Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SAMSON Properties fær 11 þúsund fermetra
lóð í Vatnsmýri í skiptum náist samningar um
uppbyggingu Listaháskóla Íslands (LHÍ) á
svokölluðum Frakkastígsreit í miðborg
Reykjavíkur. Samningaviðræður eru nú í
gangi milli LHÍ og Samson og er reiknað
með að niðurstaða náist fljótlega. Lóðin, sem
Reykjavíkurborg gaf LHÍ sl. vor, er því not-
uð sem gjaldmiðill í samningaviðræðunum.
Í borgarráði í gær var samþykktur maka-
skiptasamningur milli borgarinnar og Sam-
son á umræddum Frakkastígsreit og
Lindargötureit. Þar áætlar borgin að byggja
fleiri stúdentaíbúðir, en borgin fær lóðirnar
Lindagata 44 og Vatnsstíg 10,10A og 12.
Samson fær í staðinn lóðarréttindi og fast-
eignir á Frakkastígsreitnum, þ.e. Hverfisgötu
60, 60A, 43B og eina íbúð í 58A. Einnig var
samþykkt í borgarráði að ganga til samninga
við Samson Properties um kaup á eignum
borgarinnar á svokölluðum Landsbanka-
Barónsreit, er þar um að ræða Skúlagötu 26,
28 og 30, lóðina að Vitastíg 5 sem og Hverf-
isgötu 85, 87, 89 og 91. Að teknu tilliti til þess
að Samson Properties og félög í þeirra eigu
hafa nú fjárfest umtalsvert á reitunum þótti
eðlilegt að ganga til samninga við félagið um
kaup þeirra á eignum Reykjavíkurborgar
sem þar eru í samræmi við markmið og hlut-
verk Skipulagssjóðs.
Fyrir sinn snúð fær borgin tæpar 1.300
milljónir króna að sögn Dags B. Eggerts-
sonar borgarstjóra. Þar er fyrirhugað að rísi
miðborgarkjarni með verslunar- og þjónustu-
húsnæði, skrifstofum og íbúðum. Einnig var
samþykkt í borgarráði að við endurskoðun
deiliskipulags á Barónsreitnum verði haft í
huga að Bjarnarborg og Barónsfjósið eru
friðuð. Segir Dagur að með því sé tryggt að
ekki verði hreyft við þeim húsum auk þess
sem byggðamynstri við Vitastíg verður haldið
óbreyttu. Rík áhersla verði lögð á að tengja
uppbygginguna við götumynd og sérkenni
Laugavegar og Vitastígs með það fyrir aug-
um að skapa áhugavert umhverfi sem styrkir
blómlegt mannlíf í þessum borgarhluta. Með
þessu gefist einstakt tækifæri til þess að
koma á uppbyggingu í bland við endurvakn-
ingu eldri byggðar.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, segir
að með samningum sem samþykktir voru í
borgarráði í gær sé Reykjavíkurborg að efna
sín fyrirheit við skólann frá því sl. vor. „Með
þessum samningi er verið að gera okkur og
Samson mögulegt að semja,“ segir Hjálmar.
Spurður um hvort Listaháskólinn vilji frekar
vera í miðbænum en í Vatnsmýri segir
Hjálmar: „Það hefur alltaf verið stefna skól-
ans að vera í miðborginni, sem næst borg-
arlífinu. Það hefði þó einnig verið góður kost-
ur að vera í Vatnsmýrinni í nálægð við
Háskóla Íslands. En þegar Samson bauð upp
á viðræður um lóð í miðbænum þá tókum við
þeim fagnandi.“
Spurður um verðmæti lóðarinnar í Vatns-
mýrinni segir Hjálmar: „Verðmatið er rokk-
andi en við metum hana aðallega til móts við
lóð á Laugaveginum. Þannig að við ætlum
okkur alla vega ekki að borga þarna á milli,
það er alveg á hreinu.“
Samningaviðræður við Samson ganga m.a.
út á það að tryggja stækkunarmöguleika LHÍ
yfir Hverfisgötuna. Felur makaskiptasamn-
ingur sá sem samþykktur var í borgarráði í
gær það m.a. í sér. Náist samningar segir
Hjálmar að uppbygging verði að hefjast sem
fyrst. Bjóða þurfi út hönnun og byggingu
skólans. „Þessi samningur er afar mikilvægur
og ég lít ekki eingöngu á þetta í sambandi við
skólann heldur í samhengi við uppbyggingu
miðborgarinnar og menningarlífsins í heild.“
Auk þess sem makaskiptasamningurinn
gerir samkomulag milli Listaháskólans og
Samson Properties mögulegt greiðir hann
fyrir því að lóð stúdentagarða við Lindargötu
geti orðið heildstæðari, sem myndi bæta um-
hverfið og aðkomu að lóðinni og möguleiki
opnast á að byggja fleiri stúdentaíbúðir á
reitnum.
