Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 16

Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Caracas. AFP, AP. | Hugo Chavez vill verða forseti Venesúela fyrir lífstíð og með stjórnarskrárbreytingum, sem kosið verður um í landinu á sunnudag, gæti draumur hans orðið að veruleika. En þessi umdeildi orð- hákur mætir nú nokkurri mótstöðu, jafnvel sumir stuðningsmanna hans telja hann seilast of langt. Chavez hefur verið forseti Venes- úela sl. átta ár. Hann þrífst á athygli og nýtur þess að lenda í illdeilum við menn. Hann reitti Jóhann Karl Spán- arkonung svo illilega til reiði á ráð- stefnu í Chile nýverið að sá spænski fékk ekki á sér setið og bað Chavez að steinþegja og nú síðast fékk Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, gusu af skömmum yfir sig. Áður hafði Chavez lýst Bush Bandaríkjaforseta sem djöflinum sjálfum. Með umfangsmiklum breytingum á stjórnarskrá Venesúela, sem lands- menn kjósa um á sunnudag, yrði sósíalískt efnahagskerfi fest í sessi og Chavez gert kleift að bjóða sig fram til endurkjörs 2012 (sem hann annars mætti ekki) og svo eins oft og hann vildi. Forsetinn réði sjálfur beint yfir seðlabanka lands- ins og lögreglu yrði heimilt að handtaka fólk án ákæru við tilteknar aðstæður, auk þess sem ríkið gæti sölsað undir sig eignir í einkaeigu. Þá gæti forsetinn framvegis valið persónulega for- ystumenn sveitarfélaga og héraða – en margir óttast að sú breyting myndi þýða að enginn sem ekki er bandamaður forsetans gæti komist til áhrifa nokkurs staðar. Chavez segir að með því að greiða atkvæði með breytingunum séu menn að tryggja að hann verði áfram á skipi sem ella „gæti sokkið“. „Ef þið óskið þess – og ef þið samþykkið nýja stjórnarskrá – skal ég vera forseti eins lengi og Guð óskar! Þar til síð- ustu beinin í líkama mínum eru þorn- uð upp!“ sagði hann nýlega við stuðn- ingsmenn sína sem margir hverjir ætla að fara að tilmælum hans ein- faldlega vegna þess að þeir fylgja þessum foringja. Aðrir benda á að ýmislegt jákvætt sé að finna í breyt- ingunum, s.s. styttingu vinnutíma venjulegs verkamanns úr átta klukkustundum í sex á dag. Andstæðingar forsetans koma hins vegar úr ýmsum áttum. Rómversk- kaþólska kirkjan óttast að stjórnar- skráin feli einum manni öll völd í landinu og ýmis mannréttindasamtök og aðilar í viðskiptalífinu hvetja fólk til að standa vörð um lýðræðið. Þá hafa námsmenn staðið fyrir götumót- mælum í vikunni. Chavez kallar námsmennina hins vegar „spillta litla vandræðagemlinga“ og kirkjunnar menn eru „vangefnir“ í hans huga. Vill geta verið forseti Venesúela til lífstíðar Hugo Chavez FJÖGUR sveitarfélög í Noregi hafa tapað andvirði að minnsta kosti 3,9 milljarða íslenskra króna í viðskiptum með bandaríska skuldavafninga, þeirra á meðal svoköll- uð ótrygg húsnæðislán. Í frétt á vefsíðu norska miðilsins e24 segir að vafning- arnir hafi verið settir saman af Citigroup í Bandaríkj- unum, en norska fjármálafyrirtækið Terra Securities seldi sveitarfélögunum vafningana. Koma þeim ekki til hjálpar Alls munu sveitarfélögin hafa fjárfest fyrir um 9,5 milljarða íslenskra króna og síðan þá hafa fjárfesting- arnar fallið hratt í verði. Talsmenn þeirra vilja kenna Terra um hvernig fór og segja fjármálafyrirtækið ekki hafa gert þeim með nægilega skýrum hætti ljósar þær hættur sem fælust í fjárfestingunum. Vandinn er að sveitarfélögin tóku peninga að láni til að kaupa bréfin sem síðan hafa reynst verðlaus. Sveitarfélögin verða því að borga úr eigin sjóðum eða selja eignir til að standa undir tapinu. Framtíðartekjur af virkjunum sveitarfélag- anna voru settar að veði, en sveitarfélögin hafa krafist þess að Terra taki á sig hluta af tapinu. Norska fjármálaeftirlitið segir að um sé að ræða eitt versta fjármálahneyksli í landinu í áratugi. Bæði for- sætisráðherra og fjármálaráðherra Noregs hafa lýst því yfir að ríkið komi sveitarfélögunum sem tapa ekki til hjálpar. Bæði Jens Stoltenberg forsætisráðherra og Kristín Hallvorsen fjármálaráðherra hafa lýst því yfir að sveitarfélögin og sparisjóðirnir verði að ráða fram úr vandanum án stuðnings. Norsk sveitarfélög í glæfrafjárfestingum Talið eitt versta fjármálahneyksli í Noregi í áratugi HÓPUR yfirmanna í stjórnarher Filippseyja gerði mis- heppnaða tilraun til að hrekja Gloriu Arroyo forseta frá völdum í gær en þeir náðu hótelbyggingu í Manila á sitt vald og kröfðust þess að Arroyo segði af sér. Her- inn kom á vettvang og eftir nokkurra klukkustunda umsátursástand gáfust uppreisnarmenn síðan upp og sögðust ekki vilja verða valdir að dauða óbreyttra borgara. Arroyo sagði að mennirnir yrðu sóttir til saka, um leið og hún lýsti yfir næturlöngu útgöngu- banni í Manila. Einn