Morgunblaðið - 30.11.2007, Síða 9

Morgunblaðið - 30.11.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 9 FRÉTTIR RAUÐI krossinn og ríkisstjórn Íslands hafa undirritað áheit um markvissara samstarf á al- þjóðavettvangi á árunum 2008- 2011, og að starfa saman að fræðslu um alþjóðleg mann- úðarlög í þágu fórnarlamba á átakasvæðum. Að auki undirrituðu Rauði kross Íslands og ríkisstjórnin ásamt landsfélögum Rauða krossins í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð og ríkisstjórnum sömu landa samnorrænt áheit um hlut- lausa, óháða mannúðaraðstoð á átakasvæðum. Þar skuldbinda aðilar sig til að styrkja starf óháðra samtaka eins og Rauða krossins og skerpa línurnar milli starfsemi þeirra og aðstoðar sem ríki veita í hernaðarlegum tilgangi. Ómar Kristmundsson, formaður Rauða kross Íslands, og Kristinn F. Árnason sendiherra undirrituðu áheitið. Aðstoða fólk á átakasvæðum 15 MYNDLISTARMENN á Suður- nesjum hafa tekið sig til og efnt til sölu á málverkum til hjálpar Afr- íkubúum sem misst hafa útlimi vegna styrjalda, pyntinga eða sjúk- dóma. Málverkasalan hefst kl. 18 í dag og fer fram í kaffihúsi aðal- bækistöðva Kaffitárs, Stapabraut 7 í Reykjanesbæ. Hagnaður af söl- unni rennur óskiptur til verkefn- isins. Salan er haldin í samstarfi við IceAid, íslensk þróunar- og mann- úðarsamtök sem skipuleggja verk- efni í Austur-Afríku sem felst í að setja gervifætur á 100 manns. Til styrktar Afríkubúum sem misst hafa útlimi ÚTSVAR á Seltjarnarnesi lækkar úr 12,35% í 12,10% 1. janúar nk. samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar en fjárhagsáætlun ársins 2008 var afgreidd á fundi hennar í fyrradag. Álagningarstuðull fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar einnig úr 0,24% í 0,20%. Álagningarstuðull vatnsskatts lækkar úr 0,115% í 0,100% og álagningarstuðull frá- veitugjalds verður 0,097% af fast- eignamati, allt frá 1. janúar. Allir gjaldstuðlar fasteignagjalda auk útsvars verða því þeir lægstu á höf- uðborgarsvæðinu, segir í frétt frá Seltjarnarnesbæ. Gjöldin lækka Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Cashmere rúllukragapeysur í sex litum Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 M bl .9 29 34 4 Opið laugardag í Bæjarlind kl. 10-16 og í Eddufelli kl. 10-14 Flottur jólafatnaður HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862 Orðabrellur Einstök bók með bráðsnjöllum þrautum sem fá okkur til þess að gefa íslenskri tungu betri gaum en ella, spá og spekúlera í merkingu orða og orðasam- banda og beita hugmyndaflugi og kímni við lausn þeirra. holar@simnet.is Þreföld safnplata með Þuríði Pálsdóttur söngkonu íslensk sönglög, erlend sönglög og óperuaríur. Seldur í Pennanum og hljómplötuverslunum Hægt er að fá diskinn sendan í póstkröfu, upplýsingar í síma 534 3730 KRINGLUNNI - Sími: 568 9955 www.tk.is design: Erik Bagger AÐVENTUSTJAKAR Tilboðsverð kr. 8.995.- Tilboðsverð kr. 12.450.- -mikið úr val -frábær t verð Ullarjakkar áður 12.990 Nú 9.990 Stærðir 34-46 Laugavegi 54 sími 552 5201 Jakkasprengja Í TILEFNI af fimm ára starfs- afmæli Stofnun- ar stjórnsýslu- fræða og stjórnmála er í dag boðið til ráð- stefnu í Odda, Háskóla Íslands, kl. 15.05. Ráð- stefnan ber yfir- skriftina Ný form lýðræðis – íbúa- lýðræði, lýðræðiskerfi sveitarfélaga og félagsauður og er öllum opin. Aðalfyrirlesari verður einn þekktasti stjórnmálafræðingur á sviði sveitarfélaga og nýrra lýð- ræðisforma, Gerry Stoker, pró- fessor við háskólann í Southamp- ton. Auk hans flytja ávörp forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson fv. prófessor í stjórnmálafræði, Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnmálafræðingur og borgar- fulltrúi, Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor og stjórnarformaður stofnunarinnar. Lokaorð flytur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, en hann situr í Lýðræðishóp Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Í tilefni afmælisins hefur verið ákveðið að setja af stað stórt þriggja ára rannsóknar- og þróun- arverkefni um íbúalýðræði og fé- lagsauð. Í rannsókninni verður í fyrsta skipti tekin saman reynsla íslenskra sveitarfélaga af íbúalýð- ræði m.a. á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í ráðstefnunni á www.stjornmalogstjornsysla.is. Rætt um nýtt form lýðræðis – íbúalýðræði Gerry Stoker

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.