Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 35

Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 35 ur þú varst alltaf að spila við mig þegar ég kom til ykkar ömmu á Furugrundina, við gátum setið í marga tíma og spilað ólsen ólsen eða veiðimann. Og afi, það sem þú gast alltaf REYNT að svindla, en þér fannst það bara svo gaman því ég varð alltaf svo ótrúlega reið … og amma kom alltaf til að róa mig niður og segja þér að hætta að stríða mér svona! Svo líka alltaf þegar ég var að fara norður með mömmu, pabba og Jóni Þór þá gafstu mér alltaf súrar lappir í nesti, bróður mínum til mik- ils ama. Súrar lappir voru bara eitt það besta sé ég vissi og þér fannst það svo frábært að ég væri svona vitlaus í þær. Gaman er að muna öll ættarmótin með stórfjölskyldum ykkar ömmu, einnig allar veiðiferðirnar með þér þó þú værir nú stundum svolítið spældur ef ég veiddi meira en þú, en allt var það nú í gamni. Öll ferðalögin sem við fórum í á sumrin þegar þið amma komuð norð- ur til okkar eru ógleymanleg. Elsku afi minn, takk fyrir að vera góður og hjartahlýr afi. Elsku amma, guð styrki þig í þinni sorg. Kveðja, Málmfríður í Brønderslev. Elsku afi. Mikið á ég eftir að sakna þín. Ég á aldrei eftir að gleyma því símtali þegar mamma og pabbi hringdu í mig og sögðu mér að þú værir farinn. Ég hef verið að rifja það upp síðustu daga hvað það var oft gott að vera hjá þér og ömmu á Skaganum þegar ég var barn. Við fengum að leika okkur að vild úti um allt hús. Ég man eftir bílasafninu sem var í neðstu skúffunni í komm- óðunni í þvottahúsinu á Furugrund, ég man eftir öllum veiðistöngunum og dótinu sem þú áttir í bílskúrnum og hvað það var skemmtilegt að fara út í skúr með þér og berja harðfisk til að naga. Þetta er bara brot af þeim minningum sem ég á um þig, og allar þær sem ég á eru góðar. Ég minnist þín sem besta afa sem hægt var að hugsa sér og ég veit að ég er ekki einn um það. Hvíldu í friði elsku afi, við sjáumst svo aftur seinna meir. Ég veit að þú lítur til með mér og þú verður í bænum mín- um áfram um alla framtíð. Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála og auða, er stari eg héðan af, er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. En fyrir handan hafið þar hillir undir land, í gullnum geislum vafið það girðir skýjaband. Þar gróa í grænum hlíðum með gullslit blómin smá, í skógarbeltum blíðum í blómsturlundum fríðum má alls kyns aldin sjá. Þar sé ég sólu fegri á súlum standa höll í dýrð svo dásamlegri, hún drifin gulli er öll. Þar sé ég fylking fríða og fagurbúna sveit um ljóssins sali líða með ljóssins ásýnd blíða í unaðs aldinreit. Ég hljóður eftir hlusta, ég heyri klukkna hljóm. Hve guðleg guðsþjónusta er Guðs í helgidóm! Ég heyri unaðsóma og engla skæra raust, um Drottins dýrðarljóma, um Drottins verk þeir róma um eilífð endalaust. Er þetta hverful hilling og hugarburður manns? Nei, það er fögur fylling á fyrirheitum hans, er sýnir oss í anda Guðs eilíft hjálparráð, og stríðsmenn Guðs þar standa við stól hins allvaldanda. Þar allt er eilíf náð. (Valdimar Briem.) Þakka þér fyrir allt sem þú gafst af þér og takk fyrir að hafa verið af- inn minn. Kveðja, þinn Jón Þór Elsku afi, við kveðjum þig í dag með söknuði. Alltaf var gott að koma á Furu- grundina til þín og ömmu, þá sér- staklega í bílskúrinn þar sem við gátum alltaf treyst á að finna þig dytta að einhverju eða þurrka óbar- inn harðfisk sem við rifumst um. Við minnumst þess þegar þú varst í sigl- ingum og komst alltaf með góðgæti handa okkur frá útlöndum. Þú varst passasamur með þitt og hugsaðir vel um verkfærin þín, við munum eftir að hafa beðið þig um að lána okkur sláttuvélina en þú bentir okkur pent á áhaldaleigu BYKO og glottir. Þú hafðir alltaf húmor fyrir öllu. