Morgunblaðið - 30.11.2007, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER SVO
SVANGUR...
AÐ ÉG SÉ OFSJÓNIR... ÞAÐ ER
EITTHVAÐ
BOGIÐ VIÐ
ÞETTA
ÉG ER BÚINN
AÐ LEGGJAST
YFIR TÖLFRÆÐ-
INA SEM
TENGIST
LIÐINU OKKAR
SEGÐU TÖLFRÆÐ-
INNI AÐ ÞEGJA!
ÉG HELD AÐ HÚN SEGI
OKKUR ÝMISLEGT
Á SÍÐASTA ÁRI SKORUÐU
ANDSTÆÐINGAR OKKAR
ÞRJÚÞÚSUND STIG Á MÓTI
OKKAR SEX, OG BRUTU AF
SÉR NÍTJÁN SINNUM EN VIÐ
ÞRJÚHUNDRUÐ SINNUM...
HVERNIG HRINGI ÉG ÚR
ÞESSU HÓTELHERBERGI?
EKKI LEIKA ÞÉR
MEÐ SÍMANN,
KALVIN. Í HVERN
VILDIR ÞÚ
HRINGJA?
HOBBES.
ÉG
VONA
AÐ ALLT
SÉ Í
LAGI...
EKKI VERA
KJÁNI,
KALVIN.
HOBBES
KEMUR EKKI
TIL MEÐ AÐ
SVARA Í
SÍMANN.
EN HANN
ER ÖRUGG-
LEGA MJÖG
EINMANA
ÉG ER VISS
UM AÐ HANN
SKEMMTIR
SÉR VEL
ÉG VONA AÐ
HANN HAFI
EKKI LEIGT
MYND SEM
MIG LANGAÐI
AÐ SJÁ
ÉG ER MJÖG
ÞAKKLÁT...
EN ERTU VISS UM AÐ ÞÚ VILJIR BORÐA
AFGANGA NÆSTU TVO MÁNUÐINA
ÞETTA VAR
FRÁBÆRT! ÞAÐ
VAR GAMAN AÐ
SJÁ ÞIG
SÖMU-
LEIÐIS
VIÐ
FÖRUM EKKI
OFT Á
SVONA FÍNA
STAÐI, EN
MATURINN
VAR ÓTRÚ-
LEGUR!
HANN
STÓÐST
ALLAR
VÆNTIN-
GAR
HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ ANNARS
UM AÐ VIÐ SKELLUM OKKUR
AÐEINS ÚT Í KVÖLD OG
FÁUM OKKUR EINN DRYKK
SAMAN?
ÉG HELD AÐ VIÐ
ÆTTUM AÐ
FARA HEIM
ÞREYTT, HA?
NEI... BLÖNK
AF HVERJU
ERTU AÐ FARA
ÞESSA LEIÐ?
MIG LANGAR AÐ SJÁ
AUGLÝSINGASKILTIÐ
MEÐ MYNDINNI
AF MÉR
Æ,
NEI!
dagbók|velvakandi
Að hlutgera konur
Það vefst fyrir mörgum út á hvað
jafnréttismálin eru farin að ganga
núorðið. Þjóðernissinnar eru sakaðir
um fasisma ef þeir vilja verja landið
og þjóðina, en þessar hugmyndir
femínista um allskonar höft, boð og
bönn eru síst minni fasismi, ef mað-
ur skilur það hugtak sem hrísvönd-
unarstefnu, eins og Megas þýddi það
orð, að láta fólk hlýða með tilskip-
unum frá valdhöfum. Kvennafræðin
virðast ganga út á það að gera úr
konum eitthvað fyrirbæri óháð
mannkyninu. Hendingin að klámiðn-
aðurinn „hlutgeri konur“ er gott
dæmi um þetta. Klám er eitthvað
ómerkilegt sem menn eiga að
skammast sín fyrir, er þá verið að
telja konum trú um að þær eigi að
skammast sín fyrir líkama sína?
Hví berjast ekki femínistar gegn
skrauttískunni, þar sem í raun er
verið að hlutgera konur og karla?
Líkaminn er hluti af manneskjunni,
en ekki dauður hlutur!
Hver ræður yfir eigin líkama?
Hvar er valfrelsið, hver tekur sjálf-
stæðari ákvarðanir, þessi sem dans-
ar nakin eða þessi sem eltir ein-
hverja tísku?
