Morgunblaðið - 26.11.2007, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
LOKIÐ er uppsteypu á Turninum á Smáratorgi
og nú er einungis eftir að glerja tvær efstu hæð-
irnar, þá 19. og 20., sem í framtíðinni munu hýsa
veitingastað. Að sögn Ólafs Hermannssonar,
verkefnastjóra húsbyggjandans, sem hefur haft
eftirlit á staðnum með höndum, verða skrifstofur,
líkamsrækt og fjármálafyrirtæki á neðri hæðum.
„Nú er verið að innrétta þær hæðir,“ segir Ólafur.
Á fyrstu hæð hafa þegar verið opnaðar verslanirn-
ar Toys"R"Us og Pier.
Á 17. og 18. hæð verður fjármálafyrirtæki, á 15.
hæð verður World Class með líkamsrækt, á 12.
hæð verður fjármálastarfsemi tengd Jakúp Jacob-
sen, sem á m.a. Turninn sjálfan og rekur Rúmfa-
talagerinn m.m. Deloitte endurskoðun verður á 6.
til 11. hæð með alla sína starfsemi. „Á annarri
hæðinni verður aðalinngangur og móttaka,“ segir
Ólafur. „Fjórar til fimm hæðir hafa enn ekki verið
leigðar út eins og staðan er núna. Þó er ýmislegt í
pípunum, sem er ekki búið að negla niður.“ Fyrstu
leigutakar flytja inn 15. desember, á 6. hæð, að-
staðan fyrir Deloitte og World Class á að vera
tilbúin fyrir jól og þar mun hefjast starfsemi um
áramót. „Veitingastaðurinn er svolítið á eftir af því
að ekki er enn búið að loka hæðinni,“ segir hann.
Byggingunni verður að fullu lokið að utan í des-
ember. Innréttingavinna heldur áfram fram yfir
áramót en „áformað er að full starfsemi verði haf-
in hjá þeim sem eru að innrétta núna um áramót“,
eftir því sem Ólafur segir.
Veitingastaðurinn þrískiptur
Sigurður Friðrik Gíslason, framkvæmdastjóri
og yfirmatreiðslumaður veitingastaðarins sem
verður á tveimur efstu hæðunum segir að stefnt sé
að opnun staðarins í janúar. „Staðurinn verður
þrískiptur,“ segir Sigurður. „Á 19. hæðinni verður
hádegisverðarstaður, opinn öllum, og þar verður
líka funda- og ráðstefnuþjónusta. Á 20. hæðinni
verða veislusalir og bar og „lounge“.“ Fimm metra
lofthæð er á 20. hæðinni og „allt hið glæsilegasta“,
eins og Sigurður orðar það. Að hans sögn hafa
nokkur fyrirtæki í húsinu gert samning um að
nýta þjónustu veitingastaðarins í hádeginu, en
hann leggur þó áherslu á að staðurinn verði öllum
opinn. Nafngiftin er hefðbundin og viðeigandi, há-
degisverðarstaðurinn fékk nafnið Nítjánda, hann
verður opnaður í janúar og veisluþjónustan mun
heita Veislu Turninn, en Sigurður reiknar með að
hún verði opnuð um miðjan febrúar.
Turninn að lifna við
Morgunblaðið/RAX
Hár Turninn á Smáratorgi hefur tekið á sig endanlega mynd og einungis lokahnykkurinn er eftir.
Fyrstu leigutakar flytja inn 15. desember næstkomandi Tafir má meðal ann-
ars rekja til þess að gluggaprófílum var hent Veitingastaður opnaður í janúar
GLUGGAPRÓFÍLUM, eða römmum, sem nota
átti við glerjun efstu hæðar háhýsisins sem reist
hefur verið á Smáratorgi í Kópavogi var hent
fyrir slysni og er það meðal þess sem valdið hef-
ur töf við byggingu hússins.
