Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta nýja snið á utanríkisráðherra uniforminu, ásamt ríkisfánanum hylur nánast alveg
mannréttinda-kryppuna, Solla mín.
VEÐUR
Það var virkilega ánægjulegt aðhlusta á formann þingflokks
Samfylkingarinnar, Lúðvík Berg-
vinsson, á Alþingi í gær, þegar
hann var að lýsa hinu „hreinskiptna
og opna“ samstarfi á milli stjórn-
arflokkanna. Af ræðu Lúðvíks
mátti ráða að þingmenn hefðu tekið
út skjótan þroska eftir að rík-
isstjórnin var mynduð.
Þingmennstjórnar-
flokkanna eru nú
umburðarlyndari
gagnvart hver
öðrum en áður
hefur tíðkazt og
líta á það sem
„heilbrigðisvott-
orð“, þegar þeir
reka rýtinginn í
bakið á sam-
starfsaðilanum.
Árni M. Mathiesen, settur dóms-málaráðherra við veitingu á
embætti héraðsdómara, hefur nú
fengið tvær slíkar vinarkveðjur í
bakið, bæði frá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur og Lúðvík Berg-
vinssyni. Og er áreiðanlega mjög
þakklátur fyrir vinsemdina.
Úr því að þingmenn Samfylking-arinnar hafa náð þessu þroska-
stigi má gera ráð fyrir að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins keppist um að
ná því líka.
Þeir fara vafalaust að gera at-hugasemdir við það að Össur
Skarphéðinsson geri gamlan félaga
sinn úr Alþýðubandalaginu að
orkumálastjóra. Þeim er trúandi til
að gera athugasemdir við friðsæld-
ina í umhverfisráðuneytinu. Þeir
eru líklegir til að hafa skoðun á alls
kyns yfirlýsingum um viðskiptalífið
sem streyma frá viðskiptaráðherr-
anum og lýsa djúpstæðri þekkingu
hans á því.
Heilbrigðisvottorðið þarf að end-urnýja reglulega.
STAKSTEINAR
Lúðvík
Bergvinsson
Heilbrigðisvottorðið
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC !!!
!! "#
$
%
$&"'
(
)
$
& "
*!
$$B *!
" # $ ! !# !% & '&
<2
<! <2
<! <2
"$ !( )*!+&,
D2
E
*
*
"+
# ", "
/
$
$
-
.
"
/
.
<7
*
"'
0
-.! !&// &! !0% & &!( )
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Kristinn Pétursson | 15. janúar
Þegar þorskurinn át
upp rækjustofninn …
Samdráttur í frum-
vinnslu á landsbyggð-
inni – er grafalvarlegt
mál – bæði fyrir lands-
byggðina – og höf-
uðborgarsvæðið. Allt er
þetta samofið – og
keðjuverkun verður – þegar frum-
vinnsla dregur saman starfsemi sína.
Víkjum nú 10 ár aftur í tímann – árið
1998. Þorskárgangurinn 1993 hafði
mælst mælst gífurlega sterkur og …
Meira: kristinnp.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 16. janúar
Sorgleg örlög
ungstjörnunnar
Brad Renfro
Leikarinn Brad Renfro,
sem nú er látinn langt
um aldur fram, aðeins
25 ára gamall, var eitt
ungstirnanna í leik-
bransanum sem reis
upp úr fjöldanum, náði
athygli kvikmyndaáhorfenda með frá-
bærri leiktúlkun í stjörnurullu og naut
vinsælda en féll síðar í duftið, lenti í
viðjum óreglunnar; eiturlyfja-
og … Meira: stebbifr.blog.is
Davíð Logi Sigurðsson | 16. janúar
Annasamir dagar
Það er auðvelt að sjá
hvers vegna Beirút hefur
verið líkt við París. Húsin
og strætin minna um
margt á franskar götur
og franskar borgir. Eða
gerðu í eina tíð. Því mið-
ur er enn mikið um tómar byggingar,
ónothæfar, ónýtar og niðurníddar eftir
hin ýmsu stríð sem hér hafa geisað;
mest auðvitað frá því í borgarastríðinu
1975-1990. Þetta gæti verið afar fal-
leg borg, með Miðjarðarhafið í bak-
grunninum og fallega ...
Meira: davidlogi.blog.is
Ómar Ragnarsson | 16. janúar
Heildarhlýnunin
marktækust
Þeir sem andmæla því
að gróðurhúsaáhrif valdi
hlýnun á jörðinni eru
fljótir að grípa einstakar
fréttir um kulda hér og
kulda þar, kuldamet
o.s.frv. En þá ber þess
að gæta að í öllum athugunum vísinda-
manna hefur komið fram að heild-
arhlýnun geti leitt til kólnunar á afmörk-
uðum svæðum. Gríðarlegur gangur
heitra lægða norður eftir N-Atlantshafi
undanfarna mánuði hefur fært norður-
héruðum Skandinavíu rigningar og hlý-
indi og borið mikinn raka yfir Bretlands-
eyjar og norðanvert meginland Evrópu.
