Morgunblaðið - 24.10.2007, Blaðsíða 20
Undirbúningur Óli fær hjálp með hausinn á meðan Andri býr
sig undir að leika hlutverk Þorgeirsbola.
Fiskabúrsskoðun Þær Gabríela, Yrma og Ásta Glódís
skoða hér vatnadýrin af miklum áhuga.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Nei við höfum aldrei séð draug enda eru þeirekki til nema í Draugalandi. Það eru bara tilsvona mórar og skottur og það er allt í lagi,“segja krakkarnir sem leika í leikritinu Amma
og draugarnir í leikskólanum sínum Krakkakoti á Álfta-
nesi.
Leikritið unnu þau eftir gamalli þulu um ömmu sem
leggur sig en að henni sækja hinar ýmsu kynjaverur. Á
sviðið stíga þau í gervi rólega afans og yfirveguðu ömm-
unnar, skottu sem gnístir tönnum, móra sem ofan sitt höf-
uð af hálsinum tekur, Gláms sem ekki er með kurteislegt
augnaráð og Þorgeirsbola sem er æstur í skapi og öskrar
hátt. Og undir syngur kórinn þuluna góðu.
Það er heilmikil spenna í loftinu því krakkarnir úr sex
ára bekknum í grunnskólanum ætla að koma og sjá þessa
fimmtu sýningu, en þau voru í leikskólanum í fyrra og
hitta því góða vini.
Stemningin er góð og gamli tíminn svífur yfir vötnum,
á sviðinu er meðal annars heybaggi og uppstoppuð tófa.
En það er líka uppstoppaður svanur í þessum skóla, svan-
ur sem flaug á vír og lét þannig lífið. Sveitarfélagið borgaði
uppstoppunina og færði síðan Krakkakoti þenna stóra og
tignarlega fugl að gjöf og nú er hann orðinn tákn þessa
skóla sem leggur mikið upp úr því að kenna börnunum um
allt sem viðkemur náttúrunni. Þar er meira að segja dýra-
hald. Nokkrar kanínur eru í fallegum kofa úti í garði og
kanínuungarnir Perla og Slaufa þiggja knús frá börnunum.
Kennt að bera virðingu fyrir náttúrunni
Í Krakkakoti eiga líka heima naggrísir, froskar og páfa-
gaukar. Börnin sjá um að gefa dýrunum að éta og passa upp
á að þeim líði alltaf vel. Einnig er stórt fiskabúr inni með
ýmsum skepnum sjávarins. Eitt sinn voru líka hænur í
Krakkakoti en það er liðin tíð.
Í Krakkakoti er reynt að nýta náttúruna sem best og allt
sem hún gefur og krökkunum er kennt að bera virðingu fyr-
ir náttúrunni og öllum lifandi dýrum sem og mannfólkinu og
sjálfum sér. Þau taka þátt í að flokka rusl, pappír, járn, raf-
hlöður, kertaafganga og fleira. Og þau endurnýta líka um-
búðir úr eldhúsinu í myndsköpun. Grænfáninn blaktir við
hún og nú er verið að huga að því að gera enn betur í um-
hverfismálunum, til dæmis með því að spara vatn og raf-
magn.
Morgunblaðið/Frikki
Móri Óli fór á kostum þegar hann gekk inn á sviðið í hlutverki Móra og svipti af sér hausnum. Kórinn tók undir.
Kanínugleði Guðný knúsar kanínuna Perlu en Gabríela er
með matinn tilbúinn fyrir þennan loðna félaga.
Móri og aðrar
kynjaverur fara á stjá
|miðvikudagur|24. 10. 2007| mbl.is
daglegtlíf
beindist að ökumönn-
unum. Úrslitin réðust
af því hver væri fljót-
astur að taka bensín.
Þetta er vitaskuld hár-
rétt og mikið óréttlæti
að mennirnir á bens-
índælunni skuli ekki
njóta sannmælis þótt
þeir beri af í íþrótt
sinni.
x x x
Íþróttir eru vinsæltumræðuefni, hvort
heldur sem er á vinnu-
stöðum eða í fjöl-
skylduboðum, og oft
vaknar spurningin um
það hvernig venjulegir menn
myndu standa sig í viðureign við
goðumlíkar íþróttastjörnur. „Andy
Roddick vann mig með steik-
arpönnu“ nefnist ný bók eftir
Todd Gallagher sem komin er út á
ensku.
Gallagher fékk þekkta íþrótta-
menn til leiks, en reyndi að finna
leiðir til að gera viðureign við þá
spennandi. Hugmyndina fékk
hann við lestur smásögu eftir
Kurt Vonnegut um framtíð-
arstjórn, sem leggur ýmsar byrð-
ar á borgarana svo allir verði jafn-
ir. Tennisleikarinn Roddick féllst
á að vera með og var því velt upp
hvort hann ætti að spila í blýstíg-
vélum til að þyngja hann eða með
sterk gleraugu til að hann sæi
ekki boltann. Úr varð hins vegar
að hann léki með steikarpönnu. Í
bókinni kemur síðan í ljós hvort
titill bókarinnar er sannleikanum
samkvæmur.
x x x
Gallagher fékk einnig sprett-hlauparann Maurice Greene,
sem eitt sinn var fljótasti maður
heims og vann tvenn gullverðlaun
á Ólympíuleikum, til að keppa við
ritstjórann sinn, hvítan silakepp.
Til að jafna leikinn fóru þeir á al-
þjóðaflugvöllinn í Los Angeles
klukkan eitt um nótt þegar fáir
voru á ferli. Ritstjórinn fékk að
hlaupa á skriðteppi, en Greene á
kyrrstæðu gólfi. Að auki fékk rit-
stjórinn 31 m forskot og það dugði
honum til naums sigurs.
Mikið írafár varum helgina
þegar úrslitakapp-
aksturinn í form-
úlu-1 fór fram.
Finnanum Kimi Rä-
ikkönen tókst að
hrifsa heimsmeist-
aratitilinn úr klóm
unga ofurhugans
Lewis Hamiltons á
síðustu stundu.
Margir horfðu á
formúlu-kappakstur
í fyrsta skipti um
helgina. Meðal
þeirra var einn fé-
lagi Víkverja, sem
átti erfitt með að
skilja hvers vegna öll athyglin
Víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Kórinn Krakkarnir í kórnum biðu þolinmóð eftir leikurunum.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111