Að sögn Ólafs Hermannssonar, verkefn-
isstjóra verkkaupans, var verið að henda tréum-
búðum utan af gluggaefni sem notað hefur verið
í húsið og fyrir slysni fór einn kassi með próf-
ílum í 20. hæð hússins með. „Þetta voru um 20
lengjur og það var drifið í því að panta nýjar frá
Kína og eru þær nú komnar til landsins,“ segir
Ólafur. Hann segir að um hálfur mánuður sé þar
til gler verður komið á 20. hæðina og segir að
kostnaður verktakans nemi einhverjum millj-
ónum þó að ekki sé vitað nákvæmlega hve mikill
hann sé.
Hent fyrir slysni
Morgunblaðið/Ómar
GUÐBRANDUR Einarsson, bæjar-
fulltrúi A-listans í Reykjanesbæ, hef-
ur leitað álits umboðsmanns Alþingis
á vinnubrögðum
Árna Sigfússonar
bæjarstjóra og
meirihluta sjálf-
stæðismanna við
sölu hlutar í Hita-
veitu Suðurnesja.
Frá þessu er
greint í frétt á vef-
síðu Samfylking-
arinnar.
Í bréfi til um-
boðsmanns rekur Guðbrandur að sala
eignarhlutar bæjarins í HS, sem nam
5%, var ekki tekin fyrir í bæjarráði
eða bæjarstjórn þegar salan fór fram,
og að sölusamningurinn var ekki und-
irritaður með fyrirvara um samþykki
bæjarráðs eða -stjórnar. Samningur-
inn hafi fyrst verið lagður fyrir bæj-
arráð Reykjanesbæjar 15. nóvember,
fjórum mánuðum eftir að hann var
gerður, og þá að kröfu bæjarfulltrúa
af A-lista.
Telur reglur brotnar
Einnig kemur þar fram að þegar
bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ fengu
að kröfu A-listamanna afhent öll gögn
um HS í fórum bæjarfélagsins kom í
ljós að í sölusamningnum við OR voru
engir fyrirvarar um samþykki kjör-
inna fulltrúa. Samningurinn hafði þá
hvorki verið lagður fyrir í bæjarráði
né bæjarstjórn. Í bréfinu segir Guð-
brandur að þegar spurt var um
ástæður þess að samningurinn kom
aldrei til afgreiðslu hafi svörin verið
þau að hann grundvallaðist á viljayfir-
lýsingu eiganda HS sem var lögð fyrir
bæjarráð 12. júlí og samþykkt þar
með atkvæðum Sjálfstæðisflokksins
gegn atkvæðum borgarfulltrúa af A-
lista. Guðbrandur hafi gert athuga-
semd við þessa málsmeðferð á bæj-
arstjórnarfundi 6. nóvember þar sem
í viljayfirlýsingunni sé þess hvergi
getið að Reykjanesbær selji OR hlut
sinn. Því hefði átt að undirrita þennan
samning með fyrirvara um samþykki
bæjarráðs og taka hann síðan þar til
afgreiðslu.
Kærir til
umboðs-
manns
Guðbrandur
Einarsson
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRI Vinnslu-
stöðvarinnar segir of snemmt að
fagna aðkomu nýrra hlutahafa að fé-
laginu. Óstofnað félag í eigu Ísfélags
Vestmannaeyja og Fjárfestingar-
félagsins Kristinn, sem er í eigu fjöl-
skyldu Sigurðar heitins Einarsson-
ar, hefur eignast kauprétt að öllum
hlutum bræðranna Guðmundar og
Hjálmars Kristjánssona í Vinnslu-
stöðinni.
