi ekki birtzt í þeirri
frétt heldur í Morgunblaðinu í dag.
Þetta staðfesta þeir félagar raunar,
þegar þeir segja í yfirlýsingu sinni:
„Einungis ef forsendubrestur verð-
ur í samstarfinu af hálfu Orkuveitu
Reykjavíkur getur Bjarni Ármanns-
son átt þess kost að selja OR sinn hlut
á kaupverði með verðbótum.“
Frétt Morgunblaðsins var byggð á
nafnlausum heimildum vegna þess, að
ómögulegt reyndist í fyrrakvöld að fá
staðfestingu undir nafni á kjarna
samningsins. Hinar nafnlausu heim-
ildir Morgunblaðsins eru hins vegar
svo góðar að þær geta ekki betri verið.
Aths. ritstj.:
6 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á hverri tíð er mikið í húfi um það, að til sé fólk, sem
hefur heill og manndóm til þess að sjá í gegnum mistur
og moldviðri samtíma síns, láta ekki blekkjast af glossa-
gangi ofláta og dægurgosa né neinn sírenusöng seiða
sig í andlegt dauðadá.
Þeir menn, karlar og konur, sem standa vörð í nepju
og þoku eða þreyta róður í barningi, eru að vinna afrek,
þótt enginn taki eftir því, síst þeir sjálfir.
Þau vinna ekki í því skyni að afla sér frægðar, sem
halda uppi merkjum göfugs málstaðar og lífsbrýnna
sanninda í byrleysi eða mótblæstri.
En þau eru það hljóða, hógværa súrdeig, sem vinnur
gegn rotnun, visnun, sýkingu, dauða.
Og blekkt samtíð og óþekkt framtíð hlýtur ómælda
blessun af þeim.
Íslenskur nútími býr að dýrum arfi.
Þar er ekki aðeins veigurinn í sérlegri þjóðmenningu
Íslendinga, heldur einnig þau mannfélagsverðmæti,
sem heimurinn á dýrmætust, en eiga hvarvetna í vök að
verjast og víða eru þau lítt þekkt eða viðurkennd í
verki.
Það hafa Vesturlönd sér helst til ágætis, að þau búa
að áhrifum þeirrar kristni, sem þau hafa játað um aldir.
Þau hafa vissulega gengið í berhögg við þá betri vit-
und, sem trú þeirra vakti og glæddi.
En allt um það eru þau æðstu gildi, sem prýða vest-
ræna hugsun og menningu og ein eru þess eðlis, að öll-
um jarðarbúum er ábati eða nauðsyn að tileinka sér
þau, ávöxtur af starfi þeirrar kirkju, sem sá heiminn í
ljósi Krists, lagði mat hans á manninn, gerði kröfu hans
til þess, að hvert mannsbarn væri metið og meðhöndlað
sem Guðs barn.
Ekkert í þessum heimi er óhult fyrir smitun frá sýktu
umhverfi né blekktum hvötum mannlegs eðlis. Ekki
kirkjan fremur en annað né kristnir einstaklingar.
En samt var og er kirkjan farvegur fyrir frjóvökva
frá tærustu, heilnæmustu og auðugustu uppsprettum,
sem mannsandinn hefur kynnst.
Það er leyndarmál þeirra manna, sem heimurinn á
mest að þakka, að þeim þótti vænt um mennina.
Þeir sáu betur en aðrir sjónskekkjur, villur, blekk-
ingar, þung og hörð sjálfskaparvíti. Og víttu afglöp og
smánarlega ómennsku hvers kyns. En þótti vænt um
mennina þrátt fyrir afglöpin. Og þeirra vegna.
Hér er Jesús Kristur frummynd og fyrirmynd.
Ég kenni í brjósti um mannfjöldann, segir hann – um
mennina eins og þeir eru, hrjáðir, tvístraðir, eins og sú
hjörð, sem er viðskila við hirði sinn og eiganda, blindir
af blindum leiddir, sárir og sjúkir, vegavilltir útlagar,
sem hafa gleymt, hvar þeir eiga heima, sjálfum sér
gáta.
Samt börn eins og sama föður, hver einn og allir
jafnt.
Þess föður, sem elskar þennan heim eins og hann er.
Elskar hann svo, að hann þjáist með honum og fyrir
hann, tekur á sjálfan sig þrautir hans, leggur allt á sig
til þess að bjarga honum, finna villtan og týndan, gefa
blindum sýn, dauðvona líf.
Í augum Jesú – og hann sér með augum þess Guðs
allra heima, sem hann opinberar – er hver vesalingur,
hvert frávillt, flekkað, blindað, örvona mannsbarn, þess
virði, að hann leggi líf sitt að veði fyrir það.
Því hann lifir í hverju hjarta, í öllu holdi. Hann, sem
„varð hold á jörð og býr með oss“.
