Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 42
„Við gerum okkur þó
grein fyrir því að við
gætum snappað hvenær sem
er“ 45
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er mesta rokklag Evró-
visjón-sögunnar. Það þýðir ekkert
að koma þessum silkimjúku og
sykursætu popplögum á framfæri.
Fólkið vill bara flipp og stuð,“ segir
Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr.
Gunni, sem samdi lagið Hvar ertu
nú? sem rokksveitin Dr. Spock flyt-
ur í Laugardagslögunum á laugar-
daginn.
„Þetta lag fjallar um sjómennsku,
þetta er alíslenskt og karlmannlegt
sjómannalag. Þetta er eina lagið í ár
sem samið er út frá þörfum karl-
manna,“ segir
Doktorinn stolt-
ur.
Aðspurður seg-
ir hann það hafa
legið í augum
uppi að semja lag
fyrir Dr. Spock.
„Ég fór bara
að hugsa hvað
væri hægt að
gera til að breyta
alveg um stíl, koma með svolitla
bombu inn í þessa keppni. Dr. Spock
er náttúrlega frábær hljómsveit, lít-
ur vel út og er með sterka nær-
veru,“ segir Gunni.
„Lagið er mjög þungt á köflum,
þetta er eins og stormviðri á sjó, al-
veg brjálað, en dettur svo niður í
spegilslétta rúmbu. Þetta er svolítið
skrítið lag, en það venst vel.“
Meðlimir Dr. Spock eru þekktir
fyrir skrautlega sviðsframkomu og
segir Gunni að engin undantekning
verði á því annað kvöld. „Það fer
einhver úr að ofan,“ segir hann og
hlær.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær munu þau Birgitta
Haukdal og Magni Ásgeirsson
syngja lag Hafdísar Huldar í keppn-
inni á morgun, en þriðja lagið er svo
eftir Magnús Þór Sigmundsson.
Doktorarnir í Evróvisjón
Morgunblaðið/Kristinn
Guli hanskinn Búast má við litríkri sviðsframkomu hjá Dr. Spock á morgun.
Dr. Gunni og Dr. Spock ætla að rokka í Laugardagslögunum
Dr. Gunni
Kristján B.
Jónasson ritstjóri
er á bloggsíðu
sinni ánægður
með góðan gang í
bóksölunni þessa
dagana. Sem
dæmi tekur hann að Forlagið sé að
slá met í prentun á Arnaldi Indr-
iðasyni, en ný sending af Harð-
skafa er nú á leið frá Svíþjóð sem
þýðir að alls hafa verið prentuð
25.000 eintök af bókinni. Harry
Potter hefur verið prentaður í
15.000 eintökum og Kristján telur
líklegt að 5.000 eintök þurfi til við-
bótar. Enn annað dæmi um trú á
góðri sölu nefnir Kristján bók Þor-
gríms Þráinssonar sem prentaði
10.000 eintök af Hvernig gerirðu
konuna þína hamingjusama, og
segir hann ljóst að ef fram heldur
sem horfir muni þau ganga til
þurrðar. Að lokum nefnir Kristján
Leyndarmálið sem hafi selst í meira
en 10.000 eintökum og gæti endað í
um 15.000 eintökum.
Góður gangur
í jólabókasölunni
Leikstjórinn
Róbert Douglas
situr ekki auðum
höndum austur í
Kína þar sem
hann hefur búið
með sambýliskonu
sinni að undanförnu. Undirbún-
ingur fyrir næstu mynd leikstjór-
ans er komin langt á veg og reiknað
er með að tökur hefjist í mars á
næsta ári. Kvikmyndin, sem mun
heita Baldur, fjallar um ungan
mann, leikinn af Gunnari Gunn-
arssyni, sem ákveður einn daginn
að sniðganga öll hefðbundin gildi
samfélagsins og framkvæma það
sem hann ekki má. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins heldur
Gunnar til Kína á næstu vikum þar
sem hann mun undirbúa sig bæði
andlega og líkamlega fyrir hlut-
verkið undir handleiðslu Róberts.
