Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 16. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is EM HEFST Í DAG „VERÐUM AÐ LEIKA TIL SIGURS GEGN SVÍUM“ >> ÍÞRÓTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is RÆKJUIÐNAÐURINN hefur átt við mikinn rekstrarvanda að etja hin síðari ár og hver verksmiðjan á fætur annarri lagt upp laupana. Fyrir nokkrum árum voru tæplega 20 rækjuvinnslur starfandi. Eftir að fregnir bárust af lokun rækjuverksmiðju Strýtu á Akureyri er útlit fyrir að innan skamms verði aðeins fimm verksmiðjur starfandi hér og að langstærstum hluta er þar unnið innflutt hráefni. Þær eru á Sauðárkróki, Hólmavík, Grundarfirði, Bolungarvík og á Ísafirði. Tölurnar tala sínu máli. Rækjuafli á grunnslóð minnkaði úr 4 þús. tonnum árið 2001 í 250 tonn árið 2006 og rækjuaflinn á djúpslóð minnkaði úr 65 þús. tonnum árið 1995 í aðeins 600 tonn 2006. Rækjuafli á Ís- landsmiðum fór hæst í 76 þús. tonn árið 1995 en 2006 var hann rúm 800 tonn og í fyrra var hann sá minnsti í 40 ára sögu rækjuveiða við landið. Í úttekt sem gerð var á rækjuiðn- aðinum 2006 var komist að þeirri niðurstöðu að forsenda þess að rækjuiðnaður eigi sér framtíð hér sé að rækja fari aftur að veiðast á Íslandsmiðum. „Afkoma í rækjuvinnslu hef- ur til mjög margra ára verið mjög slök,“ seg- ir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. „Þetta hefur verið vaxandi vandamál. Eftir því sem árin hafa liðið og af- urðaverð hefur ýmist staðið í stað eða farið lækkandi í íslenskum krónum, þá hefur rækjuverksmiðjum smám saman fækkað.“ Verðið á uppleið Ekki eru þó allir tilbúnir að afskrifa mögu- leika í rækjuiðnaði og bera sig þokkalega. „Útlitið er bærilegt á okkar bæ,“ segir Óttar Yngvason einn eigenda rækjuvinnslunnar Dögunar á Sauðárkróki og segir mikla vinnslu fara fram í verksmiðjunni. „Við unn- um á síðasta ári úr hátt í 10 þúsund tonnum af hráefni og áætlum svipað magn í ár ef ekk- ert nýtt kemur upp á,“ segir hann. „Við erum alveg sjálfum okkur nógir um hráefnisöflun,“ bætir Óttar við. Dögun byggir vinnslu sína nær eingöngu á innfluttu hráefni og er því ekki eins háð gengi krónunnar. Að sögn hans eru um 20 manns í vinnu hjá Dögun. Verð fyrir afurðirnar hefur batnað upp á síðkastið og hækkaði á síðasta ári um 25-30% í erlendri mynt. Engum fær þó dulist að baráttan er hörð í rækjuiðnaðinum og fastur kostnaður við hráefniskaup um eða yfir 70%. Fimm verksmiðj- ur eftir „Útlitið er bærilegt,“ segir eigandi Dögunar Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Erfið staða Störfum í rækjuvinnslu hefur fækkað stórlega á undanförnum árum. FRÉTTASKÝRING Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is ALLIR viðskiptabankarnir standa frammi fyrir ákveðnum erf- iðleikum hvað varðar lánsfjármögn- un þar sem lánsféð sem til boða stendur á alþjóðlegum fjármála- mörkuðum er afar dýrt. Ástandið er sýnu verst hjá Glitni, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, enda ákvað bankinn í gær að hætta við fyrirhugað skulda- bréfaútboð. Lárus Welding, for- stjóri Glitnis, sagði í gærkvöld að erfiðar markaðsaðstæður hefðu ráðið þessari ákvörðun. Ástæður þessa eru m.a. þær að skuldatryggingarálag bankanna er mjög hátt, allt of hátt, að mati margra. Hjá Kaupþingi er álagið í kringum 415 punktar, hjá Glitni um 335 punktar og hjá Landsbanka um 260 punktar. (Einn punktur er einn hundraðasti úr prósentustigi, þann- ig að 100 punktar eru sama og eitt prósentustig. Þetta álag leggst svo ofan á svokallaða LIBOR-vexti, eða millibankavexti. 