Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 18
|fimmtudagur|17. 1. 2008| mbl.is daglegtlíf Ef svo óskemmtilega vill til að brotister inn hjá manni er líklegt að þjóf-urinn myndi taka með sér ver-aldleg verðmæti, sjónvarp, far- síma, hljómtæki, spilastokka, leikjatölvur, skartgripi, málverk, tölvur og álíka. Engum finnst líklegt að innbrotsþjófur hafi áhuga á því sem ekki er hægt að koma í verð eins og til að mynda fjölskyldualbúminu – hver myndi vilja stela því? Söknuður eftir því sem ekki verður bætt Þegar fjölmiðlar ræða við fólk sem lent hef- ur í eldvoða eða álíka er því oftast sárast um það sem ekki verður bætt, minningarnar sem bundnar eru í fjölskyldualbúminu og það þekkja allir hversu dýmætar minningarnar eru sem þar eru festar á pappír. Færri hugsa aftur á móti út í það að þegar heimilismynd- irnar eru orðnar stafrænar og aðeins til í tölv- unni þá þarf ekki mikið útaf að bera til að þær glatist – þegar tölvunni er stolið eða harði diskurinn bilar getur það þannig kostar sorg og sút því þó einfalt sé að kaupa nýja tölvu eða setja stýrikerfi upp á nýtt og hlaða inn hugbúnaði þá verða myndirnar ekki teknar aftur. Ung kona í austurborginni lenti í því sl. haust að brotist var inn til hennar og öllu fé- mætu stolið. Eitt af því sem þjófarnir ætluðu að hafa með sér var ein tölvan á heimilinu. Þeir voru búnir að aftengja hana en hættu svo við, sennilega vegna þess að hún var orðin of gömul til að þeim þætti taka því að drösla henni út í bíl. Konan unga áttaði sig aftur á móti á því að ef tölvan hefði horfið þá hefðu þjófarnir stolið því eina sem ómetanlegt var – nánast öllum myndum sem til voru af fyrstu fjórum árum yngsta fjölskyldumeðlimsins. Hún var reyndar búin að taka afrit af mynd- unum á svokallaðan „flakkara“, utanáliggjandi harðan disk sem tengdur er tölvunni með snúru, en þjófarnir hirtu hann þannig að ekk- ert hefði orðið eftir. Varðveitum minningarnar! Ýmsar leiðir eru færar til að varðveita minningarnar þó þær séu orðnar stafrænar, til að mynda að afrita reglulega af tölvunni til dæmis á geisladiska, og geyma á öðrum stað en tölvan er, heima hjá ættingjum, á vinnu- stað, ef því verður við komið, nú eða í banka- hólfi þar sem önnur verðmæti eru oft geymd. Eins má taka afrit á flakkara og geyma hann annars staðar, en það er góður siður að eiga meira en eitt afrit af því sem alls ekki má glat- ast. Flakkarar eru til í ýmsum stærðum og á ýmsu verði. Sumir eru tilbúnir til notkunar, aðeins þarf að stinga þeim í samband og svo er hægt að byrja að afrita, en aðra þarf að undirbúa undir notkun, forsníða eins og það kallast. Dæmi eru um að hægt sé að fá 500 GB flakkara á um 14.000 kr., en slíkt gímald myndi rúma um 500.000 ljósmyndir eða jafn- vel meira, allt eftir því í hvaða gæðum mynd- irnar eru. Þeir sem vilja hafa vaðið fyrir neðan sig eru svo með fleiri en einn flakkara undir. Það er líka hægt að geyma gögnin á tölvum úti í bæ, afrita þau yfir netið. Víða erlendis bjóða framköllunarfyrirtæki fólki upp á að geyma myndirnar fyrir það og það er jafnvel innifalið í framköllun/útprentun á myndum. Ekki sýnist mér að