Morgunblaðið - 30.11.2007, Síða 39
LISTMÁLARINN Kristján Davíðsson var önnum kafinn
við að árita bók um eigin list í Listasafni Íslands í gær.
Bókin er gefin út í tengslum við sýningu á verkum Krist-
jáns sem stendur nú yfir í safninu. Eins og sjá má fór vel á
með Kristjáni og ónefndum aðdáanda hans í gær.
Áritað fyrir aðdáanda
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 39
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, leikfimi kl. 8.30, bað
kl. 10-16, bingó kl. 14, söngstund við píanóið kl. 15.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna,
morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerðir, kertaskreyting, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handm. opin kl. 9-16, leiðb. Hall-
dóra annan hvern föstud. frá kl. 13 til 16.
Ferðaklúbbur eldri borgara | Ljósaferð um Reykjanesbæ, Sand-
gerði og Garð 17. desember. Veitingar í Byggðasafninu Garði.
Uppl. og skráning í síma 892 3011.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Aðventuhátíð kl. 20. Hugvekju
flytur Karl Sigurbjörnsson biskup. Kór FEB syngur jólasálma,
fjöldasöngur, leikþáttur, getraun o.fl., kaffiveitingar.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, málm- og silfursmíði
kl. 9.30, jóga kl. 10.50, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist kl.
20.30. Laufabrauðsdagur í Gjábakka 1. des. frá kl. 13. Kórar
syngja inn aðventuna. Skólahljómsveitin kl. 16. Handverksmark-
aður frá kl. 13. Veitingar.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.15,
ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, matur kl. 11.40, bingó kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikf. kl. 12, bíódagur
kirkjunnar kl. 14, miðar á jólagleði FEBG seldir í Jónshúsi kl. 10-16.
Furugerði 1, félagsstarf | Smíðar og útskurður kl. 9. Aðalheiður
og Anna Sigga koma í heimsókn kl. 14.15 og syngja fram að kaffi.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, hádegismatur kl. 12, bingó kl.
14, kaffi kl. 15.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 13, boccia
kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Frjáls aðgangur að op-
inni vinnustofu kl. 9-12, postulínsmálning. Böðun fyrir hádegi. Há-
degisverður kl. 11.30. Hársnyrting.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi, blaðaklúbbur kl. 10,
létt leikfimi kl. 11, opið hús, spilað kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin og vinnust. í handm. kl. 9-16,
myndlist m. Hafdísi kl. 9-12, leikfimi kl. 13.
Sjálfsbjörg | Árleg kaffisala og happadrætti Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu verður í félagsheimilinu, Hátúni 12, 1. desember
kl. 13. Í vinning er m.a. sjónvarpsflatskjár, og kvöldverður, gisting
og morgunverður fyrir tvo.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9.15, handavinna
kl. 10.15, spænska – byrjendur kl. 11.45, hádegisverður kl. 13.30,
sungið við flygilinn kl. 14.30, kaffiveitingar kl. 14.30, dansað í að-
alsal. Handverkssala kl. 13-16. Ljóðaupplestur kl. 15, tileinkaður
Jónasi Hallgrímssyni vegna 200 ára fæðingarafmælis. Klúbb-
urinn Skapandi skrif í Kópavogi sér um upplesturinn. Þorleifur
Finnsson harmonikkuleikari sér um söngstundina.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leirmótun kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30. Uppl. í síma
411 9450.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með boccia og bænastund á
Dalbraut 27 kl. 10.15. Sóknarprestur Áskirkju verður með guðs-
þjónustu á Dalbraut 27 kl. 14. Furugerðiskórinn leiðir söng undir
stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur sem jafnframt leikur á orgel.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara kl. 11-14. Leikfimi, súpa,
kaffi og spjall. Jólafundur kvenfélags Hallgrímskirkju verður 1.
des. kl. 14, í Suðursal. Gestur fundarins, Aðalheiður Karlsdóttir,
sýnir handunnin sjöl og segir frá starfsemi Kasmir krafts. Sr.
Birgir Ásgeirsson flytur hugvekju.
KFUM og KFUK | Holtavegi 28. Basar KFUK verður 1. desember
kl. 14. Úrval muna, heimabakaðar kökur og lukkupakkar fyrir
börn. Veitingar. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs KFUM og
KFUK á Íslandi.
Gullbrúðkaup | 50 ára brúðkaupsafmæli eiga í dag, 30. nóvember, hjónin
Gyða Guðjónsdóttir og Magnús St. Fjeldsted. Þau verða stödd erlendis af
því tilefni.
