Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 33

Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 33 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30. Leikfimi kl. 8.30, postulíns- málun kl. 9 og 13, gönguhópur kl. 11.. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handav. og smíði/útskurður kl. 9-16.30. Heilsu- gæsla kl. 10-11.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, glerlist/opið verkstæði, hádegisverður, spiladagur, kaffi. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand- mennt opin. Leikfimi kl. 10. Félag eldri borgara í Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, brids og bútasaums- hópur í Jónshúsi kl. 13. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Farið verður á málverkasýn- ingu Eggerts Péturssonar á Kjarvals- stöðum, 1. nóv. Lagt af stað frá Hlaðhömrum kl. 13. Skráning í síma 586-8014 eftir hádegi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Síðdegisdans undir stjórn Matt- hildar og Jóns Freys kl. 14.30, kaffi- veitingar. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Árshátíð FEB 2. nóvember í sal Ferða- félagsins Mörkinni. Skráning hafin á skrifstofu FEB s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, glerlist kl. 9.30 og 13, handa- vinna kl. 10, félagsvist kl. 13. Viðtals- tími FEBK kl. 15-16. Bobb kl. 16.30, línudans kl. 18, samkvæmisdans kl. 19, Sigvaldi kennir. N.k. föstudag kl. 14 verður vetrarfagnaður með fjöl- breyttri dagskrá og kaffihlaðborði. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd- list kl. 9.05, ganga kl. 10, hádeg- isverður kl. 11.40, postulínsmálning og kvennabrids kl. 13. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30. Sund og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.50, dans í samstarfi við FÁÍA kl. 10. Frá hádegi spilasalur opinn. Miðvikud. 31. okt. leik- húsferð í Þjóðleikhúsið, leikritið ,,Hjónabandsglæpir“, sýning hefst kl. 14. Skrán. á staðnum og s. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðst. við böðun, bókband. Létt leikfimi kl. 13.15, framhaldssagan kl. 14 og kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna, út- skurður kl. 9, ganga kl. 11, hádeg- ismatur kl. 12, brids kl. 13, kaffi kl. 15. Jólapermanent, klipping eða litun hjá. Hárgreiðslustofan Blær, tímapantanir í síma 894-6256. Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9, handmennt og gler kl. 10, línudand kl. 11, handmennt og gler kl. 13, pílukast kl. 13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, jólasokkar, tau- málun, glermálun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Farið verður frá Hæðagarði 26. okt. kl. 15 að Ostasöl- unni á Bitruhálsi. Tríó leikur. Breiða- gerðisskóli fimmtudag hjá Hjördísi Geirs. kl 13.30. Ævintýri í Iðnó 6. nóv. World Class o.fl. Vínarhljómleikarnir 5. jan nk.. s. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, er Listasmiðjan opin á Korpúlfsstöðum kl. 13-16. Einnig er keila í Keiluhöllinni við Öskjuhlíið kl. 10, á morgun. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfræðingur frá heilsugæslunni kl. 10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa opin kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30, bingó kl. 15. Norðurbrún 1 | Smíðastofa og vinnu- stofa í handmennt opin. Félagsv. kl. 14. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Félagsvist í kvöld í félagsheimilinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaað- gerðir kl. 9-16, aðstoð v/böðun kl. 9- 12, handavinna kl 9.15-16, sund kl. 10, hádegisverður kl. 11.45, verslunarferð í Bónus kl. 12.15, tréskurður kl. 13 og kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin frá kl. 9, messa, prestur sr. Birgir Ásgeirsson kl. 10, verslunarferð kl. 12.30, upplestur kl. 12.30, bókband kl. 13, söngur og dans við undirleik Vitatorgsbandsins kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Opin handa- vinnustofa kl. 9-14, gönguferð kl. 14, boccia kl. 15. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Starf með 10-12 ára börnum kl. 14-15. Starf með 9-12 ára börnum kl. 15-16. Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safnaðarsal kl. 11. Bessastaðasókn | Bæna/kyrrð- arstund í leikskólanum Holtakoti á Álftanesi kl. 20. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í Holtakoti kl. 10-12. Opið hús e. borgara í Litlakoti, spilað, teflt og spjallað, kaffi og meðlæti. Bænastund í lok dags. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Máls- verður í safnaðarheimili eftir stundina. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT 10- 12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Á miðvikudögum kl. 13-16.30 er starf eldri borgara í kirkj- unni. Spilað, föndrað og handavinna. Gestur kemur í heimsókn. Dómkirkjan | Hádegisbænir alla mið- vikudaga kl. 12.10-12.30. Hádeg- isverður á kirkjuloftinu á eftir. Bæn- arefnum má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.is. Glerárkirkja | Kristniboðssamkoma 27. okt. kl. 21, sr. Helgi Hróbjartsson kristniboði segir frá kristniboðsstarfi og sýnir myndir. Kaffi og spjall í safn- aðarsal kirkjunnar. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, altarisganga og fyrirbænir. Boðið upp á hádegisverð að lokinni stund- inni. Prestar safnaðarins annast stundina. Organisti: Hörður Bragason. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17-18 í Korpuskóla. Grensáskirkja | Samverust. aldraðra kl. 12, matur og spjall, helgistund kl. 14. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. Hugleiðing, altarisganga. Morg- unverður í safnaðarsal eftir messuna. Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyr- irbænir kl. 18. Hjallakirkja | Kynningarfundur um tólf spora námskeið í kvöld kl. 20. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæna- stund kl. 12, máltíð í lok stundarinnar. Hveragerðiskirkja | Mömmumorgnar þriðjud. kl. 10, T T T-starf á fimmtudög- um kl. 18-19, unglingastarf KFUM/ KFUK á fimmtudögum kl. 20-21.30. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58-60. Samkoma kl. 20. Ræðumaður er Helgi Hróbjartsson sem segir einnig frá ferð sinni til Eþíópíu. Kaffi eftir samkomuna. Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10, máltíð kl. 12.30 (kr. 300). Opið hús fyr- ir eldri borgara kl. 13-16, sungið, tekið í spil, föndur, spjall, kaffisopi. Laugarneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin leggur upp frá kirkjudyrum kl. 10.30. Létt ganga kl. 14.30. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) kl. 19.30. Ferming- arfræðsla kl. 20.30, unglingakvöld. Listamaðurinn Benedikt Gunnarsson mun heimsækja samveru eldri borg- ara á morgun, 25. okt kl. 14. Benedikt er sögumaður og mun hann segja sög- ur af ferðum sínum og sýna lit- skyggnur af ævafornum listaverkum sem fundist hafa frá árdögum menn- ingarinnar. Eins mun hann sýna mynd- ir af dýrgripum franskrar og gotneskr- ar listar sem eru steindir gluggar í Notre Dame kirkjunni auk fleiri verka. Kaffiveitinga á eftir. Sr. Bjarni Karlsson mun stýra samkomunni. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Opið hús kl. 15, Guðrún Helgadóttir rit- höfundur talar um æsku og elli og les úr verkum sínum. Kaffiveitingar á Torginu. Vegurinn kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi 5. Mömmumorgun kl. 10, fræðsla, spjall og kaffi. Samfélag „Fyrir þá sem heima sitja“ kl. 14. Biblíufræðsla, Eiður Einarson kennir. Kaffiveitingar í boði kirkjunnar. Vídalínskirkja Garðasókn | Ragnheið- ur Ýr Grétarsdóttir sjúkraþjálfari kem- ur á foreldramorgun og kennir réttu tökin við ungbarnanudd. 