Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 12
12 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Veiðar á þorski úr Norður-Atlantshafi hafa dregistsaman um 3 milljónirtonna á tæpum fjórum
áratugum, eða úr 3,9 milljónum
tonna árið 1968 í um 840 þúsund
tonn árið 2005. Þorskstofninn hefur
lengi verið ein helsta auðlind Ís-
lendinga enda sá fiskstofn sem hef-
ur gefið mest af sér til þjóðarbús-
ins. Árið 1981 var þorskafli
Íslendinga í hámarki, um 460 þús-
und tonn, en á síðustu árum hefur
þorskafli minnkað verulega. Fisk-
veiðiárið 2007/2008 var aðeins út-
hlutað 130 þúsundum tonnum af
þorski. Ekki er gert ráð fyrir því að
veiðar á þorski muni aukast mikið á
allra næstu árum frá því sem nú er.
Á sama tíma á sér stað stórfelld
uppbygging þorskeldis, sér-
staklega í Noregi. Það má því velta
þeirri spurningu fyrir sér hvaða
áhrif aukið þorskeldi muni hafa á
íslenskan sjávarútveg og markaðs-
setningu á villtum þorski. Í þessari
samantekt verður þó aðeins gerð
grein fyrir stöðu þorskeldis í ein-
stökum löndum og framtíð-
aráformum.
Noregur
Í Noregi hefur framleiðsla þorsk-
seiða aukist mikið, eða úr 1,5 millj-
ónum seiða árið 2002 upp í rúmar
11 milljónir seiða árið 2006 (mynd
1). Þar í landi eru um 12 seiðaeld-
isstöðvar og stærsta stöðin fram-
leiddi um 6 milljónir seiða árið
2006. Þrátt fyrir mikla fram-
leiðsluaukningu á síðustu árum hef-
ur verið skortur á þorskseiðum sem
hamlað hefur uppbyggingu mat-
fiskeldis á þorski.
Framleiðsla á eldisþorski í Nor-
egi hefur einnig aukist mikið á síð-
ustu árum eða úr tæpum 200 tonn-
um árið 2000 í u.þ.b. 11.000 tonn
árið 2006 (mynd 2). Framan af kom
aðal framleiðslan úr áframeldi, en
þá er villtur fiskur fangaður og
fóðraður í ákveðinn tíma fyrir
slátrun. Nú er aleldi, þ.e.a.s. eldi frá
klaki upp í fisk í markaðsstærð,
allsráðandi í norsku þorskeldi.
Í Noregi eru miklar væntingar
um hraða uppbyggingu í þorskeldi
og stór áform eru um þróun eld-
isins á næstu árum. Út frá fjölda
seiða sem farið hafa í sjókvíar er
líklegt að framleiðslan árið 2007
nemi um 15.000 tonnum og rúmum
20.000 tonnum árið 2008. Fyrir
nokkrum árum var því spáð að
framleiðslan gæti orðið allt að
100.000 tonnum árið 2010. Skiptar
skoðanir eru um vöxt þorskeldis í
Noregi á næstu árum og eru spár
nú um framleiðslu næstu ára hóg-
værari. Reynsla fyrri ára sýnir að
gæta þurfi varúðar í spám m.a.
vegna mikilla affalla í eldinu. Nú er
talið líklegast að framleiðslan muni
nema um 35.000 tonnum árið 2010.
Ísland
Hafrannsóknastofnunin hefur
verið frumkvöðull í þróun og fram-
leiðslu þorskseiða á Íslandi. Á
hennar vegum hafa verið framleidd
þorskseiði á hverju ári síðan 1994.
Árið 2003 var Icecod ehf. stofnað í
þeim tilgangi að vinna að kynbótum
á þorski. Fram til þessa hefur fram-
leiðslan verið lítil eða 100.000-
200.000 seiði á ári. Á Íslandi eru
einnig fönguð villt þorskseiði, u.þ.b.
5 g, að hausti, þau alin í strandeldis-
stöð fram á vor og þá sett í sjókvíar.