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.)
Tónlist
Barinn | Kristín Bergsdóttir og
hljómsveit flytja frumsamda tón-
list. Tónleikarnir hefjast kl. 22.
Fríkirkjan í Reykjavík | Björg
Þórhallsdóttir sópransöngkona
stendur fyrir útgáfutónleikum í
tilefni af nýútkominni sólóplötu
sinni, Gullperlum, 1. des. kl. 17,
ásamt 12 manna hljómsveit og
Braga Bergþórssyni tenór.
Organ | DJ Cheeba er plötusnúð-
ur kvöldsins. Plötusnúðatvíeykið
TaTaTa.
Myndlist
Hallgrímskirkja | Sýning Arn-
gunnar Ýrar, Land ég sá, verður
opnuð 1. desember kl. 14. Verkin
eru öll unnin á árinu 2007 með
olíu á ál. Berglind Björgúlfsdóttir
syngur forna aðventusöngva.
Sýningin markar upphaf 26.
starfsárs Listvinafélags Hall-
grímskirkju. listvinafelag.is.
Kaffi Milano | Faxafeni 11. Erla
Magna opnar málverkasýningu 2.
desember. Um er að ræða olíu-
málverk og nokkrar akrýlmyndir
málaðar á þessu ári. Erla hefur
stundað nám í myndlistarskóla
Reykjavikur, í Flórens á Ítalíu og í
Salzburg. Myndirnar eru til sölu.
Listasalur Mosfellsbæjar | Nem-
endur í myndlistarvali Lágafells-
kóla sýna. Í þessu verkefni voru
nemendur látnir kynna sér sögu
portrettlistaverka.
Fyrirlestrar og fundir
Aflagrandi 40 | Sesselja Ás-
geirsdóttir kynnir störf hjá
Reykjavíkurborg fyrir 60 ára og
eldri kl. 15.
Þjóðminjasafnið | Málþing um
meðferð við afleiðingum áfalla –
16 daga átak. Málþingið hefst kl.
14. Það er haldið á vegum Félags
um hugræna atferlismeðferð og
fjallar um meðferð við afleið-
ingum áfalla. Það er hugsað sem
vettvangur fyrir faglega umræðu
um meðferð og hvernig hægt er
að takast á við afleiðingar.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-
samtakanna er 895 1050.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
80ára afmæli. 3. desem-ber næstkomandi
verður Þórdís Frímannsdóttir
(Dísa) áttræð. Af því tilefni
tekur hún á móti gestum í
Þingborg sunnudaginn 2. des-
ember frá kl. 14 til 18. Allar
gjafir eru afþakkaðar en bent
er á söfnunarbauk til styrktar
Krabbameinsfélagi Árnes-
sýslu sem verður á staðnum.
Vonandi sjá sem flestir sér
fært að mæta.
50ára afmæli. Í dag, 30.nóvember, verður
Kristján Ingi Jónsson fimm-
tugur. Hann heldur upp á af-
mælið í kvöld í Hlégarði í Mos-
fellssveit. Húsið verður opnað
kl. 20, skemmtiatriði verða frá
kl. 21 og boðið verður upp á
mat kl. 23. Dansað verður
fram eftir nóttu með DJ
Sheeba frá Bristol í Englandi.
Gjafir eru afþakkaðar en söfn-
unarbaukur til styrkar Um-
hyggju verður á staðnum.
dagbók
Í dag er föstudagur 30. nóvember, 334. dagur ársins 2007
Landsskrifstofa Mennta-áætlunar Evrópusambands-ins efnir til ráðstefnu í húsiKHÍ næstkomandi þriðjudag
undir yfirskriftinni Áhrif og ávinningur
af evrópsku menntasamstarfi.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson er einn
umsjónarmanna ráðstefnunnar:
„Menntaáætlanir Evrópusambandsins,
Leonardó- og Sókrates-áætlanirnar,
voru sameinaðar í upphafi þessa árs og
taka nú til allra skólastiga frá grunn-
skóla upp í háskóla, auk starfsmennt-
unar og fullorðinsfræðslu. Við sjáum
sömu nálgun hjá íslenskum stjórnvöld-
um núna með því að leggja til heild-
stæða lagasetningu fyrir mörg skólastig
í einu. Þá kom nýverið út skýrsla
menntamálaráðuneytisins um fram-
kvæmd áætlananna á tímabilinu 2000-
2006 og notum við þetta tækifæri til að
líta um öxl og skoða það sem áunnist
hefur, lítum um leið til framtíðar.“
„Mjög góð þátttaka hefur verið í áætl-
ununum hér á landi. Margir hafa nýta
sér þau tækifæri sem bjóðast með ýms-
um skiptiverkefnum og námsdvölum.
