Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 45
GOÐSAGNIR gaddavírsrokksins,
The Jesus and Mary Chain, eru að
henda í nýja plötu. Mannkyn allt
(ókei, gamlir nýbylgjuhundar)
fagnar! Þessi áhrifaríka skoska
sveit, sem er leidd af bræðrunum
Jim og William Reid, kom saman á
nýjan leik snemma á þessu ári en
þá höfðu þeir bræður ekki talast
við í níu ár, og þeir ganga svo
langt að viðurkenna að þeir hafi
hatað hvor annan af öllu hjarta í
allan þann tíma. Umboðsmaður
þeirra, Kevin Oberlin, lýsir því að
hann hafi verið að vinna við að
koma sólóplötum bræðranna í
gang og hann hafi reynt að bóka
Jim á Coachella-hátíðina en fengið
gagntilboð um að The Jesus and
Mary Chain léki á hátíðinni í stað-
inn.
„Við töldum að þeir tónleikar
myndu koma sólóplötunum á rek-
spöl en daginn eftir tónleikana
lýstu bræðurnir því yfir í viðtali að
þeir ætluðu að gera nýja Mary
Chain-plötu,“ segir umbinn.
William, sá hljóðlátari af bræðr-
unum, segir að hatrið á sínum tíma
hafi m.a. stafað af svalli með vín og
eiturlyf. Í dag er Jim hins vegar
edrú og William er slakari í sullinu
en hann var.
„Við gerum okkur þó grein fyrir
því að við gætum snappað hvenær
sem er,“ sagði hann í viðtali við
Billboard og hló við. „En við reyn-
um. Við elskum þessa hljómsveit –
og hvor annan.“
Samkvæmt Oberlin bítast út-
gáfufyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum um plötuna, sem kemur út
næsta vor. Ekkert hefur verið
ákveðið í þeim efnum enn. Nýtt
lag, „All things Must Pass“, var
flutt í þætti Davids Lettermans í
sumar. Einkar hæfandi lagatitill
verður að segjast.
The Jesus and Mary Chain
vinna að nýrri plötu
Engin Skotapils Jim og William Reid í The Jesus & Mary Chain.
Föstudagur 30. nóvember kl. 20:00
Vín og ljúfir tónar
í safnaðarheimili Neskirkju
Barrokkhópurinn Rinascente flytur kammertónlist
eftir Bach og Muffat og tvær einsöngskantötur
eftir G. F. Händel. Einsöngvarar eru Hallveig
Rúnarsdóttir og Hrólfur Sæmundsson. Í hléi mun
Vín og matur halda vínkynningu.
Miðaverð 1.500 kr.
Sunnudagur 2. desember kl. 17:00
Org
Steingrímur Þórhallsson, organisti við Neskirkju,
heldur sína árlegu orgeltónleika. Á efnisskránni
eru verk eftir Bach, Buxtehude og Jón Þórarinsson
ásamt jólaorgeltónlist.
Miðaverð 1.000 kr.
Miðasala við innganginn
Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson.
Komin er út bókin Í fyrsta kasti
eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina
Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson.
Jólagjöf stangveiðimannsins
Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda skemmti-
legra veiðisagna frá tugum viðmælenda þeirra félaga
ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum frá mörgum
helstu veiðisvæðunum hringinn í kringum Ísland.
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst að fá þessa stórglæsilegu
bók á sérstöku verði með 25% afslætti. Fullt verð er 4.990
krónur en verð til áskrifenda er 3.750 krónur.
Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu Morgunblaðsins að
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík eða pantað hana á mbl.is.
M
bl
9
40
60
2
„Feiknamerkileg bók, stútfull af spennandi
upplýsingum um veiðiár- og vötn.“
Bjarni Brynjólfsson, Veiðimaðurinn
ÓPERUPERLUR
FRÁBÆR KVÖLDSKEMMTUN
AUKASÝNING Í KVÖLD KL. 20.
SÍÐASTA SÝNING!
WWW.OPERA.IS MIÐASALA 511 4200
R.Ö.P., Mbl.