Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 33

Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 33
Þær hugsjónir sem amma Gúa barðist gegn hafa allar hrunið eins og spilaborg. En hún lét ekki staðar numið yfir sigrinum. Hún horfði til framtíðar og í síðustu ræðum sínum varaði hún við allri óráðsíu og glanna- skap og að frelsinu fylgdi ábyrgð. Við sem skemmtum okkur yfir tölunni sitjum nú og sjáum svo ljóst að amma Gúa hafði alltaf rétt fyrir sér. Blessuð sé minning hennar. Davíð Ólafsson. Guðrún Steinunn Gísladóttir, eða amma Gúa eins og hún var jafnan kölluð af barnabörnum sínum, hefur nú kvatt þessa jarðvist. Líkaminn var orðinn þreyttur enda búinn að lifa í nærri 92 ár, en andinn var hress að vanda. Það var með ólíkindum hvað mað- ur gat hlegið með og að henni ömmu en tilsvör hennar, hárbeittur og fág- aður húmor var hennar aðalsmerki. Amma var með eindæmum skoðana- föst um menn og málefni en þó fyrst og fremst um stjórnmálin, en eins og Davíð frændi minn sagði í afmælis- kveðju til hennar; „Amma Gúa var meiri sjálfstæðiskona en allur Sjálf- stæðisflokkurinn samanlagt.“ Lymskulegum áróðri beitti hún á okkur barnabörnin í þeim efnum og fór t.d. reglulega með okkur að stytt- unni af Ólafi Thors við Hringbrautina í Keflavík og sagði okkur frá afrekum þess mæta leiðtoga. Lengi vel héldu mörg okkar að þessi stytta hefði verið reist þarna til heiðurs ömmu. Ræðurnar hennar ömmu Gúu í veislum fjölskyldunnar voru fastur liður og þess ávallt beðið með eftir- væntingu að frú Guðrún Gísladóttir kvæði sér hljóðs. Auðvitað var styrk stjórn Sjálfstæðisflokksins ávallt kjarninn í þessum ræðum, þar sem hún laumaði síðan inn svolitlum hræðsluáróðri um áhrif vinstri stjórnar og varaði viðstadda við þeim vágesti og jesúsaði sig svo í lokin. Mér er minnisstæð ræðan hennar í brúðkaupi okkar Reynis en þá hélt ég auðvitað að amma ætlaði að mæra mig. En þar sem við höfðum látið gefa okkur saman í Dómkirkjunni, þá var hún fljót að tengja kirkjuna við þingsetningar og Sjálfstæðisflokkinn og minntist ekki eftir það einu orði á brúðina eða brúðgumann. En ekki einasta var amma pólitísk, heldur var henni mjög umhugað um menningar- og menntamál. Hún hvatti okkur barnabörnin við lær- dóminn, hlýddi okkur yfir skólakvæð- in og mannkynsöguna að ógleymdri dönskunni, sem hún var nokkuð sleip í. Það voru gæðastundir að koma til ömmu eftir skóla á Vatnsnesveginn, gæða sér þar á rúgbrauði með síld og eggi, liggja í sófanum undir teppi, horfa á fallegu málverkin hennar og spila rommý eða rússa. Þessar stund- ir munum við eiga í minningunni. Amma fylgdist vel með okkur krökkunum og hvatti okkur í öllu því sem við tókum okkur seinna fyrir hendur. Eitt sinn horfði amma á mig í beinni útsendingu að spila handbolta. Um jólin nefndi amma þetta við mig og hélt ég þá að hún ætlaði að hrósa mér fyrir öll mörkin sem ég skoraði. Hún nefndi það ekki á nafn, heldur hafði hún sérstaklega tekið eftir því hvað ég bakkaði elegant í vörn. Mér fannst þetta makalaust hrós – og þótti vænt um það. Undanfarin ár höfum við frænk- urnar, sem tengjumst saman í ættlið ömmu og systkina hennar, hist og strengt frekar okkar frænkubönd og ekki veitir af, í þeim hraða sem nú er við völd, að þekkja sinn uppruna og þá sem fetað