95ára afmæli. Ingibjörg Þor-steinsdóttir, Hrauni, Tálkna- firði, er níutíu og fimm ára í dag. Hún mun fagna tímamótunum með ætt- ingjum og vinum hjá dóttur sinni í Heiðargerði 1A, Reykjavík, sunnudag- inn 28. október frá kl. 15.30. Vonumst til að sjá sem flesta ættingja og vini Ingu. Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkvunarverðastir allra manna. (1. Korintubréf 15, 19.) Tónlist Draugabarinn | Ljótu Hálfvitarnir spila 27. október kl. 22.30. Forsala verður í anddyri Nóatúns á Selfossi 27. okt. kl. 14-18 og á netinu. Nánari uppl. á www.blog.central.is/astrikurpsv og í síma 848-0963 eftir kl. 17. Gaukur á Stöng | Davíð Smári ásamt hljómsveit spila 27. okt. Spilað verður fram eftir nóttu. Verð kr. 1.000. Myndlist Kaffi Milanó | Jón Arnar Sigurjónsson sýnir 9 olíumyndir. Sýningin stendur til 25. nóvember, opið daglega. Þetta er í fjórða sinn sem Jón Arnar sýnir á Kaffi Mílanó. Nánar www.jonarnar.net. Dans Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús í sal félagsins að Álfabakka 14A, Rvk. kl 20.30. Gömlu dansarnir. Uppákomur ReykjavíkurAkademían | Dagskrá til heiðurs Jónasi Svafár (1925-2004), skáldi og myndlistarmanni verður 25. okt kl. 20, í sal ReykjavíkurAkademí- unnar, Hringbraut 121, 4. hæð. Aðgang- ur er ókeypis. Fyrirlestrar og fundir Orkugarður | Ágústa Loftsdóttir verk- efnisstjóri hjá Orkustofnun heldur er- indi kl. 13-14 og fjallar um þær leiðir sem stjórnvöldum eru færar til að gera samgöngur á Íslandi vistvænni. Sjón- um er einkum beint að einkabílnum og að hugsanlegum endurbótum á skatt- kerfinu. Sjá nánar á www.os.is Fréttir og tilkynningar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun á mið- vikudögum kl. 14-17 að Hátúni 12b. Tek- ið við hreinum fatnaði og öðrum varn- ingi á þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349, netfang maedur@simnet.is Rannsóknasetur í barna- og fjöl- skylduvernd | Margrét María Sigurð- ardóttir umboðsmaður barna, fjallar um rétt barna til beggja foreldra. Mál- stofan er á vegum RBF og fé- lagsráðgjafarskorar HÍ og fer fram kl. 12-13, í stofu 101 í Odda húsi fé- lagsvísindadeildar HÍ. Málstofan er öll- um opin og aðgangur er ókeypis. árnað heilla ritstjorn@mbl.isdagbók Í dag er miðvikudagur 24. október, 297. dagur ársins 2007 Íseptember var settur á laggirnarungliðahópur Samtakanna ’78 áNorðurlandi. Hópurinn hittisthvert fimmtudagskvöld, kl. 20 til 22 í Rósenborg, félagsmiðstöð fram- haldsskólanema á Akureyri. Rakel Snorradóttir er einn af um- sjónarmönnum hópsins: „Ungliðahóp- urinn er ágætlega stór hópur ung- menna af ýmsum tegundum. Til okkar sækja m.a. margir nemendur bæði úr VMA og MA,“ segir Rakel. „Við hitt- umst og spjöllum, um lífið og tilveruna, samkynhneigð og tvíkynhneigð, en um- fram allt hittumst við til að hafa gaman af góðum félagsskap.“ Ungliðahópurinn er opinn öllu ungu fólki: „Við gerum okkur ýmislegt til dægrastyttingar, höfum m.a. það sem af er vetri haldið fyrirlestra, og horft á bíómyndir sem tengjast samkyn- hneigð. Um daginn héldum við t.d. regnbogamessu í samstarfi við Ak- ureyrarkirkju,“ segir Rakel af fjöl- breytni starfsins. „Í nóvember förum við svo af stað með jafningjafræðslu- verkefni við MA, og á vorönn í VMA og grunnskólum Akureyrar. Þar mæta nokkrir meðlimir úr hópnum í lífsleikn- itíma, og spjalla við nemendur um sam- og tvíkynhneigð, segja frá eigin upplif- unum og svara spurningum.