hérlend framköllunarfyr- irtæki bjóði upp á það, en Síminn býður við- skiptavinum sínum upp á viðbótarþjónustu sem kallast Safnið en þar geta þeir geymt myndir og annað efni. Pláss í Safninu fyrir 500 MB af gögnum er innifalið í internet-þjónustu Símans en hægt er að kaupa meira rými ef þarf, sem kostar sitt. Einn af kostum Safnsins er að hægt er að miðla gögnum til annarra, þ.e. leyfa þeim sem maður kýs að sjá myndirnar hvort sem það er yfir netið eða í ADSL-sjónvarpsþjónustu Sím- ans – þeir sem hafa aðgang geta þannig skoð- að myndir í Safninu í sjónvarpinu. Gagnaþjón á heimilið Önnur leið til að tryggja gögn er að koma sér upp afritunarstöð heima, til að mynda Windows Home Server, sem er hugbúnaður til að koma upp gagnaþjóni á heimilinu og þá hægt að stilla á sjálfkrafa afrit og þvílíkt. Hann er þó keyrður á tölvu og hefur því sama ókost og aðrar tölvur að þjófar gætu ásælst hann. Sama á reyndar við um minni afrit- unarstöðvar/gagnaþjóna sem njóta sífellt meiri hylli, því þó það séu ekki eiginlegar tölv- ur þá eru það verðmæti og því eftirsókn- arverðar í augum hvinnskra. Einfaldasta leiðin til að vernda minning- arnar fyrir þjófum og rafeindadyntum er svo hálf gamaldags í sjálfu sér; að prenta mynd- irnar út á myndapappír. Það mætti til að mynda gera með því að senda þær yfir netið eða fara með þær á minniskorti eða geisla- diski í Hans Petersen, Ljósmyndavörur, BT eða álíka fyrirtæki og kaupa framköllun. Svo getur maður líka prentað þær út sjálfur á ljósmyndapappír með þar til gerðum prent- urum, meira að segja í hefðbundinni fjöl- skyldumyndastærð – 15x10 sentimetrar. Myndirnar má síðan setja í myndaalbúm og þá er líklegt að enginn þjófur líti við þeim, aukinheldur sem þær glatast ekki þó harði diskurinn hrynji eða einhver sé of duglegur að hreinsa til í tölvunni. arnim@mbl.is Hvað varð um minningarnar? Morgunblaðið/ÞÖK Minningastuldur Þjófar taka gjarnan með sér veraldleg verðmæti eins og sjónvarp, hljómtæki og tölvur og þegar fjölskyldualbúmið er bara til á stafrænu formi er hætta á að það hverfi líka. Hvað myndirðu gera ef ein- hver brytist inn til þín og stæli myndaalbúmi fjölskyldunnar? Þetta kann að hljóma ótrú- lega í fyrstu, en eins og Árni Matthíasson bendir á þá er það ekki svo fjarstæðukennt nú þegar allar minningar eru stafrænar. Þegar heimilismyndirnar eru aðeins til í tölvunni þarf ekki mikið útaf að bera til að þær glatist Það var skemmtilegur andi á borgarafundi í Ketilhúsinu í fyrrakvöld sem stuttlega var sagt frá á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Á fundinum veltu menn vöngum yfir því hvernig best væri að standa að hinum ýmsu viðburðum sem fram fara hér í höfuðstað Norðurlands. Hátt í 100 manns mættu.    Skiljanlega var mest rætt um verslunar- mannahelgina og flestir sammála um að breyta þyrfti umgjörðinni um þá samkomu; breyta hugmyndafræðinni. Einn fund- armanna, Sigurður Jónsson, hreif aðra með sér þegar hann lýsti eigin sýn á menning- arlega verslunarmannahelgi: Ríkulega skreyttur bær, kyrrlátar skemmtanir; karni- valstemning.    