Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 24
matur
24 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
alltaf efni og þekki af eigin reynslu
álagið sem fylgir því að þurfa sjálf sí-
fellt að búa til kennsluefni,“ segir
Stefanía Valdís Stefánsdóttir, lektor í
heimilisfræðum við Kennaraháskóla
Íslands, um bók sína, Eldað í dagsins
önn, sem nýlega kom út hjá JPV.
„Ungt fólk er undir mikilli tíma-
pressu og bendir fjölbreytt framboð
skyndirétta og hálftilbúins matar til
þess að minna sé eldað á heimilum en
áður. Rannsóknir sýna að þjóðin er
að fitna, bæði börn og fullorðnir, og
tannskemmdir og sykursýki að
aukast svo eitthvað sé nefnt. Bókin
var skrifuð sem leiðarvísir fyrir alla
þá sem vilja forðast þessa þróun og
borða rétt samsetta fæðu samkvæmt
ráðleggingum Lýðheilsustöðvar.“
Bók Stefaníu byggir á uppskriftum
sem hún hefur safnað á löngum
kennsluferli og eiga þær það sameig-
inlegt að vera fljótlegar og ódýrar.
Þess utan segist Stefanía hafa tekið
eftir því að þær bækur sem út hafi
komið um mat að undanförnu hafi
mikið til einblínt á fínni matargerð
sem henti ekki öllum. „Í gegnum
kennsluna hef ég orðið vör við að
ungu fólki, og jafnvel líka fólki á mín-
um aldri, hrýs oft hugur við að takast
á við þessar erfiðari uppskriftir og
flettir einfaldlega yfir þær.“
Í bókinni er að finna sígilda, þjóð-
lega rétti á borð við íslensku kjötsúp-
una og kjötfars með grænmeti, sem
og meira framandi uppskriftir, t.d.
spínatsalat með jarðarberjum og
hindberjahunangssósu.
„Mér er ekki sama um íslenska
matargerð og vil alls ekki sjá pitsuna
ýta okkar sígildu hefðum til hliðar.
Þess vegna er ég með klassískar ís-
lenskar uppskriftir í bókinni sem ég
hef endurbætt og lagað að ráðlegg-
ingum Lýðheilsustöðvar, enda er
hreint ekki orðið auðvelt að finna
þær. Ég veit hins vegar líka að fólk á
mínum aldri er oft orðið þreytt og
hugmyndasnautt er kemur að mat-
argerðinni,“ segir Stefanía, sem er
komin á sjötugsaldur. Þess vegna
hentar því ekki síður vel en unga fólk-
inu að hafa aðgang að fljótlegum upp-
skriftum sem eru líka framandlegar
og hollar.“
Sjálf horfir hún mikið til hollustu í
eigin matseld. „Ég hef löngu lagað
mig að ráðleggingum Lýðheilsu-
stöðvar, sem áður voru kallaðar
manneldismarkmið, og ég er að
kenna. Ég geri greinarmun á því að
borða hversdagsmat og hátíðarmat
þegar það á við. Þú spyrð hvað mér
finnst gott. Mér finnst allur matur
góður og verð hrifnari og hrifnari af
fiski með aldrinum. Ég borða fjöl-
breyttan mat og mikið af flóknum
kolvetnum, þ.e. grófmeti á borð við
gróft brauð, grænmeti og ávexti á
kostnað fituríkrar fæðu.“
Hitaeiningafjöldi og næringargildi
allra uppskrifta í bókinni er reiknað
út í næringarforriti. „Eitt af vanda-
málum okkar í hinum vestræna heimi
í dag er að skammtastærðirnar hafa
Ég hugsa þessa bók fyrst ogfremst fyrir fólk sem erundir miklu vinnuálagi ogá erfitt með að koma því
við að útbúa heimatilbúna máltíð fyr-
ir fjölskyldur sínar. Ég skrifa hana
þó líka fyrir skólana, enda langar mig
að aðstoða mína gömlu nemendur við
kennsluna. Ég veit vel að það vantar
stækkað og í bókinni ræðst ég svolítið
gegn því. Þessar uppskriftir eru mið-
aðar við hóflega skammta og að fyllt
sé upp í með grænmeti, ávöxtum og
grófu brauði.“
Stefanía hefur líka notað velflestar
uppskriftirnar í kennslunni og fengið
lof fyrir. „Kannski var það það sem
ýtti mér út í þetta. Margir voru búnir
að hafa orð á að ég ætti að gefa þær
út og þar sem ég hætti að kenna eftir
nokkur ár velti ég fyrir mér hvort ég
ætti bara að liggja með þessar upp-
skriftir, eða gera öðrum kleift að
njóta þeirra.“
Tómatfisksúpa
Handa sex
8 dl vatn
150 g rjómaostur
1 dós Hunt’s chunky garlic and
herbs-tómatsósa
eða 1-1½ dós af Hunt’s nið-
ursoðnum tómötum (411 g dósin)
1 tsk. hvítlauksduft
2 tsk. þurrkað oreganó (eða eftir
smekk)
2 msk. Oscar-humarsúpukraftur (má
nota venjulega fiskteninga)
1 tsk. grænmetiskraftur
um það bil 500 g lax, ýsa eða annar
fiskur eða rækjur eftir smekk
2 dl kaffirjómi eða mjólk
1 msk. fersk steinselja til skrauts
Setjið vatnið og rjómaostinn í pott
og bræðið ostinn við vægan hita.