Föngun smáseiða til eldis er ein-
göngu stunduð á Íslandi. Eldi á
villtum seiðum hefur aukist veru-
lega og í sjókvíar fóru tæp 500.000
seiði á ári, árin 2005 og 2006.
Framleiðsla eða magn eld-
isþorsks sem var slátrað á Íslandi
hefur aukist mikið á síðustu árum,
eða úr um 10 tonnum árið 2000 í um
1.400 tonn árið 2006. Framan af
kom framleiðslan eingöngu úr
áframeldi en nú á síðustu árum
einnig úr aleldi. Það er þó ekki fyrr
en árið 2006 sem fyrstu opinberu
tölurnar eru birtar um slátrun á
þorski úr aleldi sem þá nam um 180
tonnum. Miðað við stöðuna í dag er
ekki gert ráð fyrir mikilli fram-
leiðsluaukningu á næstu árum og
að framleitt magn verði varla kom-
ið yfir 5.000 tonn árið 2010.
Bretland
Á síðustu árum hefur verið sam-
felld aukning í framleiðslu þorsk-
seiða á Bretlandi og voru framleidd
1,9 milljón seiði árið 2006. Þorsk-
eldi í Bretlandi byggist alfarið á
aleldi og eru þar nú þrjár seiðaeld-
isstöðvar.
Framleiðsla hefur verið lítil fram
að þessu, mest um 550 tonn árið
2006. Áætlað er að framleiðslan
nemi tæpum 3.000 tonnum árið
2007. Þorskeldisfyrirtækið Johnson
Seafarms, stærsti framleiðandi eld-
isþorsks á Bretlandi, áætlar að
framleiða u.þ.b. 5.000 tonn árið
2008. Gert er ráð fyrir að fram-
leiðslan verði um 11.000 tonn árið
2011.
Kanada
Framleiðsla þorskseiða hefur
aldrei verið mikil í Kanada. Þar eru
þrjár seiðaeldisstöðvar og fram-
leiðslan undir hálfri milljón seiða.
Framan af var eingöngu stundað
áframeldi á þroski í Kanada en
framleiðslan náði aldrei nema rúm-
lega 200 tonnum árið 2002. Síðan
hefur dregið úr framleiðslunni en
megin skýringin á því eru örðug-
leikar við að fá villtan þorsk í eldið.
Ennþá er framleiðsla í aleldi mjög
lítil, en gera má ráð fyrir aukningu
á næstu árum samfara uppbygg-
ingu í seiðaeldi.
Færeyingar eru nýbyrjaðir með
þorskeldi. Seiðaframleiðslan fer
fram í rannsóknastöð í eigu fær-
eysku landsstjórnarinnar og voru
seld um 140.000 þorskseiði til
tveggja matfiskeldisstöðva um ára-
mótin 2006/2007. Stefnt er að því
að framleiða 300.000 þorskseiði ár-
ið 2007 og 500.000 árið 2008.
Í öðrum löndum eins og Banda-
ríkjunum, Írlandi og Danmörku er
stundað tilraunareldi í litlum mæli.
Framtíðaráform
Á næstu árum og áratugum má
gera ráð fyrir auknu framboði á
eldisþorski og þá fyrst og fremst
frá Noregi. Ekki er líklegt að mikil
framleiðsluaukning verði í Bret-
landi, fyrst og fremst vegna skorts
á rými til eldisins miðað við núver-
andi eldistækni. Sama gildir einnig
um Færeyjar og Írland. Nægilegt
rými er til eldisins við austurströnd
Kanada en umhverfisaðstæður eru
þar erfiðar. Einnig eru aðstæður til
þorskeldis erfiðar við Danmörku og
Svíþjóð og ekki að vænta þess að
þar verði framleitt mikið af eldis-
þorski. Í öðrum löndum sunnar í
Evrópu er of heitt fyrir þorskeldi.