höfuðpaura áhlaupsins reyndi valdarán 2003 en mennirnir saka Arroyo forseta um spillingu og gerræðislega valdatilburði. Reuters Misheppnað valdarán í Manila Washington. AFP. | Metsöluhöfundur- inn Dan Brown beinir spjótum sín- um að frímúrarareglunni í sinni næstu bók en um er að ræða fram- hald af Da Vinci-lyklinum því að söguhetjan Ro- bert Langdon snýr hér aftur. Eins og í Da Vinci-lyklinum þarf Langdon að takast á við ráð- gátu sem tengist leynilegu félagi en bókin gerist í Washington, höf- uðstað Banda- ríkjanna, og mun söguþráðurinn tengjast kenningum um að stofn- endur Bandaríkjanna – George Washington, James Madison og Benjamin Franklin – hafi allir fylgt áætlun er tengdist veru þeirra í frí- múrarareglunni. Einkum og sérílagi er haft í flimtingum að Washington hafi látið skipuleggja byggð í mið- borginni þannig að hún lægi eins og tiltekin leynimerki sem frímúrarar halda í heiðri. Nýja bókin hefur fengið vinnutit- illinn „Salomóns-lykillinn“ en for- svarsmenn frímúrarareglunnar í Washington hafa staðfest að Brown hafi verið í sambandi við þá. „Ég er áhyggjufullur því að ég tel ekki að heimildavinna hans hafi verið sér- lega góð,“ segir Mark Tabbert, höf- undur bókar um frímúrararegluna í Bandaríkjunum. „En skáldsagna- höfundar eru og verða skáldsagna- höfundar.“ Frímúrara- reglan næst á dagskrá Dan Brown ♦♦♦ DÓMSTÓLL í Súdan dæmdi í gær 54 ára gamla breska kennslukonu, Gillian Gibbons, í fimmtán daga fangelsi fyrir að hafa heimilað súd- önskum nemendum sínum að kalla leikfangabangsa Múhameð. Dóm- stóllinn komst að þeirri niðurstöðu að kennslukonan hefði með þessu gerst sek um móðgun við íslam og ákvað einnig að vísa henni úr landi. David Miliband, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði að það væru „gífurleg vonbrigði“ að dómstóllinn skyldi ekki hafa vísað ákærunni frá. Hann kvaðst hafa kallað sendiherra Súdans í London á sinn fund „til að útskýra þetta og ræða næstu skref“. Í steininn út af bangsa Moskva. AFP. | Garrí Kasparov, fyrr- verandi heimsmeistara í skák, var í gær sleppt úr fangelsi í Moskvu og beið hann ekki boðanna með að gagnrýna ríkisstjórn Vladímírs Pút- íns Rússlandsforseta, sagði að með degi hverjum líktist Rússland ein- ræðisríki meira. Kasparov kvartaði undan því að hafa ekki fengið að hitta lögmann á meðan á fimm daga dvöl hans í fang- elsi stóð en Kasparov var settur á bak við lás og slá um síðustu helgi fyrir að taka þátt í ólöglegum mót- mælum. „Ég hyggst áfram berjast gegn þessari ríkisstjórn,“ sagði Kasparov. „Einu tækifæri þessarar stjórnar til að lifa af felast í því að fólk láti óttann taka völdin.“ Þingkosningar verða haldnar í Rússlandi um helgina og Pútín Rússlandsforseti ávarpaði lands- menn í gær í því skyni að biðja þá um að kjósa Sam- einað Rússland, flokkinn sem hann fer fyrir í kosningunum. Sagði hann að ef menn gerðu það ekki væri hætta á upplausn í Rússlandi. Pútín sagði stjórnarandstöðuna vilja hverfa aftur til tíma niðurlægingar, ánauðar og upplausnar sem ríkti fyrstu árin eftir hrun Sovétríkjanna 1991. Laus úr fangelsi, segist ekki hættur Garrí Kasparov ÍRÖSK stúlka, sem nýkomin er aft- ur til Bagdad frá Sýrlandi eftir nokkurra mánaða útlegð, heldur vegabréfi sínu á loft og bíður þess að hljóta afgreiðslu. Írakar, sem flúið hafa ofbeldið í landi sínu und- anfarin misseri, eru farnir að snúa aftur en öryggi þykir hafa aukist. Reuters Snúa aftur heim PERVEZ Musharraf sór í gær emb- ættiseið sem forseti Pakistans og situr nú sem borgaralegur forseti, eftir að hann lét af starfi yfirhers- höfðingja í fyrradag. Musharraf hét því að aflétta neyðarlögum í landinu fyrir 16. desember og sagði ekkert geta komið í veg fyrir að þingkosningar færu fram í janúar. Sór embættiseið EHUD Olmert, forsætisráðherra Ísraels, verður ekki ákærður fyrir spillingu. Lögreglan segir ónæg sönnunargögn til að hægt sé að gefa út ákæru. Olmert hefur verið sakaður um að beita áhrifum sínum sem fjármálaráðherra 2005 svo vin- ur hans fengi banka sem ríkið hugðist einkavæða. Olmert sleppur HENRY Hyde, fyrrverandi fulltrúadeildar- þingmaður fyrir Repúblikana- flokkinn, er lát- inn, 83 ára að aldri. Hyde er einkum þekktur fyrir að hafa sem formaður dóms- málanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings stýrt málarekstri til embættissviptingar á hendur Bill Clinton vegna sambands forsetans við Monicu Lewinsky, starfsstúlku í Hvíta húsinu. Ályktun þar að lút- andi var samþykkt í fulltrúadeild- inni en felld í öldungadeildinni. Hyde látinn Henry Hyde Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170 Innrettingar Þi´n vero¨ldXEINN IX 07 06 0 08

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.