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku afi, við hugsum hlýtt til þín og við skulum sjá til þess að allar buxurnar þínar verði klipptar. Steindóra, Íris Dögg, Helgi Dan, Helena Rut og Marella Steinsbörn. uninn varst þú orðin hitalaus. „Ég sá mann koma að rúmi Ragnheiðar og beygja sig yfir hana,“ sagði Gunnþóra heitin systir þín og lýsti manninum! Við höfum ekki vísinda- legar sannanir fyrir öllu í þessum heimi. Síðustu dagana talaðir þú eins og þú værir komin „heim í Ás“. Friður var yfir þér, þú varst tilbúin að kveðja. Elsku amma! Takk fyrir all- ar góðar stundir sem við áttum saman, megir þú hvíla í friði. Þórdís Kjartansdóttir. Elsku amma, nú koma ekki fleiri jóla- eða afmæliskort frá þér. Þú mundir eftir öllum afmælisdögum. Þrátt fyrir að við systurnar værum búsettar í mismunandi löndum frá einu ári til annars fundu bréfin þín okkur alltaf. Á unglingsaldri fékk ég að dvelja hjá þér sumarlangt og ég man hvað við gátum hlegið endalaust að bröndurum okkar. Skemmtilegast var að fara með þér á markað með fornmuni þar sem þú virtist þekkja alla. Heimili ykkar var heill æv- intýraheimur með öllum höggmynd- unum hans afa Dicks. Enda kynnt- ust þið þegar hann kom Íslands til að gera íslenskt vaxmyndasafn, sem nú er varðveitt á Þjóðminjasafninu. Óskar Halldórsson útgerðarmaður og „síldarkóngur“ varð nefnilega ör- lagavaldur í lífi þínu. Hann lét efna til samkeppni á meðal efnilegra myndhöggvara í London. Afi Dick sigraði og dvaldist í Reykjavík í nokkra mánuði til að gera brjóst- myndir þekktra Íslendinga. Þar sá hann þig, féll fyrir töfrum þínum og málaði þig og mótaði í ótal svip- brigðum. Þú kryddaðir alltaf lífið með skemmtilegum uppátækjum. Þegar Margaret Thatcher varð forsætis- ráðherra Bretlands sast þú heima í stofu og skálaðir við Járnfrúna í sjónvarpinu. Eitt af þínum uppátækjum var að reyna byrja að reykja. Þú keyptir þér grænar More sígarettur í frí- höfninni og sast í stofunni þar sem við systkinin fylgdumst með tilraun- inni. Þú sagðir að fólk sem hætti að reykja fitnaði, en þú ætlaðir að byrja að reykja og grennast. Eftir eina græna More hættir þú þessari vitleysu og hlóst mikið af öllu sam- an. Eitt sumarið sýndir þú okkur myndir frá dýragarði þar sem þú starfaðir. Við systurnar misskildum þetta eitthvað og vorum alveg viss- ar um að þú værir eigandi dýra- garðsins, hjóluðum strax um Foss- voginn og kölluðum: „Amma okkar á dýragarð í Englandi,“ svo berg- málaði um hverfið. Ég held að þessi misskilningur hafi varað í nokkur ár. Þegar sannleikurinn kom loks í ljós var mikil sorg í vinahópnum, allir ætluðu að heimsækja dýra- garðinn hjá ömmu Bjargar! Ný- komin með bílpróf fékk ég að ná í þig til Gunnþóru frænku. Á leið nið- ur eina brekkuna bað ég þig um að halda þér fast, því að bremsurnar væru bilaðar. Viðbrögð þín létu ekki á sér standa. Þú kallaðir: „Blikkljós á, ýttu á flautuna, reynum hand- bremsuhemlun!“ Þegar hemlað var með hefðbundnum hætti ætluðum við aldrei að hætta að hlæja. Þrátt fyrir gleðina sem oftast geislaði í kringum þig, vissum við um heimþrána og sorgina sem bjó í brjósti þínu, því að tvö elstu börnin þín urðu eftir á Íslandi þegar þú fluttir til Englands. Þín hinsta ósk var að fjölskyldurnar þínar tvær á Íslandi og Englandi héldu góðum kynnum. Við skulum gera hvað við getum til að svo verði. Ég kveð þig með miklum söknuði, þú verður áfram fyrirmynd og sýnir okkur hvernig á að vera sterk og ákveðin kona er lifir full bjartsýni og gleði. Við systkinin fengum í vöggugjöf frá þér aðdáun á fjöllum og villtri náttúru og göngum saman á fjöll með