Það er því eingöngu í Noregi sem
framleiðsla í þorskeldi gæti numið
hundruðum þúsundum tonna. Þar
hafa menn mikla trú á þorskeldi og
er talið að þegar hafi verið fjárfest í
greininni fyrir um 25 milljarða ís-
lenskra króna frá árinu 2001 sem
að langmestu leyti er fjármagnað
með hlutafé. Codfarmers, stærsta
þorskeldisfyrirtæki í Noregi, var
skráð í Kauphöllinni í Ósló síðla árs
2006. Fyrirtækið hefur nú sótt
þangað hlutafé sem svarar til rúm-
um þremur milljörðum íslenskra
króna. Greinin fær góðan stuðning
frá norskum stjórnvöldum og er
heildarframlag til rannsókna- og
þróunarverkefna í þorskeldi nú
áætlað um tveir milljarðar ís-
lenskra króna á ári.
Miklar væntingar eru um aukið
þorskeldi í Noregi á næstu árum.
Þar gera menn sér vonir um að þró-
unin muni vera svipuð og í laxeldi.
Á mynd 3 er sýnd framleiðsla í lax-
eldi frá árinu 1975. Þá var fram-
leiðslan á laxi tæp 900 tonn en 600
þúsund tonn árið 2005. Til sam-
anburðar er höfð framleiðsla í
þorskeldi árin 2001-2006 og áætluð
framleiðsla árin 2007-2010. Eins og
staðan er í dag, er þróunin nú hrað-
ari í þorskeldi en var í laxeldinu í
kringum 1980. Að því gefnu að
hægt verði að byggja upp arðbært
þorskeldi á næstu árum eru miklar
líkur á því að þróunin muni vera
töluvert hraðari en var í laxeldi.
Það er m.a. hægt að rökstyðja með:
– Í upphafi þorskeldis eru stórir
markaðir fyrir þorskafurðir og eft-
irspurn er meiri en framboð. Aftur
á móti voru mjög litlir markaðir
fyrir lax í upphafi laxeldis og því
þurfti að leggja mikla vinnu í að
byggja upp nýja markaði og ítrek-
að þurfti að draga úr framleiðslu til
að koma í veg fyrir offramboð.
– Sjúkdómar ullu miklu tjóni í
laxeldi en það dró verulega úr þeim
með tilkomu bóluefna í byrjun tí-
unda áratugarins. Í upphafi þorsk-
eldis eru sjúkdómar mikið vanda-
mál en líklegt er að lausn á þeim
muni finnast fyrr m.a. vegna
reynslu og þekkingar sem hefur
fengist í laxeldi.
– Í Noregi hefur sjókvíaeldi verið
í þróun í nokkra áratugi samfara
uppbyggingu í laxeldi. Mikil þekk-
ing og færni hefur því aflast við
rekstur sjókvía-eldisstöðva. Sú
tækni sem þróuð hefur verið fyrir
laxeldi er að mestu leyti hægt að
nýta fyrir þorskeldi og skipta út
laxi í staðinn fyrir þorsk. Öll um-
gjörð fyrir greinina er nú þróaðri
en í upphafi laxeldis, öflugar rann-
sóknastofnanir, stjórnsýsla, heil-
brigðiseftirlit og fjöldi fyrirtækja
sem sér um að þjónusta greinina.
Íslendingar hafa fylgst með þró-
un laxeldis hjá nágrannalöndum á
undanförnum áratugum og undrast
velgengni þeirra á sama tíma og lít-
ið hefur gengið að byggja upp sam-
bærilegt eldi hér á landi. Á Íslandi
eru erfiðar umhverfisaðstæður og
hafa tjón í eldinu verið tíð, sér-
staklega á fyrstu áratugum sjókvía-
eldis. Miklir erfiðleikar hafa verið í
greininni og mikill fjöldi þeirra fyr-
irtækja sem hafa hafið rekstur hafa
hætt eftir tiltölulega skamman
tíma. Það má því velta þeirri spurn-
ingu fyrir sér hvað hafi breyst og
hvort sjókvíaeldi geti í raun og
veru orðið samkeppnishæft við sjó-
kvíaeldi annarra landa í Norður-
Atlantshafi. Á síðustu árum hafa
nokkrar mikilvægar forsendur
breyst. Þær eru:
– Eldi á þorski er hafið og er teg-
undin betur löguð að umhverfis-
aðstæðum á Íslandi en laxinn sem
var ráðandi tegund í sjókvíaeldi.