Hvar sem mennskan mann ber fyrir augu, hvernig
sem hann er staddur eða á sig kominn, þar er Jesús fyr-
ir augum. Það segir hann.
Og bætir við, að allt, sem vér gjörum öðrum, sé hon-
um gjört.
Aldrei var bjartara ljósi brugðið upp og varpað á
manninn og mannlífið.
Og hvergi er að finna öflugri hvata og styrk til góðs
en í fordæmi hans og áhrifum.
Nútíðin hefur síst efni á að gleyma því.
Sigurbjörn Einarsson
Hvað viltu, veröld? (25)
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing frá Hjörleifi B.
Kvaran, forstjóra OR, og Bjarna Ár-
mannssyni, stjórnarformanni REI:
„Fullyrðing Morgunblaðsins í dag
um að í samningi Orkuveitu Reykja-
víkur við Bjarna Ármannsson, vegna
aðkomu hans að Reykjavik Energy
Invest, felist „að hann gæti selt 500
milljóna króna hlut sinn, sem hann
keypti upphaflega í REI á genginu
1,278, aftur á sama verði ef hann kysi
að hverfa frá félaginu“, er röng.
Í áðurnefndum hluthafasamningi
Orkuveitunnar og Bjarna Ármanns-
sonar eru lagðar forsendur samstarfs
þessara aðila. Þær varða stjórnarfor-
mennsku Bjarna í félaginu, inntöku
nýrra hluthafa og breytingar á sam-
þykktum þess. Einungis ef forsendu-
brestur verður í samstarfinu af hálfu
Orkuveitu Reykjavíkur getur Bjarni
Ármannsson átt þess kost að selja OR
sinn hlut á kaupverði með verðbótum.
Þessi skuldbinding fellur sjálfkrafa
niður við áformaða skráningu REI á
markað.
Á fundi stjórnar Orkuveitu Reykja-
víkur í gær var tekin fyrir beiðni
stýrihóps Reykjavíkurborgar um að-
gang að gögnum vegna REI-mála.
Ákvað stjórn OR að verða við beiðn-
inni og var samningur OR við Bjarna
eitt þeirra gagna sem starfsmanni
stýrihópsins voru látin í té í morgun.“
FYRSTI stjórn-
arfundur nýrrar
stjórnar Orku-
veitu Reykjavík-
ur fór fram á
mánudag. Þar
var m.a. sam-
þykkt að veita
nýstofnuðum
stýrihópi undir
stjórn Svandísar
Svavarsdóttur
öll umbeðin gögn frá Orkuveitunni
vegna samruna Reykjavík Energy
Invest og Geysir Green Energy,
en einnig að stjórn OR muni fara
yfir samruna félaganna.
Stjórn OR hafði að vísu hist fyr-
ir helgi á kynningarfundi þar sem
Bjarni Ármannsson, stjórnarfor-
maður REI, fór yfir málið frá ýms-
um hliðum. Júlíus Vífill Ingvars-
son, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í
stjórn OR, sagði kynningu Bjarna
gagnlega og þar hefðu komið fram
upplýsingar sem hefðu átt að koma
fram í kynningu fyrir borgar-
fulltrúum 2. október sl. Hins vegar
sagði Júlíus að fátt nýtt hefði
komið fram, enda fjölmiðlaumfjöll-
un um málið nánast verið tæm-
andi.
Ekkert verði undanskilið
Júlíus Vífill lagði fram tillögu
fyrir hönd fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks á fundinum á mánudag,
þess efnis að stjórn OR ætti sjálf
að óska eftir gögnum og hafa
frumkvæði að því að afla gagna
vegna samruna REI og GGE, og
fara yfir málið frá sjónarhorni
stjórnarinnar. Í þeirri samantekt
eigi ekkert að vera undanskilið en
jafnframt fylgja ferill málsins í
tímaröð, listi yfir þá utanaðkom-
andi ráðgjafa sem komu að málinu
ásamt gögnum frá þeim. „Það
gerði ég með tilliti til þeirrar
skyldu sem hvílir á stjórnarmönn-
um, þ.e. að fara yfir reksturinn og
gæta að hann sé í fullkomnu lagi.
Mér þykir það mjög skynsamlegt
og er mjög ánægður með að
stjórnin öll skuli hafa ákveðið að
fara ofan í þetta mál,“ segir Júlíus.
Júlíus Vífill
Ingvarsson.
Fagnar að
stjórn OR fer
ofan í málið
DAGUR B. Eggertsson borgar-
stjóri var spurður hvort aðrir, sem
stendur til boða að kaupa hluti í
REI, njóti sömu skilmála og Bjarni
Ármannsson. Dagur kvaðst ekki
ætla að tjá sig um REI-málið né
einstaka þætti þess meðan starfs-
hópur ynni að rannsókn málsins.