Þetta viðvarandi djúpa og víð-
áttumikla lægðakerfi hefur hins vegar
valdið því að stöðugir kaldir straumar
hafa komið úr norðri og farið suður
með vesturströnd Grænlands.
Ég hef áður tekið sem dæmi að oft
valda mestu hlýindin á Barðaströnd því
að sumarlagi, að hlýtt loft stígur upp af
ströndinni og í staðinn leggur svalt loft
af Grænlandshafi inn firðina í Vest-
urbyggð svo að þessir miklu góðviðr-
isdagar á Barðaströnd færa íbúum
Vesturbyggðar hrollkalda innlögn eins
og hún er kölluð vestra.
Og því hlýrra sem er á Barðaströnd-
inni, því ákafari verður þessi kaldi
strekkingur inn firðina og kemur fyrr á
morgnana en ella.
Fyrir tíu árum höfðu vísindamenn
áhyggjur af því að hringekja haf-
strauma sem liggur um Atlantshaf og
Indlandshaf kynni að truflast ef of mik-
ið af ís bráðnaði á skömmum tíma í Ís-
hafinu. Það gæti jafnvel valdið breyt-
ingu í öfuga átt, mikilli kólnun á
Norður-Atlantshafi.
Mjög erfitt hefur verið að sanna slík-
ar kenningar um svona flókið fyrirbæri.
Hitt virðast menn vera nokkuð sam-
mála um að of hraðar breytingar á hita
lofthjúpsins geti valdið ófyrirsjáan-
legum sveiflum á mismunandi svæð-
um. Þess vegna eigi mannkynið ekki
að rugga bátnum of harkalega heldur
að fara að öllu með gát.
Aðeins með því að taka meðalhit-
ann á allri jörðinni yfir lengra tímabil en
nokkur ár er hægt að sjá hvort um hlýn-
un lofthjúpsins sé að ræða. Ef sú er
raunin segja kuldar hér og þar okkur
ekkert annað en það að hraðar heild-
arbreytingar geta haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar og því eigi að forðast þær.
Meira: omarragnarsson.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
LISTAHÁSKÓLI Íslands og Samson
Properties ehf. í samstarfi við Arki-
tektafélags Íslands og menntamála-
ráðuneyti hafa boðið til samkeppni
um hönnun Listaháskóla Íslands í
miðborg Reykjavíkur. Markmið
samkeppninnar er að fá fram tillög-
ur sem verði grundvöllur að hönnun
bygginga sem hýsa munu alla starf-
semi skólans frá haustinu 2011.
Keppnislýsing hefur verið birt og er
aðgengileg á vefslóðinni www.ai.is.
Um þriðjungur húsnæðisins verð-
ur opinn almenningi og er að því
stefnt að skólinn glæði miðborgina
auknu lífi með fjölbreytilegu menn-
ingarframlagi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Samkeppnin er byggð á sam-
komulagi sem gert var um mitt ár
2007 milli Listaháskóla Íslands,
Reykjavíkurborgar og mennta-
málaráðuneytis, en á grundvelli
þess hefur verið gerður samningur
við fasteignafélagið Samson Pro-
perties ehf. um hönnun og byggingu
skólans að samkeppninni lokinni.
Hönnunarsamkeppnin er tveggja
þrepa framkvæmdakeppni og er
fyrra þrep öllum opið til þátttöku.
Skilafrestur tillagna í fyrra þrepi er
17. mars 2008. Að loknu fyrra þrepi
verða valdar allt að fimm tillögur til
áframhaldandi þróunar í síðara
þrepi.
Móti hugmyndir um eldri hús
Keppnissvæðið tekur til hluta
tveggja húsareita í miðbæ Reykja-
víkur: eystri hluta Frakkastígsreits
(nr. 1.172.1) og efri (syðri) hluta
Hverfisgötureits (nr. 1.152.5). Lóðir
og fasteignir innan svæðisins eru í
eigu Samson Properties. Megin-
hluta starfsemi Listaháskóla Ís-
lands er ætlaður staður á Frakka-
stígsreit en á Hverfisgötureit er
svigrúm til stækkunar skólans.
Á þeim hluta Frakkastígsreits
sem liggur að Laugavegi eru þrjú
eldri hús: Laugavegur 41, 43 og 45.
Húsafriðunarnefnd hefur samþykkt
að leggja til friðun hússins á Lauga-
vegi 41. Keppendum er falið að
móta hugmyndir um framtíð
húsanna með tilliti til aðlögunar
bygginga að borgarmyndinni og
þarfa skólans.
Formaður dómnefndar hönnun-
arsamkeppninnar er Hjálmar H.
Ragnarsson, rektor Listaháskóla Ís-
lands.
Samkeppni um hús
Listaháskólans
Þriðjungur húsnæðis opinn almenningi