börnum og mökum. Næsta fjallaferð okkar systkinanna verður helguð þér. Björg Kjartansdóttir. Elsku amma mín, mikið er skrítið til þess að hugsa að ég fái ekki frá þér jólakort og afmæliskort eins og alltaf. Hvar svo sem maður bjó í heiminum, jafnvel þótt allir aðrir myndu kannski ekki eftir afmælinu mínu á réttum degi, þá var hægt að treysta á að fá fallegt kort frá þér. Mikið finnst mér ég hafa verið heppin að koma í heimsókn til þín nokkrum dögum áður en þú lagðist inn á spítala. Ég var þá að koma af hæsta tindi Afríku, en þú hafðir ekki komist út úr húsi í heilan mán- uð. Ég veit samt ekki hvor var hraustlegri á að líta. Það skein af þér lífsgleðin, glensið og grínið. Eins og alltaf vildir þú endilega bjóða mér veitingar og snúast í endalausa hringi til að ég myndi hafa það sem allra best. Rétta postulínið varð að vera á nýþvegn- um, pressuðum dúk. Þú gerðir grín að fótum þínum, sem voru orðnir of bólgnir til að fara í skó, samt náðir þú alein að halda þriggja hæða húsi hreinu og fínu, svo að allir sem vildu gætu komið í heimsókn. Þú sagðist hafa setið síðustu ár og hugsað, og nú værir þú komin með svör á lífsgátunni allri. Ég held líka að það hafi verið rétt hjá þér, svo mikil gleði og friður var yfir þér. Við töluðum saman um náttúr- una, fólk og listir, en það voru þeir hlutir sem þú hafðir mest gaman af. Þú sagðir mér sögur af því hvernig þið systurnar hefðuð farið upp í fjöllin á Fáskrúðsfirði með nesti, og skellihlóst að útskýringum mínum á hagnýtum atriðum margra daga fjallaferða. Í augum þínum sást að Fáskrúðsfjarðarfjöllin voru þér jafnljóslifandi og þú hefðir verið þar í gær. Þú sagðir mér frá því hvernig afi Dick hefði heillað þig upp úr skón- um og dregið þig út til Englands, bara til að vera í eitt til tvö ár, árin urðu samt aðeins fleiri! Það hlýtur að hafa verið ólýsanlega erfitt fyrir þig að flytja frá Fáskrúðsfirði til London með skipi fyrir rúmum 50 árum, jafnmikið náttúrubarn og þú varst. En þú náðir alltaf að vera áfram mesti Íslendingur sem ég þekkti. Aldrei heyrði maður minnsta hreim í röddinni og ég held að fáir jafn- aldrar þínir hafi kunnað jafnmörg ný íslensk orð, hvort sem það var örbylgjuofn, farsími eða þota. Fannst reyndar alltaf jafnskemmti- legt að heyra þig frekar sletta á dönsku en ensku, en það var víst lenska fyrir austan þegar þú varst að alast upp. Elsku amma mín, ég kveð þig með söknuði. Þú átt eftir að vera mér mikil fyrirmynd, hvort sem það er í drifkrafti, lífsgleði eða sjálf- stæði. Auður Elfa Kjartansdóttir. Hver fengi það talið, mín ættjörð, sem átt Til yndis og fagnaðar muna, Það allt, sem að veldur, að þreyi ég þrátt Og þreytist fjarvistum una? Svo þreyðu þig feðurnir fyr á öld, Þín faðmlög reyndust þeim eigi köld. Hvað varstu, Ísland? Þú verður enn, Að vitja þín aftur af löngun ég brenn. (Steingrímur Thorsteinsson.) Það getur verið erfitt að vera langt frá sinni ættjörð, langt frá fjölskyldu, vinum og sínum heima- högum. Amma mín þjáðist alltaf af heimþrá. Á tímabili þjáðist hún svo að hún bankaði upp á hjá lækni til þess að spyrja hvort til væri meðal við heimþrá. En eins og með marga sjúkdóma þá verður maður að læra að lifa með honum – og það gerði amma mín. Hún var alltaf með bros á vör og umkringd fólki sem þótti vænt um hana. Það er sjaldgæft að sjá fólk sem geislaði jafnmikið af lífsgleði eins og hún gerði. Amma sagði oft að eitt af því sem henni þætti skipta mestu máli væri að vera sjálfstæður. Hún bjó ein í gamla þriggja hæða húsinu sínu fram undir það síðasta. Sat í stólnum inni í stofu með teppi yfir fótunum að sauma eða undirbúa fyrir næsta antikmarkað. Sjálfstæður Íslendingur í útlönd- um! Með virðingu, amma