Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 10

Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 10
10 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Uss, ég bjalla bara á „sveitina“, Sigga mín, þessi er enga stund að þefa uppi fulla körfu af þessu verðkönnunar stöffi. VEÐUR Guðni Th. Jóhannesson sagn-fræðingur var mjög alvöru- þrunginn yfir því í fréttum RÚV sl. laugardagskvöld, að Guðni Ágústsson, formaður Framsókn- arflokksins, skýrði frá samtali, sem hann hafði átt við forseta Ís- lands um fjölmiðlalögin vorið 2004, í nýrri bók. Taldi sagnfræðing- urinn að leynd hvíldi yfirleitt yfir slíkum fundum áratugum saman.     Það hvíldi núekki meiri leynd en svo yfir þessum fundi, að hann var á allra vitorði á sínum tíma, skömmu eftir að hann fór fram, alla vega þeirra, sem fylgjast grannt með stjórn- málum. Gerðist eitthvað á þessum fundi, sem kallaði á að leynd hvíldi yfir honum áratugum saman?!     Ekki verður það séð af frásögnGuðna Ágústssonar af því, sem fram fór. Þetta var ósköp venju- legt samtal á milli stjórnmála- manns og forseta og ekkert merki- legt, sem fram kom í því.     Auðvitað geta samtöl forseta ogstjórnmálamanna verið með þeim hætti, að mikilvægt sé að frá þeim sé ekki skýrt fyrr en löngu síðar.     En það á ekki við um hvert orð,sem fellur af vörum forseta á slíkum fundum.     Það er mikilvægt að stjórn-málamennirnir sjálfir falli ekki í þá freistni að gefa slíkum sam- tölum meira vægi en tilefni er til.     Og það á ekki síður við um sagn-fræðingana, sem hafa tekið að sér að skrá söguna. STAKSTEINAR Guðni Th. Jóhannesson Leynifundur?! SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                      ! !   "# 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    #$   #$ #$ %     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? ! ! & & & ! !    ! !  ! ! ! ! !    ! & & & & & & & & & & & &            *$BC                      !!    " #  $ %  &   *! $$ B *! ' (  ) $ ( $   *$ +,* <2 <! <2 <! <2 '$)  - . /0#*%  CD! -         <7   '   '   # (  )      8          *    +  %  (     %  ,    #    -    6 2        ) (  ./-0        01       #           (  )     12  *33  *$+ 4 * #+*- . Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir | 24. nóvember 2007 Að klára málið … studdi Samfylk- ingin, með öflugum stuðningi iðn- aðarráðherra, þennan sama samruna. Stærsta spurningin er því hvers vegna það hefur breyst og hvers vegna flokkar sem nú eru báðir við völd í Reykja- vík, þ.e. Samfylking og Framsókn- arflokkur, eru ekki að klára samrun- ann nú þegar þeir hafa til þess tækifæri? Meira: thorbjorghelga.blog.is Stella R. Helgadóttir | 25. nóvember Að klára jólabaksturinn … ná að klára jóla- baksturinn þessa helgina, einhvern veg- inn finnst mér ég aldrei geta hlakkað almenni- lega til jóla fyrr en baksturinn er búinn. Einnig er ég búin að setja upp jó- laóróana mína í stofuna en svo verð- ur skreytt seinna, annaðhvort næstu helgi eða í vikunni á eftir, a.m.k. reyni ég alltaf að skreyta fyrstu vik- una í desember. Meira: grima.blog.is Ólína Þorvarðardóttir | 25. nóvember Guðni Guðni lýsir þessum fundi, ummælum for- seta og yfirbragði. Guðni er nefnilega að gefa út bók – eins gott að hafa eitthvað bita- stætt fram að færa þegar maður stendur í bóksölu. Ég vona að ég sé ekki ein um það að finnast þetta óviðeigandi: Að upp- lýsa alþjóð um það sem fram fer á óformlegum, tveggja manna fundi – trúnaðarfundi – leynifundi. Mér finnst að Guðni hafi þarna stigið yfir ósýnileg siðferðismörk. Og það sem verra er - hann hlýtur að vita að hann er einn til frásagnar. Forsetinn getur ekki tjáð sig um þetta mál - embættis síns og virðingar vegna. Það sér hver heilvita maður. Forset- inn hlýtur að telja sig bundinn af hinum óskráðu lögum um þag- mælsku þegar tveir talast við og engum öðrum vitnum verður við komið. Meira: olinathorv.blog.is Jenný Anna Baldursdóttir | 24. nóvember 2007 Gamall hippi á trippi og klofinn persónuleiki Ég er gamall hippi, í hugsun en ekki í útliti. Ég er of skveruð fyrir mussur og klossa. Mið- að við reynslu og fyrri störf ætti ég að hoppa hæð mína yfir „Ekki kaupa-deginum“, blogga hvatning- arblogg um að kaupa ekki örðu í dag og vekja athygli á neyslubrjálæðinu, sem ég reyndar geri oft. En ég get það ekki að þessu sinni, því í dag ætla ég að sjoppa eins og ég hef orku til. Ég er klofinn persónu- leiki, ég sver það. Ég myndi t.d. aldrei hengja mig í krana í mót- mælaskyni eða leggjast á götuna til að leggja áherslu á gott málefni. Ástæðan er einföld, ég tæki mig ekki nógu vel út hangandi í krana. Væri hrædd um að gallabuxurnar myndu krullast upp á kálfa, eða að dragtarpilsið myndi hífast upp um of nálægt júnóvott. Enginn stíll yfir því og ég vil alltaf koma vel fyrir. Líka í mótmælaaðgerðum. Þess vegna mótmæli ég af alefli heima í stofu (stofukommi?). Klofningur huga míns kemur fram í ótal myndum. Ég elska t.d. lömbin, litlu og sætu, ofurheitt. Á myndum eru þau dúllur dauð- ans, en á mínum matardisk eru þau jafnvel enn fallegri og ég fæ næring- arlega fullnægingu þegar ég sting í þau hníf og gaffli. En í dag mun ég vaða um eins og hippi á trippi um musteri Mammons. Ég var einmitt að hugsa um að það væri ógeðslega flott ef flestallir myndu nota daginn til að kaupa ekki örðu, því meira pláss fyrir mig og mitt fólk. Meira: jenfo.blog.is BLOG.IS WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 Týpa: PV70 VERÐLAUNAÐ SJÓNVARP 189.900- Glæsilegt tæki af nýjustu kynslóðinni sem fékk nýlega hin eftirsóttu EISA verðlaun. HDTV Ready / Upplausn1024x768 / Skerpa: 10.000:1 42” plasma Stefán Friðrik Stefánsson | 25. nóvember 2007 Gleymd hljómsveit Ég hélt satt best að segja að Take That væri búin að geispa gol- unni, hún er ein þeirra hljómsveita sem ég hef lítinn áhuga á. Þessir strákasöngflokkar eru orðnir ansi þreyttir, hverjir muna annars ekki eftir böndum á borð við Westlife (horror!) eða Boyzone og hvað þetta heitir annars allt. Skelfi- leg tónlist, segi ég og skrifa. Er annars ekki sammála Howard Donald um kannabis-efni. Þau á ekki að lögleiða. Það eru fyndnustu rök Donalds annars að með því væri heimurinn betri, allir í vímu … Meira: stebbifr.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.