Morgunblaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 51
VÉDÍS Hervör Árnadóttir hélt
úgáfutónleika í Austurbæ á mið-
vikudagskvöldið þar sem hún flutti
lög af nýútkomnum geisladiski sín-
um A Beautiful Life – Recovery
Project. Védísi til halds og trausts
var hljómsveit skipuð nokkrum af
okkar færustu tónlistarmönnum og
má þar meðal annars nefna Sig-
trygg Baldursson trommara, Ómar
Guðjónsson gítarleikara, Róbert
Þórhallsson bassaleikara og Þór-
hall Bergmann hljómborðsleikara.
Eins og venja er á útgáfutónleikum
var mikil stemning í Austurbæ þeg-
ar Védís flutti lög af plötunni og
óskandi að fleiri tónlistarmenn
nýttu þennan stóra og fína sal til
tónleikahalds.
Falleg og
lífleg kvöld-
stund með
Védísi
Morgunblaðið/Kristinn
Stjarna kvöldsins Það geislaði af Védísi í Austurbæ á miðvikudagskvöldið.
Fjölskyldan mætti að sjálfsögðu Guðmundur Egill Árnason, bróðir Védísar, pabbinn Árni Sigfússon, Þór-
arinn Sigurðsson, vinur Guðmundar Egils og Bryndís Guðmundsdóttir móðir Védísar.
Töffarar Baldur Baldursson, Rúnar Júlíusson og Steinþór Jónsson.
Gítarhetja Ómar Guðjónsson sýndi fingrafimi sína á tónleikunum.