Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 31
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. Hver verður næsti
fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum? Svar:
Kjartan Ragnarsson. 2.
Eftir hvern er tónlistin
við ævintýri Jónasar,
Stúlkan í turninum, sem
nú er að koma út á
geisladisk? Svar:
Snorra Sigfús Birgisson.
3. Eftir hvern er spennu-
sagan Hnífur Abrahams
sem komin er á metsölulista? Svar: Óttar M. Norðfjörð. 4. Hand-
knattleiksmaðurinn Vignir Svavarsson er að öllum líkindum á leið
til þýsks liðs. Hvaða? Svar: Lemgo.
1 Hver er bíll ársins 2008 hjá dómnefnd „Car of the Ye-ar 2008“?
2 Færeyski landsliðsmaðurinn Rógvi Jacobsen ermarkahæstur færeyskra landsliðsmanna fyrr og síð-
ar. Með hvaða liði lék Jógvi á Íslandi?
3 Setja á upp Woyzeck Vesturports upp í tveimur stór-borgum erlendis. Hvaða?
4 Framámaður í alþjóðlegum knattspyrnuheimi leggurtil að Ísland og aðrar smáþjóðir verði að fara í for-
keppni fyrir stórmótin. Hver er hann?
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Krossgáta
Lárétt | 1 þyrma, 4 hvetja,
7 varðveitt, 8 kjaga, 9
traust, 11 bára, 13 elska,
14 gleður, 15 heiðra, 17
naut, 20 ránfugls, 22
málmblanda, 23 sigrað,
24 áana, 25 kaka.
Lóðrétt | 1 raska, 2 tákn,
3 tómt, 4 ódrukkinn, 5
ánægja, 6 hryggdýrin, 10
mannsnafn, 12 keyra, 13
blóm, 15 sallarigna, 16
fótaþurrka, 18 fífl, 19
hljóðfæri, 20 greina, 21
sárt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ropvatnið, 8 tolls, 9 temja, 10 ket, 11 gifta, 13
aurar, 15 hægar, 18 illan, 21 auð, 22 sprek, 23 unnum, 24
bitakassi.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 vaska, 4 totta, 5 ilmur, 6 stag, 7 saur, 12
tía, 14 ull, 15 hæsi, 16 gerpi, 17 rakka, 18 iðuna, 19 lands,
20 nema.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef eitthvað er of lengi á sama stað
skapar það það sem Kínverjar kalla staðn-
að „chi“. Ýttu lífi þínu til og frá. Endur-
nærðu orku þína.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er undir þér komið að hefja
kraftmikla hringrás endurnýjunar. Þú fyr-
irgefur einhverjum – ættingja, vini eða
sjálfum þér. Lífið breytist til hins betra.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú álítur þig hafa þrjá eða fjóra
valkosti. En sannleikurinn er sá að þeir eru
alla vega um fjögur þúsund leiðir til að
nálgast núverandi aðstæður.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ekki hafa áhyggjur ef þú ert ekki
of ánægður í vinnunni. Þú þarft líklega að
fara á námskeið til að skila starfinu vel. Þú
gætir jafnvel hitt ástina um leið og þú lær-
ir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er eðlilegt að þú viljir taka við
stjórninni, og þér fer það vel úr hendi – svo
lengi sem þú hlustar. Þú stjórnar fólki sem
býr yfir mikilvægum upplýsingum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ekki kvíða samningum. Reyndar
ákveður þú að hlakka bara til. Þið tengið
um leið og þið þrefið fram og aftur, og
komist að ánægjulegri niðurstöðu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú neitar að takamarka sjálfan þig
með því að skilgreina þig. Venus hvetur
nýja hlið á persónu þinni til að koma upp á
yfirborðið. Þú kemur mörgum á óvart –
líka sjálfum þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Stuðið er ekki að sýna heim-
inum hvað þú getur gert. Stuðið felst í að
láta það virðast auðvelt. Þú færð aukastig
fyrir að takast á við lífsins flækjur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Persónutöfrarnir ráða ríkjum.
Aðdáendaklúbburinn samanstendur ekki
bara af fólki í þínum innsta hring heldur
líka fólki sem þú sérð næstum daglega en
þekkir lítið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu reyna á verkin þín. Ef
fólk þarf mikið að einbeita sér til að skilja
þau eru þau of flókin til að opinbera þau
heiminum – hvað þá reyna að selja þau.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vanalega æsir þú þig ekki út af
smámunum, en núna fara vissar upplýs-
ingar í taugarnar á þér, svo þú veltir þér
upp úr þeim þar til þú kemst að niðurstöðu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert í geggjuðu stuði. Þú fram-
leiðir og kynnir af mikilli lagni. Ef þú gerir
það fyrir peninga verðurðu hnyttinn. Ef þú
gerir það fyrir ástina, verðurðu stórkost-
legur.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0–0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8.
dxe5 Be6 9. Rbd2 Be7 10. c3 0–0 11.
He1 Rc5 12. Rd4 Rxd4 13. cxd4 Rd3
14. He3 Rxc1 15. Hxc1 c5 16. dxc5
Hc8 17. Hec3 b4 18. H3c2 Bf5 19. c6
Bxc2 20. Hxc2 Da5 21. Rf3 Hfd8 22.
Rd4 g6 23. e6 Bf6 24. exf7+ Kxf7 25.
h4 Db6 26. Hd2 Hd6
Staðan kom upp á minningarmóti
Tals sem er nýlokið í Moskvu í Rúss-
landi. Alexei Shirov (2.739) hafði
hvítt gegn Magnusi Carlsen (2.714).
27. Rf5! Hdxc6 svartur hefði einnig
staðið illa að vígi eftir 27. … gxf5 28.
