Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 29 Upp með Vestfirði! Pantanir: 456-8181- jons@snerpa.is Vestfirska forlagið Brimalda "Fæddir sjómenn, sem veitt hafa fisk kannski mann fram af manni í langa tíð, þurfa nú að sækja rétt sinn til veiða til kvótamangara - og greiða dýru verði fyrir það sem þeir héldu að væri þjónusta við samfélagið, ærlegt lifibrauð! Og þeir sem selja þurfa ekki lengur að standa í útgerð, kontór- inn, síminn, netið, sam- skipti við banka sem nú er orðinn alþjóðlegur og gerir þeim kleift að stunda við- skipti á alþjóðamörkuðum - blóð, sviti og tár íslenskra sjómanna er orðinn gjald- miðill í hásölum heimsauð- valdsins. Er hætt að kenna sögu almennilega í skólum? Uppvakningurinn minnir á dönsku einokunina, dönsku kaupmennirnir sátu út í Kaupmannahöfn á vetrin og létu sér líða vel af ágóða Íslandsverslunarinnar sem þeir sátu einir að. Bretar skiptu Írlandi á milli breskra aðalsmanna sem sátu í London og nutu lífsins, komu ekki nálægt Írlandi, það voru fulltrúar þeirra sem söfnuðu arðinum, jarðrentunni og skiluðu henni til herra sinna. Sjá menn ekki mynstrið?" Verð: 1,900,-kr. Fæst í bókaverslunum um land allt Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, boccia kl. 10, félagsvist kl. 14. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 9-11. Árskógar 4 | Bað kl. 9-16, handa- vinna kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30 og myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaað- gerðir, hádegisverður, bútasaumur, kaffi. Aðventuskemmtun 7. des. kl. 17. Söngur og gamanmál, jólasaga og hátíðarsöngvar. Jólahlaðborð frá Lárusi Loftssyni. Miðaverð 3.500 kr. Skráning í s. 535 2760 f. miðvi- kud. 5. des. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt kl. 9-12, leikfimi kl. 10, Guðný, myndlistarnámskeið kl. 13- 16, leiðb. Hafdís, brids kl. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, í Gjábakka á mið- vikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu- danskennsla kl. 18, samkvæmisdans byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20. Aðventuhátíð föstudag 30. nóv- ember kl. 20, hugvekju flytur Karl Sigurbjörnsson biskup, kór FEB syngur jólasálma, leikþáttur, get- raun o.fl., kaffiveitingar. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinna kl. 9, leiðbeinandi verður við til hádegis, bossía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, lom- ber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræf- ing kl. 17. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, handavinna og bridds kl. félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garða- bæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvenna- leikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, málun kl. 10 og 13, gler og leir kl. 13. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 11, bridsnámskeið fyrir byrjendur kl. 13, skráning í jólagleði FEBG í Jónshúsi og Kirkjuhvoli. Miðasala hefst á morgun í Jónshúsi. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Aðgöngumiðasala á jóla- skemmtunina í Hlégarði 29. nóv- ember stendur yfir á skrifstofu félagsstarfsins á Hlaðhömrum kl. 13-16 virka daga. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnu- stofur opnar kl. 9-16.30, sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50, postulínsnámskeið kl. 10, kennari Sigurbjörg Sigurjónsd. Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 14. Strætisvagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Létt ganga um nágrennið kl. 10 á morgun. S. 575 7720. Hraunbær 105 | Handavinna og út- skurður kl. 9, bænastund kl. 10, há- degismatur kl. 12, myndlist kl. 13, kaffi kl. 15. Hárgreiðslustofan Blær er opin alla daga, sími 894 6856. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu- stofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, skreyting á kerti, handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13-16, hádegisverður kl. 11.30. Hæðargarður 31 | Jólapakka- skreytingar 27. nóv. og 4. des. kl. 16. Föstudag 30. nóv.: Jónas Hall- grímsson: Sveinn Einarsson og skáldin í Skapandi skrifum frá Gjá- bakka. Sama dag er opnuð mál- verkasýning Stefáns Bjarnasonar. Ósóttir miðar á Vínarhl. 5. jan. til sölu. Uppl. 568 3132. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport- húsinu kl. 9.30-11.30. Uppl. í síma 554 2780. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í Grafarvogs- sundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi og spjall kl. 9.30, sögustund kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30, söng- og samverustund kl. 15. Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9- 16, vinnustofa í handm. kl. 9-16, boccia kl. 10. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Brids kl. 19 í fé- lagsheimili Sjálfsbjargar á höf- uðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Slysavarnadeildin Hraunprýði | Jólahlaðborðið í Skútunni 27. nóv. kl. 19.30. Hörður Torfason syngur og Vigdís Grímsdóttir les úr bók sinni „Bíbí“, jólahappdrætti og hugvekja. Aðgöngumiðar eru seldir í Dalakofanum í Firði og Kakí, Strandgötu 9-11. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, handavinna kl. 9.15-15.30, boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.45, kóræfing kl. 13 og kaffi kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband kl. 9, opin handa- vinnustofa kl. 9-16.30, morg- unstund kl. 9.30, boccia kl. 10, upp- lestur framhaldssögu kl. 12.30. Söngur við flygilinn með Sigríði kl. 13.30, glerbræðsla kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Uppl. í síma. 411 9450. Þórðarsveigur 3 | Félagsráðgjafi kl. 10, kl 13 opinn salurinn, leikfimi kl. 13.15 og boccia kl. 14.45. Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með bænastund/morgunsöng á Dalbraut 27 kl. 9.30. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Grafarvogskirkju og Húsaskóla. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk kl. 20 í Graf- arvogskirkju. Hallgrímskirkja | Bænastund kl. 12.15. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Heimilasambandsfundur kl. 15. Nán- ari uppl. í s. 896 6891. dagbók Í dag er mánudagur 26. nóvember, 330. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jh.. 20.) Fyrirlestrar og fundir Geðhjálp | Túngötu 7. Sjálfshjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða er starfræktur í húsi Geðhjálpar alla mánudaga kl. 19.30-21. Hópurinn er öllum opinn sem eiga við ofan- greindan vanda að stríða. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA- samtakanna er 895 1050. Dans Kim Yu-Na frá Suður-Kóreu sýnir listir sínar í keppni í listdansi á skautum sem fram fór í Moskvu í gær. Reuters Á hálum ís FRÉTTIR flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið mbl.is smáauglýsingar HÁSKÓLI Íslands (HÍ) hefur veitt 15 starfsmönnum Landspít- ala (LSH) og tveimur starfs- mönnum frá Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins og Krabba- meinsfélagi Íslands akademíska nafnbót. Athöfnin fór fram í hátíðarsal háskólans þriðjudaginn 20. nóv- ember. Það var Kristín Ingólfs- dóttir rektor sem afhenti skír- teini sem staðfesta nafnbótina. Samkvæmt samningi LSH og HÍ geta starfsmenn LSH sótt um akademíska nafnbót frá HÍ þótt þeir séu ekki með ráðningar- samning við skólann, ef þeir standast kröfur um hæfi sem gerðar eru til kennara við Há- skóla Íslands. Þeir sem öðlast akademíska nafnbót geta sótt um rannsókn- arstyrki úr sjóðum sem eru í vörslu viðkomandi deildar HÍ samkvæmt reglum sem um þá sjóði gilda. Viðkomandi skuld- bindur sig til að nota nafnbótina á viðeigandi hátt og að hlíta siða- reglum HÍ og öðrum reglum settum af deildinni um meðferð rannsóknarviðfangsefna og um ráðvendni