Morgunblaðið - 26.11.2007, Side 2
2 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
KARLMAÐUR á áttræðisaldri ligg-
ur þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi eftir að
hafa misst bifreið sína út í Höfða-
brekkutjarnir, austan við Vík í Mýr-
dal, í gærmorgun. Maðurinn sat fast-
ur í bíl sínum í a.m.k. klukkustund og
náði vatnshæðin upp að herðum hans
þegar björgunarsveit kom að.
Maðurinn var á leið frá Höfn í
Hornafirði áleiðis til Reykjavíkur
þegar slysið varð. Að sögn lögregl-
unnar á Hvolsvelli liggja tildrög ekki
fyrir en talið er að maðurinn hafi
misst stjórn á bifreiðinni sem fór við
það út af þjóðveginum og ofan í lónið.
Vegfarandi tilkynnti lögreglunni á
Hvolsvelli um atburðinn rétt fyrir
klukkan hálftíu í gærmorgun og var
þegar í stað kallað eftir aðstoð
Björgunarsveitarinnar í Vík.
Ekki var fyllilega ljóst að einhver
væri í bílnum fyrr en björgunarsveit-
armenn reru á gúmbát að honum.
Sáu þeir þá aðeins höfuð mannsins
standa upp úr vatninu. Hann var
með skerta meðvitund.
Brutu rúðuna með ár
Björgunarsveitarmenn brutu hlið-
arrúðu bifreiðarinar með ár til að ná
manninum út. Var hann þá orðinn af-
skaplega kaldur og að sögn lögreglu
hefur það orðið honum til happs að
komast í aftursæti bifreiðarinnar, en
þá var bílinn nánast kominn á kaf.
Ekið var með manninn í sjúkra-
bifreið til Hvolsvallar þar sem hann
var sóttur af þyrlu Landhelgisgæslu
Íslands rétt fyrir hádegið.
Varðstjóri hjá lögreglunni á
Hvolsvelli segir manninn hafa fengið
mikið högg, bæði þegar bifreiðin fór
út í lónið og einnig þegar öryggis-
púðar sprungu út. Eftir því sem
hann kemst næst var maðurinn í
rúma klukkustund í ísköldu vatninu
en sjónarvottur sem Morgunblaðið
ræddi við telur það hins vegar hafa
verið lengur.
Varðstjórinn hrósar jafnframt við-
brögðum björgunarsveitar en björg-
unin gekk vel í alla staði og tók ekki
nema örfáar mínútur, þ.e. eftir að
björgunarsveitarmenn komu á vett-
vang.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er maðurinn hjartasjúkling-
ur og tiltölulega nýkominn úr að-
gerð. Honum er haldið sofandi í
öndunarvél á gjörgæsludeild Land-
spítalans og segir læknir á deildinni
að ofkæling hafi verið mikil en
ástandið sé stöðugt.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Í kafi Bifreiðin var því sem næst komin á kaf þegar björgunarsveitarmenn bar að. Manninum hafði tekist að klifra
yfir í aftursæti bifreiðarinnar og stóð höfuðið eitt upp úr. Ekki er ljóst hvernig slysið bar að og er það í rannsókn.
Í HNOTSKURN
»Lögreglu barst tilkynningum bifreið úti í Höfðabrekku-
tjörnum um klukkan hálftíu í
gærmorgun.
»Þegar róið var að bátnumkom í ljós að eldri maður sat
þar fastur í ísköldu vatni sem
náði honum upp að herðum.
Liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir a.m.k. klukkustund í ísköldu vatni
Aðeins höfuðið stóð upp úr
ENGINN slasaðist í þremur bílveltum sem urðu með
stuttu millibili í umdæmi lögreglunnar á Selfossi síð-
degis í gær. Öll urðu slysin við Biskupstungnabraut og
segir lögregla talið að þau megi rekja til hálku.
Hálka er einnig talin meginorsök áreksturs sem varð
í Draugahlíðarbrekku, skammt ofan við Litlu kaffistof-
una, en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var tölu-
verð snjókoma á Hellisheiði í gærdag. Engin meiðsli
urðu á fólki í árekstrinum sem var allharður en bílarnir
skemmdust mikið.
Töluverð hálka á Hellisheiði
Morgunblaðið/Ómar
MIKIÐ rok var undir Hafnarfjallli
og á Kjalarnesi í gærkvöldi og að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi
lentu nokkrir ökumenn í töluverð-
um vandræðum þess vegna, sér-
staklega þeir sem ferðuðust með
kerru eða eftirvagna.
Tilkynnt voru tvö óhöpp þar sem
kerrur fuku til en í báðum tilvikum
voru skemmdir óverulegar. Önnur
kerran fauk undir Hafnarfjalli en
hin við suðurenda Hvalfjarðar-
ganga. Lögreglumaður sem aðstoð-
aði ökumann sagði vart hafa verið
stætt og vindurinn hefði einnig tek-
ið vel í lögreglubifreiðina.
Þá fékk lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu nokkrar tilkynningar í
gærkvöldi vegna fjúkandi lausa-
muna, en engar upplýsingar lágu
fyrir um skemmdir.
Varla stætt
í verstu
hviðunum
Skákmeistarinn
efnilegi Hjörvar
Steinn Grét-
arsson vann skák
sína í 8. umferð
HM ungmenna
sem fram fer í
Kemer í Tyrk-
landi. Hann hef-
ur hlotið fimm
vinninga úr átta
skákum og er
efstur íslensku þátttakendanna á
mótinu.