Handrit myndarinnar skrifa þeir
Ottó Geir Borg og Róbert Douglas,
en framleiðandi er Anna Lísa
Björnsdóttir fyrir Albrid ehf.
Ný mynd Róberts Dou-
glas í tökur á næsta ári
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA gekk bara betur en í sögu. Þetta var án
efa það skemmtilegasta sem við höfum gert á
okkar ferli,“ segir Egill Rafnsson, trommuleikari
hljómsveitarinnar Sign, sem er nýkomin úr
tveggja vikna tónleikaferðalagi um Bretland þar
sem hún hitaði upp fyrir bandarísku rokksveitina
Skid Row. „Það var ótrúlega gaman að spila með
þeim, og horfa á þá eftir hverja tónleika. Svo
lögðu þeir það líka á sig að koma og horfa á okk-
ur á hverjum tónleikum, þeir horfðu alltaf á
fyrstu þrjú eða fjögur lögin áður en þeir fóru að
gera sig klára,“ segir Egill stoltur.
Sveitirnar spiluðu á 12 tónleikum á 13 dögum
og komu fram í flestum stærstu borgum Bret-
lands. Egill segir Skid Row mjög vinsæla í Bret-
landi, enda hafi verið fullt á flestum tónleikum,
frá 700 til 3.000 manns.
Aðspurður segir hann þá félaga hafa verið
mjög skemmtilega. „Við vorum svolítið hræddir
við þá fyrst, það hefði verið eins og blaut tuska í
andlitið ef þeir hefðu verið leiðinlegir því við er-
um búnir að líta upp til þeirra svo lengi. En svo
tóku þeir okkur bara opnum örmum,“ segir Egill.
Hinn gullni meðalvegur
Meðlimir Skid Row eru allir komnir yfir fer-
tugt, en Egill segir þá ekki láta það á sig fá.
„Þeir vita algjörlega hvað þeir eru að gera,
enda hafa þeir í rauninni aldrei gert neitt annað
en þetta,“ segir Egill og bætir því við að þótt þeir
séu miklir rokkarar séu þeir enginn óþjóðalýður.
„Þetta eru engir kórdrengir, en þeir eru heldur
ekkert að rústa hótelherbergjum. Þeir gera nógu
mikið til þess að þetta sé gaman, en nógu lítið til
að geta gert þetta strax daginn eftir án þess að
vera með skít upp á bak. Þetta er þessi gullni
meðalvegur sem þeir eru búnir að finna.“
Hvað Sign varðar segir Egill þá einbeita sér
mikið að Bretlandsmarkaði um þessar mundir,
og þessi tónleikaferð hafi því komið sér afar vel.
„Bretland er rosalega góð brú yfir í annað, það
er erfiður markaður en ef maður nær að sanna
sig þar eru flestar dyr opnar,“ segir hann, en um
þessar mundir er Sign einmitt að kynna sína nýj-
ustu plötu, The Hope.
Sign og Skid Row spila á tónleikum á Nasa
annað kvöld og segir Egill að menn megi búast
við gríðarlegu stuði. „Það má búast við öllum
fjandanum. En prógrammið hjá Skid Row er al-
veg skothelt, það er ekki veikur hlekkur þarna.
Þessir menn eru búnir að gera þetta svo lengi að
þeir vita nákvæmlega hvað þeir þurfa að gera til
að koma liðinu af stað.“
Enginn veikur hlekkur
Sign og Skid Row halda tónleika á Nasa eftir vel heppnaða Bretlandsferð
Morgunblaðið/Frikki
Ótrúlega gaman Félagarnir í Sign eru hæstánægðir með Skid Row og vara við því að allur fjandinn geti gerst á tónleikunum á NASA.
Miðasala á Sign og Skid Row fer fram á midi.is og í
verslunum Skífunnar og BT. Miðaverð er 2.900 kr.