Hlutur þeirra bræðra í félaginu
nemur um 32% af heildarhlutafé en
kaupréttarsamningurinn er að sögn
Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar,
stjórnarformanns Ísfélagsins, háður
því að fjármögnun fáist, hinu nýja
félagi takist að tryggja sér 35%
hlutafjár og að lokum því að sam-
komulag náist við meirihlutaeigend-
ur og stjórnendur Vinnslustöðvar-
innar um rekstur félagsins. „Við
viljum gera þetta í sátt við þá sem
ráða félaginu enda sjáum við alls
konar samlegðaráhrif með þessum
félögum og öðrum félögum ef þau
vinna saman og það er það sem við
viljum láta reyna á en við viljum ekki
fara þarna inn sem óboðnir gestir,“
segir Gunnlaugur.
Mikil læti urðu í kringum eign-
arhald á Vinnslustöðinni í sumar
þegar þeir Guð-
mundur og
Hjálmar gerðu
yfirtökutilboð í
félagið en urðu
undir í baráttu
um það við Eyja-
menn ehf. sem
reyndar buðu
töluvert lægri
upphæð. Gunn-
laugur segist ekki
óttast að samkomulag náist ekki við
meirihlutaeigendur og stjórnendur
félagsins. „Ég hef ekki trú á öðru en
að menn fagni þessu og mér heyrist
að hinn almenni Vestmannaeyingur
fagni þessu mjög þannig að ég á von
á því að friður muni ríkja um félagið
og að framundan séu bjartir tímar
fyrir Vestmannaeyjar.“ Aðspurður
hvort hugmyndir séu uppi um sam-
einingu félaganna segir Gunnlaugur
hana vera lagalega ómögulega. Ís-
félagið eigi 20% af loðnukvótanum
og ekkert félag megi eiga meira en
það. Hið sama gildi um norsk-ís-
lensku síldina og íslensku síldina
einnig.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar og forsvarsmaður Eyjamanna
ehf., segir of snemmt að fagna því að
deilunum um félagið sé lokið því þótt
kaupréttur hafi verið undirritaður
séu kaupin síður en svo frágengin.
„Ég veit í raun ekkert hvað felst í
þessum fyrirvara um samkomulag
við meirihlutaeigendur og stjórn-
endur. Við eigum eftir að hitta þessa
aðila og ræða við þá,“ segir Sigur-
geir og minnir á að það sé of snemmt
að byrja að fagna fyrr en leiknum er
lokið.
Guðmundur Kristjánsson segist
ánægður með að farsæl lending hafi
náðst í málinu. „Þarna eru heima-
menn alfarið komnir með fyrirtækið
og þeir takast á við framtíðina. Við
teljum okkur vera að selja traustum
og ábyrgum aðilum sem við höfum
átt gott samstarf við og nú munum
við snúa okkur að öðrum verkefn-
um,“ segir hann. Spurður um fyr-
irvara kaupenda um 35% eignarhald
segist Guðmundur telja að Vest-
mannaeyingar hljóti að fagna því að
þarna komi heimamenn inn í fyrir-
tækið og hljóti að vilja leysa málið á
farsælan hátt eins fljótt og hægt er.
Of snemmt að fagna málalyktum
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Guðmundur
Kristjánsson
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson
Í HNOTSKURN
» Eyjamenn ehf. gerðu í aprílyfirtökutilboð í Vinnslustöð-
ina á genginu 4,6 krónur á hlut.
Stilla, félag Guðmundar og
Hjálmars Kristjánssona, svaraði
með tilboði á genginu 8,5.
»Samkvæmt heimildum Morg-unblaðsins er gengið í kaup-
réttarsamningnum sem nú hefur
verið gerður um 8 krónur á hlut.
Ísfélagið og Kristinn ehf. með kauprétt að hlut Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona í Ísfélaginu
Stjórnarformaður Ísfélagsins segir sameiningu ómögulega Fyrirvari um samkomulag við eigendur
Morgunblaðið/ÞÖK
Vinnslustöðin Baráttunni um Vinnslustöðina gæti verið lokið þótt fram-
kvæmdastjóri félagsins segi of snemmt að fagna sigri.