Morgunblaðið - 26.11.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
VERKFRÆÐISTOFAN Vista hefur undan-
farnar tvær þakkargjörðarhátíðir unnið að veð-
ureftirliti í einni vinsælustu skrúðgöngu vest-
anhafs, sem hlykkjast um stræti New
York-borgar þann dag. Að sögn Andrésar Þór-
arinssonar, framkvæmdastjóra Vista, hefur
verkefnið verið unnið í samstarfi við bandaríska
fyrirtækið Pinnacle Wireless, en veðureftirlitið
er sett upp til að tryggja öryggi vegfarenda.
Macy’s-stórverslunin hefur frá árinu 1924 stað-
ið fyrir skrúðgöngum á þakkargjörðardaginn í
helstu stórborgum Bandaríkjanna.
Stærsta gangan er í New York. Taka tugþús-
undir þátt í henni og skrautbúnar sveitir ganga
fylktu liði allt frá 77. stræti niður Broadway og
að 34. stræti. „Í göngunni vekja mesta athygli
risastórir uppblásnir belgir í líki frægra per-
sóna, þar liðast um ævintýraheimur sem hrífur
áhorfendur, en belgirnir hafa stækkað með
hverju ári. Fyrir nokkrum árum losnaði einn
belgurinn og línurnar flæktust í staur. Eitthvað
hrundi neðan úr staurnum og vegfarandi varð
fyrir meiðslum,“ segir Andrés. Eftir þetta atvik
hafi verið ákveðið að fylgjast með vindáttum á
ákveðnum hornum sem gangan fer um svo
hægt sé að draga inn belgina þegar að þeim er
komið.
Fengu tveggja vikna fyrirvara
Verkefnið féll Vista í skaut í fyrra með
tveggja vikna fyrirvara en stofan er vel þekkt
meðal þeirra sem fást við umhverfismælingar.
Andrés segir að vel hafi gengið að vinna að
verkefninu. Það fólst í að settar voru upp sjálf-
virkar veðurstöðvar á helstu götuhornum þar
sem búast mátti við þvervindi. Alls voru sjö
slíkar stöðvar settar upp síðla árs 2006 af fyr-
irtækinu Pinnacle Wireless. Voru tækin for-
rituð hér heima af Vista. „Þetta er heilmikið
fyrirtæki, en með hverjum belg er áhöfn, einn
lögreglumaður, göngustjóri og fólk sem heldur
í línur. Á hornunum er maður með fartölvur
sem tengdur er við veðurstöð. Veðurstöðvarnar
eru á farsímum með ip-tölum. Á skrifstofu okk-
ar náum við í gögnin og birtum þau á vefsíðu í
rauntíma sem göngustjórnin, lögreglan, verk-
stjórar og yfirmenn hjá Macy’s geta fylgst
með,“ segir Andrés.
Þakkargjörðardagurinn var í Bandaríkjunum
á fimmtudag, en hann er jafnan haldinn hátíð-
legur fjórða fimmtudag hvers nóvembermán-
aðar. Andrés segir allt hafa gengið að óskum
með veðureftirlitið í New York-borg þennan
dag. Reyndar hafi komið smáskrekkur í marga
þegar netsamband milli Íslands og umheimsins
datt niður skamma stund daginn fyrir göng-
una, en það lagaðist í tæka tíð.
Íslensk verkfræðistofa
sá um veðureftirlitið
Reuters
Þakkargjörð Frá skrúðgöngu Macy’s í ár.
SIGURÐUR Pétur Björnsson, Silli, var borinn til grafar
á Húsavík á laugardag. Kistuberar voru Sigurður Pét-
ur Harðarson, Helga Þuríður Árnadóttir, Sigurður
Árnason, Sigurður Pétur Snorrason, Jóhanna María
Einarsdóttir og Þorgrímur Aðalgeirsson.
Hinn látni hafði sjálfur skipulagt útför sína í þaula.
Hann hafði ákveðið hvaða sálmar skyldu sungnir og
hvaða bænir skyldu lesnar og meðal annars látið gera
nýja útsetningu af Skín við sólu Skagafjörður sem flutt
var við athöfnina.
Morgunblaðið/Hafþór
Útför Sigurðar Péturs Björnssonar
NÝSKRÁNINGAR í Fríkirkjuna í
Reykjavík verða líklega yfir 400 á
þessu ári og stefnir í metskráningu
að sögn séra Hjartar Magna Jó-
hannssonar fríkirkjuprests. Hann
segir skráningum hafa fjölgað jafnt
og þétt síðasta áratuginn en að bilið í
ár verði meira en venjulega.
Helstu orsökina telur séra Hjört-
ur nýafstaðið kirkjuþing Þjóðkirkj-
unnar, þar sem ákveðið var að halda í
hefðbundinn skilning á hjónaband-
inu sem sáttmála karls og konu.
Samkynhneigðir, fjölskyldur
þeirra og aðstandendur sæki í aukn-
um mæli í söfnuð Fríkirkjunnar í
Reykjavík og vel yfir hundrað ný-
skráningar hafi borist kirkjunni af
þeirri ástæðu einni.