„Það verður mjög spennandi að fá Listahá-
skólann við Laugaveginn,“ segir Dagur. Reit-
urinn sem um ræðir hafi hingað til verið lítið
borgarprýði. „Það er líka mikilvægt að byggt
fleiri íbúðir fyrir stúdenta. Til að tryggja
fleiri ódýrar leiguíbúðir, það er ekki vanþörf
á því.“
Þá fagnar Dagur samkomulagi við Samson
um Barónsreitinn. „Það samkomulag nær til
þess að standa vörð um gömul hús á svæðinu,
standa vörð um karakterinn á Laugavegi og
verndun götumyndar á Vitastíg og byggja
þannig að uppbyggingin verði í sátt við sög-
una og nánasta umhverfi.“ Dagur segir að
verslunarkjarni sem fyrirhugað er að rísi á
reitnum verði „akkeri“ á svæðinu, á móti
Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. „Þetta end-
urspeglar þessa eftirspurn sem er eftir því að
byggja í miðborginni. Það er mjög ánægju-
legt.“
„Uppbygging hefjist sem fyrst“
Í HNOTSKURN
»Samningar sem tengjast uppbygginguListaháskóla Íslands við Laugaveg og
stúdentaíbúða við Lindargötu og uppbygg-
ingu og útfærslu á nýjum verslunarkjarna
á Landsbanka-Barónsreit voru samþykktir
í borgarráði í gær.
»Listaháskólinn á nú í viðræðum viðSamson Properties um byggingu skól-
ans á Frakkastígsreit. Gangi þeir samn-
ingar eftir fær Samson lóð LHÍ í Vatns-
mýrinni.
»Listaháskólinn fær stað við Laugavegog stækkunarmöguleikar verða
tryggðir.
Fá lóð í Vatnsmýri náist
samningar um bygg-
ingu LHÍ við Laugaveg
2
34
( (
()
(+
.&
5 6
6 *+ 2 )&')&-.7 89 6 2
6 2 2 #9 $ 75
6 2%&'%&'%(
--34 ÁRSHÁTÍÐ Menntaskólans á Akureyri fer
fram í kvöld í íþróttahöllinni, en hún er
jafnan haldin 1. desember eða sem næst
fullveldisdeginum. Hátíðin verður fjöl-
mennari nú en nokkru sinni, matargestir
hátt í eitt þúsund talsins, nemendur,
starfsmenn og gestir þeirra. Árshátíð MA
er orðin landsþekkt sem stærsta vímu-
efnalausa skemmtun ársins.
Skemmtiatriði eru öll heimatilbúin, ut-
an dansleiksins sjálfs en það er hjóm-
sveitin GusGus sem leikur fyrir dansi.
Undirbúningur árshátíðarinnar er mikið
verk og koma tugir nemenda að skreyt-
ingum og öðrum verkefnum. Að sögn Vil-
hjálms Bergmann Bragasonar, formanns
skólafélagsins Hugins – inspector scholae
– er félagið 80 ára um þessar mundir og
því enn meira lagt í samkomuna en venju-
lega. Á heimasíðu skólans segir að nem-
endur telji það forréttindi að fá tækifæri
til að njóta vímulausrar stórhátíðar á tím-
um þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum
aldri skemmti sér með öðru móti. „Skólinn
virðir og þakkar þennan metnað nem-
enda,“ segir á heimasíðunni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Æfing Dans stráka í MA vakti lukku á
meðal skólasystra þeirra á æfingu í gær.
1.000 manna
vímulaus
árshátíð MA
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
VELGENGNI Leikfélags Akur-
eyrar hefur verið mikil undanfarin
ár. Aðsókn hefur aukist gríðarlega
og eigið fé, sem fyrir fjórum árum
var neikvætt um 30 milljónir, er nú
55 milljónir og búið að greiða allar
skuldir leikhússins.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
formaður stjórnar LA, segir viðvar-
andi velgengni enga tilviljun. „Hún
stafar af þrautseigju, stjórnvisku,
fagmennsku og djúpri ást á tveimur
lykilatriðum í rekstrinum; áhorf-
andanum og listamanninum,“ sagði
hann á aðalfundi félagsins.
Meirihluti núverandi stjórnar tók
við stjórnartaumunum árið 2003 og
tók þá ekki við góðu búi, að sögn
formannsins. Magnús Geir Þórð-
arson var ráðinn leikhússtjóri og
undir hans forystu hefði stefna leik-
hússins verið endurskoðuð og ráðist
í gagngerar breytingar.