Hxd5. 28. Bxd5+ Kf8 29. Bxc6 Hxc6
30. Re3 Bxh4 31. Df3+ Hf6 32. Da8+
Kg7 33. De4 b3 34. axb3 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tvær millifærslur.
Norður
♠K6
♥G954
♦Á43
♣ÁG83
Vestur Austur
♠D10854 ♠ÁG92
♥83 ♥7
♦DG1065 ♦K
♣D ♣K1097642
Suður
♠73
♥ÁKD1062
♦9872
♣5
Suður spilar 4♥.
Stundum má stýra gjafaslögum í
skaðlausan farveg með því að henda
tapspili í tapspil. Daninn Steen Möller
beitti þessari tækni tvisvar í sama
spilinu á HM í Kína, en Danir voru þar
þátttakendur í öldungaflokki.
Austur hafði vakið á Precison 2♣ og
vestur kom þar út með ♣D. Fjórir
tapslagir eru líklegir enda ♠Á nánast
örugglega hjá opnaranum. Möller tók á
♣Á, spilaði hjarta á drottningu og tígli
á ás. Hann tók annað tromp með gos-
anum, spilaði síðan litlu laufi úr borð-
inu og henti spaða heima! Fyrsta milli-
færsla.
Austur verður að gefa slag og hann
kaus taka á ♠Á og spila meiri spaða á
kónginn. Möller henti tígli heima og
trompaði svo lauf. Hann fór næst inn á
blindan á ♥9, spilaði laufi og henti tígli.
Önnur millifærsla. Austur var inni í
annað sinn á lauf og varð að spila út í
tvöfalda eyðu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
DAGBJÖRT Helga Pétursdóttir
varði doktorsritgerð sína „Effects of
dietary fish oil on cytokine secretion
by murine splenic and resident pe-
ritoneal cells“ eða „Áhrif fiskolíu í
fæði músa á frumuboðamyndun milt-
isfrumna og staðbundinna kvið-
arholsátfrumna“ frá læknadeild Há-
skóla Íslands 19. október sl.
Fiskolía er auðug af ómega-3 fjöló-
mettuðum fitusýr-
um og er talin hafa
áhrif á ónæm-
issvar. Fiskolía er
oft talin draga úr
sérhæfðu frumu-
svari og hafa
þannig jákvæð
áhrif á sjálfs-
ofnæmissjúkdóma
á borð við liðagigt.
Hins vegar eru
niðurstöður rannsókna á áhrifum
fiskolíu á ónæmissvar ósamhljóða og
enn er óljóst með hvaða hætti fiskolía
miðlar áhrifum á ónæmissvar. Ein
möguleg ástæða þeirra breytilegu
niðurstaðna sem fást þegar áhrif
fiskolíu í fæði á ónæmissvar eru
rannsökuð, er að mismunandi frum-
utegundir hafa verið notaðar. Annars
vegar hafa rannsóknir sýnt fram á
ónæmistemprandi áhrif fiskolíu á
T-eitilfrumur en hins vegar ónæmis-
hvetjandi áhrif á átfrumur. Áhrif
fiskolíu í fæði á T-eitilfrumur og át-
frumur hafa til þessa ekki verið
könnuð í sama dýri.
Ritgerð Dagbjartar fjallar um
rannsóknir á áhrifum fiskolíu í fæði
músa á frumuboðamyndun T-eitil-
frumna og átfrumna. Meginmarkmið
rannsóknarinnar var að kanna hvort
fiskolía hefði ólík áhrif á þessar mis-
munandi tegundir ónæmisfrumna í
sama dýri. Niðurstöður rannsókn-
arinnar sýna að þótt fiskolía virðist
draga úr sértæku frumubundnu
ónæmissvari T-eitilfrumna þá auki
hún hið ósértæka ónæmissvar át-
frumna. Enn fremur virðast áhrif
fiskolíu á átfrumur breytileg eftir
staðsetningu þeirra í líkamanum. Þá
hafði fiskolía ekki aðeins áhrif á
starfsemi frumnanna heldur virtist
hún einnig breyta frumusamsetn-
ingu í vef en það gæti haft áhrif á eig-
inleika ónæmissvarsins í heild.
Niðurstöður ritgerðarinnar varpa
nýju ljósi á það hvernig fiskolía í fæði
músa hefur áhrif á ónæmissvar og
skýra einnig eitthvað af því ósam-
ræmi sem er á milli niðurstaðna úr
öðrum rannsóknum á áhrifum fisk-
olíu á ónæmissvar.
Niðurstöður rannsókna Dag-
bjartar hafa verið birtar á ráð-
stefnum hérlendis og erlendis sem og
í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum á
borð við Journal of Nutrition. Hægt
er að nálgast greinarnar á þessari
slóð: http://www.ncbi.nlm.nih.gov/
sites/entrez. Í doktorsnefnd sátu dr.
Ásgeir Haraldsson, dr. Gunnar Guð-
mundsson, dr. Helga M. Ögmunds-
dóttir og dr. Ingileif Jónsdóttir.
Dagbjört Helga Pétursdóttir er
fædd árið 1974. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1994 og BS-prófi í lífefnafræði frá
Háskóla Íslands 1998. Hún hóf fram-
haldsnám í lífvísindum við lækna-
deild Háskóla Íslands árið 2000.
Dagbjört starfaði hjá Íslenskri erfða-
greiningu á árunum 1998-1999 og
starfar nú við ónæmisfræðideild
Landspítala. Eiginmaður hennar er
Hallgrímur Daði Indriðason, jarð-
fræðingur og eiga þau einn son,
Hrafn Ými.
Doktor í líf-
vísindum
Dagbjört Helga
Pétursdóttir
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600