Bætið Hunt’s-sósunni/tómötunum og
kryddinu í pottinn ásamt kraftinum
og látið sjóða svolitla stund. Skerið
fiskinn í teninga og setjið þá út í sjóð-
andi súpuna. Takið pottinn strax af
hellunni. Bætið rækjunum út í, ef
þær eru notaðar, ásamt rjómanum/
mjólkinni og hitið súpuna aftur að
suðu. Skreytið með steinselju.
Berið súpuna fram sjóðandi heita
með grænmetissalati og hvítlauks-
brauði.
Kjúklingabaunaréttur
Handa fjórum til fimm
2 dl ósoðnar kjúklingabaunir eða 1
dós niðursoðnar kjúklingabaunir
1 stór laukur
4 hvítlauksrif
1 tsk. matarolía
1 dl rúsínur
1 dl sveskjur
1 dl þurrkaðar apríkósur
1 dós niðursoðnir tómatar (400 g)
1 msk. hnetusmjör (má sleppa)
1½ dl eplasafi
1 tsk. garam masala (má nota karrí
og kanil á hnífsoddi í staðinn)
½ tsk. salt (eða eftir smekk)
¼ tsk. pipar (eða eftir smekk)
1 dl kasjúhnetur
Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt
ef ekki eru notaðar niðursoðnar
baunir. Hellið vatninu af þeim og
sjóðið þær í nýju vatni í um það bil
eina klukkustund. Hellið soðinu.
Saxið laukinn og hvítlaukinn og
mýkið hvort tveggja í olíunni.
Brytjið ávextina og bætið þeim á
pönnuna ásamt tómötunum, hnetu-
smjörinu, eplasafanum og garam ma-
sala-kryddinu og látið allt malla við
lágan hita í um það bil 20 mínútur.
Bætið svolitlu vatni út í ef þörf kref-
ur. Saltið og piprið. Smakkið og
kryddið meira ef þurfa þykir. Bætið
baununum út í réttinn á pönnunni og
hitið vel. Léttristið hneturnar og
dreifið þeim yfir réttinn.
Berið fram á pönnunni með heima-
bökuðu brauði og fersku grænmet-
issalati.
Kjúklingabaunaréttur Bragðast vel með nýju brauði og salati. Tómatfiskisúpa Einföld, litsterk og fljótlöguð.
Matur fyrir önnum
kafnar fjölskyldur
Matreiðslukennarinn Stefanía Valdís Stefánsdóttir hefur notað vel flestar
uppskriftanna í kennslunni og fengið lof fyrir.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þjóðlegir réttir sem
og aðrir meira fram-
andi geta verið hollir
og góðir hversdags-
réttir.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Kanarí 23. eða 30. janúar. Njóttu lífsins á
þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað í 1 viku eða lengur. Bjóðum nú
takmarkaðan fjölda íbúða á mörgum af okkar vinsælustu gististöðum á frábæru
sértilboði, m.a. Los Tilos, Roque Nublo, Jardin Atlantico, Dorotea og Liberty.
Einnig okkar vinsælu smáhýsi Parque Sol og Dunas Esplendido. Góðar gisting-
ar og frábær staðsetning.
Ath. takmarkaður fjöldi íbúða á þessu frábæra tilboðsverði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og tvö börn í íbúð á Dorotea, Roque Nublo, Los Tilos, Jardin
Atlantico, Liberty, Parque Sol eða Dunas Esplendido í viku. Aukavika kr. 12.000.
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Roque Nublo, Los Tilos, Dorotea, Jardin Atlantico, Liberty,
Parque Sol eða Dunas Esplendido í viku. Aukavika kr. 12.000.
Kanaríveisla
Mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði!
23. og 30. janúar
frá kr. 34.990
Frábær sértilbo
ð á góðri gistin
gu!
M
bl
9
42
07
1