– Þekking á umhverfisaðstæðum
hefur aukist mikið með rekstri sjó-
kvíaeldisstöðva allt í kringum land-
ið á undanförnum áratugum.
– Mikil þróun hefur átt sér stað á
búnaði til sjókvíaeldis. Hann er nú
mun sterkari og betur lagaður að
aðstæðum hér á landi en áður var.
– Veðurfar virðist vera að hlýna
og spáð er hlýnun á næstu áratug-
um.
Stóru sjávarútvegsfyrirtækin
leiða þróun þorskeldis á Íslandi og
líta á eldið sem tilraunaverkefni til
þekkingaröflunar og til að meta
arðsemi þess. Það er ljóst að þegar
eingöngu er skoðað matfiskeldi á
þorski er samkeppnisstaða okkar
lakari en t.d. Norðmanna. Á það
hefur verið bent að þegar arðsemi
þorskeldis er metið, þarf einnig að
meta samlegðaráhrif veiða, eldis,
vinnslu og markaðssetningu þorsk-
afurða. Í þeirri heildarmynd gæti
þorskeldi verið áhugavert fyrir
sjávarútvegsfyrirtækin. Þó að
þorskeldi eitt og sér sé ekki alltaf
arðbært getur það verið hag-
kvæmt, þar sem það getur styrkt
aðra þætti í rekstri fyrirtækisins.
Tilraunaeldi á næstu árum mun
væntanlega svara spurningunni
um, hvort þorskeldi á Íslandi verði
samkeppnishæft við þorskeldi í ná-
grannalöndunum.
Stöðumat og stefnumótun
fyrir þorskeldi
Til að kanna möguleika Íslend-
inga í þorskeldi hefur meðal annars
verið komið á fót verkefninu
„Stöðumat og stefnumótun fyrir
þorskeldi“. Markmið verkefnisins
er að:
– Gefa yfirlit yfir stöðu og fram-
tíðaráform þorskeldis á Íslandi og í
samkeppnislöndum.
– Meta samkeppnishæfni þorsk-
eldis á Íslandi.
– Endurskoða fyrri stefnumótun
í mikilvægum rannsókna- og þróun-
arverkefnum.
– Greina frá öðrum mikilvægum
verkefnum til að tryggja framgang
þorskeldis á Íslandi.
Haldin verður ráðstefna á Grand
Hótel í Reykjavík, dagana 29. og 30.
nóvember. Á ráðstefnunni verður
gefið yfirlit yfir stöðu þorskeldis
bæði hér á landi og hjá samkeppn-
islöndum, kynnt helstu rannsókna-
verkefni og jafnframt komið með
tillögur um mikilvæg verkefni til að
tryggja framgang þorskeldis á Ís-
landi. Nánari upplýsingar um ráð-
stefnuna er að finna á slóðinni:
www.fiskeldi.is.
Norðmenn
gera ráð fyrir
nýju ævintýri
Gert er ráð fyrir auknu framboði af eldisþorski
á næstu árum og áratugum og þá fyrst og fremst
frá Noregi. Þótt þorskeldi eitt og sér sé ekki
alltaf hagkvæmt hér á landi gæti það verið
áhugavert fyrir íslensku sjávarútvegsfyrirtækin.
Það getur styrkt aðra þætti í rekstri fyrirtækisins.
Kemur þetta fram í samantekt Valdimars
Inga Gunnarssonar hjá Fiskeldishópi AVS
og Guðbergs Rúnarssonar hjá Landssambandi
fiskeldisstöðva sem gerð er í tilefni af ráðstefnu
um þorskeldi sem haldin verður í vikunni.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Þorskeldi Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar með þorskeldi við Ísland,
meðal annars að fóðra þorskinn í fjörðum og háfa hann síðan til slátrunar.
!" "
!