“ Allt starf við ungliðahópinn er í full- um trúnaði: „Við leitumst við að skapa öruggt og uppbyggjandi umhverfi, þar sem ungmenni geta fræðst af jafn- ingjum sínum. Við erum til staðar fyrir hvern þann sem leitar sér upplýsinga eða hjálpar,“ segir Rakel, og bætir við að mikil þörf sé fyrir slíkan vettvang fyrir sam- og tvíkynhneigð ungmenni á landsbyggðinni: „Þó svo viðhorf séu al- mennt jákvæð skortir verulega á sýni- leika og umfjöllun um samkynhneigð á landsbyggðinni. Viljum við reyna að sporna gegn því í gegnum starf félags- ins.“ Birtar eru tilkynningar frá ungliða- hópnum á heimasíðu Samtakanna ’78, á slóðinni www.samtokin78.is. Er vakin á því athygli að einnig er starfræktur ungliðahópur í Reykjavík sem hittist alla sunnudaga. Fá má nánari upplýsingar um starf ungliðahópsins á Norðurlandi með tölvupósti á lumma@simnet.is, eða með því að senda skilaboð á MSN for- ritinu á sama netfang. Æska | Ungliðahópur Samtakanna ’78 á Norðurlandi hittist fimmtudaga Hýr og kát á Akureyri  Rakel Snorra- dóttir fæddist 1989 og ólst upp á Seyð- isfirði. Hún leggur stund á nám í hönnun og textíl við Verkmennta- skólann á Ak- ureyri. Rakel hef- ur unnið ýmis verslunarstörf og á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Hún hefur verið varafor- maður Ungliðahóps Samtakanna ’78 á Akureyri frá stofnun. Foreldrar Rak- elar eru Snorri Emilsson verkamaður og Laufey Böðvarsdóttir húsmóðir. Sörlaskjól Glæsileg neðri sérhæð ásamt bílskúr Glæsileg 109 fm neðri sérhæð í góðu steinsteyptu þríbýlishúsi ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í vesturbæ Reykjavíkur. Hæðin er mikið endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt m.a. gólfefni, innréttingar og innihurðir og skiptist m.a. í tvær rúmgóðar stofur, tvö herbergi og vandað eldhús. Svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni til sjávar. Laus til afh. við kaupsamning. Verð 49,0 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. FRÉTTIR NÁMSKEIÐ opið almenningi um of- fitu með áherslu á helstu meðferð- arkosti verður haldið á Reykjalundi föstudaginn 26. október kl. 13–17. Í fréttatilkynningu segir að nám- skeiðið sé skipulagt af offitu- og nær- ingarteymi Reykjalundar í samvinnu við skurðlækna Landspítala. Á námskeiðinu verða fyrirlestrar um helstu heilsufarslegar afleiðingar offitu og orsakir fyrir henni. Fjallað verður um atferlismótandi meðferð og uppbyggingu hennar. Einnig verður sagt frá lyfjum sem hjálp í meðferðinni. Loks verður ít- arlegt erindi um skurðaðgerðir við offitu. Fyrirlesarar verða læknar, sálfræðingur, næringarfræðingur og sjúkraþjálfari. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig á netfang: ludvig- g@reykjalundur.is. Þátttökugjald er kr. 2.000 sem greiðist við inngang- inn. Kaffi er innifalið. Námskeið á Reykja- lundi um offitu NÁMSKEIÐ verður haldið í Skálholti um guðfræði fyrir almenning dagana 26.-27. október næstkomandi. Í fréttatilkynningu segir að ætlunin sé að gefa yfirlit yfir nokkur grunnstef guðfræðinnar með áherslu á trúarhugtakið, Biblíuna og kristinn mannskiln- ing. Nú þegar ný biblíuþýðing er komin út á Íslandi er ástæða til að taka inni- hald hennar til umfjöllunar og velta fyrir sér spurningunni um merkingu hennar og hlutverk í íslensku samfélagi. Námskeiðið hefst á föstudegi kl. 18.30 og því lýkur á laugardag kl. 16.30. Kennarar eru Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur og Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla. Nánari upplýsingar og skráning í síma 486-8870 eða á netfanginu rektor@skalholt.is. Námskeið fyrir almenning í Skálholtsskóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.