hafa leiðina á undan okkur. Ég kveð þig amma mín með sömu kveðju og þú í einu bréfa þinna til mömmu þinnar Steinunnar sem við lásum upp í síðasta frænkuboði: Vertu margblessuð og sæl og guði á hendur falin, það mælir þitt elskandi barnabarn. Una Steinsdóttir. Þá er komið að kveðjustund. Minn- ingarnar streyma fram og hlýja okk- ur um hjartarætur. Amma Gúa var mikil sjálfstæðiskona, meiri en nokk- ur annar. Ákveðin, vel gefin, ráðagóð, húmorísk og pólitísk eru þau orð sem lýsa henni best. Ég man eftir mér í einni af fyrstu gönguferðum okkar ömmu að styttu Ólafs Thors þegar ég var aðeins fimm ára gömul. Tilgang- urinn var að fá frískt loft í lungun. Amma sagði mér allt um Ólaf Thors og hve mikill maður hann var og vel gefinn enda sjálfstæðismaður. Auð- vitað var hún að leggja inn en skemmst er frá því að segja að gönguferðirnar skiluðu tilætluðum árangri því þegar í kjörklefann er komið þá hef ég alltaf kosið rétt. Sím- tölin rétt fyrir kosningar frá ömmu þegar hún bauð í plokkfisk og heima- bakað vínarbrauð og rætt var um lífið og tilveruna, en auðvitað verið að at- huga hvort ég hefði nokkuð skipt um skoðun. Áfram streyma minningar um ömmu á Vatnsnesveginum að nudda kalda fætur mína og spila rommý af mikilli kappsemi. Amma að segja mér frá mikilmennum sögunn- ar, sem flest voru auðvitað sjálfstæð- ismenn. Vísur og ljóð voru hennar yndi og kenndi hún mér þónokkur. Eftir að ég eignaðist dæturnar þá fórum við reglulega í heimsókn til hennar, fyrst á Kirkjuveg 11 og svo á Hlévang. Í utanlandsferðum okkar mæðgna var alltaf sent póstkort til hennar ömmu og þegar heim var komið þá lásum við fyrir hana póst- kortin. Húmor ömmu var best lýst þegar ég var að lesa einu sinni fyrir hana eitt póstkortið og las upp heim- ilisfangið, þá sagði hún; Hlévangur, það er ekki heimilisfang! Gönguferðir á Hlévangi með ömmu voru mjög spennandi og einnig æfðu stelpurnar sig sérstaklega til að geta farið með vísurnar og ljóðin sem þær læra í leikskólanum fyrir ömmu Gúu. Oft sungu þær einnig fyrir hana og stundum með henni. Nafnaleikurinn var leikur sem þær áttu saman og stelpunum fannst mjög skemmtileg- ur. Núna sakna þær ömmu Gúu en skilja ekki alveg hvar hún er eða af hverju hún þurfti að kveðja. Við kveðjum hana með bæninni sem við förum með á kvöldin, Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þínar ömmustelpur, Guðrún Þorsteinsdóttir, Helga Guðrún og Sigrún Björk. Guðrún Gísladóttir, langamma mín, hafði sterkar skoðanir og dró aldrei fjöður yfir þær. Þegar hún tók til máls hlustaði hvert eyra. Hún var þrátt fyrir það ekki allra, og mig grunar að hún hafi heldur aldrei kært sig um það. Á annan dag jóla, fyrir réttum ára- tug, kom hún með Örra afa í boð til okkar. Hún var ekki fyrir afskipta- semi, eða að hafa vit fyrir öðrum. Þrátt fyrir það tilkynnti hún okkur Rúnari bróður þetta kvöld að hún ætlaði að leggja okkur aðeins eina lífsreglu. „Standið alltaf fast á ykkar, hafið bein í nefinu og látið álit ann- arra lönd og leið,“ sagði hún og bætti svo snarlega við: „Að öðru leyti skipti ég mér ekkert af því hvað þið gerið.