Agi og ábyrgð
LA skilar nú hagnaði fjórða árið í
röð og sagði Sigmundur efnahag
þess hafa gjörbreyst. „Allar skuldir
hafa verið greiddar upp og búið að
safna upp öflugum varasjóði. Eigið
fé leikhússins var hinn 1. ágúst um
55 milljónir króna. Til samanburðar
má geta þess að 1. ágúst 2003 var
eigið fé leikhússins neikvætt um
tæpar 30 milljónir. Viðsnúningurinn
á tímabilinu er því um 85 milljónir
króna. Þetta er ótrúlegur árangur
og einstakur. Búið er að stoppa upp
í skuldagatið og búa til varasjóð
sem við vonum að þurfi ekki að nýta
í bráð en á að tryggja að leikhúsið
sé í stakk búið að mæta óvæntum
skakkaföllum og þurfi þá ekki að
koma á hnjánum til yfirvalda eins
og oft áður.“
Formaðurinn sagði að undanfarin
misseri hefði verið tekið fast á fjár-
málum og rekstri. „Starfsemin var
öll stokkuð upp í upphafi ársins
2004 og síðan þá hefur starfsemin
verið öguð og ábyrg. Áætlanagerð
er nákvæm, stjórnendur leikhússins
leggja áætlanir fyrir stjórn LA og
svo er þessum áætlunum fylgt eftir
með nákvæmum hætti. Reksturinn
er undantekningarlaust í samræmi
við áætlanir og svo hefur verið allt
frá því að starfsemin var stokkuð
upp. Það er í raun athyglisvert hve
stefnufestan hefur verið mikil, því
frá því lagt var upp í breytingar-
ferlið á þessum tíma hefur aldrei
verið hvikað af leið, markmiðin hafa
verið ljós og stjórn og stjórnendur
hafa unnið sem einn maður.“
Sigmundur sagði að auk þess sem
almenn miðasala hefði margfaldast
hefði áskriftarkortasala fjórtánfald-
ast á fjórum.
Vegna góðs gengis síðustu leik-
ára hefur LA getað ráðið íslensk
leikskáld til að skrifa ný leikverk
fyrir félagið. Sigmundur sagði fjög-
ur slík verk í þróun og leikhúsáhorf-
endur muni uppskera á næstu leik-
árum. Þá upplýsti hann að í
burðarliðnum væru þrjú verkefni
sem tengjast erlendum leikhúsum,
leikhópum og listahátíðum. „Í þess-
um verkefnum felst viðurkenning á
starfi LA og eiga þau að skila sér í
fjölbreyttari starfsemi á komandi
misserum. Við höfum sett okkur að
rækta erlent samstarf á næstu
misserum enda búin að ná góðum
tökum á starfseminni hér heima
fyrir.“
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í byrjun vikunnar sækir Magnús
Geir Þórðarson um starf Borgar-
leikhússtjóra. Sigmundur sagði að
svo kynni að fara að Magnús
hreppti stöðuna þótt sig dreymdi
óneitanlega aðra niðurstöðu, „en
auðvitað væri stjórnin syðra hjá LR
ekkert minna en gargandi galin að
ráða ekki Magnús til starfans enda
hefur hann sýnt þvílíkan afburða-
árangur hér norðan heiða.“
Merkasti leikhússtjórinn
Sigmundur sagði umsókn Magn-
úsar Geirs í fullu samráði við stjórn
LA og það hefði verið óréttlátt af
henni að setja Magnúsi stólinn fyrir
dyrnar. „Það hefði ekki verið lýs-
andi þakklæti fyrir það þrotlausa og
stórkostlega starf sem hann hefur
unnið fyrir okkur.“ Sigmundur
sagði: „Magnús Geir Þórðarson er
að mínu viti merkasti leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar í sögu þess.
Þetta er stór fullyrðing, en ég ætla
að standa við hana fram í andlátið.
Enginn annar leikhússtjóri í sögu
LA hefur náð viðlíka árangri og
Magnús … Hann hefur lyft Grett-
istaki í leikhúslífi Akureyrar – og
þjóðarinnar allrar.“
85 milljóna kr. umskipti
Búið er að greiða upp allar skuldir leikhússins og safna öflugum varasjóði
Velgengni Leikritið Óvitar hefur gengið fyrir fullu húsi í vetur. Höfund-
urinn, Guðrún Helgadóttir, er hér með börnum sem leika í sýningunni.
Í HNOTSKURN
»LA fékk 4,7 á skalanum1-5 í viðhorfskönnun sem
Capacent Gallup gerði í haust.
Formaður LA segir það hæstu
einkunn sem nokkurt fyrir-
tæki, félag eða stofnun hafi
fengið í samskonar könnunum
Gallup síðustu 15 ár, en fleiri
hafa reyndar fengið þá sömu.
»Um 95% voru jákvæð eðamjög jákvæð gagnvart
leikhúsinu.