Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 25
- kemur þér við
Ráðherra til varnar
kristindómnum
Ísland í slöku meðallagi
í Pisa-könnun
Sextán milljarða of-
sköttun á bíleigendur
Eðlilegt líf
alnæmissmitraðra
Suðurlandsvegur í
útboð næsta haust
Hvar eru ódýrustu
tölvuleikirnir?
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
ATTRACTIVE RYKKÚSTUR
Afflurrkunarkústur sem afraf-
magnar. Langir flræ›ir sem ná í
afskekktustu afkima og skilja
ekkert eftir! Ótrúlega sni›ugt!
fiú flarft enga fötu, fyllir bara brúsann me›
vatni og hreinsiefni. Ótrúlega einfalt!
MOPPUSETT FLASH M/SPREYBRÚSA
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
20% afsláttur
fiRIFIN VERÐA
LEIKUR EINN
ULTRAMAX MOPPUSETT
Blaut- og flurrmoppur fyrir allar
ger›ir gólfa. Fatan vindur fyrir
flig. Hrein snilld!
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Kærleikskúla ársins 2007 kemur nú út í fimmta sinn, en
það hafa verið fremstu listamenn þjóðarinnar sem lagt
hafa Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið sitt með list
sinni. Að þessu sinni hannar listmálarinn Eggert Pét-
ursson listmuninn, sem kallast „Hringur“.
Um verk sitt segir Eggert: „Eftir vetur kemur vor,
síðan sumar, haust og aftur vetur. Af gróðrinum lesum
við framrás tímans. Sortulyngið ber blóm að vori. Blómið
verður að beri sem þroskast yfir sumartímann og um
haustið er berið orðið skærrautt. Lyngið dvelur undir
snjónum og birtist aftur vorgrænt og blómgast á ný.
Fræin skjóta rótum. Lífskeðjan er óslitinn hringur.“
Auðgar líf fatlaðra barna
Eva Þengilsdóttir, starfsmaður hjá Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra, er hugmyndasmiðurinn að baki
Kærleikskúlunni, sem hlotið hefur góðar viðtökur lands-
manna. Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar er að
auðga líf fatlaðra barna og ungmenna með því að efla
m.a. starfsemi sumar- og helgardvalarstaðarins Reykja-
dals í Mosfellsdal, sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur rekið frá árinu 1963. „Þarna fer fram frábært starf
og þarna viljum við gera sem flestum fötluðum ung-
mennum mögulegt að njóta ævintýra tilverunnar í hópi
með jafnöldum,“ segir Eva.
Verðug fyrirmynd á hverju ári
Kærleikskúla ársins 2007 verður kynnt í dag, sam-
tímis á Íslandi og í Berlín í Þýskalandi þar sem þær
verða einnig til sölu. Kúlurnar eru allar blásnar í Þýska-
landi og verða kynntar í móttöku í Felleshúsi í dag, sam-
eiginlegu húsi norrænu sendiráðanna í Berlín.
Sú hefð hefur skapast að afhenda fyrstu Kærleikskúlu
hvers árs verðugum fyrirmyndum og fer sú afhending
fram í Hafnarhúsinu í hádeginu í dag. Að þessu sinni er
hin verðuga fyrirmynd ung kona sem berst fyrir réttlæti
og samfélagi fyrir alla,“ að sögn Evu, en handhafar Kær-
leikskúlunnar hingað til eru forseti Íslands árið 2003,
Freyja Haraldsdóttir árið 2004, Bjarki Birgisson, Tómas
Birgir Magnússon og Guðbrandur Einarsson, sem
gengu hringinn í kringum landið undir kjörorðinu „Halt-
ur leiðir blindan“, árið 2005 og Ný-ung-hópurinn, sem
hefur með hugkvæmni og krafti barist fyrir breyttum
viðhorfum í samfélaginu.
Fyrsta Kærleikskúlan kom út árið 2003 og reið þá
Erró á vaðið með verkinu „2 málarar“. Ári síðar kom
„Auga“ Ólafs Elíassonar fram á sjónarsviðið. Árið 2005
hannaði Rúrí kærleikskúlu sem hún kallaði „Án upphafs
– án endis“ og í fyrra var verk Gabríelu Friðriksdóttur
„Salt jarðar“ í öndvegi.
Listamaðurinn Eggert Pétursson valdi sortulyng fyrir
kúlurnar en þær eru blásnar í Þýskalandi með aðferð
sem byggist á 400 ára glerblásturshefð.
Sortulyng kúrir í kúlunni
Listasafn Reykjavíkur, Kokka, Villeroy og Boch, Home
Art, Valrós á Akureyri og Norska húsið í Stykkishólmi
hafa tekið að sér að selja Kærleikskúluna án þóknunar.
Kúlan verður aðeins seld í fimmtán daga, frá 5.-19. des-
ember.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á
Sandi, yrkir:
Óhreinir skaflar og auðir rindar
okkurgul túnin og hvergi sól
en flórsykurstráðir fjallatindar.
Nú finnst mér að mættu koma jól.
Sigmundur Benediktsson bætir
við:
Fía lyftir málsins myndum,
mótar þær af næmri spekt
og flórsykur á fjallatindum
finnst mér alveg dásamlegt.
Hörður Björgvinsson yrkir:
Ég muna skal ætíð, ef að er spurt,
og um það vill kveða bögur:
mér þótti vera að mestu þurrt
milli 2 og 4.
Pétur Stefánsson yrkir einnig
lipurt:
Undir himinhvolfi bláu
hefur skeð um alla tíð;
Blossa upp af efni smáu
illar deilur, jafnvel stríð.
Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum
var á vinnustaðasamkomu á Ak-
ureyri sl. laugardag. Þar var upp-
lýst að ein af konum vinnustaðarins
væri að hætta, þar sem hún hefði
ráðist til starfa í forsætisráðuneyt-
inu. Hann orti:
Ýmsu hérna leggið lið
líklega flestum meir.
Sætustu stelpuna sendið þið
suður handa Geir.
VÍSNAHORNIÐ
Af fjöllum
og flórsykri
pebl@mbl.is
Fréttir á SMS