mín. Ragna Vala Kjart- ansdóttir, búsett á Ítalíu. Í dag kveðjum við hér á Íslandi og í Englandi móðursystur okkar Ragnheiði Björgvinsdóttur Lee. Ragnheiður var merkileg kona sem lifði góðu lífi, en oft við erfiðar aðstæður miðað við þær sem okkar kynslóð þekkir. Ragnheiður fæddist árið 1921, ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá for- eldrum sínum Oddnýju Sveinsdótt- ur og Björgvini Þorsteinssyni ásamt þremur systrum, þeim Gunnþóru, Valborgu og Ásu. Þetta var fjöl- skyldan í Ási. Ragnheiður fór í Verslunarskól- ann, giftist ung og eignaðist dótt- urina Oddnýju, en hjónabandið ent- ist ekki. Annar maður kom fljótlega inn í líf Ragnheiðar og eignuðust þau drenginn Björgvin. Það var ekki langvinnt samband, Ragnheið- ur var sjálfstæð kona sem tók eigin ákvarðanir og varð því einstæð móðir tveggja ungra barna. Árið 1947 kynnist hún Richard (Dick), enskum listamanni sem vann að verkefni hér á landi. Ragn- heiður og Dick giftust, settust að í Englandi og lifðu þar allan sinn bú- skap. Á þeim tíma sem Ragnheiður flyst til Englands er Evrópa í sár- um eftir stríðið, erfitt var að fá hús- næði og atvinnu. Það þótti því best fyrir tvö ung börn að verða eftir hjá ömmu sinni og afa á Fáskrúðsfirði á meðan móðir þeirra flutti með eig- inmanni sínum til Englands til að kanna búsetumöguleika. Árin liðu, Ragnheiður og Dick eignuðust fjóra syni og eru þrír þeirra á lífi, Róbert Óskar, Raymond Ásgeir og Róland Baldur. En börnin tvö á Íslandi ól- ust upp á Fáskrúðsfirði hjá for- eldrum Ragnheiðar. Á uppvaxtarár- um þeirra voru samgöngur á milli landa með skipi, flugsamgöngur voru ekki ódýr kostur í upphafi flugsins og meira að segja síma- samband var ekki almennt notað nema í þriggja mínútna viðtalsbili. Ragnheiður sá við þessu öllu, hún skrifaði bréf og hélt með þeim hætti sambandi við sitt fólk á Íslandi. Hún mundi eftir afmælum allra ættingja sinna og sendi þeim bréf eða póstkort. Hún saknaði alla tíð fólksins síns á Íslandi og fjallanna á Fáskrúðsfirði, hún var alltaf Íslend- ingur í Englandi. Þegar hún fór svo að koma til Íslands síðar á ævinni var ekki hægt að merkja að hún hefði verið búsett í Englandi í 60 ár, hún talaði lýtalausa kjarnyrta ís- lensku og ekki vottaði fyrir enskum hreim. Í Englandi var hún alltaf tilbúin að halda kynningar og fyr- irlestra um Ísland, klædd í íslensk- an búning. Ragnheiður var listræn og margt til lista lagt og stofnaði hún verslun og fyrirtæki sem fólst í að finna fal- lega hluti á uppboðum, kaupa og selja antik- og listmuni. Ragnheiður var falleg kona sem hafði áhuga á viðmælendum sínum og náði því góða fram í fólki. Börnin hennar eru dæmi um það. Vertu sæl, frænka, og þakka þér fyrir þau áhrif sem þú hefur haft á líf okkar. Svava Oddný, Björg og Ásdís Ásgeirsdætur. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS EMILÍA ÞORVALDSDÓTTIR frá Svalvogum, síðast til heimilis að Dalbraut 20, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala laugardaginn 24. nóvember, verður jarðsett í Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 4. desember kl. 15.00. Þorlákur Snæbjörnsson, Gunnlaugur Þorláksson, Þórdís Jeramíasdóttir, Ingibjörg Þorláksdóttir, Hólmgeir Pálmarsson, Matthildur Þorláksdóttir, Hilmar Viktorsson, Sólborg Þorláksdóttir, Reynir Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar konu minnar, dóttur, tengdadóttur, systur og mágkonu, HERDÍSAR HAUKSDÓTTUR leikskólakennara, Laugartúni 6b, Svalbarðseyri. Guð blessi ykkur öll. Jakob Björnsson, Haukur Óli Þorbjörnsson, Sigrún Ragnarsdóttir, Björn Ingason, Kristín Helga Harðardóttir, fjölskyldur og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.