400 punktar jafn- gilda því að 4% álag leggist ofan á millibankavextina). Með öðrum orðum þýðir þetta að bönkunum stendur til boða endur- fjármögnun á alþjóðlegum lánsfjár- mörkuðum, sem kostar meira en sum lánin sem bankarnir eru að lána út um þessar mundir. Það er ekkert vit í því að kaupa brauðhleif á 400 krónur og selja hann aftur frá sér á 300 krónur. Það græðir enginn á því, svo myndin sé einfölduð. Landsbankinn er ekki á sama báti og hinir viðskiptabankarnir í þessum efnum, einfaldlega vegna þess að ný lánsfjárþörf bankans er ekkert í líkingu við hinna tveggja. Lausafjárstaða Landsbankans er afar sterk. Tekið skal fram að lausa- fjárstaða Kaupþings og Glitnis er einnig sögð býsna góð. Vandi Kaupþings er fyrst og fremst til kominn vegna kaupa bankans á hollenska bankanum NIBC. Síðastliðið sumar, þegar ákveðið var að ráðast í kaup á bank- anum, munu forsvarsmenn Kaup- þings hafa talið að alþjóðlegir fjár- málamarkaðir myndu ná jafnvægi á ný á næstu þremur til fjórum mán- uðum, en ljóst er að það mat var fjarri öllu lagi. Ástandið hefur versnað til mikilla muna frá því í haust og ekkert bendir til að á því verði nokkur breyting til hins betra á næstu mán- uðum og misserum. Allur fjármagnskostnaður hefur aukist gífurlega, áhættufælni ríkir á mörkuðum og geysilega erfitt og dýrt er að afla nýs lánsfjár. En Kaupþing á engra kosta völ. Bankinn hefur gert samning um kaup á NIBC og með einum eða öðrum hætti verður bankinn að efna þann samning. Glitnir er hættur við Skuldatryggingarálag á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum leikur íslensku viðskiptabankana grátt, en nú er það frá 260 punktum upp í 415 punkta Í HNOTSKURN »Lausafjárstaða Landsbank-ans er afar sterk. Þar skipt- ir miklu máli hversu vel inn- lánsátak bankans í Bretlandi ICESAVE hefur heppnast. »Lausafjárstaða Kaupþingsog Glitnis mun einnig góð. »Kaupþing verður að efnasamninginn um kaup á hol- lenska bankanum NIBC.  Glitnir var í valkreppu | 2 BÁÐIR stofnar inflúensu, þeirrar sem árlega gengur um heimsbyggð- ina, hafa greinst hér á landi. B-stofninn greindist á landinu rétt fyrir jól og A-stofninn fyrir um einni viku. Flensan er hins vegar ekki komin á fullt flug og ef menn eru full- frískir og hafa ekki veikst er vel reynandi að láta bólusetja sig nú, að sögn Haralds Briem sóttvarnalæknis. Það tekur um 10 daga fyrir bóluefnið að virka og það getur dugað til að koma í veg fyrir smit. Engin neikvæð áhrif af því að smitast nýbólusettur „Auðvitað getur fólk verið óheppið og verið kominð með flensuna þegar það lætur sprauta sig. En það hefur einnig góða möguleika á að fá hana ekki næstu tíu daga,“ sagði Haraldur. Það hefði engin neikvæð áhrif þótt fólk væri nýbólusett þegar flensan knýði dyra. Á vefnum influensa.is má finna ráð gegn flensusmiti, m.a. þessi: Byrgja nef og munn við hósta og hnerra. Nota bréfþurrkur svo dropar úr öndunarfærum nái ekki að berast út í loftið. Þvo hendur. Báðir stofnar inflúensu komnir til landsins FRÉTT ÁRSINS! 35.695 Íslendingar fengu góðar fréttir á síðasta ári þegar þeim var tjáð að þeir hefðu fengið vinning í Happdrætti Háskólans. Verður árið í ár gott fréttaár hjá þér? – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. Konan áður >> 37 Komdu í leikhús Leikhúsin í landinu UMFERÐ gekk um tíma hægt á Hellisheiði í gær í slæmu skyggni og dimmum éljum en ekki urðu teljandi óhöpp að sögn lögreglu. Norðanátt var á heiðinni þótt ekki væri hún hvöss en bar hins vegar með sér töluverða úr- komu með þeim afleiðingum að allmikil hálka myndaðist á veginum. Í Borgarfirði var hins vegar nokkuð um útafakstur í gær en ekki urðu meiðsli á fólki. Árvakur/Ómar Hált á heiðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.