“ Allar götur síðan hafa þessi orð reynst vel þegar á hefur þurft að halda. Ég var á þessum tíma kærulaus menntaskólastrákur norður á Akur- eyri, en fann strax að við áttum skap saman. Ég sló því stundum á þráðinn og við spjölluðum þar til hún greip andann á lofti, og býsnaðist yfir þeim símakostnaði sem ég þyrfti að bera. Þeim aurum var vel varið. Amma átti hnyttin tilsvör og á köfl- um mergjaðar frásagnir. Henni var til dæmis meinilla við ketti. Við Sirrý máttum í heimsókn okkar á Kirkju- veginn taka á öllu okkar þegar hún sagði af ketti í hverfinu sem „sat“ fyr- ir henni. Við reyndum að draga úr, en gömlu varð ekki haggað. Kötturinn elti hana víst í Sparisjóðinn sem var skammt frá. Kötturinn hefur, sam- kvæmt þessu, tæpast verið frár á fæti því sjálf fór hún yfir á göngugrind. Engu að síður horfði hún grafalvar- leg í eldrauð andlit okkar Sirrýjar og fullyrti: „Og ég var meira að segja lengi inni í bankanum, en þegar ég kom út þá sat hann enn fyrir mér. Reigði sig og teygði … og með þessar líka glæpaglyrnur!“ Nær aldrei var Guðrún Gísladóttir ósammála ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins. En í fyrrnefndu jólaboði sagðist hún ekki skilja þá fásinnu rík- isstjórnarinnar að leggja Hvalfjarð- argöng. Afi maldaði í móinn og færði rök fyrir því hversu mikil samgöngu- bót þetta væri. ,,Mér er alveg sama, Örn. Ég hef megnustu skömm á því að fólk sé að grafa sig ofan í jörðina eins og moldvörpur!“ Eitt sinn bauð hún mér í mat og áttum við notalega kvöldstund. Í betri stofunni sagði hún mér frá ýmsu sem á daga hennar hafði drifið og um uppruna okkar. Um lífið á Sól- bakka og Knudsen-ættina. Hún tók til gamlar lesbækur Morgunblaðsins og las upp úr þeim sín eftirlætisljóð. Þar sem ég hafði búið á Akureyri sagði hún mér frá skondnum út- varpsþætti sem, fyrir löngu, var spil- aður um bæjarbraginn þar. Glampi kom í augun og hún sagði mér hvað þau Erling, langafi minn, hefðu hleg- ið þegar þau hlustuðu saman á hann. „Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast það er lífsins saga.“ Við þessi kaflaskipti finn ég fyrir djúpu þakklæti. Fyrir samveru- stundirnar með kjarnakonunni Guð- rúnu Gísladóttur. Það voru góðar stundir. Guðfinnur Sigurvinsson. Guðrún var Suðurnesjamaður og vel sátt við það. Hún ólst upp í Garð- inum í faðmi góðrar og samstæðrar fjölskyldu, bjó fyrst í Garðinum og síðar í Keflavík með Erlingi manni sínum og börnum og undi hag sínum vel. Hún hélt upp á 90 ára afmæli sitt með fjölskyldu og vinum í Leirunni á sl. ári. Þeir sem fæddust á fyrstu ára- tugum síðustu aldar lifðu tímana tvenna. Það er í lagi fyrir unga fólkið að hugleiða að ýmis lífsgæði sem nú- tíminn telur sig ekki geta verið án voru þá ekki til staðar. Þó lifðu menn glaðir við sitt eins og nú. Fyrstu bíl- arnir sáust suðurfrá um það bil sem Guðrún fór að muna eftir sér, hún var um þrítugt er rafmagnið kom frá Sogsvirkjun suður og fjölmargt fleira í framförum má nefna. Hús voru hit- uð með kolum og þvottur þveginn án véla. Eitt er svo umgjörðin og annað er maðurinn sjálfur. Guðrún var athygl- isverð manneskja sem gaman var að hitta og margt mátti af læra. Hún var greind, áhugasöm um þjóðmál, vel lesin og það rættist vel úr allri um- ræðu þar sem hún kom nærri. Hún rækti fjölskyldu sína og stórfjöl- skyldu vel, hafði ávallt mikið sam- band við sitt fólk og vini. Guðrún og faðir okkar höfðu til dæmis nær dag- legt samband með því að hittast eða um