Ingólfur Sigurðsson
Ótrúlegt hjá RÚV
Þegar fréttir bárust þriðjudags-
kvöldið 20. nóv. sl. af jarðskjálftum á
Selfossi urðu margir skelfingu lostn-
ir og þá sérstaklega þeir sem búa á
svæðinu.
Okkur á höfuðborgarsvæðinu stóð
alls ekki á sama og fylgdumst með
fréttatímum sjónvarps og útvarps til
miðnættis og sváfum ekki rótt. Mið-
vikudagsmorguninn 21. nóv. bárust
engar fréttir í útvarpinu af jarð-
skjálftunum, ekki kl. 7, 8, 9, 10 eða
kl. 12.00 né fram eftir degi.
Í kvöldfréttum útvarps og sjón-
varps bárust loksins fréttir. Er þetta
eðlilegt? Í hverjum fréttatíma út-
varps að degi til, sem er um 3 mín-
útna langur, berast fréttir erlendis
frá í smáatriðum, frá Pakistan, Írak,
Palestínu, Ísrael, Filippseyjum
o.s.frv., en oft litlar eða engar inn-
lendar fréttir.
Þetta er ekki boðlegt!
250829-3379
Besti jólasveinninn á Íslandi?
Ég bjó í öryrkjablokk og jólin voru
að nálgast – gat ég keypt mér skó?
Nei, nei ég þurfti að kaupa í matinn,
en þá kom 5 þúsund króna ávísun frá
Bónus til allra öryrkja í blokkunum
og þeir gátu farið í Bónus og verslað
sér í matinn. Það var ekki birt nein
mynd af Jóhannesi í blöðum eða
sjónvarpi, enda lifir hann ekki fyrir
það, það þyrfti enda að vera rönt-
genmynd til að sýna hjarta þessa
manns. Takk Bónus! Öryrkjarnir
gleyma þér ekki – Jóhannes er ekki
frændi minn, ég hef aldrei talað við
hann – en hann er höfðingi.
Nú bý ég á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Gleðileg jól.
Tapað/fundið
Ljós af reiðhjóli fannst á horni
Grensásvegar og Bústaðavegar rétt
fyrir klukkan 9 föstudagskvöldið 23.
nóvember. Ef einhver saknar ljóss-
ins síns er viðkomandi velkomið að
hafa samband í síma 661 5896.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Þessar glæsilegu konur berjast við veðrið á Skólavörðustígnum og tjalda
því sem til er. Þær eru vopnaðar úlpum, treflum og tilheyrandi, en eitthvað
virðist regnhlífin vera óþekk í íslenska rokinu.
Morgunblaðið/Ómar
Barist við veðrið
FRÉTTIR
ÁRLEGUR jólabasar KFUK verð-
ur í húsi KFUM og KFUK, Holta-
vegi 28, laugardaginn 1. desember
kl. 14 og stendur frameftir degi. Á
basarnum gefst gullið tækifæri til að
verða sér úti um fyrsta flokks jóla-
bakstur, sultur, jólaskraut og heima-
gerða listmuni
Lukkupakkar verða fyrir börn. Á
boðstólum verða nýbakaðar vöfflur,
kaffi, kakó og djús. Basar KFUK á
sér langa sögu og er þetta 99. árið
sem basarinn er haldinn. Ágóði af
basarnum rennur til æskulýðsstarfs
KFUM og KFUK og kærleikssjóðs
félagsins.
Jólabasar
KFUK
HÁTÍÐARSAMKOMUR verða
haldnar hjá hjúkrunarheimilunum
Skjóli og Eir laugardaginn 1. des-
ember í tilefni þess að 20 ár eru lið-
in frá vígsluafmæli Skjóls og 15 ár
frá vígsluafmæli Eirar.
Í fréttatilkynningu segir að á
Skjóli og Laugaskjóli, sem er sam-
býli fyrir minnissjúka, búi 108
heimilismenn. Verður þeim boðið
til skemmtunar á sal kl. 14 þar sem
Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ást-
valdsson munu syngja og spila á
hljóðfæri.
Á Eir búa 173 heimilismenn auk
íbúa í 37 öryggisíbúðum, Eirar-
húsum, sem eru samtengdar hjúkr-
unarheimilinu. Hefst skemmtunin
þar klukkan 15.
Auk þessa rekur Eir 38 öryggis-
íbúðir í Eirhömrum í Mosfellsbæ og
hinn 14. október sl. var tekin fyrsta
skóflustunga að 111 nýjum öryggis-
íbúðum, sem eiga að rísa við Spöng-
ina í Grafarvogi.
Hátíðar-
samkomur á
Skjóli og Eir