Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 36
36 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ / ÁLFABAKKA WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára 3D-DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 5 - 8 B.i.16.ára DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 5 - 8 LÚXUS VIP JESSE JAMES kl. 8 B.i.16.ára 30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 B.i.7.ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 LEYFÐ „BEOWULF ER EINFALD LEGA GULLFALLEG...“ ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI HVAR MYNDIR ÞÚ FELA ÞIG Í 30 DAGA... !? SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK KIM Larsen hélt tónleika í ný- uppgerðu Valsheimili – sem hefur nú hlotið nafnið Vodafonehöllin – á laugardaginn. Höllin var sneisa- full af aðdáendum þessa harð- soðna en heillandi Dana sem taldi í með gamla Gasolinlaginu „Det bedste til mig og mine venner“. Tónleikarnir voru vel rokkaðir og sveit Larsens, Kjukken, geipiþétt út í gegn. Hápunkti náðu tónleik- arnir með lagatvennu úr kvik- myndinni Midt om natten en tit- illagið fékk að hljóma ásamt „Papirklip“ („Livet er langt … lykken er kort …“). Larsen tók tvö lög eftir uppklapp og endaði á hinu fallega „Stille i Verden“ af síðustu plötu sinni, Gammel Han- kat, sem kom út í fyrra. Larsen gerði að gamni sínu á milli laga eins og hann á venju til, sagði sög- ur og pirraði sig á því að ekki mætti lengur reykja í Reykjavík en Larsen er vanur að fá sér smók á sviðinu og skola honum niður með öli þegar þannig liggur á honum, enda danskur og ligeglad með lífið og tilveruna. Einn áhorf- enda hafði á orði á leið sinni út að Larsen ætti að vera uppálagt að spila hér á landi a.m.k. árlega, sú stofnun sem hann er fyrir löngu orðinn í skandinavískri dæg- urtónlist. Það er spurning um að ráðuneyti menntamála gangi í það mál! Morgunblaðið/Eggert Flottur Kim Larsen er óneitanlega lýkur Rúnari Júlíussyni. Úthald Larsen tók 22 lög á tónleikunum og blés varla úr nös. Húmoristi Larsen var ekki ánægður með reykingabannið í höllinni. Datt mér ekki danskur… TÓNLISTARHÁTÍÐIN Nokia on ice var haldin á Gauki á Stöng og Organ á föstudagskvöldið. Sex hljómsveitir komu fram á hátíðinni, Sprengjuhöllin, Motion Boys, Ultra Mega Technobandið Stefán, Blo- odgroup, Hjaltalín og Dikta. Hátíðin þótti mjög vel heppnuð og skemmtu bæði gestir og flytjendur sér vel, eins og myndirnar bera með sér. Sprengjuhöllin Þeir Atli, Sigurður, Bergur, Snorri og Georg tóku öll sín bestu lög. Töffarar Harpa Einarsdóttir og Krummi í Mínus voru flott. Ferskir Pétur Jóhann, Kiddi Bigfoot og Guðmundur Steingrímsson. Sæt Lilja Kristín Jónsdóttir, söngkona Bloodgroup. Farsími á ís Morgunblaðið/Eggert Dikta Haukur Heiðar og félagar hans í Diktu fóru á kostum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.