Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 32
… og tekur að
drepa og háma
í sig veislugesti … 35
»
reykjavíkreykjavík
Blaðamaðurinn Lóa Pind Aldísardóttirhélt skemmtilegt útgáfuteiti í Saltfélag-inu á föstudagskvöldið og fluga tók því
stefnuna út á Granda. Lóa var að kynna bók
sína Sautjándann sem Salka gefur út. Þar sem
kvenfólk var í meirihluta gesta og fengitími
flugu litlu á hápunkti sínum staldraði dýrið
stutt við. En áður en flogið var á karlvænni mið
var upplagt að nota gullið tækifæri og ráðfæra
sig fyrst við Ragnheiði Eiríksdóttur, kynlífs-
hjúkrunarfræðing og lífskúnstner, sem var
hrókur alls fagnaðar í stelpupartíinu. Menning-
arskyldan kallaði ofan frá Safni á Laugavegi
þar sem myndlistarmaðurinn Kristján Guð-
mundsson opnaði yfirlitssýningu á verkum sín-
um og mikið fjölmenni var samankomið til þess
að sjá þessa síðustu sýningu Safns, a.m.k. á
þessum stað. Kristján hafði einnig valið að sýna
þrjú verk frá árinu 1965 eftir Pétur Arason,
eiganda gallerísins, sem var frekar krúttlegt.
Meðal gesta voru sjálfur forsetinn, Ólafur
Ragnar Grímsson, og Halldór Blöndal, fv.
þingmaður Sjálfstæðisflokks. Sama kvöld söfn-
uðust saman nokkrar afar hressar konur hinum
megin við götuna í indversku versluninni Bol-
lywood þar sem haldið var kvennaboð við
kertaljós og ilmandi reykelsi og silkifatnaður
mátaður í gríð og erg. Fluga rakst svo síðar um
kvöldið á Margréti Sverrisdóttur, formann
menningar- og ferðamálaráðs Reykjavík-
urborgar, sem var mjög sæt í þykkum pels og
hress í bragði að viðra hund í Vesturbænum.
Fluga er reynd selskapsdama og á flögri sínu
Morgunblaðið/Eggert
Guðfinna Hinriksdóttir og
Árni Geir Magnússon.
Ólafur Már Sigurðsson, Ingunn Gylfadóttir
og Þórður Óskarsson.
Katrín Lilja Ólafsdóttir, Sigurbjörg H.
Gröndal, Karl Hafsteinsson, Ásdís Björg
Ólafsdóttir og Ólafur Haukur Ólafsson.
Bogi Ágústsson, Þórunn Elísabet
Bogadóttir, Jónína María Kristjánsdóttir
og Ágúst Bogason.
Harpa Sigurjónsdóttir og Vala Smáradóttir.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ólöf Erla Halldórsdóttir, Sigríður Sverr-
isdóttir og Sigurður Sigðurðarson.
Guðrún Helgadóttir og Vigdís Grímsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og
Ari Sigvaldason.
Anna Sigríður Arnardóttir, Tobias Munthe
og Huldar Breiðfjörð.
Sigurður Guðmundsson, Einar Kárason
og Halldór Blöndal.
Flugan
… Fluga á fengitíma og
önnur lífsglöð dýr …
… Merki þess að þú sért mögulega
merkikerti …
Sigurlaug Arnardóttir og Kristín Björg
Knútsdóttir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson og
Elín Sveinsdóttir.
Lóa Pind Aldísardóttir, Sigurbjörg
Gylfadóttir og Hildur Loftsdóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Hildur Hermannsdóttir og Hlaðgerður
Bjartmarsdóttir.
» Pétur Blöndal og KristinnIngvarsson fögnuðu útgáfu
bókarinnar Sköpunarsagna á
Sólon.
»Danski tónlistarmaðurinnKim Larsen hélt tónleika í
Vodafonehöllinni.
» Lóa Pind Aldísardóttir fagnaði útkomu skáldsögunnarSautjándans í Saltfélaginu.
í menningar- og skemmtanalífi höfuðborg-
arinnar hefur hún komist að eftirfarandi nið-
urstöðum um hvað fólk á sameiginlegt sem
flokkast undir að vera merkikerti (þ.e. svokall-
aðir „selebar“).
1. Merkikerti kalla alla „elskan“ – af því þau
nenna ekki að muna nöfn.
2. Þau fara aldrei á fætur fyrr en eftir há-
degi.
3. Uppáhaldsorðin þeirra eru „andlegt“,
„listrænt“ og Armani.
4. Þau eru búin að fara í meðferð.
5. Þau segja öllum sem nenna að hlusta að
þau ætli að ættleiða munaðarleysingja frá Asíu.
6. Þau eiga nýjan „besta vin“ í hverri viku,
sem lítur alltaf betur út og er betur tengdur en
sá í síðustu viku.
7. Þau taka sér oft frí frá vinnu vegna „kuln-
unar“ og flugþreytu.
8. Þau ganga með sólgleraugu innan dyra. Á
veturna.
9. Þau eru aldrei með seðla á sér. Aldrei.
10. Þau geta nafngreint að minnsta kosti
fjóra papparassa.
11. Þau sýna aldrei svipbrigði. Of mikið bótox
í andlitinu.
12. Þau tala um sjálf sig í þriðju persónu.
13. Þau pósa sjálfkrafa þegar myndavélaflass
gerir vart við sig: Upp með hökuna, inn með
magann, mjaðmir í 45 gráður og handleggir
með hliðum – til að fela hliðarspikið.
14. Þau eru alltaf með pínulítinn hreinrækt-
aðan hund í töskunni.