í rannsóknum. Þá ber þeim sem þiggur akademíska nafnbót að geta hennar ef hann birtir greinar í innlendum eða er- lendum fræðitímaritum og deild- in sem veitti nafnbótina getur leitað til viðkomandi um að taka að sér kennslu á hennar vegum samkvæmt nánara samkomulagi. Akademískar nafnbætur voru fyrst veittar samkvæmt samn- ingi HÍ og LSH í október 2004 og hefur nú 61 starfsmaður LSH fengið slíka nafnbót. Að þessu sinni voru akademískar nafnbæt- ur í fyrsta skipti veittar öðrum en þeim sem starfa hjá LSH og er það gert samkvæmt samningi sem viðkomandi stofnanir hafa gert við HÍ. Þeir sem fengu akademískar nafnbætur að þessu sinni voru: Klínískur prófessor: Ástráður B. Hreiðarsson, Kristján Sig- urðsson, Margrét Árnadóttir, Tómas Guðbjartsson. Klínískur dósent: Aðalsteinn Guðmundsson, Arnar Hauksson, Gylfi Óskarsson, Ína Þórunn Marteinsdóttir, Leifur Franzson, Leifur Þorsteinsson. Klínískur lektor: Eygló Inga- dóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Ólafur Ó. Guðmundsson, Ólöf Sigurðardóttir, Ragnheiður I. Bjarnadóttir, Sólveig Jónsdóttir, Þ. Herbert Eiríksson. 15 fengu akademíska nafnbót við HÍ Vísindafélag Íslendinga býðurtil fyrirlestar í Norræna hús-inu kl. 20 á miðvikudag. Þarætlar dr. Sigríður Þorgeirs- dóttir, dósent í heimspeki við HÍ, að flytja erindið Vita activa og vita con- templativa: Hugleiðingar um samband heimspeki og stjórnmála út frá kenn- ingum Hönnuh Arendt. „Hanna Arendt var einn helsti stjórnspekingur 20. aldarinnar. Hún var landflótta gyðingur frá Þýskalandi og síðar prófessor í heimspeki í Banda- ríkjunum,“ útskýrir Sigríður. „Hún skrifaði verk sín í skugga alræðis stal- ínismans og nasismans og dró þá álykt- un að virkir borgarar væru helsta vörn- in fyrir því að alræði kæmist aftur á.“ Kenningar Arendt hafa verið mjög til umræðu eftir fall Berlínarmúrsins og hruns sósíalismans, einkum vegna kenninga hennar um lýðræðislega virkni borgaranna. Raunar er áhugi Arendt á pólitískri virkni ekki dæmigerður fyrir heim- spekinga: „Lengst af í sögunni hafa heimspekingar verið tortryggnir í garð stjórnmálanna og rekur Arendt það allt aftur til dauðadómsins yfir Sókratesi,“ segir Sigríður. „Margir líta svo á að heimspekin eigi að standa utan við stjórnmálin vegna þess að þegar fræði skipta sér af pólitík skapist hætta á að fræðin óhreinkist og breytist í hug- myndafræði. Á hinn bóginn er það ekki síður háskalegt þegar heimspekingar og menntamenn víkja sér undan því að taka gagnrýna pólitíska afstöðu þegar mikið liggur við, eins og Arendt bendir á að hafi gerst í Þýskalandi á tímum nasismans. Á grundvelli eigin reynslu sem aktí- visti og heimspekingur fjallaði Arendt um togstreituna milli hins virka lífs og lífs heimspekingsins,“ segir Sigríður. Til að skoða viðfangsefnið betur rýn- ir Sigríður nánar í snertifleti stjórn- mála og heimspeki: „Það er rétt sem Arendt heldur fram, að stjórnmál og heimspeki geta ekki runnið saman í eitt, en oft eru skilin þar á milli þó óljós,“ segir Sigríður. „Í erindinu koma fram m.a. mínir persónulegu þankar sem heimspekings sem er um leið virk- ur borgari, s.s. á sviði umhverfis- og jafnréttismála. Hugleiðingar um hið hugsandi líf og hið virka líf varpa jafn- framt í víðara samhengi upp spurn- ingum um samband fræða og stjórn- mála yfirleitt.“ Heimspeki | Fyrirlestur um kenningar Hönnuh Arendt á miðvikudag Samband fræða og pólitíkur  Sigríður Þor- geirsdóttir fæddist í Reykjavík. Hún nam heimspeki í Boston og Berlín og lauk doktors- gráðu frá Hum- boldt-háskóla í Berlín. Sigríður hefur kennt heim- speki í Þýskalandi og á Íslandi og er nú dósent við HÍ. Hún hefur birt bæk- ur og greinar um rannsóknir sínar í þýskri heimspeki og femínískri heim- speki. Sigríður er gift Magnúsi D. Baldurssyni, gæðastjóra HÍ, og eiga þau eina dóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.