síma meðan bæði lifðu. Guðrún var pólitísk, hafði skoðanir og talaði fyrir þeim. Það var gert á þann skemmtilega hátt sem hún beitti í orðræðu, að þræða hárfínt milli djúprar alvöru og gamansemi. Þess má minnast að um langt skeið var sá siður uppi að Guðrún sagði nokkur vel valin orð á samkomum stórfjöl- skyldunnar. Þá gilti einu hvort barn var fermt, um var að ræða afmæli eða almanakshátíð í bæ. Hún gaf góð ráð um lífið og svo pólitíkina án þess að henni dytti í hug að vera að leggja nokkrum manni lífsreglur eins og hún sagði sjálf. Það voru skemmtilegar og eftir- minnilegar stundir. Guðrún missti mann sinn Erling er þau voru á liðlega miðjum aldri. Börnin þeirra sex voru þeirra stolt, öflugt mannkostafólk, og voru þau foreldrum sínum góð eins og Guðrún og Erling voru þeim. Sama gilti um barnabörnin. Heiðurskona er fallin frá í góðri elli. Hennar er saknað og minning um eftirminnilegan samferðamann lifir með okkur sem áttum samleið með Guðrúnu S. Gísladóttur. Megi hún í friði fara og henni gott mæta á nýjum lendum. Hörður Gíslason.  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu S. Gísladóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 33 ✝ Ástkær sambýlismaður minn, ÞORSTEINN SIGURÐSSON símvirki, Hringbraut 71, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 28. nóvember. Ragna Jóhannsdóttir. ✝ Elskuleg systir mín, GUÐRÍÐUR JÓHANNA ÞORLEIFSDÓTTIR, Álfaskeiði 36, Hafnarfirði, lést 10. nóvember s.l. að Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum innilega samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks D3 á Sólvangi fyrir kærleiksríka umönnun. F.h. aðstandenda, Sigríður Þorleifsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og dóttir, ÞURÍÐUR DÚSSÝ HELGADÓTTIR, Hólagötu 44, Vestmannaeyjum, lést aðfaranótt þriðjudagsins 20. nóvember. Útförin fer fram frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 1. desember kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á kven- félagið Líkn. Valdimar Þór Gíslason, Ásgerður Jóhannesdóttir, Valdimar Karl Sigurðsson, Kristín Sigurlásdóttir og Þórhallur Þórarinsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, NÍELS RAFN NÍELSSON bifvélavirkjameistari, Funalind 15, Kópavogi, lést 27. nóvember á líknardeild LSH í Kópavogi. Guðbjörg E. Sigurjónsdóttir, Ómar Níelsson, Anna Björg Níelsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Níels Birgir Níelsson, Svanborg Gísladóttir, Arnar Bjarki, Glódís Rún og Védís Huld. ✝ Okkar ástkæri sonur, bróðir og barnabarn, JÓHANN VALDIMAR KJARTANSSON, Grundargötu 64, Grundarfirði, lést á blóðlækningadeild Landspítala við Hringbraut þriðjudaginn 27. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Kjartan Jakob Valdimarsson, Auður Anna Gunnlaugsdóttir, Valgeir Hólm Kjartansson, Anna Júnía Kjartansdóttir, Ágústa Bjarney Kjartansdóttir, Valdimar Kjartansson, Kristín Jakobsdóttir, Gunnlaugur Konráðsson, Valborg María Stefánsdóttir. ✝ Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Oddsflöt í Grunnavík, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Kristbjörn H. Eydal, Friðþór Kr. Eydal, Elín Hrefna Kristjánsdóttir, Guðmundur Kr. Eydal, Sigríður Hróðmarsdóttir, Halldór Páll Kr. Eydal, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.