Þá kemur einnig fjöldi Evrópubúa til Ís-
lands og koma t.a.m. fleiri nemendur til
náms við Háskóla Íslands gegnum
Erasmus-stúdentaskiptin en fara frá
háskólanum út,“ segir Ágúst Hjörtur.
„Við sjáum áhrif af áætluninni hvað
gleggst í starfi háskólanna þar sem
námsmat hefur verið samræmt og há-
skólarnir eru orðnir til muna alþjóðlegri
í starfi sínu. En við viljum einnig skoða
áhrif stórra fjölþjóðlegra þróunarverk-
efna sem Íslendingar hafa stýrt með
miklum sóma.“
Á ráðstefnunni verða kynnt forgangs-
atriði Menntaáætlunarinnar næstu ár
og segir Ágúst Hjörtur eitt markmiða
ráðstefnunnar að setja þessi markmið í
samhengi: „Við heyrum frá þátttak-
endum úr ólíkum hlutum áætlunarinnar
og fáum til okkar hagsmunaaðila til að
ræða um áhrif áætlunarinnar,“ segir
hann. „Ljóst er að þeir einstaklingar
sem nýta sér möguleika Mennta-
áætlunarinnar hafa mikinn ávinning af,
en gott er að rýna dýpra í áhrif mennta-
samstarfsins, bæði á menntakerfið og
samfélagið í heild sinni.“
Nánari upplýsingar og skráning eru á
www.lme.is.
Menntun | Ráðstefna um evrópskt menntasamstarf á þriðjudag kl. 10 til 15
Árangursríkt menntasamstarf
Ágúst Hjörtur
Ingþórsson fædd-
ist í Reykjavík
1961. Hann lauk
BA-prófi í heim-
speki og alm.
bókmfr. frá HÍ
1986 og MA í
stjórnmheimsp. frá
Ottawa-háskóla
1988. Hann stundar nú doktorsnám
við félagsvísindadeild HÍ. Ágúst
Hjörtur hefur starfað við evrópskt
menntasamstarf hjá HÍ frá árinu
1991. Frá 2001 til 2004 var hann vís-
indafulltrúi við sendiráð Íslands í
Brussel. Hann er nú forstm. Rann-
sóknarþjónustu HÍ og Leonardó-hluta
Menntaáætlunarinnar. Sambýliskona
Ágústs er Hulda Anna Arnljótsd.
frkvstj., eiga þau til samans 5 börn
FRÉTTIR
FYRIRLESTRAR undir yfirskrift-
inni „Er hægt að vinna með ADHD
og skyldar raskanir án lyfja?“
verða haldnir í Sjónarhólshúsinu,
Háaleitisbraut 13, efstu hæð, laug-
ardaginn 1. desember kl. 13-15.
Sigríður Jónsdóttir, ADHD-
markþjálfi, hefur fengið til liðs við
sig mæður barna með ADHD og
skyldar raskanir sem flytja fyr-
irlestra um eigin reynslu.
Fyrirlestrana flytja Hildur M.
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Heilsubankans.is, sem er móðir
tveggja uppkominna barna með
ADHD, Ása S. Harðardóttir, sem er
móðir 8 ára stúlku sem greindist
fyrir 2 árum með ADD og Heiða
Björk Sturludóttir, sem er móðir
drengs greindan með Tourette og
er á einhverfurófinu þó hann nái
ekki greiningu. Að lokum verða
umræður og fyrirspurnir. Í frétta-
tilkynningu er tekið fram að fyr-
irlestrarnir séu ekki til þess gerðir
að vera með áróður á lyfjanotkun.
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrar
um ADHD og
skyldar raskanir
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra er gestur Græna
netsins á fundi á morgun, laug-
ardaginn 1. desember, um nátt-
úruvernd, auðlindir, stóriðjuáform,
þjóðgarða og verndarsvæði. Fund-
urinn verður haldinn á Sólon í
Bankastræti, Reykjavík, og hefst
kl. 11. Eftir stutt upphafsávarp
Þórunnar verða umræður og fyr-
irspurnir. Allir eru velkomnir.
Ráðherra hjá
Græna netinu
1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár
samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
!
" #
$ # $
%
# &
% ' ( ) www.ginseng.is