Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 43
LEIKKONAN Halle Berry hefur látið þau orð falla að hún vildi gjarn- an vera „ólétt að eilífu“. Berry er einmitt ólétt, orðin 41 árs, en barns- faðirinn er hinn fransk-kanadíski Gabriel Aubry sem gegnir starfi fyr- irsætu. Hann er 31 árs. Berry á að eiga í mars. „Húð mín geislar af öllum hormónunum. Ég vil vera ólétt að eilífu,“ sagði Berry, svo samhengið sé nú haft með, í viðtali við tískublaðið In Style. „Ég er bara svo full gleði og orku, mér finnst ég hafa gert 12 hluti í dag,“ er haft eftir leikkonunni, sem segist svo orku- mikil að hún sé óstöðvandi. Þá deilir Berry því með forvitnum lesendum að hún hlusti mikið á lagið „Isn’t She Lovely“, sem Stevie Won- der orti á sínum tíma til nýfæddrar dóttur sinnar. Hið dularfulla er að sama lag kemur í sífellu upp í tilvilj- anakenndu vali iPod-spilara Berry og þykir henni það benda til þess að hún beri stúlku undir belti. Berry segist nú leika golf til að halda sér í formi en einnig til að verja tíma með karli sínum fögrum sem ku vera mikill golfáhugamaður. Reuters Glæsileg Halle Berry. Ólétt Berry að eilífu MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 43 ÞRJÁR systur (Béart, Viard, Gillain) líða vítiskvalir vegna gjörða foreldra sinna í bernsku. Allar búa þær í París en samgang- urinn milli þeirra er lítill sem eng- inn, skuggi fortíðarinnar er myrk- ur sem hel og gefur lítil grið en birtist í nýjum árásum, nýjum myndum. Helvíti er byggð á hugmynd Pólverjans snjalla, Krzysztof Kies- lowski, en er aldrei annað og meira en dramatísk beinagrind þrátt fyrir átakanleg atriði, frá- bæra tónlist, kvikmyndatöku og góðan leik Béart, Gillain og ekki síst Viard í hlutverkrum systranna sem móðir þeirra hefur dæmt í til- finningalega útskúfun. Ástæð- urnar eru raunalegar fyrir allar persónurnar, utan móðurinnar sem unir sér vel í beiskju og hatri. Gæðaleikarinn Jacques Perrin (Z, Cinema Paradiso – og sýndi frábæra heimildamyndarleikstjórn í Heimi farfuglanna), fær úr litlu að moða í hlutverki sem hefði gjarnan mátt vera áhrifaríkara til að dýpka innri átökin. Bosníski leikstjórinn Tanovic nær ekki að tengja okkur tilfinningalega sködduðum sálum mæðgnanna og aukapersónurnar eru aðeins til uppfyllingar. Myndin liti vafalaust betur út ef Kieslowski hefði enst aldur til að ljúka við handritið sem á sína há- dramatísku kafla um fordóma, reiði og eyðileggingu, en það er laust í rásinni, kaflaskipt og rokk- ar um of í tíma. Samt sem áður forvitnileg mynd sakir leiksins og nístandi kuldalegra mannlífs- mynda. Þrjár skaddaðar systur KVIKMYND Háskólabíó: Frönsk kvikmyndahátíð Leikstjóri: Danis Tanovic. Aðalleikendur: Emmanuelle Béart, Karin Viard, Marie Gillain. 100 mín. Frakkland 2005. Helvíti/ L’enfer bbbnn Sæbjörn Valdimarsson Fortíðardraugur Andi Kieslowski svífur yfir en áhrif hans eru ekki næg. ÁHERSLAN í öllum stiklum fyrir nýju Bat- man-myndina, The Dark Knight, hefur verið mikil á Jó- ker Heath Led- ger. En í nýlegu viðtali við LA Times kom Chri- stopher Nolan flestum aðdáend- um Blaka í opna skjöldu þegar hann greindi frá því að myndin snerist jafnvel að mikuu leyti um hvernig Harvey Dent – sem Aar- on Echart leikur – yrði Two-Face. „Harvey er trag- ísk persóna og saga hans er hryggjarstykki myndarinnar. Jó- kerinn hins vegar er öðruvísi, hann á sér enga sögu heldur er hann hreint náttúruafl,“ segir Nolan og hrósar svo mjög frammistöðu Led- ger. Svo er spurning hvað Batman sjálfur fær að gera. Nolan ræddi mikið um það fyrir sýningu Batman Begins að nú fengi hetjan sjálf loksins að vera í forgrunni en ekki skúrkarnir, en það gæti verið hætta á að nýja myndin sé að leysast upp í nýja skúrkaveislu, líkt og mörgum þótti gerast með Spider-Man 3 – sem átti það þó sameiginlegt með The Dark Knight að hafa það góð- an leikstjóra að slíkt ætti ekki að geta hent. Nolan staðfestir líka í viðtalinu að Cillian Murphy muni endurtaka hlutverk Fuglahræðunnar, sem bar ábyrgð á geðsjúklingunum sem sluppu af hælinu í lok fyrri mynd- arinnar. Tvennufés eða Jóker? Aaron Eckhart Cillian Murphy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.