Þær Hrund Hauksdóttir og Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir gerðu
jafntefli í sínum skákum en aðrir ís-
lenskir keppendur töpuðu í 8. um-
ferð.
Misjafnt gengi
Íslendinganna
Hjörvar Steinn
Grétarsson
Indlandi einu. Stúlkur eru 80-90%
barna sem beitt eru kynferðislegu of-
beldi í vændi og kynlífsiðnaði og það
er þrisvar sinnum líklegra að stúlka
verði fyrir kynferðislegu ofbeldi en
drengur,“ segir í tilkynningunni. Þar
segir jafnframt að kynbundið ofbeldi
sé einnig alvarlegt vandamál hér á
landi. Um þrjú þúsund konur hafi leit-
að sér hjálpar í Kvennaathvarfinu frá
stofnun þess og um 4.500 konur hafi
leitað til Stígamóta, 2,8% kvenna á Ís-
landi.
landi. Brýnt sé því að grípa til að-
gerða gegn því áður en það nái fót-
festu.
„Í öllum heimsálfum, löndum og
menningarsvæðum; óháð efnahag,
þjóðfélagsstétt, kynþætti og uppruna
búa konur við ógn um ofbeldi. Konur
eiga á hættu kynfæralimlestingu,
heiðursmorð, mansal, kynferðislegt
ofbeldi, heimilisofbeldi, að vera giftar
barnungar ef þær þá komast á legg en
talið er að á síðustu tuttugu árum hafi
tíu milljónum meyfóstra verið eytt á
ALÞJÓÐADAGUR Sameinuðu þjóð-
anna um afnám ofbeldis gegn konum
var í gær og þá hófst 16 daga átak
gegn kynbundnu ofbeldi. Þetta er í
17. sinn sem slíkt átak stendur yfir en
í fréttatilkynningu frá Mannréttinda-
skrifstofu segir að hópar og samtök
um allan heim nýti það til þess að
krefjast aðstoðar og stuðnings til
handa fórnarlömbum ofbeldis.
Í tilkynningunni segir að undanfar-
ið hafi komið fram vísbendingar um
að mansal sé að skjóta rótum hér á
Segja margt benda til að mansal
sé að skjóta rótum hér á landi
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
EKKI kemur til greina að farið
verði í neinar breytingar á eignar-
haldi Hitaveitu Suðurnesja (HS)
fyrr en löggjafinn hefur talað skýr-
ar. Þetta segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ, spurður um
bréf borgarstjóra til forsætisráð-
herra og meðeigenda borgarinnar í
HS varðandi framtíð fyrirtækisins.
Bréfið sem Morgunblaðið hefur
undir höndum er stutt og laggot en í
því stendur: „Á fundi borgarráðs 16.
þ.m. var borgarstjóra falið að beita
sér fyrir viðræðum ríkis, sveitarfé-
laga og meðeigenda í Hitaveitu Suð-
urnesja um framtíð fyrirtækisins í
því skyni að tryggja að auðlindir og
almenningsveitur verði í eigu al-
mennings. Er hér með óskað eftir
því að slíkar viðræður geti farið
fram við fyrsta tækifæri,“ og er það
undirritað af Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra.
Árni segir að hugmyndir ríkis-
stjórnarinnar um að skipta orku-
sviðinu upp í samkeppnisrekstur og
sérleyfisrekstur muni hafa áhrif á
eignarhald og skipulag HS. „Við
höfum lagt áherslu á að höfuðstöðv-
ar HS verði áfram hér og starfsem-
in styrkt. Við höfum einnig lagt
áherslu á að ef um uppskiptingu
verður að ræða af hálfu löggjafans
verði forgangur almennings að auð-
lindunum tryggður og að þær verði í
samfélagseigu og það er það sem
skiptir máli í því sambandi. Að öðru
leyti teljum við bara gott og nauð-
synlegt að fá einkafjármagn í fjár-
festingar,“ segir Árni.
Dagur B. Eggertsson vísar til
sama frumvarps og segir ástæðu til
þess að fylgja því eftir með því að
þeir sem eigi HS í sameiningu setj-
ist yfir það mál og það sé besta
lausnin til þess að tryggja að auð-
lindir og almenningsveitur verði
áfram í eigu almennings. Hann seg-
ir aðild ríkisstjórnarinnar vera bæði
eðlilega og mikilvæga, vegna þess
að upphaf þessa máls er að hlutur
ríkisins í HS var seldur með þeim
skilyrðum að hvorki sveitarfélög né
aðrar veitur gætu keypt hann. Okk-
ur finnst mjög eðlilegt að frekari
skref varðandi HS taki mið af því
umhverfi sem vonandi verður komið
á því að núverandi lög taka ekki á
málinu,“ segir Dagur.
Löggjafinn á
næsta skref
Gott og nauðsynlegt að fá einkafjármagn
í fjárfestingar, segir Árni Sigfússon
Í HNOTSKURN
» Hluthafar í HS eru aukOrkuveitu Reykjavíkur og
Reykjanesbæjar, Geysir Green
Energy, Hafnarfjarðarbær,
Sandgerðisbær, Grindavík-
urbær, Garður og Vogar.
»Ríkið seldi 15,203% hlut sinní félaginu í sumar til GGE.