Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 11 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF -hágæðaheimilistæki Miele CAT&DOG Ryksuga fyrir kröfuharða gæludýraeigendur AFSLÁTTUR 20% vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 | www.eirvik.is Tilboðsverð: Kr. 30.720 Miele CAT&DOG 5000 Ryksuga fyrir hunda og ketti. 2200W mótor Kolafilter sem eyðir bakteríum og óæskilegri lykt Stór teppabankari sem nær hárum úr teppum og mottum Verð áður: kr. 38.400 Með innbyggðum kolafilter og stórum teppabankara fjarlægir Miele CAT&DOG ryksugan hár og lykt betur en áður hefur þekkst. Frábær ryksuga fyrir gæludýraeigendur og barnafólk. Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur Miele ryksugur í einni glæsilegustu heimilistækjaverslun landsins. GENGI hlutabréfa í Rio Tinto og öðrum helstu námafyrirtækjum heimsins hækkaði töluvert á föstu- dag eftir að greinendur Lehman Brothers sögðu líklegt að BHP Billi- ton gæti greitt allt að 71 pund á hlut í Rio án þess að það myndi rýra verð- mæti hluthafa BHP. Frá þessu er greint í hálffimm- fréttum Kaupþings en þar segir jafn- framt að verðmatið sé 44% hærra en sem nam lokagengi Rio á fimmtudag og mun hærra en áður hafði verið talað um. Fyrir rúmum tveimur vik- um gerði BHP 8.300 milljarða króna tilboð í Rio Tinto. Stjórn Rio hafnaði tilboðinu og sagði það ekki taka mið af raunverulegu verðmæti félagsins og framtíðarmöguleikum þess. Önnur ástæða hækkunar gengis hlutabréfa í námafélögum er orð- rómur þess efnis að Chinese State Mining Co. hyggist gera tilboð í Ved- anta upp á 2.700 pens á hlut. Námafélög hækkuðu mikið GENGISHRUN íslensku krónunnar í nóvember er skýrt merki þess að er- lendir fjárfestar hafa misst trúna á ís- lensku efnahagslífi og áhrif hundada- gakreppunnar á íslenska hagkerfið munu smita frá sér inn í danskt efna- hagslíf. Þetta segir Jan Størup Niel- sen, hagfræðingur hjá Fionia Bank í Danmörku, í samtali við netposten.dk. Jafnframt segir hann Seðlabankann gera rétt í að hækka stýrivexti en það sé þó spurning hvort nóg sé gert. „Verðbólga er mikil, greiðsluhall- inn við útlönd er þrisvar sinnum meiri, sem hlutfall af landsfram- leiðslu, en í Bandaríkjunum og hag- vöxtur fer lækkandi. Þetta er hinn hrái veruleiki sem tígrishagkerfi N- Atlantshafsins býr við. En vanda- málið er þó ekki einangrað við Ísland því dönsk fyrirtæki í eigu Íslendinga eru einnig í hættu,“ segir í grein net- posten.dk. Haft er eftir Nielsen að hunda- dagakreppan á lánsfjármörkuðum gæti leikið íslenskt efnahagslíf grátt. „Íslendingarnir fjárfesta fyrir lánsfé og það gerir fjárfestingar þeirra við- kvæmar þegar lánsfé verður dýrara. Fari allt á versta veg gætu Íslending- arnir þurft að selja eignir sínar, t.d. í Danmörku,“ segir hann. Hann segir að erfitt sé fyrir er- lenda greinendur að fá skýra mynd af ástandinu hér á landi sem skýri hversu miklu munar oft á milli grein- inga á íslensku efnahagslífi. „Það er ljóst að vöxtur hagkerfisins getur ekki haldið svona áfram. Spurningin er hvort lendingin verður mjúk eða hvort þetta springur í höndunum á þeim.“ Hafa misst trúna á Íslandi Morgunblaðið/Steinþór Kaupmannahöfn Danskur hagfræðingur segir neikvæða hagþróun hér geta smitað af sér til Danmerkur í gegnum eign íslenskra fyrirtækja þar. HAGVÖXTURINN í Þýskalandi á þriðja ársfjórðungi mældist 0,7% og hefur ekki mælst meiri frá því í lok árs 2006. Flestir sérfræðingar reikna með að hagvöxturinn á árinu öllu í Þýskalandi verði í kringum 2,6% en að heldur muni draga úr honum á því næsta og hann verði þá í kringum 2%. Í fyrra var hagvöxturinn 2,9% og hafði ekki verið meiri á þessari öld. Um helming hagvaxtarins á þriðja ársfjórðungi má rekja til aukinnar einkaneyslu Þjóðverja, en hún jókst um 0,5%, og aukinna umsvifa í byggingariðnaði að því er segir í frétt Das Handelsblatt. Útflutningur jókst um 3,1% frá öðrum árfjórðungi en innflutning- urinn jókst enn meira eða um 3,9%. Reiknað með 2,5% hagvexti í Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.