Og alls ekki að flytja inn mestu stuð- hljómsveitirnar, sagði Sigurður. Hann segir meirihluta ungs fólks dagfarsprúðan og ynd- islegan en einhverra hluta vegna yrðu margir hreinlega vitlausir á útihátíðum – enda stemn- ingin oft byggð upp til þess. „Eru ekki allir í stuði?“ kallað af hljómsveitarpallinum og svo allt sett í botn! Ekki hávaða og æsing, segir Sigurður og bætti við: Það má vera klassísk músík, en ekki endilega. Líka er til þungarokk sem er mjúkt, sagði hann.    Einn fundarmanna lagði til að Akureyri gerð- ist höfuðstaður kaþólskrar trúar á Íslandi og hér yrði haldin þriggja daga kjötkveðjuhátíð árlega eins og víða tíðkast, á bolludegi, sprengidegi og öskudegi.    Fram kom hugmynd um að halda „íslenska daga“ á Akureyri í febrúar. „Það er lítið um að vera hér í febrúar. Og ég hef áhyggjur af lýð- ræðinu og framtíð þjóðarinnar. Bankamenn vilja tala ensku og menntamenn koma ekki í viðtal nema sletta ensku. Það eru helst óbreyttar verkakonur sem tala íslensku sem skilst,“ sagði Baldvin H. Sigurðsson bæj- arfulltrúi, sem kom með hugmyndina. Hann vill bjóða upp á þjóðlegan mat, sýna Skugga- Svein og Fjalla-Eyvind, fara söguferðir um Eyjafjörð svo dæmi séu nefnd.    Hljómsveitin Echoes hélt tónleika til heiðurs Pink Floyd á Græna hattinum um síðustu helgi og tókst svo vel til að ákveðið var að end- urtaka leikinn á föstudagskvöldið. Þá leikur sveitin lög af plötunum Dark side of the Moon, Wish you were here og The Wall. Tónleikarnir hefjast kl. 22.    Áhugaverður fyrirlestur er í málstofu heil- brigðisdeildar Háskólans á Akureyri í dag. Þar mun Sólveig Ása Árnadóttir, sjúkraþjálf- ari og lektor við HA, kynna niðurstöður rann- sóknar frá 2004 á líkamsvirkni eldra fólks á Norðurlandi en horft var til hreyfingar og lík- amlegrar virkni í tómstundum, við heim- ilisstörf og vinnu utan heimilis. Áhersla var lögð á að skoða hvernig líkamsvirkni tengdist kyni, aldri og búsetu í dreifbýli annarsvegar og þéttbýli hinsvegar. Málstofan verður í stofu L201 á Sólborg kl. 12.10-12.55 og eru allir vel- komnir. Árvakur/Skapti Hallgrímsson Gott mál Frá fundinum í Ketilhúsinu. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson úr bæjarlífinu Magnús Jónsson, Bröttuhlíð í Fáskrúðsfirði,orti þegar hann átti leið framhjá álveri Alcoa á Hólmabyggðinni í Reyðarfirði „þar sem umhverfið var áður fagurt og vinalegt“: Verður mér um tungu tregt, tel það einu gegna því varla mun hér lífvænlegt létta málmsins vegna. Davíð Hjálmar Haraldsson heyrði fréttir af fannferginu í og við Grindavík: Fannalögin Grindvíkingum gaf Guð – hann fór þar jafnvel yfir strikið og svo varð þar af snjónum magnið mikið að malbikið fór næstum því á kaf. Hreiðar Karlsson mælir: „Jamm, þetta er stórbrotið“: Gleðja börnin í Grindavík gríðarvoldugir skaflar. Ófærðin talin engu lík og aldregi hefur sést þar slík. Niður á bryggjum eru þó auðir kaflar. Þó svo að bjáti eitthvað á, er þetta í rauninni góð frétt. Þvílíka skafla er sjón að sjá, sveitarstjórn fór og mældi þá, hvort sem hún mátaði lárétt – ellegar lóðrétt. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af kjölfari og sköflum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.