„Engar fréttir að hafa frá mér,“
sagði Dagur. Hann sagði mikilvægt
að starf starfshópsins fengi þann
frið sem það þyrfti.
Tjáir sig ekki um REI
ÞAÐ er fráleit túlkun á samþykkt
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur
frá í gær að stjórn fyrirtækisins
hyggist hefja sjálfstæða rannsókn
á málefnum Reykjavík Energy In-
vest, svo sem haft var eftir einum
stjórnarmanna í kvöldfréttum út-
varps,“ segir í yfirlýsingu frá
Bryndísi Hlöðversdóttur, stjórnar-
formanni Orkuveitu Reykjavíkur.
„Stjórnin fól forstjóra fyrirtæk-
isins að útvega gögn varðandi REI
í þeim tilgangi að stjórnarmenn,
sem flestir hafa nýtekið sæti í
stjórninni, gætu kynnt sér málið
og forsögu þess frá fyrstu hendi.
Þá fái stjórn OR yfirsýn yfir þau
gögn, sem stjórnin samþykkti að
afhent yrðu starfshópi Reykjavík-
urborgar um málefni REI.
Það má öllum stjórnarmönnum
vera ljóst að ekki
er um að ræða
að stjórnin ráðist
í sjálfstæða
rannsókn á mál-
inu, enda væru
slík vinnubrögð
alls ekki í takti
við það, að
fulltrúar allra
flokka í borgar-
stjórn Reykja-
víkur – í meirihluta sem minnihluta
– eiga aðild að starfshópnum.
Könnun á málefnum tengdum sam-
runa REI og Geysis Green Energy
fer fram á vettvangi starfshóps
Reykjavíkurborgar og er í fullu
samráði og í góðu samstarfi við
stjórn fyrirtækisins,“ segir í yfir-
lýsingu Bryndísar.
„Fráleit túlkun“
Yfirlýsing stjórnarformanns OR
Bryndís
Hlöðversdóttir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Í SAMNINGI milli Orkuveitu
Reykjavíkur og Bjarna Ármanns-
sonar, stjórnarformanns Reykja-
vik Energy Invest, er kveðið á um
forsendur fyrir samstarfinu og
bresti þær, mun Orkuveitan kaupa
af Bjarna hlut hans í REI á kaup-
verði með verðbótum.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt
frá því að Bjarni hefði tryggingu
fyrir því að tapa ekki hlut sínum í
REI, kysi hann að hverfa frá fé-
laginu. Hvorki Hjörleifur Kvaran,
forstjóri Orkuveitunnar, né Bjarni
vildu tjá sig um
samninginn sem
sagður er trún-
aðarmál.
Fyrir hádegið
í gær barst hins
vegar yfirlýsing
frá sömu mönn-
um – og lesa má
í heild sinni hér
á öðrum stað á
síðunni – þar sem segir að frétt
Morgunblaðsins sé röng og að for-
sendubrestur milli aðila þurfi að
koma til. „Það varðar m.a. stjórn-
arformennsku Bjarna í félaginu,“
sagði Hjörleifur Kvaran í samtali
við Morgunblaðið. „Ef Orkuveitan
vill ekki hafa Bjarna lengur sem
stjórnarformann REI, ef nýir hlut-
hafar eru teknir inn í félagið í and-
stöðu við Bjarna eða breytingar
gerðar á samþykktum félagsins í
andstöðu við Bjarna, þá getur
hann ákveðið að hætta. Eingöngu í
þessum tilvikum.“
Eðlileg ákvæði í samningi
Ef til andstöðu Bjarna kemur
vegna framangreindra mála eða
Orkuveitan vill losna við hann úr
stóli stjórnarformanns, mun Orku-
veitan kaupa hlut hans á fyrra
verði, framreiknað með vísitölu.
Hjörleifur sagði ennfremur að
við Bjarna hefði verið samið um að
hann tæki að sér formennsku til
ársins 2010. Ef Orkuveitunni
snýst hins vegar hugur á tíma-
bilinu er eðlilegt að Bjarni fái eitt-
hvað fyrir sinn snúð. „Það er ósk-
að eftir því að hann starfi við
félagið í tiltekinn tíma og þá er
ósköp eðlilegt að sett séu inn
ákvæði ef við viljum ekki hafa
hann lengur með. Þetta er því að-
allega ef við hættum að vinna með
Bjarna, þá getur hann farið út á
þessum kjörum. En ef hann
ákveður sjálfur að fara hefur hann
ekki sama rétt.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Hjörleifur Kvaran
Eðlilegt í vissum tilvikum
Forsendubrest þarf til að Bjarni Ármannsson geti selt hlut sinn í REI á sömu kjörum