Morgunblaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞEGAR ég var í tónlistarnámi úti í Bretlandi vann ég meðfram námi sem kennari í sunnu- dagaskóla hjá íslenska söfnuðinum í London. Þar komst ég að því að lögin sem voru í boði til að syngja með krökkunum voru þau sömu og höfðu verið í boði þegar ég var lítil. Þótt mér þætti það kósí voru óskalögin sem komu frá krökkunum úr dálítið annarri átt, þannig að ég ákvað að semja svolítið af sunnudagaskóla- lögum sem væru aðeins meira í takt við það sem krakkarnir voru að hlusta á,“ segir tónlist- arkonan Hafdís Huld um barnaplötuna Engla í ullarsokkum sem hún var að senda frá sér. „Ég ákvað að sækja um styrk í Kristnihátíð- arsjóð til að gera heila plötu og fékk hann, þannig að fyrsta verkefni mitt eftir útskrift úr námi í tónsmíðum og útsetningum fyrir ári síð- an var að semja barnaplötu.“ Guð, róló og englar Hafdís semur öll lögin á plötunni ásamt Alisdair Wright sem er einn liðsmanna í hljóm- sveitinni hennar. Í textunum fjallar Hafdís um lífið og til- veruna, Guð, róló, engla og ullarsokka, um ör- yggi barnæskunnar; pabba og mömmu, bænir, mjólkurglas og brauð með osti. Grunnstefið er þakklæti, vinátta og jákvæð hugsun. Diskur- inn er þannig uppbyggður að á fyrrihluta hans má heyra lögin sungin af Hafdísi og barnahóp, en á seinni hluta hans er eingöngu undirspilið þannig að litlir söngvarar geta spreytt sig á að syngja laglínuna. „Ég fékk krakka á aldrinum fjögurra til tólf ára til að syngja inn á plötuna en hún var tekin upp í fataherbergi í kjallaranum heima hjá mömmu og pabba þótt hljóðvinnslan færi fram í hljóðveri eftir á. Ég ákvað, frekar en að fá alla krakkana í hljóðver, sem hefði kannski verið svolítið ógnvekjandi, að setja upp lítið hljóðver í kjallaranum, baka súkkulaðiköku og gera þetta að góðu krakkapartíi til að fá það besta út úr þeim,“ segir Hafdís sem þótti virki- lega gefandi að vinna með börnunum. „Stund- um var kannski einn fjögurra ára í aðeins of miklu stuði þegar hann söng hallelúja og fór heldur hátt en það fékk að vera með því það er meiri gleði í því en að hafa allt fullkomið. Einu sinni í miðri upptöku hætti ein aðalsöngkonan, 6 ára, skyndilega og sagðist ekki hafa tíma í þetta því kötturinn Brandur væri týndur. Hún fór út að leita að Brandi og kom svo aftur. Plat- an var gerð á heimilislegu nótunum, í staðinn fyrir að ofurútsetja leyfðum við börnunum að vera þau sjálf.“ Gerir tónlist af heilum hug Hafdís segir að þótt þetta sé barnaplata með kristilegu ívafi innihaldi hún boðskap sem ætti að höfða til allra. „Ég sótti í efnið sem ég hafði verið að kenna í sunnudagaskólanum og það sem mér þótti virka best á krakkana. Ég fékk langmest út úr þeim ef það var hægt að gera hreyfingar með söngnum. Ég ákvað líka að fá stelpu sem vinnur mikið með tákn með tali til að gera tákn við alla plötuna svo hún höfðaði til allra frá fyrsta degi. Við dreifum síðan táknum með tali í bók með plötunni í æskulýðsstarfi kirkjunnar.“ Spurð hvort hún sjálf sé trúuð segist Hafdís vera það. „Ef ég væri það ekki væri hræsni að gera kristilega barnaplötu. Maður þarf að gera alla tónlist af heilum hug.“ Tók upp barnaplötu í fataherbergi Hafdís Huld sendir frá sér Engla í ullarsokkum Morgunblaðið/Kristinn Einlæg Hafdís Huld fékk barnahóp til að syngja með sér inn á plötuna Engla í ullarsokkum. Hér er hún með Aþenu Sif, 6 ára frænku sinni sem hefur augljóslega gaman af því að lita. WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SAMBÍÓIN - EINA / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA MICHAEL CLAYTON kl. 8 B.i.7.ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára 3D-DIGITAL SYDNEY WHITE kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ AMERICAN GANGSTER kl. 8:30 B.i.16.ára AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP THE ASSASSIN. OF JES... kl. 10:30 B.i.16.ára 30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára SÝND Í LAUGARDAG OG SUNNUDAGSÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FYRSTA ALVÖRU ÞRÍVÍDDAR MYND SÖGUNNAR „Í SANNLEIKA SAGT, EIN AF BEST TEIKNUÐU KVIKMYNDUM FYRR OG SÍÐAR“ AINTITCOOLNEWS.COM „BEOWULF ER EINFALD LEGA GULLFALLEG...“ ENTERTAINMENT WEEKLY „...ÞETTA ER ÓTRÚLEG UPPLIFUN OG JAÐRAR VIÐ SKYLDUÁHORF...“ EMPIRE „ZEMECKIS SPRINGS SO MANY POW 3D SURPRISES YOU'LL THINK BEOWULF IS YOUR OWN PRIVATE FUN HOUSE.“ ROLLING STONE BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára 3D-DIGITAL SYDNEY WHITE kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ AMERICAN GANGSTER kl. 6D - 9D B.i. 16 ára DIGITAL ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ ÞEGAR Á BJÁTAR MÁ TREYSTA Á ÞAÐ AÐ SANNAR HETJUR GEFAST EKKI UPP! 600 kr.M iðaverð SÝND Í AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.