Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 35
Stærsta kvikmyndahús landsins
Rendition kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Elizabeth kl. 5:30
Eastern Promises kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Syndir Feðranna Síðustu sýningar kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Veðramót Síðustu sýningar kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6 og 8
Taktu út refsinguna með Mr.Woodcock
ENGIN MISKUN
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
eeee
- R. H. – FBL
Hlaut Edduverðlaunin sem besta
heimildarmynd ársins
eeee
- B.B., PANAMA.IS
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 7 og 10 B.i. 16 ára
HVERNIG TÓKST EINUM
BLÖKKUMANNI AÐ
VERÐA VALDAMEIRI
EN ÍTALSKA MAFÍAN?
eeee
- LIB, TOPP5.IS
Miðasala á www.laugarasbio.is
A.T.H. BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM.
Dóri DNA - DV
eeee
- S.V., MBL
www.haskolabio.is Sími 530 1919
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára
Áhrifamikil mynd um aðferðir
Bandaríkjamanna í baráttunni
gegn hryðjuverkum.
Hvað ef sá sem þú elskar...
Hverfur sporlaust?
Hvað ef sá sem þú elskar... Hverfur sporlaust?
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- T.S.K., 24 STUNDIR
eeee
- L.I.B., TOPP5.IS
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
DAVID CRONEBERG
ALLT BREYTIST
28. NÓVEMBER
TÆKNINNI fleygir fram, Beowulf
hin bandaríska er ósvikin tímamóta-
mynd, þökk sé bestu þrívídd sem sést
hefur til þessa og nálgast hægt og bít-
andi fullkomnun. Það er vel við hæfi
að Zemeckis og félagar völdu gamla
óðinn um Bjólf sem efni í þetta magn-
aða brelluverk, þó að handritshöfund-
arnir fari frjálslega með efnið og noti
rösklega rauða þráðinn. Nálgun
þeirra á Bjólfskviðu er hæfð að þörf-
um bíógesta samtímans, af þeim sök-
um er komið til sögunnar kyntröllið
Jolie, sem tælir garpa og tryllir í
lostafullri nekt sem móðir illvættisins
Grendils (Glover). Hann kemur full-
skapaður úr stafrænni tölvuvinnsl-
unni líkt og allt yfirbragð mynd-
arinnar og persónurnar fá með sömu
tækni tölvuteiknað yfirbragð.
Beowulf hefst í drykkjusumbli að
heiðnum sið í höllu Hrothgars kon-
ungs (Hopkins). Þegar blótið stendur
sem hæst heyrast váleg hljóð, jörðin
skelfur og inn brýst drísildjöfullinn
Grendell, ófrýnilegur mjög, og tekur
að drepa og háma í sig veislugesti.
Eftir að Bjólfur hefur lúskrað á
meinvættinum flýr hann organdi á
braut. Hrothgar leitar á náðir hetj-
unnar til að ráða niðurlögum óvætts-
ins og heldur garpurinn til fjalla
ásamt Vigláf (Gleeson), og ræðst
hann til innöngu í helli Grendels. Þar
bíður hans móðir óvættsins, forkunn-
arfögur og breyta óvænt samskipti
þeirra gangi mála um alla framtíð.
Bjólfur snýr kokhraustur til baka, en
hann veit að ógnin er með lífsmarki
og endar myndin í feiknlegu loka-
uppgjöri Bjólfs og fordæðunnar, sem
þá er komin í drekalíki.
Sem fyrr segir er þrívíddin stór-
kostlegt ævintýri fyrir augun og nán-
ast allt taugakerfið er í uppnámi. Þrí-
víddin er áhrifaríkust þegar henni er
beint gegn skilningarvitunum, áhorf-
endur hrökkva í kút og beygja sig aft-
an við sætisbökin þegar spjótsodd-
arnir virðast koma fljúgandi beina
leið í fésið á manni, af tjaldinu. Dýptin
er svo miklu meiri í Beowulf en öðr-
um þrívíddarmyndum til þessa að um
ósvikin straumhvörf er að ræða.
Á hinn bóginn er bakgrunnurinn
grófgerðari og vissa fágun vantar á
yfirbragð tölvuteiknihjúps leik-
aranna. Það er eðlilegt, Zemeckis og
aðrir framsýnir kvikmyndagerð-
armenn eru að feta sig áfram á fram-
andi slóðum nýrrar tækni sem á eftir
að fleygja fram.
Beowulf fær mann til að velta fyrir
sér hvort stafræna tæknin geri leik-
ara að lokum óþarfa í myndum sem
þessari eða eigum við jafnvel von á
nýrri gerð kvikmyndastjarna sem
eiga sér engar lifandi fyrirmyndir?
Ævintýrið er mikilfenglegt fyrir
augað og fyrri hlutinn er frábær
skemmtun. Lokakaflinn, orrustan við
drekann, sýnir okkur að allt er að
verða hægt varðandi hátækniverur
iðnaðarins, en þar skortir tilfinningar
í þessa ótrúlegu framtíðarsýn. Ze-
meckis tókst að glæða gömlu teikni-
myndafígúrurnar mannlegu tauga-
kerfi í Hver skellti skuldinni á Kalla
kanínu? fyrir 20 árum. Þess verður
ekki langt að bíða að þrívídd og tölvu-
teikningar nái því nauðsynlega mark-
miði. Hvað sem öllu öðru líður er Beo-
wulf mikilfenglegt sjónarspil.
Framtíðin skoðar fortíðina
Bjólfur „Hvað sem öllu öðru líður er Beowulf mikilfenglegt sjónarspil.“
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
Sambíóin Kringlunni, Álfabakka,
Selfossi, Keflavík og, Akureyri.
Leikstjóri: Robert Zemeckis. Aðalleik-
arar: Ray Winstone, Anthony Hopkins,
John Malkovich, Robin Wright Penn,
Brendan Gleeson, Crispin Glover, Angel-
ina Jolie. 115 mín. Bandaríkin 2007.
Bjólfskviða – Beowulf