Fríkirkjan er andsnúin skilningi
þjóðkirkjunnar á hjónabandinu og
hefur lagt áherslu á hjónabandið
sem kærleikssáttmála þar sem kyn
skiptir ekki máli.
Um 400
nýir í Frí-
kirkjuna
Samkynhneigðir skrá
sig í auknum mæli
VARÐSKIP Landhelgisgæslu Ís-
lands var notað til að draga drag-
nótarbátinn Jón á Hofi til hafnar á
laugardag. Snemma á laugardags-
morgun kallaði áhöfnin á Jóni eftir
aðstoð en báturinn var vélarvana
um 25 sjómílur NV af Garðskaga.
Varðskip var sent á staðinn og
var taug komið í bátinn upp úr
klukkan ellefu. Ferðin heim gekk
svo vel, samkvæmt upplýsingum
frá Gæslunni. Ellefu manns voru
um borð í Jóni á Hofi.
Dró vélarvana
bát til hafnar
Ljósmynd/LHG
Taugin í Jón á Hofi var vélarvana.
TÆKNILEGA mögulegt er að
lenda bæði farþega- og fraktflug-
vélum á óbreyttum Ísafjarð-
arflugvelli, að mati Hauks Vagns-
sonar framkvæmdastjóra úr
Bolungarvík. Haukur hefur að und-
anförnu kannað möguleika milli-
landaflugs til Ísafjarðar en hann
segir það há Vestfjörðum mikið að
hafa ekki millilandaflugvöll.
Ýmis tæknileg mál koma þó í veg
fyrir flugið enn um sinn, en t.a.m.
þyrfti að gera breytingar á flugstöð
og tækjakosti. Haukur hefur rætt
við ýmsa aðila um aðkomu að verk-
efninu og fengið jákvæð viðbrögð.
Millilandaflug
til Ísafjarðar?
FLUGVÉL í eigu JetX, sem var á
leið til Íslands með tæplega 200
farþega frá Kúbu á vegum Heims-
ferða, átti að lenda í Keflavík kl.
sex í morgun að sögn Andra Más
Ingólfssonar, forstjóra Heimsferða.
Vélin var kyrrsett í Halifax í
Kanada aðfaranótt laugardags
vegna dældar sem fannst á aftur-
hluta hennar. Stigabíll hafði rekist
utan í skrokk vélarinnar á Kúbu,
en skemmdir reyndust ekki alvar-
legar. Nokkurn tíma tók að gera
við vélina svo áhöfnin þurfti að
hvílast og voru því farþegar og
áhöfn flutt á hótel í Halifax til gist-
ingar.
Kyrrsett vél
á heimleið
MBL.IS verður frá og með deginum í
dag með léttara yfirbragði og fleiri
þjónustuþáttum fyrir þá 130 þúsund
notendur sem heimsækja vefinn dag
hvern. Nýtt útlit sem blasir við þeim
hefur það að markmiði að gera hann
þægilegri aflestrar og auðvelda að-
gang að því efni sem þar er að finna.
Sjónvarpsfréttatímar á mbl.is
Breytingarnar sem nú hafa verið
gerðar á vefnum eru unnar af starfs-
mönnum netdeildar mbl.is í samvinnu
við erlenda og innlenda sérfræðinga.
Auk þessara breytinga á framsetn-
ingu bætist við ný þjónusta, útsend-
ingar á sjónvarpsfréttatíma á mbl.is.
Meginbreytingar á útliti og fram-
setningu eru eftirfarandi:
Fyrir ofan haus allra vefhluta á
mbl.is er nú leitarbox þar sem hægt er
að leita á Google, Emblu og í síma-
skrá, en einnig er hægt að leita í frétt-
um sem birst hafa á mbl.is. Í sömu
línu eru einnig tenglar á RSS-þjón-
ustu og hlaðvarp og hægt er að
minnka og stækka letur og breidd
vefsíðunnar.
Efst til hægri á forsíðu mbl.is er
nýr rammi með sjónvarpsefni mbl.is,
innlendum og erlendum myndskeið-
um, og þar birtist sjónvarpsfréttatími
hvers dags, en einnig er ýmislegt ann-
að sjónvarpsmyndefni aðgengilegt.
Sjónvarpsfréttatíminn kemur nýr inn
rétt fyrir hádegi á hverjum degi, milli
11:30 og 12:00, og verður síðan upp-
færður eftir því sem nýjar fréttir eru
unnar.
Fyrir neðan sjónvarpsrammann
efst til hægri er liðurinn „Helstu
fréttir“, en þar verður að finna hverju
sinni þær fréttir sem hæst ber á þeim
tíma sem vefurinn er opnaður. Þetta
gefur notendum færi á að sjá í sjón-
hendingu hvað efst er á baugi.
Efst til vinstri á mbl.is eru nú
tenglar á þjónustu- og leitarvefi
mbl.is. Þar er því að finna tengil á
fasteignavef mbl.is, smáauglýsinga-
vef, atvinnuvef, bílavef, leitarvélina
Emblu og á greina- og myndasafn
Morgunblaðsins. Einnig er þar tengill
á Sviðsljósið.
Þægilegra
viðmót og
ný þjónusta